Fréttablaðið - 21.09.2021, Side 28
Fjöldi Svansvottaðra bygginga
hefur þrefaldast á Norðurlöndun-
um síðustu þrjú ár, að því er segir
á heimasíðu Svansins. „Á Norður-
löndunum eru nú hátt í 50.000
Svansvottaðar íbúðir, einbýlishús
eða skólar sem eru annað hvort
tilbúin eða í byggingu. „Svans-
vottaðar byggingar njóta aukinna
vinsælda á Norðurlöndunum og á
Íslandi. Í dag eru um 18.000 Svans-
vottaðar byggingar á Norðurlönd-
unum og um 31.000 til viðbótar í
byggingu. Á Íslandi hefur mála-
flokkurinn líka stækkað mjög
hratt síðustu misseri og mörg stór
verkefni í farvatninu.“
Á heimasíðu Umhverfisstofn-
unar segir að með Svansvottuðu
húsnæði sé unnið markvisst að
því að minnka umhverfisáhrif í
byggingargeiranum. Í vistvænum
húsum er krafa um lága orku-
notkun og rík áhersla á örugg og
umhverfisvæn byggingarefni.
Meginmarkmið Svansvottunar
er að draga úr umhverfisáhrifum
bygginga, sporna við hnattrænni
hlýnun og vernda heilsu þeirra
sem koma að verkinu á fram-
kvæmdatíma sem og þeirra sem
nota bygginguna eftir að hún er
tekin í notkun. Kröfurnar ná einn-
ig til gæðastjórnunar á verkstað, en
skýr stýring á umhverfisþáttum og
gæðastjórnun helst oft í hendur. n
Hvað er hægt að votta
n Einbýli, par-, rað- og fjölbýlishús
n Leik- og grunnskólabyggingar
n Þjónustuíbúðir
n Sumarbústaði
Aukinn áhugi á vistvænum húsum
Falleg vistvæn
hús hafa risið
í Urriðaholti í
Garðabæ.
Hér stendur yurt eitt við Chatyr Kul
í Than Shan-fjöllunum í Kirgistan.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Fyrstu einingahús mannkyns-
sögunnar má hæglega rekja aftur
til hefðbundinna tjaldhýsa líkt og
þeirra sem Inúítar og hirðingja-
þjóðir í Mið-Asíu reistu til forna.
Yurt-tjaldhýsin eiga uppruna
sinn að rekja til Mið-Asíu og enn í
dag býr stór hluti Mongóla í yurt.
Húsin kallast ger á mongólsku, sem
merkir heima eða heimili, en yurt
á rússnesku.
Yurt-tjaldhýsin eru hringlaga
með keilulaga þaki. Þau voru oftast
úr efnum úr umhverfinu. Í hefð-
bundnum yurt-húsum saman-
standa veggirnir af nokkrum
einingum sem er raðað saman í
hring. Í hverri einingu er viðar- eða
bambuslengjum raðað saman í
tíglamynstur. Veggeiningarnar
kallast khana og má draga saman
eins og harmonikku ef þarf að
flytja húsið. Þá tekur allt frá 30
mínútum upp í þrjá klukkutíma
að setja upp yurt. Hringlaga form
gerir húsin þolin fyrir vindi og
lagið gerir þau einföld að hita
upp eða kæla eftir þörfum. Þak-
toppurinn er oftast opinn eða með
glugga til þess að beina ljósi inn í
bygginguna. Svo voru húsin oftast
sveipuð þæfðu ullarefni af kindum
eða geitum. Í hefðbundnum yurt-
húsum er oft viðararinn í miðjunni
og strompur stendur upp úr miðju
þakinu.
Fyrstu rituðu heimildir um þessi
sérkennilegu færanlegu hús komu
frá gríska sagnfræðingnum Heród-
ótusi. Lýsing hans á tjaldhýsum
Skýþa minna þannig á yurt-húsin
í dag. Skýþar voru hirðingjaþjóð
sem hélt til norðan við Svartahaf
og í Mið-Asíu frá 600 f.kr.-300 e.kr.
Árið 1978 varð bandaríska
fyrirtækið Pacific Yurts fyrst til
þess að framleiða yurt-byggingar
með nútímaaðferðum og þykkum
tauefnum. Fyrirtækið ruddi
leiðina fyrir vinsældir yurt-húsa
sem gististaða á skíðasvæðum og
tjaldstæðum. Yurt-tjaldhúsin hafa
verið að ryðja sér til rúms upp á
síðkastið og eru nú vinsæl víða í
Bandaríkjunum og Kanada. n
Ævagömul
einingahús
Hér má sjá inn í yurt í Kasakstan.
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVARAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
vfs.is
ALVÖRU
VERKFÆRI
190
EITT RAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI
8 kynningarblað 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGUREININGAHÚS