Morgunblaðið - 31.05.2021, Qupperneq 1
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Hátt í þrjátíu farþegaflugvélar lentu
á Keflavíkurflugvelli um helgina og
var þetta ein annasamasta helgi frá
upphafi heimsfaraldursins á vellin-
um.
„Þetta hefur gengið mjög vel fyrir
sig en þegar fjöldinn er svona mikill
þá lengist aðeins biðtíminn hjá far-
þegum til að komast í gegnum vott-
orðaskoðun og sýnatöku. Það má
segja að þetta hafi verið annasam-
asta helgi frá því faraldurinn byrj-
aði,“ segir Arngrímur Guðmunds-
son, aðstoðaryfirlögregluþjónn í
flugstöðvardeild lögreglunnar á Suð-
urnesjum.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá
þessa fjölgun farþega á flugvellinum
og hefur verið mjög gleðilegt að
fylgjast með því síðustu daga,“ segir
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi
Isavia. Hann talar um bjarta tíma
fram undan á Keflavíkurflugvelli og
að spár geri ráð fyrir að allt að tutt-
ugu flugfélög muni vera með starf-
semi á vellinum í sumar.
Gefa í á öllum vígstöðvum
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins,
segir að allt hafi gengið vel í sýnatök-
um og vottorðaskoðun á vellinum um
helgina. Heilsugæslan hafi bætt í á
öllum vígstöðvum, búið sé að bæta
við aðstöðuna á flugvellinum og nú sé
verið að þjálfa upp nýtt starfsfólk.
Alls eru nú 17 borð í komusalnum
þar sem vottorð eru lesin. Búið er að
færa sýnatökuna út á bílaplan í gáma
og þar eru 24 básar fyrir sýnatöku.
Ekki er búið að mæla afkastagetuna
á hverjum klukkutíma en Ragnheið-
ur segir að hún ætti að verða tölu-
vert meiri eftir breytingarnar.
„Það er þó ljóst að þegar margar
vélar koma á sama tíma, eins og síð-
degis, þá lengjast raðirnar,“ segir
Ragnheiður. Fólk sé líka komið með
farangurinn í hendurnar þegar það
er komið út í sýnatökuna og því get-
ur hún tekið aðeins lengri tíma.
Handahófskennd boðun hefst
Þessu fyrirkomulagi verður haldið
þangað til Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir tekur ákvörðun um
annað. Allir sem koma til landsins
þurfa að fara í sýnatöku, sama þótt
þeir sýni fram á vottorð um bólu-
setningu eða fyrra smit.
Ragnheiður segir að eins sé verið
að bæta við starfsfólki á Suðurlands-
braut, þar sem farþegar fara í seinni
sýnatöku eftir sóttkví. Reynslan nú
um helgina hafi sýnt að afkastagetan
þurfi að vera meiri.
Frá og með deginum í dag, 31.
maí, fellur brott regla sem skyldar
fólk frá skilgreindum hááhættu-
svæðum til að dvelja í sóttvarnahúsi
meðan á sóttkví stendur. Hér eftir
þurfa aðeins þau að dvelja í sótt-
varnahúsi, sem ekki hafa aðstöðu til
að vera í heimasóttkví.
Handahófskennd boðun í bólu-
setningar mun hefjast hjá Heilsu-
gæslunni á höfuðborgarsvæðinu í
vikunni þegar búið verður að tæma
forgangslista.
Mestu annir frá upphafi faraldurs
- Hátt í þrjátíu farþegavélar komu til landsins um helgina - Allt að tuttugu flugfélög með starfsemi á
Keflavíkurflugvelli í sumar - Starfsfólki fjölgað verulega í sýnatöku á vellinum og Suðurlandsbraut
MDregið handahófskennt … »2
M Á N U D A G U R 3 1. M A Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 126. tölublað . 109. árgangur .
Bókaðu borgarferð í haust og byrjaðu að telja niður dagana.
NÝ BÓKABÚÐ
SPRETTUR UPP
Á LAUGAVEGI
NETANJAHÚ
RIÐAR
TIL FALLS
SKORUÐU MARK
GEGN MEXÍKÓ
EN ÞAÐ DUGÐI EKKI
ÍSRAEL 16 LANDSLEIKUR 26ARI GÍSLI 4
Minning Páls Ólafssonar skálds var heiðruð í Hólavalla-
garði í gær í fjölmennri athöfn. Leiði Páls og konu hans,
Ragnhildar Björnsdóttur, hafði verið týnt í áratugi þeg-
ar það fannst í fyrra. Hér sést Hákon Óskarsson líffræð-
ingur heiðra skáldið með viskíi. Ágúst H. Bjarnason,
skipuleggjandi athafnarinnar, fylgist með. » 6
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Stórskáld
heiðrað með
viskídreitli
segir Tómas Þór. Faraldurinn hafi
leikið þar hlutverk.
Skurðlæknar látið af störfum
„Valaðgerðum var frestað mikið á
síðasta ári og við vorum meira og
minna að taka frekar bráðaaðgerðir í
forgang,“ segir hann og bætir við að
frestun aðgerða megi helst rekja til
þess að pláss vanti á gjörgæsludeild.
Þá þurfi einnig að takast á við af-
leiðingar þess að tveir hjartaskurð-
læknar hafi látið af störfum síðast-
liðið ár.
„Eftir þetta myndast ákveðið bil
þar sem er vöntun á hjartaskurð-
læknum. Við erum að vona að þeir
skili sér heim sem hafa lært úti. Það
breytir miklu fyrir litlar sérgreinar
að missa tvo færa lækna á stuttum
tíma. Það er eitthvað sem við höfum
þurft að bregðast við.“
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Þurft hefur að fresta skurðaðgerð-
um á Landspítalanum vegna mann-
eklu sem má meðal annars rekja til
styttingar vinnuvikunnar. Aðgerð-
um til leiðréttingar á holbrjósti hefur
helst verið frestað en slíkar ráðstaf-
anir hafa þá stafað af undirmönnun
og plássleysi á gjörgæsludeild.
Hjartaskurðlækna hefur skort síð-
astliðið ár og þeim fækkað úr fjórum
í tvo á Landspítalanum.
Þetta segja Karl Andersen, for-
stöðumaður hjarta- og æðaþjónustu
Landspítalans, og Tómas Þór Krist-
jánsson, yfirlæknir hjarta- og skurð-
lækninga á Landspítalanum. Einni
skurðstofu hefur að auki verið lokað
vegna mönnunarvanda.
„Það hefur verið ákveðin frestun á
vissum aðgerðum sem tengist þessu
en það er allt á réttri leið núna,“
Skurðaðgerðum
frestað á LSH
- Stytting vinnuviku á meðal ástæðna
MMannekla vegna styttingar ... »4