Morgunblaðið - 31.05.2021, Side 6

Morgunblaðið - 31.05.2021, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021 • Verð frá: 250.000 m/vsk. • Stærðir 3-600 persónueiningar • Ekkert rafmagn • Meira en 2ja þrepa hreinsun • Verð frá 510.000 m/vsk. • Stærðir 3-1500 persónueiningar • Rafræn vöktun (valkvæmt) • Getur hreinsað eColi allt að 99,9% INNIFALIÐ Í VERÐI ANAEROBIX HREINSIVIRKI með síu yfir 90% hreinsun ONE2CLEAN HREINSISTÖÐ allt að 99% hreinsun • Þægilegar í uppsetningu og lítið viðhald • Fyrir sumarhús, heilsárshús, hótel o.fl. • Engar siturlagnir – fyrirferðarlítil • Mikið pláss fyrir seyru • CE vottað • Uppfylla kröfur til hreinsunar á viðkvæmum svæðum t.d við Þingvallavatn • Afhending á verkstað innan 100km frá Reykjavík • Drengöng með gátlúgu sem tryggja að vökvi komist óhindrað út í jarðveg „Þetta er gríðarleg viðurkenning,“ segir Bergsveinn Birgisson, rithöf- undur og doktor í norrænum fræð- um frá Háskólanum í Bergen í Nor- egi, en Bergsveini veittust á föstudaginn fræðibókaverðlaun bóksala, Bokhandelens sakprosa- pris 2021, á Norsku bókmenntahá- tíðinni í Lillehammer, eða Norsk Litteraturfestival, sem er stærsta bókmenntahátíð Skandinavíu og einnig kennd við hina ástsælu norsku skáldkonu Sigrid Undset, Nóbelsverðlaunahafa í bók- menntum árið 1928. Verðlaunin veita Samtök norskra bóksala, Bokhandlerforeningen, og Samtök höfunda og þýðenda fag- bókmennta, eða Norsk faglitterær forfatter- og oversetterforening, en Bergsveini hlotnuðust verðlaunin fyrir bók sína Mannen fra midde- lalderen, Maðurinn frá miðöldum, sem fjallar um fyrsta sagnaritara Noregs sögu, Íslendinginn og hand- ritasafnarann Þormóð Torfason, sem Bergsveinn segir algjörlega gleymdan. Hlaut tæpa milljón króna Til að gera nánari grein fyrir verðlaununum og staðfæra þau ör- lítið segir Bergsveinn að væru þessi verðlaun veitt á Íslandi kæmu þau líkast til frá íslenskum bóksölum og Hagþenki, félagi höfunda fræðirita og kennslugagna. Milli átta og níu hundruð fræðirit koma út ár hvert í Noregi og vinnur dómnefnd verð- launanna að því að velja úr þeim potti höfund sem hlýtur verðlaunin, 50.000 norskar krónur, um 750.000 íslenskar. Ítarlegt viðtal við Berg- svein má finna á mbl.is. Ljósmynd/Tiril Broch Aakre Noregur Bergsveinn og Christin Kramprud, frá Félagi norskra bóksala. Hlaut verðlaun í flokki fræðirita - Bergsveinn verðlaunaður í Noregi Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Nýr bautasteinn á leiði Páls Ólafs- sonar skálds og Ragnhildar Björns- dóttur, konu hans, var afhjúpaður með viðhöfn í Hólavallagarði í gær. Tugir voru við athöfnina sem heppn- aðist afar vel þrátt fyrir leiðinda- veður, að sögn Heimis Janusarsonar umsjónarmanns. Áratugum saman var ekki vitað hvar hjónin höfðu verið grafin, en með hjálp nýjustu tækni fundust jarðneskar leifar þeirra í fyrra. Heimir útskýrir fyrir Morgun- blaðinu að Páll hafi verið grafinn í ferningslaga kistu og því færi ekki á milli mála, þegar kistan fyndist, hver í henni lægi. Við hlið þeirrar kistu liggur svo hefðbundnari kista, þar sem hvílir Ragnhildur Björnsdóttir. Tilefni til að fagna Ágúst H. Bjarnason er langafa- barn Jóns Ólafssonar, þingmanns og hálfbróður Páls. Hann stóð fyrir at- höfninni í gær og sagði við Morgun- blaðið að hann væri hæstánægður með hvernig til tókst. Áralangri leit að leiði þeirra hjóna væri nú lokið og því tilefni til fagnaðarstundar. „Ég er alinn upp við ljóð Páls og kann þau því flest, frá því ég var bara smástrákur. Þannig að hann er búinn að vera mér hjartakær í öll þessi ár, rúm sjötíu ár,“ segir Ágúst. Hann segir að um 50-60 manns hafi verið við athöfnina. „Það sýnir bara hvað hann hefur sterk ítök hjá fólki og hefur haft öll þessi ár með ljóðum sínum.“ Það kom í hlut Ásdísar Kalman, langafabarns Páls sjálfs, að afhjúpa nýja bautasteininn. Þá stýrðu Oddur Sigurðsson og Gunnar Guttormsson samsöng. Sungin voru kvæðin Lóan er komin, Hríslan og lækurinn og Sumarkveðja. Ágúst rakti svo ævi Páls í stuttu máli. Stórskáld og húmoristi Páll Ólafsson skáld fæddist 8. mars 1827 og ólst upp á Kolfreyju- stað í Fáskrúðsfirði, sonur Ólafs Indriðasonar, prests og skálds á Kolfreyjustað, og fyrri konu hans, Þórunnar Einarsdóttur húsfreyju. Páll stundaði heimanám hjá föður sínum og var við nám einn vetur hjá Sigurði Gunnarssyni í Vallanesi. Hann var umboðsmaður þjóðjarða í Múlaþingi og bóndi, lengst af á Hall- freðarstöðum en bjó auk þess á Eyj- ólfsstöðum í tvö ár og í Nesi. Hann var alþingismaður Norðmýlinga 1867, 1873 og 1874-75 er hann sagði af sér þingmennsku. Páll var glaðsinna glæsimenni, annálaður hestamaður og höfðingi heim að sækja. Hann var húmoristi og án efa eitt af öndvegisskáldum 19. aldar enda átti hann einstaklega létt með að yrkja: „Óðar en ég andann dreg, oft er vísan búin.“ Kviðlingar hans eru leiftrandi og leikandi léttir þar sem rím, stuðlar og höfuðstafir leggjast eins og af sjálfu sér á sína staði í tilgerðarlausu töluðu máli. Árið 1880 kvæntist Páll Ragnhildi, dóttur Björns Skúlasonar sem var áhugamaður um skáldskap eins og Páll og besti vinur hans. Ragnhildur var sextán árum yngri en Páll og voru þau byrjuð að draga sig saman þó nokkru áður en fyrri kona Páls lést. Til Ragnhildar orti Páll eldheit ástarljóð en mörg þeirra fundust fyrir rúmum þrjátíu árum. Páll lést á Þorláksmessu 1905. Skáldið sem orti um lóuna heiðrað - Nýr bautasteinn á leiði Páls Ólafssonar skálds var afhjúpaður í gær í Hólavallagarði - Leiðið hafði verið týnt áratugum saman - Jarðaður í ferningslaga kistu sem fannst með ratsjártækni Morgunblaðið/Sigurður Unnar Hólavallagarður Nýi bautasteinninn sem var afhjúpaður í gær á leiði Páls og konu hans. Morgunblaðið/Sigurður Unnar Aðdáendur Um og yfir 50 manns sóttu athöfnina og voru allir alsælir, þrátt fyrir leiðindaveður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.