Morgunblaðið - 31.05.2021, Page 7

Morgunblaðið - 31.05.2021, Page 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021 skatturinn@skatturinn.is Upplýsingaver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 Niðurstaða álagningar er nú aðgengileg á þjónustuvefnum skattur.is Barnabætur, sérstakur barnabótaauki, vaxtabætur og inneignir verða greiddar út 1. júní. Upplýsingar um greiðslustöðu veitir Skatturinn og sýslumenn utan höfuðborgarsvæðisins. Kærufresti lýkur 31. ágúst 2021. Álagningu skatta á einstaklinga er lokið skattur.is Sími 442 1414 vegna upplýsinga um álagningu. Sími 442 1000 vegna almennra fyrirspurna og innheimtu. Álfur brugghús hlaut um helgina silfur- verðlaun í alþjóðlegu bjórsamkeppninni Barcelona Beer Festival fyrir belgíska hvít- ölið Búálf. Er þetta fyrsta keppnin sem Álf- ur tekur þátt í utan landsteinanna en mörg hundruð brugghús tóku þátt í keppninni og tefldu fram um 1.700 bjórum. „Við erum í skýjunum yfir þessu. Álfur er ekki nema tveggja ára gamalt brugghús og það skemmtilega er að við erum að brugga úr íslenskum kartöflum,“ segir Haukur Scott Hjaltalin, einn stofnenda Álfs, í sam- tali við Morgunblaðið. Um er að ræða sam- vinnuverkefni við Þykkvabæ þar sem notuð er sterkja úr kartöflum, sem annars hefðu farið til spillis, og ger frá Belgíu. „Þetta er mun sjálfbærara en margur ann- ar bjór,“ segir hann. Seldur í ÁTVR frá árinu 2019 Besti bjórinn var valinn með svokallaðri blindri smökkun svo það var einungis bragð- ið sem skipti máli. Búálfur er belgískur hveitibjór og er jafnframt söluhæsti bjór Álfs. Hann hefur verið seldur í verslunum ÁTVR síðan í febrúar 2019 en til stendur að tvöfalda eða jafnvel þrefalda framleiðsluna að sögn Hauks. „Það góða við að hafa unnið er að þetta er staðfesting á því að þó við séum að gera eitthvað öðruvísi og nýtt, þá erum við að gera mjög góða hluti. Nú eru stór áform í gangi og ég er einmitt að fara að brugga þennan bjór á morgun [í dag]. Hann er að verða uppseldur,“ segir Haukur léttur í bragði. Ljósmynd/Aðsend Sigurvegari Haukur er ánægður með árang- urinn. Hveitibjórinn Búálfur bar sigur úr být- um í alþjóðlegri bjórsamkeppni í Barcelona. Búálfur fékk silfur í bjórkeppni - Belgíska hvítölið Búálfur fékk silfur á Bjórhátíðinni í Barcelona - Bruggað með belgísku geri og íslenskum kartöflum frá Þykkvabæ Alls hafa 215.828 Íslendingar sótt sína ferðagjöf en 31.265 látið það hjá líða. Ferðagjöf sem gefin var út síðasta vor rennur út á morgun. Sama dag verður hægt að sækja nýja ferðagjöf, sem gildir til og með 31. ágúst 2021, að fjárhæð 5.000 krónur. „Við lítum þetta jákvæðum aug- um og teljum að þetta hafi virkað sem hvatning fyrir fólk til að ferðast innanlands. Samt sáum við náttúrlega að það voru önnur fyrir- tæki en til var ætlast sem fengu hluta af þessari ferðagjöf,“ segir Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Flestir nýttu ferðagjöfina í Fly- over Iceland, fyrir samtals 48 millj- ónir. Næstflestir nýttu hana hjá Ol- íuverslun Íslands ehf., fyrir 35 milljónir, og þar á eftir á þjón- ustustöðvum N1, Íslandshótelum og KFC. Samtals voru leystar út ferða- gjafir að andvirði 47 milljóna hjá tveimur skyndibitastöðum, KFC og Pizza-Pizza ehf. Alls voru 26 milljónir leystar út hjá Bláa lóninu ehf., 25 milljónir hjá Flugleiðahótelum hf. (e. Icelandair Hotels), 24 milljónir hjá Flugfélagi Íslands og 17 milljónir hjá Tix miðasölu ehf. Alls hafa ferðagjafir verið sóttar að andvirði 287 milljóna króna. Mest sótt innan borgarinnar Flestir sóttu ferðagjafir á höfuð- borgarsvæðinu, fyrir 338 milljónir, næstflestir hjá landsdekkandi fyr- irtækjum (174 m.kr.) en þar á eftir kemur Suðurlandið þar sem ferða- gjafir voru nýttar fyrir 132 millj- ónir. Fæstir nýttu sér ferðagjöfina á hálendinu en þar voru leystar út ferðagjafir fyrir rétt rúmlega 200 þúsund krónur. „Það er mjög jákvætt að það hafi verið haldið áfram með ferðagjöfina og það er kannski rétt að hvetja fólk til að nýta hana hjá ferðaþjón- ustufyrirtækjum. Það er tilgang- urinn,“ segir Bjarnheiður. Mortunblaðið/Sisi Ferðagjöf Flestir nýttu hana í ferðahermi hjá Flyover Iceland. 31 þúsund nýttu ekki ferðagjöfina - Flestir nýttu ferðagjöfina í Flyover Iceland

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.