Morgunblaðið - 31.05.2021, Page 12

Morgunblaðið - 31.05.2021, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir 544 515 1 tímapantan ir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir ríkisstjórnarinnar ALLIR VINNA sem felur í sér endurgreiðslu á VSK af vinnulið einkabifreiða STUTT ● Gengi bitcoin og annarra rafmynta leitaði niður á við seinni hluta síðustu viku en rétti ögn úr kútnum á sunnudag. Eins og Morgunblaðið hefur fjallað um varð mikið verðhrun á rafmyntamarkaði eftir 12. maí og náði verð bæði bitcoin og ethereum botni í byrjun liðinnar viku. Raf- myntirnar styrktust framan af vikunni en tóku að veikjast á ný á fimmtudag. Samkvæmt gengisskráningu Coin- desk kostaði bitcoin 36.168 dali á sunnudagskvöld og ethereum 2.455 dali. Það sem af er þessu ári hefur verð bitcoin hækkað um tæplega 24% en - ethereum styrkst um 229%. ai@mbl.is Verð bitcoin sveiflast Uppátækjasamir áhugafjárfestar eru aftur komnir á kreik á banda- rískum hlutabréfamarkaði og tókst í liðinni viku að ýta hlutabréfaverði bandarísku kvikmyndahúsakeðj- unnar AMC upp um allt að 119%. Eru viðskiptin svipaðs eðlis og þegar hópur áhugafjárfesta, sem ráða ráðum sínum á spjallsvæðinu WallStreetBets á vefnum Reddit, tók höndum saman um það fyrr á árinu að ýta upp hlutabréfaverði tölvuleikjasalans GameStop með það fyrir augum að gera skortsöl- um grikk. AMC hefur verið skotmark skortsala enda hefur samkeppni streymisþjónusta við kvikmynda- hús farið vaxandi og rekstur fé- lagsins mjög erfiður í kórónuvei- rufaraldrinum. Þökk sé samræmdum aðgerðum áhugafjár- festa tók hlutabréfaverð AMC hins vegar kipp í lok janúar, aftur í mars og enn eina ferðina núna í maí. Kostar hluturinn í AMC nú um 25,6 dali og hefur ekki verið dýrari síðan í ársbyrjun 2017. Lægst fór hlutabréfaverð AMC ná- lægt 2 dölum í kringum síðustu áramót. Er áætlað að skortsalar hafi tapað um 1,3 milljörðum dala á verðhækkun síðustu viku en um 20% af öllum hlutabréfum AMC eru bundin í skortsölusamningum. MarketWatch bendir á að áhuga- fjárfestarnir séu að beina sjónum sínum að fleiri fyrirtækjum um þessar mundir. Þannig hafi hluta- bréfaverð GameStop hækkað um 49% í síðustu viku og hlutabréf gervi-kjötframleiðandans Beyond Meat hækkað um 32% á sama tíma. Það er ekki víst að uppátæki Reddit-fjárfestanna geti bjargað AMC frá erfiðum rekstrarvanda en fréttastofa CNBC bendir á að líkt og önnur kvikmyndahús hafi tekjur félagsins gufað upp í faraldrinum og aðsókn þurfi að vera með besta móti á komandi mánuðum ef á að takast að snúa rekstrinum við. Kvikmyndahúsakeðjan endaði síð- asta ársfjórðung með um það bil milljarð dala aflögu til að halda starfseminni gangandi og ætti það að duga félaginu út árið 2022 en erfitt verður að koma tekjuhliðinni í samt horf vegna fjöldatakmark- ana í kvikmyndahúsum og mögu- legrar tregðu almennings til að fara í bíó. Þá hafa streymisveit- urnar sótt í sig veðrið í faraldr- inum og þeim m.a. tekist að semja um að frumsýna nýjar kvikmyndir á sama tíma og kvikmyndahúsin. ai@mbl.is AFP Grallarar Kvikmyndahús AMC á Broadway. Skortsalar töpuðu 1,3 millj- örðum dala á hækkuninni sem Reddit-fjárfestar framkölluðu í síðustu viku. Brask og brall á bandarísk- um hlutabréfamarkaði - Kvikmyndahúsakeðjan AMC uppáhald fjárfesta á Reddit FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Greina má æ fleiri merki um verð- bólgu í hagkerfi Bandaríkjanna og hafa ákveðnir vöruflokkar hækkað mikið í verði á skömum tíma. Sem dæmi birti bandaríska stór- verslanakeðjan Costco ársfjórðungs- uppgjör á fimmtudag þar sem stjórn- endur félagsins beindu kastljósinu að þeim verðbólguþrýstingi sem fyrir- tækið stendur frammi fyrir. Benda þeir á að bara á undanförnum mánuði hafi t.d. verð á kjöti hækkað um 20% og hækkandi launa- og flutnings- kostnaður geri fyrirtækinu lífið leitt. Til að bæta gráu ofan á svart eiga sumir framleiðendur erfitt með að standa við gerðar pantanir, t.d. vegna áhrifa vonskuveðurs í ríkjunum næst Mexíkóflóa og vegna hækkandi hrá- vöruverðs. Bendir bókhald Costco til þess að verðbólga á ársgrundvelli hafi verið um 1-1,5% í mars en sé núna komin upp í 2,5-3,5%, að því er Wall Street Journal greinir frá. Á föstudag birti bandaríska við- skiptaráðuneytið nýjar tölur sem benda til 3,1% verðbólgu á ársgrund- velli til og með apríl síðastliðnum og er það, að sögn Reuters, ögn umfram spár markaðsgreinenda sem væntu þess að verðbólga myndi mælast 2,9%. Neytendur vænta dýrtíðar Þá bendir nýleg könnun Michigan- háskóla til þess að neytendur reikni með töluverðri verðbólgu á komandi mánuðum. Leiddi könnun háskólans í ljós að í maí bjóst hinn almenni neyt- andi við 4,6% verðbólgu og er það nokkru hærra en fyrir mánuði þegar sama úrtak spáði 3,4% verðbólgu. Gætu væntingar neytenda orðið til þess að þeir sýni meiri aðhaldssemi en ella þegar kemur að útgjöldum heimilanna. Er þó ekki heldur hægt að útiloka að væntingar um háa verð- bólgu hafi í staðinn þau áhrif að auka eftirspurn í ákveðnum vöruflokkum enda vilji fólk t.d. kaupa raftæki og bíla fyrr en seinna ef búast má við hækkandi verði eftir því sem líður á árið. Í því sambandi er rétt að nefna að í faraldrinum jókst sparifé banda- rískra heimila um 2.300 milljarða dala umfram það sem þau eiga sparað í meðalárferði og svo að kaupgeta Bandaríkjamanna ætti að vera prýði- leg um þessar mundir. Er því mögu- legt að ótti almennings við frekari verðhækkanir örvi eftirspurn til skemmri tíma og auki þannig verð- bólguþrýstinginn. Flýta jólapöntunum Þessu tengt hafa margar banda- rískar verslanir ákveðið að bæta við vörupantanir sínar til að reyna að tryggja nægilegt framboð yfir jóla- vertíðina. Vitnar FT í nýja könnun sem gerð var á vegum manntalsstofu Bandaríkjanna sem leiddi í ljós að í mars var birgðastaða smásöluversl- ana sem hlutfall af sölu með lægsta móti og hefur ekki mælst lægri síðan árið 1992. Lág birgðastaða þýðir að mjög lítið svigrúm er hjá seljendum til að bregðast við kippum í eftir- spurn. Er skýringin m.a. sú að að- fangakeðjur hafa átt erfitt með að að- lagast vaxandi eftirspurn og víða hafa myndast flöskuhálsar sem hægja á af- hendingu vara. Þannig hefur t.d. við- snúningstími gáma sem berast til Bandaríkjanna tvöfaldast á skömm- um tíma og má í dag reikna með að 50 dagar líði frá því gámur kemur í bandaríska höfn með erlendan varn- ing og þar til hann er sendur aftur úr landi. Er munurinn á framboði og eft- irspurn á flutningamarkaði slíkur að það kostar í dag um 4.000 til 5.000 dali að flytja gám frá Asíu til Bandaríkj- anna en kostaði um 1.500 dali á sama tíma árið 2019. Greinir FT frá að til að auka við svigrúmið og tryggja nægt vörufram- boð þegar jólaösin hefst hafi margir seljendur fært jólapantanir sínar fram um tvo mánuði en að neytendur megi engu að síður reikna með óvenju löngum afgreiðslutíma á gjöfum sem þeir panta fyrir næstu jól. Tollar íþyngja innlendum framleiðendum Eins og áður hefur verið bent á telja margir hagfræðingar að rausn- arlegar örvunaraðgerðir bandarískra stjórnvalda eigi stóran þátt í hækk- andi verðlagi. Þá hafa margir vinnu- veitendur þurft að grípa til þess ráðs að hækka laun eða veita ríflega ráðn- ingarbónusa til að fá fólk aftur til starfa eftir lokanir og uppsagnir á meðan kórónuveirufaraldurinn stóð hvað hæst. Spilar þar inn í að víða voru atvinnuleysisbætur hækkaðar og ekki mikill munur á að vera á bót- um og að vinna láglaunastörf. Eins er skóla- og leikskólastarf ekki komið í eðlilegt horf víða í Bandaríkjunum sem gerir foreldrum erfiðara fyrir að snúa aftur á vinnumarkaðinn. En inngrip stjórnvalda á hrávöru- markaði kunna líka að vera að hella olíu á verðbólgubálið. Þannig fjallaði Wall Street Journal um það á sunnu- dag að markaðsgreinendur, hagfræð- ingar og hagsmunaaðilar beini núna sjónum sínum í vaxandi mæli að áhrif- um verndartolla sem settir voru á í forsetatíð Donalds Trumps og eru enn í gildi. Eru tollar m.a. lagðir á inn- flutt timbur, stál og hálfleiðara og kemur það sér vel fyrir innlenda hrá- vöruframleiðendur en gerir aðföng annarra bandarískra framleiðenda dýrari. Í dag leggja bandarísk stjórn- völd 25% toll á innflutt stál og 10% toll á innflutt ál, og segir WSJ að í sumum tilvikum þurfi bandarískir framleið- endur að greiða um 40% hærra verð fyrir stálvörur en keppinautar þeirra í Evrópu. Verðbólga vestanhafs ekki á niðurleið - Bandarískur almenningur væntir enn meiri verðbólgu - Lág birgðastaða og flöskuhálsar í vöru- flutningum auka á vanda seljenda - Verndartollar Trumps eru enn í gildi og gera aðföng dýrari Vandi Gámaflutningaskip kemur til hafnar í Oakland í Kaliforníu. Teppur hafa myndast víða í flutningakerfum með tilheyrandi kostnaði og töfum. AFP Þrýstingur » Rekstrartölur Costco benda til 2,5-3,5% verðbólgu á árs- grundvelli í apríl. » Tölur viðskiptaráðuneytisins sýna 3,1% verðbólgu til og með apríl. » Neytendur spá 4,6% verð- bólgu í nýlegri könnun. » Viðvarandi flöskuhálsar í vöruflutningum hækka flutn- ingskostnað og hægja á fram- leiðslu. » Verndartollar sem Trump setti á gera aðföng banda- rískra framleiðenda dýrari. 31. maí 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.68 Sterlingspund 170.83 Kanadadalur 99.6 Dönsk króna 19.7 Norsk króna 14.395 Sænsk króna 14.471 Svissn. franki 133.67 Japanskt jen 1.0964 SDR 173.93 Evra 146.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.6107 Hrávöruverð Gull 1892.45 ($/únsa) Ál 2388.0 ($/tonn) LME Hráolía 69.69 ($/fatið) Brent

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.