Morgunblaðið - 31.05.2021, Síða 17

Morgunblaðið - 31.05.2021, Síða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021 Í nýlegri frétt RÚV kemur fram að óvissa ríki um afdrif frum- varps Katrínar Jak- obsdóttur um breyt- ingar á stjórnarskrá, sem hún lagði fram á vordögum. Umrætt frumvarp tekur að- allega á þremur þátt- um: 1. auðlindaákvæði, sem er beinlínis hættulegt þar sem það festir í sessi því sem næst gjaldfrjáls yfirráð útgerðaraðals- ins yfir fiskveiðiauðlindinni; 2. embættistíma forseta, sem engu máli skiptir; 3. íslenskri tungu, sem er vont þar sem það mismunar þeim Ís- lendingum sem ekki hafa íslensku að móðurmáli. Hverfum nú tæp fjögur ár aftur í tímann. Í stjórnarsáttmála nú- verandi ríkisstjórnar segir eft- irfarandi um stjórnarskrármál: „Ríkisstjórnin vill halda áfram heildarendurskoðun stjórnarskrár- innar í þverpólitísku samstarfi með aðkomu þjóðarinnar og nýta meðal annars til þess aðferðir al- menningssamráðs. Nefnd um mál- ið mun hefja störf í upphafi nýs þings og leggur ríkisstjórnin áherslu á að samstaða náist um feril vinn- unnar.“ Það er skemmst frá því að segja að sam- staða náðist um „feril vinnunnar“ eins og það er orðað. Um- rædd nefnd, sem sam- anstóð af fulltrúum allra þingflokka, hefur verið að störfum en engin niðurstaða hef- ur fengist, enda var engin sam- staða um niðurstöðu, einungis um „feril vinnunnar“. Fjölmargir bentu á það í upp- hafi, þ. á m. undirritaður, að þarna væri um blekkingarleik rík- isstjórnarinnar að ræða, ekki stæði til að breyta einu eða neinu í stjórnarskránni. Bent var á að þarna væri um að ræða þrjá íhaldsflokka, sem stefndu í raun að sama markmiði, að halda hlut- um í sama horfi. Þessar ábend- ingar fengu svo byr undir báða vængi þegar Unnur Brá Konráðs- dóttir, einarður andstæðingur stjórnarskrárbreytinga, var gerð að verkefnisstjóra stjórnarskrár- endurskoðunar. Nú lítur sem sagt út fyrir að þetta frumvarp Katrínar, sem hún leggur fram sem þingkona, enda ekki um stjórnarfrumvarp að ræða, dagi uppi, sem betur fer. Hún vissi það upp á hár að enginn vilji væri hjá samstarfsflokkum VG í ríkisstjórn til að breyta einu eða neinu í stjórnarskrármálinu. Hún vissi það í upphafi stjórnar- samstarfsins, rétt eins og við öll, en kaus blekkingarleik og stígur nú lokaskrefið í þeim leik með um- ræddu frumvarpi. Þetta er allt einstaklega sorglegt í ljósi þess að við eigum frábærar tillögur að stjórnarskrá sem þjóðin sam- þykkti með afgerandi hætti í ráð- gefandi þjóðaratkvæðagreiðslu ár- ið 2012. Það þarf bara að pússa af þeim rykið. Stjórnarskrá Katrínar Jakobsdóttur Eftir Einar Aðalstein Brynjólfsson »Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra vissi mætavel að áhugi samstarfsflokkanna í ríkisstjórn á stjórnar- skrárumbótum væri enginn. Einar Aðalsteinn Brynjólfsson Höfundur er fyrrverandi þingmaður og oddviti Pírata í Norðaustur- kjördæmi við alþingiskosningar 25. september nk. einarbrynjolfs@piratar.is Sú nýlunda sem nú ríður flestum til fulls, bæði í stjórnmálum og viðskiptum, gengur undir heitinu „siðferð- islegt innbrot“ (e. ethi- cal hacking). Um er að ræða tölvuinnbrot af margvíslegu tagi og stunda slíkt sjálfskip- aðir dómarar sem ákvarða eigin mörk, rannsaka eigin mál, dæma í þeim sjálfir og ákvarða eigin refsingu sjálfir sem og engin er. Páll heitinn Skúlason, fv. heim- spekiprófessor, flutti fyrirlestra í Ríkisútvarpinu í október 1985 þar sem hann spurði hvort hægt væri að kenna gagnrýna hugsun. Þar segir hann m.a.: „Og hér er þeim sem vilja leggja upp úr skýrum og skilmerki- legum rökum hollt að minnast þess að röksemdir eru iðulega misnot- aðar í því skyni að réttlæta afstöðu eða skoðun sem ekki er reist á nein- um rökum. Í hversdagslífinu getum við fundið ótal heimildir um það hvernig menn beita rökum til þess að réttlæta málflutning á röngum forsendum eða til að breiða yfir hin- ar eiginlegu ástæður skoðana sinna, ákvarðana eða breytni.“ Við höfum sett okkur siðareglur, þ.e. lögin og reglurnar. Lög hvers lands standa ekki ein heldur er grunnstoðin sú að fólk fari að lögum sem í gildi eru hverju sinni. Geta ríki búið við hina fullkomnustu stjórn- arskrá en hvaða gildi hefur slík stjórnarskrá sé ekki farið eftir henni og þeirri sem í gildi er? Það erum við, borgararnir, sem setjum gildin og siðferðið í samfélaginu, lögin. Í dag eru innbrot tíðari á Íslandi en oftast áður. Sumir virðast sam- þykkja ákveðin innbrot, séu þau beint eða óbeint á vegum fréttamiðla eða ef afrakstur innbrots berst á borð þeirra. Dómstólar hafa jafnvel tekið undir slíkt innbrot náist í gögn sem gætu komið ríkisvaldinu vel. Má þar m.a. nefna innkaup á gögnum vegna skattalagabrota og brota gagnvart fólki af hverju tagi sem er. Hvaða skilaboð er verið að senda með slíkum innkaupum? Hugtakið „siðferðislegt innbrot“, ef svo má kalla, hefur tekið á sig víðtækari merkingu og enginn lengur óhultur fyrir slíku innbroti nema aðeins ef engin er myndavélin og engin net- tengingin, hvorki í síma né tölvu. Hver setur viðmiðið, hvað má? Árið 2001 var heimildamyndin „Lalli Johns“ frumsýnd. Þessi heim- ildamynd kvikmyndagerðarmanns- ins Þorfinns Guðnasonar er meist- arastykki og kom almenningi á Íslandi i tengingu við líf og erfiðleika brotamanna. Nú hefur komið fram að Lalli hefur leitast við að bæta ráð sitt og það er vel. Oft „þurfti“ hann að brjótast inn en átti það til að skila því sem hann sá eftir að hafa tekið ófrjálsri hendi. Lalli er breyskur, veit betur. Er svo um netglæpamenn og aðra „innflutta“ glæpahópa dags- ins í dag? Í samfélaginu okkar er fullfrískt og ódrukkið fólk farið að hafa tekjur af innbrotum í tölvur og annan bún- að almennings. Þær tekjur virðast m.a. berast frá fjölmiðlum sem stunda fjármögnun á slíkum brotum í því augnamiði að gæta að sínu „göfuga hlutverki“. Ríkisfjölmiðill virðist einnig hafa hag af slík- um innbrotum en þeir einu sem hafa lögform- lega heimild til „inn- brota“ er lögreglan gegn því að dóms- úrskurður um slíkt liggi fyrir. Þetta ætti út- varpsstjóri RÚV að vita. Er rannsókn- arblaðamennskan gengin langt út fyrir þjófabálk Jónsbókar? Þetta á við um fjölmiðla og aðra sem taka sér meira vald en þeim ber. Rétt er þó að geta þess að bæði ein- staklingar og fyrirtæki leitast við að stýra eigin áhættu og gangi ríkið, fjölmiðlar eða aðrir of langt eiga og mega bæði einstaklingar og fyrir- tæki bregðast við til varnar. Það er ekkert óeðlilegt við það. Það hafa allir rétt á að verja sig, sínar skoð- anir og sitt lífsviðurværi, þ.e. innan marka laganna. Ef einn rýfur lögin er ekki von á öðru en sá er þarf að verja sig beiti sömu meðölum. Hvert leiðir það okkur sem þjóð? Á Íslandi ríkir e.k. borgarastríð. Það virðist rekið áfram á nokkrum vígstöðvum. Fyrirtæki eru í dag, beint eða óbeint, að stýra áhættu sinni með fjármögnun á áhrifavöld- um, baráttu fyrir rándýrri og þung- lamalegri borgarlínu og sum þeirra verjast árásum frá ríkinu vegna hlerana, eltingaleiks og undirmála af fjölbreyttu tagi. Meðan á þessu stendur veður glæpahópafjöldi hér uppi og „bakpokadrengir“ selja ung- dómnum fíkniefni sem aldrei fyrr, veikja innviði samfélags okkar og draga úr samstöðu. Er það mark- miðið? Þessu ástandi svipar orðið mjög til þess sem tíðkaðist rétt fyrir hrun fjármálakerfisins. Grunnstoðir lög- reglu virðast svipaðar og sjá mátti hjá Fjármálaeftirlitinu, sem var til húsa fyrir ofan þriðja flokks skyndi- bitastað fyrir hrun. Ráðherra heil- brigðismála ræðst að læknum en laun sérfræðilækna hafa rýrnað svo í roðinu að hætta er á að ákveðnar starfsstéttir leiti annað. Sami ráð- herra lofar fötluðum en loforðum fylgja ekki fjármunir til sveitarfé- laga! Þetta virðist allt á heljarþröm. Núverandi ríkisstjórn skilar af sér afleitu búi þar sem óöld ríkir á flest- um vígstöðvum stjórnmálanna, sem virðast vera fremur vera ímynd- unarstjórnmál en raunveruleg stjórnmál. Komum okkur á jörðina og ráðumst að vandanum. Skerpum línurnar og komum á almennri vel- ferð, lögum og reglu. Stöndum vörð um persónuvernd og ábyrg stjórn- mál. Lærum gagnrýna hugsun. Eftir Sveinn Óskar Sigurðsson Sveinn Óskar Sigurðsson » Það erum við, borg- ararnir, sem setjum gildin og siðferðið í sam- félaginu, lögin. Höfundur er BA í heimspeki og hagfræði, MBA og MSc í fjármálum fyrirtækja og bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ. Hrun persónu- verndar og pólitíkurÉg er dýraníðingurog réttast væri að taka mig og gelda. Og þar að auki er ég ein- staklega leiðinlegur maður og biskup ætti að reka mig fyrir að leggja stóran hóp fólks í einelti. Eða senda mig í eitthvert afdala- brauð, þar sem hvorki er net- né síma- samband. Alla vega er þetta skoðun margra kattaeigenda á Facebook og víðar. Og ýmislegt fleira er þar sagt í líkum dúr. Forsaga málsins er sú, að 28. jan- úar síðastliðinn ritaði ég bréf til skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar og hvatti til að lausa- ganga katta yrði bönnuð í sveitarfé- laginu frá 1. maí til 15. júlí. Þetta er varptími fugla. Sumir eru reyndar byrjaðir löngu fyrr. Erindið var samþykkt. En bæjarstjórn guggn- aði – vegna utanaðkomandi þrýst- ings, er mér sagt. Barátta mín spurðist út um land- ið og kallaði m.a. fram ofannefnd viðbrögð, þ.m.t. yfirskrift þessa greinarkorns. Þegar ég tók vígslu, 16. júní 1985, og gekk í raðir presta þjóðkirkj- unnar, afsalaði ég mér engum mannréttindum. Ég missti ekki kosningaréttinn, ótrúlegt en satt, og hef ekki á kosningadögum sett X við alla lista sem í framboði eru hverju sinni, þótt mér hafi líkað við alla frambjóðendur. Ég hef tekið af- stöðu. Þar að auki er ég innfæddur Siglfirðingur og tel mig hafa leyfi til að tjá mig um málefni sem í Fjalla- byggð eru á baugi hverju sinni. Í þessu umrædda tilviki gerði ég það sem fuglavinur. Hins vegar er prestaspilinu gjarnan veifað, þegar ég á í hlut, og það var eins núna. Sennilega út af því, að í rökfæðinni er auðveldara að fara í manninn en boltann. Það er gömul og þekkt taktík. Og helst að reyna að gera jafnframt lítið úr honum. Sláandi tölur Þar sem kötturinn (Felis catus) er ekki náttúrulegur hluti af evr- ópsku fánunni hafa margir þar flokkað hann sem „a top-ranking invasive alien species“ – mjög svo ágenga, framandi dýrategund. Norðurþing, sem varð til við sameiningu Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Rauf- arhafnarhrepps og Öxarfjarðarhrepps ár- ið 2006, er eina sveit- arfélagið á Íslandi þar sem lausaganga katta er bönnuð. Mýs og rottur tóku samt ekki yfir, þótt hræðsluáróður kattaeig- enda gengi út á að slíkt myndi verða, ef bannið yrði staðfest. Ekki hefur verið gerð rannsókn á því, mér vitanlega, hversu marga fugla kettir, óskráðir og skráðir, tamdir eða villtir, drepa árlega hér á landi. En upplýsingar eru til að utan. Og þær eru sláandi. Þar kem- ur fram, að þeir eigi sök á útdauða tveggja skriðdýrategunda, 21 spen- dýrategundar og 40 fuglategunda og séu nú á tímum ógn við a.m.k. 367 tegundir í útrýmingarhættu. Heimiliskettir eru í þriðja sæti yfir þær framandi tegundir í vistkerfum jarðar sem hryggdýrum stafar mest hætta af. Í Kanada er talið að þeir drepi 100-350 milljónir fugla árlega, í Ástralíu 377 milljónir og að auki 649 milljónir skriðdýra, í Bandaríkj- unum 95-299 milljónir froskdýra, 258-822 milljónir skriðdýra, 1,3-4,0 milljarða fugla og 6,3-22,3 milljarða spendýra. Í rannsókn sem gerð var á afráni heimiliskatta á Bretlands- eyjum og stóð yfir í fimm mánuði var áætlað að þeir hefðu borið inn á heimili sín á þeim tíma fimm millj- ónir frosk- og skriðdýra, 27 millj- ónir fugla og 57 milljónir spendýra. Í Hollandi gaf ein rannsókn til kynna, að þar í landi dræpu kettir 141 milljón dýra árlega og heim- iliskettir þar af um 60% tölunnar. Í Finnlandi var talið, að lausagöngu- heimiliskettir dræpu eina milljón dýra í hverjum mánuði, og þar af a.m.k. 144 þúsund fugla. Í Póllandi voru kettir á sveitabæjum taldir ábyrgir fyrir dauða 136 milljóna fugla á ári og 583 milljóna spen- dýra. Í einni rannsókn í Svíþjóð var talið að heimiliskettir, sem voru 1,44 milljónir talsins árið 2017, dræpu 13,4 milljónir fugla á ári, í annarri var talan 16 milljónir og í hinni þriðju 17,5 milljónir. Og í Noregi er talið að séu 770 þúsund kettir og gert ráð fyrir að þeir drepi hver um sig a.m.k. tíu fugla á ári; það eru 7,7 milljónir. Villikettir drepa fleiri. Að meðaltali 25% heimila í Evr- ópu eiga a.m.k. einn kött, má lesa í skýrslu FEDIAF, samtaka evr- ópskra fóðurframleiðenda um árið 2019. Lægst er hlutfallið í Tyrk- landi, 10%, hæst í Rúmeníu, 47%. Í Danmörku er þetta hlutfall 26%, í Noregi 31%, í Svíþjóð 19% og Finn- landi 22%; meðaltalið er 24,5%. Ekki liggja fyrir tölur um Færeyjar og Ísland. Í Evrópu er fjöldi heim- iliskatta áætlaður um 106,5 millj- ónir, hunda 87,5 milljónir. Bandarískum fuglafræðingi var hótað lífláti eftir að hann ritaði bók um ágang kattanna þar í álfu og lagði fram hugmyndir um mótvæg- isaðgerðir. Heiftin var svo mikil. Og er. En þessa umræðu verður að taka, þar og hér og annars staðar, hvort sem fólki líkar það betur eða verr. Veiðieðlið segir kettinum að drepa, en við getum stýrt honum og lágmarkað þannig skaðann. Um það snýst málið. Hér mætti rifja upp, að í alþjóða- samþykkt um fuglavernd frá 1956, sem Bernarsamningurinn hefur að mestu tekið yfir, en hann var undir- ritaður 19. september 1979 og stað- festur hér á landi árið 1993, skuld- binda aðildarríkin sig m.a. til að veita villtum fuglum vernd á varp- tímanum. Er það gert? Ertu fáviti? Eftir Sigurð Ægisson »Hins vegar er prestaspilinu gjarn- an veifað, þegar ég á í hlut, og það var eins núna. Sennilega út af því, að í rökfæðinni er auðveldara að fara í manninn en boltann. Sigurður Ægisson Höfundur er Siglfirðingur. sae@sae.is Veistu um góðan rafvirkja? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.