Morgunblaðið - 31.05.2021, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur Húseigendafélagsins
Aðalfundur Húseigendafélagsins verður
haldinn miðvikudaginn 9. júní nk. í
fundarsal Garðyrkjufélagsins að
Síðumúla 1, Reykjavík og hefst hann
kl. 16.00.
Á dagskrá fundarins eru hefðbundin
aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins,
en með þeim afbrigðum að fundurinn tekur
til tveggja ára þ.e. 2020 og 2021, þar eð ekki
reyndist fært að halda aðalfund á síðasta ári
vegna samkomutakmarkana.
Stjórnin
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-14. Leikfimi með Hönnu kl. 10.
Opin vinnustofa kl. 9-12. Handavinna kl. 12-16. Hádegismatur kl.
11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir.
Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa: 411 2600.
FEBH Flatarhrauni Hfj Spilum félagsvist alla mánudaga kl. 13.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Ganga kl. 10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.
Handavinnuhornið kl. 13-14.30.Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30.
Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabæ Poolhópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl.
10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 10 og 11.
Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12.40. Zumba í Jónshúsi kl. 16.30.
Bridge í Jónshúsi kl. 13. Áfram skal gæta að handþvotti og
smitvörnum.
Gerðuberg Opin handavinnustofa frá kl. 8.30-16. Alltaf heitt á
könnunni. Blaðalestur og spjall. Línudans kl. 11-12 með Sólrúnu.
Glervinnustofa m/Einari leiðbeinanda frá kl. 13-16. Kári verður með
kórinn. Ath. uppselt er í ferðalagið okkar 10. júní.
Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 1. júní verður opið hús fyrir eldri
borgara í Grafarvogskirkju kl. 13-15.30. Í upphafi er söngstund inni í
kirkjunni. Boðið er upp á handavinnu, spil og spjall fyrir þau sem
vilja. Samverunni lýkur með kaffiveitingum. Umsjón hefur Sigrún
Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst í kirkjunni kl. 12. Að henni lokinni er
í boði léttur hádegisverður gegn vægu gjaldi.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Minningahópur kl. 10.30. Jóga með Ragnheið Ýr á
netinu kl. 11.15. Stólaleikfimi kl. 13.30. Gönguhópur – lengri ganga kl.
13.30.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 8.30 í Borgum með Ingibjörgu.
Útvarpsleikfimi í Borgum kl. 9.45. Gönguhópar Korpúlfa, ganga kl. 10
frá Borgum og frá Grafarvogskirkju. Sjúkraleikfimi með Elsu frá Hæfi
kl. 11 í Borgum. Prjónað til góðs í Borgum kl. 13 í dag í listasmiðju.
Allir hjartanlega velkomnir.
Seltjarnarnes Leir og gler í samráði við leiðbeinendur. Krossgátur
og kaffi í króknum fyrir hádegi. Jóga í salnum á Skólabraut kl. 11.
Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut. Á morgun kl.
13.30 verður farið í rútu frá Skólabraut á Klambratún og á kaffihúsið á
Kjarvalsstöðum. Mætum og njótum umhverfisins. Ferðin er fólki að
kostnaðarlausu, en borgar sjálft veitingar ef það vill. Allir velkomnir.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
EINN SÁ FLOTTASTI.
LAND ROVER Range Rover Sport
HSE P400e. Árgerð 2021, ekinn 2
Þ.KM, bensín/rafmagn, sjálfskiptur
8 gírar. Verð 15.950.000. Rnr.226381.
Seljandi skoðar skipti. Dráttarkrókur,
22" felgur. Hvítt leður. Panoramaþak.
Nánari upplýsingar veita
Höfðabílar ehf. í síma 577-4747
✝
Herdís Jóna
Hermanns-
dóttir fæddist á
Suðureyri við Súg-
andafjörð 24. júní
1949. Hún lést á
heimili sínu í Kópa-
vogi 30. apríl 2021.
Foreldrar hennar
voru Hermann
Guðmundsson,
stöðvarstjóri Pósts
og síma á Suður-
eyri, f. 12.6. 1917, d. 12.12. 2005,
og Þórdís Ólafsdóttir, f. 2.5.
1922, d. 2.7. 1982. Herdís Jóna
átti fjögur systkini: 1) Sólrún, f.
7.10. 1945, d. 4.10. 2020, 2)
Sveinbjörg, f. 25.12. 1946, d.
14.12. 2001, gift Hlöðveri Kjart-
anssyni, f. 16.8. 1948, 3) Guð-
mundur Óskar, f. 25.5. 1950,
Börn þeirra eru Ásgrímur Gísli,
f. 29.6. 2017, og Þórdís Agla, f.
4.3. 2019. 3) Axel Már Gíslason,
f. 3.9. 1983.
Herdís Jóna ólst upp á Suður-
eyri við Súgandafjörð og starf-
aði þar bæði í frystihúsinu og
hjá Pósti og síma á sumrin og
með skóla á unglingsárunum.
Hún leysti gjarnan föður sinn af
sem stöðvarstjóri Pósts og síma.
Herdís Jóna sótti nám í Hús-
stjórnarskólanum í Reykjavík
veturinn 1967-68. Hún starfaði á
Borgarspítalanum eitt ár og síð-
an sem gjaldkeri á Pósthúsinu
við Hlemm frá 1970 til 1976.
Herdís Jóna flutti til Þorláks-
hafnar 1976. Hún var að mestu
heimavinnandi í Þorlákshöfn og
sinnti heimili og börnum. Af og
til aðstoðaði hún vinkonu sína í
blómabúð þegar á þurfti að
halda og vann hún líka við að
bera út Morgunblaðið. Árið
2006 flutti hún í Kópavog og bjó
þar allt til dánardags.
Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
kvæntur Bryndísi
Einarsdóttur, f.
9.12. 1952, d. 20.6.
2016, og 4) Halldór
Karl, f. 6.12. 1958,
sambýliskona hans
er Guðrún Ólöf Sig-
urðardóttir, f. 24.7.
1956.
Herdís Jóna var
gift Gísla Vilhjálmi
Jónssyni, f. 2.2.
1950, börn þeirra
eru 1) Ingigerður Gísladóttir, f.
5.7. 1976, gift Njáli Jónssyni, f.
3.7. 1975. Börn þeirra eru Jón
Víðir, f. 23.04. 1998, Kolbrún
Eva, f. 16.10. 2007, og Herdís
Salóme, f. 24.9. 2009. 2) Her-
mann Þór Gíslason, f. 31.1. 1978,
unnusta hans er Jóhanna Þór-
unn Ásgrímsdóttir, f. 13.4. 1983.
Elsku mamma okkar.
Það er svo sárt að þurfa að
kveðja þig. Það eru engin orð
til sem geta lýst því hve mikið
við söknum þín.
Mamma
Ég minnist þín, ó móðir,
þó mér nú sértu fjær.
Þig annast englar góðir
og ungi vorsins blær.
Ég man þær mætu stundir,
er mig þú kysstir hlýtt,
sem vorsól grænar grundir,
og gerðir lífið blítt.
Í faðmi þínum fann ég,
þann frið, er bestan veit,
því það var allt, sem ann ég
þín ástin móður heit.
Þar huggun fann ég hæsta
frá hjarta’ er aldrei brást,
því konu gerir glæsta
hin göfga móðurást.
(Eva Hjálmarsdóttir)
Nú færðu hvíldina þína og
sameinast foreldrum þínum og
systrum.
Með miklum trega kveðjum
við þig elsku mamma okkar.
Minningarnar ylja og munum
við börnin þín, makar okkar og
barnabörn geyma vel þær
ánægjulegu stundir sem við átt-
um saman um ævina. Takk fyr-
ir að vera alltaf til staðar fyrir
okkur og vera kletturinn okkar.
Hvíl í friði og saknaðarkveðj-
ur,
Ingigerður, Hermann Þór
og Axel Már.
Herdís Jóna Hermannsdótt-
ir, Hedda systir, er dáin. Hún
lést á heimili sínu föstudags-
kvöldið 30. apríl sl. Hún fædd-
ist 24. júní 1949 á Suðureyri við
Súgandafjörð og ólst þar upp.
Dóttir hjónanna Hermanns
Guðmundssonar símstöðvar-
stjóra og Þórdísar Ólafsdóttur.
Nú sitjum við bræður eftir í
jarðríki og minnumst hennar,
þriðja systirin er fallin frá, svo
óvænt og þó ekki. Krabbamein
hefur herjað á hana svo óvægi-
lega að líffærin þoldu ekki
meira. Dauðinn er alltaf sorg-
legur, en Hedda var sú systr-
anna er næst stóð okkur að
aldri.
Hún átti fallegt líf, nærgæt-
in, hrein og bein í samskiptum
og góð við litlu bræður sína.
Það háttaði nefnilega svo til að
eldri systurnar, Sólrún og
Svenný, fluttu til Reykjavíkur
skömmu eftir Núpsskóla og því
vorum við þrjú heima með
pabba og mömmu. Hedda okkar
elst og ábyrgðarfyllst. Æsku-
dagarnir voru hver öðrum líkir
við leik og störf. Hedda fluttist
suður eftir 1970, einhleyp á eig-
in bíl sem hún keypti nýjan.
Þar tók við glaðværð með fullri
ábyrgð, hjónabandi, búferla-
flutningum til Þorlákshafnar og
barneignum. Hún gekk í hjóna-
band með Gísla Vilhjálmi Jóns-
syni skipstjóra frá Skipum í
Stokkseyrarhreppi og eignuð-
ust þau þrjú börn. Börnin eru
Ingigerður, Hermann Þór og
Axel Már.
Heimilið í Þorlákshöfn var
myndarlegt og notalegt að
sækja þau heim. Margskonar
samverustundir áttum við utan
þess, s.s útilegur á sumrum og
samverustundir af öllu tagi
endrum og sinnum. Hennar er
gott að minnast, góð systir.
Samúð okkar bræðra er hjá
afkomendum hennar og að-
standendum. Nú er þjáningum
sem veikindi skapa lokið.
Hedda systir, blessuð sé minn-
ing þín.
Guðmundur Óskar
Hermannsson Halldór Karl
Hermannsson og
fjölskyldur
Herdís Jóna
Hermannsdóttir
✝
Hilmar Þór-
arinsson fædd-
ist 19. apríl 1960 í
Reykjavík. Hann
lést á krabbameins-
deild Landspítalans
10. maí 2021.
Foreldrar Hilm-
ars voru Kristín
Sigfúsdóttir, f. 29.
mars 1934, d. 12.
janúar 2012, og
Þórarinn Guð-
mundsson, f. 25. apríl 1928.
Núverandi eiginkona Þór-
arins er Hulda S. Petersen, f. 9.
október 1941.
Systur Hilmars eru Edda R.,
f. 6. desember 1956, maki Jón
Ingi Guðmundsson, f. 22. júlí
1944, og Inga, f. 10. ágúst 1970,
maki Baldur Bragason f. 29.maí
1968.
Sonur Hilmars af fyrra
burana Einar Orra og Köru
Lind.
Hilmar ólst upp í Reykjavík,
hann gekk í Hvassaleitisskóla
og Fjölbrautaskólann við Ár-
múla. Hann æfði handbolta hjá
Val og spjótkast með ÍR og fór
í sund á hverjum degi. Haustið
1984 fór hann til Boulder í
Colorado til náms í sjúkranuddi
og útskrifaðist sem sjúkranudd-
ari. Þegar heim kom opnaði
hann nuddstofu á Lindargötu,
þar starfaði hann um árabil og
síðar hjá Mecca Spa og Heilsu-
garðinum í Garðabæ. Hilmar
hætti að nudda eftir slys sem
olli því m.a. að hann gat ekki
starfað við það fag áfram.
Í kringum 2003 hóf hann
störf í ferðageiranum sem leið-
sögumaður og fór að lokum í
leiðsögumannanám og útskrif-
aðist þaðan árið 2009. Hann
naut sín hvergi betur en úti í
náttúrunni því áhugi hans á
jarðfræði, sögu og náttúru Ís-
lands auk mikils áhuga á fugl-
um var ótæmandi.
Útför Hilmars fór fram í
kyrrþey að ósk hans.
hjónabandi er Þór-
arinn, f. 16. desem-
ber 1991, maki
hans er Ásta R.
Thorarensen, f. 29.
nóvember 1993,
sonur þeirra er
Emil, f. 31. ágúst
2019.
Eftirlifandi eig-
inkona Hilmars er
Birna E. Bene-
diktsdóttir, f. 6.
október 1957. Hennar börn eru
Benedikt K. Magnússon, f. 18.
nóvember 1976, maki hans er
Petrea I. Guðmundsdóttir, f. 30.
júní 1974, og börn þeirra eru
Liv, Agla og Rut. Karitas María
Lárusdóttir, f. 31. júlí 1990,
maki hennar er Gylfi Ein-
arsson, f. 27. október 1978.
Börn þeirra eru Lárus Orri og
Lovísa Rut, fyrir átti Gylfi tví-
Elsku bróðir okkar Hilmar
féll frá 10. maí sl., rétt rúmlega
sextugur.
Það er þyngra en tárum taki
að við systurnar séum að skrifa
hinstu kveðju til hans núna.
Ólýsanlegur söknuður og
mikil sorg ríkir hjá okkur og
fjölskyldum okkar. Uppeldisár
Hilmars voru í Hvassaleitinu,
sem þá var eins og sveit í borg.
Fyrir ungan og líflegan strák
eins og hann var þetta upp-
spretta endalausra uppátækja
og ævintýra enda hverfið í upp-
byggingu og allt iðandi af lífi og
fallegri náttúru.
Hann varð strax vinmargur
og aldrei ládeyða þar sem
Hilmar og hans vinir fóru um.
Eftir æskuárin í Hvassó flutti
fjölskyldan í Laugardalinn. Þar
kviknaði íþróttaáhugi hans og
æfði hann frjálsar með ÍR og
beindist áhugi hans fljótt að
spjótkasti. Margar skemmti-
legar sögur getum við rifjað
upp frá sambúðinni með eldri
systur hans í kjallaranum á
Laugalæknum enda Hilmar á
þessum tíma fullur af áhuga
fyrir lífinu og tilverunni og
fannst mjög gaman að
skemmta sér. Árið 1984 fór
Hilmar til Boulder í Colorado í
BNA að læra sjúkranudd. Þeg-
ar heim var komið stofnaði
hann nuddstofu á Lindargöt-
unni, hann varð fljótt eftirsótt-
ur nuddari enda mjög fær í
sínu fagi. Í dag eru bréfin sem
hann skrifaði okkur frá dvöl-
inni í Ameríku ómetanleg lesn-
ing, allt var mögulegt og sjálfs-
traustið í hæstu hæðum. Bréfin
innihalda stórkostlegan húmor
og einstaklega skemmtilegar
frásagnir frá þessu tímabili.
Bréfin ylja okkur nú um
hjartarætur í sorginni og fá
okkur til að brosa og hlæja,
enda ekki annað hægt. Dásam-
legur kafli hófst í lífi Hilmars
þegar leiðir þeirra Birnu lágu
saman. Þar var Hilmar búinn
að finna stóru ástina í sínu lífi.
Ógleymanlegar minningar eig-
um við t.d. frá ferðinni okkar
til Köben þar sem við systkinin
og makar eyddum saman
langri æðislegri helgi. Hilmar
var einstakur meistarakokkur
og snillingur í öllu sem viðkom
mat. Ekki er hægt að finna
betri grillara enda stundum
með tvö grill í gangi. Í eldhús-
inu og á pallinum heima var
Hilmar okkar í essinu sínu. Yf-
irleitt enduðu öll símtöl við
Hilmar með spurningu frá hon-
um: „Og hvað er svo í matinn í
kvöld?“ Hvergi voru matar- og
kaffiboðin jafnglæsileg og hjá
Hilmari og Birnu í Sjálandinu.
Yndislegi Hilmar okkar, mikið
erum við þakklát fyrir að hafa
átt þig sem bróður, ávallt ljúf-
ur, traustur og tryggur. Svo
dýrmæt er okkur stundin með
þér þar sem við kvöddum þig
síðast og sögðum þér hversu
mikið við elskuðum þig. Heim-
urinn er strax fátækari án þín.
Eftir sitjum við systurnar
sorgmæddar, en þó svo þakk-
látar og glaðar fyrir að hafa átt
þig sem bróður. Við munum
aldrei hætta að rifja upp
skemmtilegar sögur sem fá
okkur alltaf til að hlæja og
minnast þín, enda er nóg til af
þeim. Hilmar yrði ánægður
með það.
Hvíldu í friði elsku bróðir
okkar, þú verður alltaf í hug
okkar og hjarta okkar.
Guð geymi þig yndislegi
Hilmar.
Megi algóður Guð þína sálu nú
geyma,
gæta að sorgmæddum, græða djúp
sár.
Þó kominn sért yfir í aðra heima
mun minning þín lifa um ókomin ár.
(Höf. ókunnur)
Edda og Inga.
Elsku Hilmar minn, ég trúi
því ekki enn að þú sért farinn.
Ég var búin að ákveða að þú
myndir vinna þessa baráttu.
Það sem ég á eftir að sakna þín
mikið.
Þú varst mér svo mikilvægur,
traustur vinur, alltaf til staðar
fyrir mig og vildir allt fyrir mig
gera. Ef það væri til uppskrift
að góðum stjúppabba þá væri
það lýsingin á þér. Þú tókst mig
í þínar hendur eins og ég væri
þín eigin dóttir. Við hlógum
saman að bröndurunum þínum,
vitleysunni í mér og núna síð-
astliðin ár að barnabörnunum
sem þér þótti svo vænt um. Þú
varst svo frábær með þau og
þeim þótti svo vænt um afa
Hilmar.
Þú sagðir aldrei nei þegar ég
rétti tærnar í þig og nuddaðir
þær með ánægju alla daga þeg-
ar ég bjó heima, þú elskaðir að
dekra við okkur mömmu, elda
góðan mat og stjana við okkur.
Allar góðu minningarnar um
þig munu lifa með mér alla tíð
og þær kalla alltaf fram bros.
Takk fyrir allar dýrmætu sam-
verustundirnar með okkur
Gylfa og krökkunum. Þær
munu hlýja okkur um ókomna
tíð.
Ég mun elska þig alltaf, alla
tíð og sakna þín alla daga.
Þín
Karitas María.
Hilmar
Þórarinsson