Morgunblaðið - 31.05.2021, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021
Síðdegisþátturinn á k100
ALLA VIRKA DAGA FR
Með loga bergmann og sig
Á 16-18
ga gunnar
50 ára Rúnar er Akur-
eyingur, fæddur þar og
uppalinn og býr í Gilja-
hverfi í Þorpinu. Hann
er viðskiptafræðingur
frá Háskólanum á
Akureyri og hefur um-
sjón með fjármálum
fyrir vöruþróun hjá Marel á heimsvísu.
Rúnar stundar fótbolta, fjallaskíði, golf
og utanvegahlaup.
Maki: Hafdís Elva Ingimarsdóttir, f. 1970,
viðskiptafræðingur hjá Bókvís.
Börn: Telma, f. 1999, og Guðmundur
Ingi, f. 2004.
Foreldrar: Guðmundur Ómar Guð-
mundsson, f. 1946, smiður, og Anna Ing-
ólfsdóttir, f. 1945, leikskólakennari. Þau
eru búsett á Akureyri.
Guðmundur Rúnar
Guðmundsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Forðastu það eins og heitan eldinn
að kaupa einhvern óþarfa. Flýttu þér því
hægt. Galdurinn er sá að fá alla til þess að
samþykkja að fylgja því sama.
20. apríl - 20. maí +
Naut Metnaður þinn er gríðarlegur. Og ef
það er eitthvað sem þú ættir að skilja, er
það þörfin til að sanna þig sí og æ.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú hefur um skeið unnið að
ákveðnu máli á bak við tjöldin. Enginn virð-
ist segja sannleikann, hvort sem ástæðan
er ótti, spilling eða vanþekking.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Vinir þínir og fjölskylda sýna þér
óvenjumikinn stuðning á þessu ári. Taktu til
í gruggugu heilabúinu og skrifaðu niður allt
sem þú þarft að gera.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú hefur hvöt til að skipuleggja alla
þætti lífs þíns. Notaðu tækifærið til að
koma hugmyndum þínum á framfæri.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú þarft ekki að skilja þann sem þú
elskar. Flas er ekki til fagnaðar og þér ligg-
ur aldrei þessu vant ekkert á. Gleði þín er
smitandi og brýst fram á elleftu stundu.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þér finnst stundum gott að loka þig af
frá umhverfinu sem er hið besta mál fyrir
þig. Treystu á sjálfan þig og varastu áhrif
frá öðrum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú færð tækifæri til að auka
menntun þína, gefa verk þín út eða ferðast
til spennandi staða. Maður ákveður að ætla
að elska einhvern og sleppir svo hendinni
af takmörkunum.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Láttu það ekki eftir þér að
grípa til aðgerða bara til þess að hrista upp
í mannskapnum. Vertu óhrædd/ur við
breytingar því þær eru nauðsynlegur þátt-
ur af tilverunni.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Innsæi þitt er sterkt og það veit-
ir þér svar við mörgum spurningum. Stattu
fast á þínum rétti hvað sem á dynur.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Til þess að skilja það mál, sem
vefst fyrir þér nú, þarftu að kafa til botns
og velta upp öllum tiltækum staðreyndum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þér gengur betur þegar þú reynir
ekki að stjórna öllum þínum gjörðum af
hörku, eða tilheyrir hóp þar sem reglur
ráða ríkjum.
tugi við fjáröflun og verið í stjórn fé-
lagsins. Hún var í hópi sem stóð fyrir
Jónsmessuhátíð á Hofsósi í mörg ár.
„Mín helstu áhugamál eru að njóta
tímans með fjölskyldunni og búskap-
í gang þar, en við opnum safnið 1.
júní.“ Guðrún annast einnig bókhald
fyrir nokkur fyrirtæki.
Guðrún hefur unnið með Ung-
mennafélaginu Neista á Hofsósi í ára-
G
uðrún Halldóra Þor-
valdsdóttir er fædd 31.
maí 1961 á Halldórs-
stöðum í Skagafirði og
ólst upp á Stóra-
Vatnsskarði í Skagafirði til 7 ára ald-
urs. Þá flutti fjölskyldan í Varmahlíð
og þremur árum seinna á Sauðár-
krók. Þar bjó Guðrún til ársins 1983.
„Ég var í sveit hjá ömmu og afa á
Halldórsstöðum öll sumur og í öllum
fríum sem barn og unglingur. Það var
mín æðsta ósk sem krakki að geta
gefið mínum barnabörnum það sem
ég fékk, en það er að vera í sveitinni
hjá ömmu og afa. Mér tókst það og
þau koma á hverju vori til okkar í
sauðburðarfrí frá skólanum.“
Guðrún stundaði nám í Varmahlíð-
arskóla og síðan Barnaskóla Sauðár-
króks. Í kjölfarið fór hún í Fjölbrauta-
skólann á Sauðárkróki þar sem hún
lauk prófi á skrifstofubraut. Hún
starfaði hjá Kaupfélagi Skagfirðinga í
Gránu Vefnaðarvörudeildinni og Kjör-
búðinni á Smáragrund.
Árið 1983 flutti Guðrún á bæinn
Vatn á Höfðaströnd og hefur búið þar
síðan. Hún er sauðfjárbóndi með 170
fjár og 25 hross. „Við byrjuðum að
reka ferðaþjónustu árið 1985 í sum-
arhúsum á Vatni en seldum húsin
seinna og rekum ferðaþjónustu í
nokkrum húsum á Hofsósi í dag. Það
gekk ljómandi vel hjá okkur í fyrra-
sumar og lítur vel út í sumar og
margar bókanir komnar frá útlönd-
um.“ Þau hlutu Landbúnaðarverð-
launin árið 1997 fyrir árangursrík
störf í þágu landbúnaðar. „Verðlaun-
in voru fyrir að vera frumkvöðlar í
gistingu á sveitabæjum, við vorum
sem sagt með þeim fyrstu í Ferða-
þjónustu bænda.
Í mörg ár veiddum við silung í net í
Höfðavatni, bæði í gegnum ís á vet-
urna og á báti á sumrin. Fiskinn seld-
um við á veitingastaði og víðar.“
Frá árinu 1997 hefur Guðrún rekið
Íslensku fánasaumastofuna á Hofsósi
þar sem íslenski fáninn hefur verið
saumaður samfleytt í 50 ár. „Allar
fánar sem eru saumaðir á Íslandi eru
saumaðir hér.“ Hún hefur unnið með
eiginmanni sínum að uppbyggingu
Vesturfarasetursins á Hofsósi og
starfað þar í 25 ár. „Það er allt að fara
urinn. Auk þess hef ég mjög gaman af
tónlist og dansi. Á yngri árum var ég
virk í hestamennskunni en það hefur
þurft að víkja fyrir öðrum verk-
efnum.“
Guðrún Þorvaldsdóttir, sauðfjárbóndi, rekstraraðili fyrirtækja og bókari – 60 ára
Fjölskyldan Guðrún, Linda, Þröstur, Sólveig og Valgeir þegar Sólveig var að útskrifast sem sjúkraliði.
„Það er allt að fara í gang“
Með barnabörnunum Barnabörnin mætt til ömmu og afa til að taka þátt í
sauðburði í fyrra, en þau taka þátt í sauðburðinum á hverju vori.
Hjónin Valgeir og Guðrún.
40 ára Haraldur er
Grindvíkingur, fæddur
þar og uppalinn. Hann
er málari frá Tækni-
skólanum og er sjálf-
stætt starfandi. Har-
aldur er varaformaður
körfuknattleiksdeildar
Grindavíkur. Hann spilaði sjálfur körfu-
bolta í meistaraflokki með Grindavík og
Ísfirðingum.
Maki: Aldís Hauksdóttir, f. 1988, hjúkr-
unarfræðingur á dvalarheimilinu Víðihlíð.
Börn: Bryndís Hekla, f. 2004, Heiðar
Logi, f. 2017, og Elmar Elí, f. 2021.
Foreldrar: Jóhannes Haraldsson, f.
1942, húsasmíðameistari, og Herborg
Jónsdóttir, f. 1944, húsmóðir. Þau eru
búsett í Grindavík.
Haraldur Jón
Jóhannesson
Til hamingju með daginn
Grindavík Elmar Elí
Haraldsson fæddist 8.
janúar 2021 kl. 5.46.
Hann vó 3.474 g og var
49 cm langur. Foreldrar
hans eru Haraldur Jón
Jóhannesson og Aldís
Hauksdóttir.
Nýr borgari