Morgunblaðið - 31.05.2021, Side 26

Morgunblaðið - 31.05.2021, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021 Pepsi Max-deild karla KR – ÍA ..................................................... 3:1 HK – Leiknir R......................................... 2:1 Fylkir – Stjarnan...................................... 1:1 Staðan: Valur 6 5 1 0 12:6 16 Víkingur R. 6 4 2 0 11:5 14 KA 6 4 1 1 11:3 13 KR 7 3 2 2 12:9 11 FH 6 3 1 2 12:7 10 Breiðablik 6 3 1 2 14:10 10 Leiknir R. 7 2 2 3 9:10 8 Fylkir 7 1 4 2 10:13 7 HK 7 1 3 3 9:13 6 ÍA 7 1 2 4 8:15 5 Stjarnan 7 0 3 4 3:11 3 Keflavík 6 1 0 5 6:15 3 Lengjudeild karla Kórdrengir – Þróttur R ........................... 2:1 ÍBV – Víkingur Ó ..................................... 2:0 Vestri – Grindavík .................................... 2:3 Staða efstu liða: Fram 4 4 0 0 11:3 12 Fjölnir 4 3 0 1 6:2 9 Grótta 4 2 1 1 12:7 7 Kórdrengir 4 2 1 1 7:6 7 Mjólkurbikar kvenna 16-liða úrslit: Fjarðab/Hött/Leiknir – Þróttur R ......... 1:7 2. deild kvenna SR – Sindri................................................ 2:5 KM – Völsungur ..................................... 0:11 Einherji – Hamar ..................................... 2:2 KH – Hamrarnir....................................... 3:0 Staða efstu liða: Völsungur 3 3 0 0 15:1 9 Fj/Höttur/Leiknir 3 3 0 0 15:6 9 Fjölnir 3 2 0 1 22:5 6 KH 3 2 0 1 10:2 6 Fram 2 2 0 0 8:4 6 Svíþjóð AIK – Rosengård ..................................... 0:7 - Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan leikinn með AIK. - Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn með Rosengård. Hammarby – Kristianstad...................... 3:1 - Sif Atladóttir lék allan leikinn með Kristianstad og Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn á 63. mínútu. Elísabet Gunnars- dóttir þjálfar liðið. Piteå – Djurgården ................................. 1:0 - Hlín Eiríksdóttir kom inn á hjá Piteå á 72. mínútu. - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Djurgården. Örebro – Häcken ..................................... 0:3 - Berglind Rós Ágústsdóttir og Cecilía Rán Rúnarsdóttir léku allan leikinn með Örebro. - Diljá Ýr Zomers kom inn á hjá Häcken á 84. mínútu og skoraði eitt mark. Noregur Odd – Bodö/Glimt ................................... 1:0 - Alfons Sampsted lék fyrstu 72 mínúturn- ar með Bodö/Glimt. Kristiansund – Lilleström ...................... 1:0 - Brynjólfur Willumsson lék fyrstu 70 mínúturnar með Kristiansund. Brann – Strömsgodset ............................ 3:0 - Valdimar Þór Ingimundarson lék fyrri hálfleikinn með Brann en Ari Leifsson var ónotaður varamaður. Tromsö – Sarpsborg ............................... 0:2 - Adam Örn Arnarson var ónotaður vara- maður hjá Tromsö. - Emil Pálsson lék fyrstu 61 mínútuna með Sarpsborg. Vålerenga – Sandefjord ......................... 1:1 - Viðar Örn Kjartansson lék fyrstu 34 mínúturnar með Vålerenga. - Viðar Ari Jónsson lék fyrstu 66 mínút- urnar með Sandefjord. Haugesund – Viking................................ 4:2 - Samúel Kári Friðjónsson lék fyrstu 68 mínúturnar með Viking. Vålerenga – Lyn ...................................... 4:0 - Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik- inn meðVålerenga og Amanda Andradóttir lék fyrri hálfleikinn. Lilleström – Arna-Björnar ..................... 5:2 - Guðbjörg Gunnarsdóttir varði mark Arna-Björnar. Bandaríkin Cincinnati – New England Revolution . 0:1 - Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 65 mínuturnar með New England. Los Angeles – New York City................ 1:2 - Guðmundur Þórarinsson var ónotaður varamaður hjá New York. England Úrslitaleikur um sæti í B-deild: Blackpool – Lincoln................................. 2:1 - Daníel Leó Grétarsson lék ekki með Blackpool. Þýskaland Úrslitaleikur bikarkeppninnar: Eintracht Frankfurt – Wolfsburg ......... 0:1 - Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á hjá Frankfurt á 41. mínútu. Frakkland Lyon – París SG ....................................... 0:0 - Sara Björk Gunnarsdóttir hjá Lyon er í barneignarfríi. 50$99(/:+0$ LANDSLIÐIÐ Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mátti þola 1:2-tap fyrir Mexíkó í vin- áttuleik á AT&T-vellinum í Arling- ton í Texas aðfaranótt sunnudags. Mexíkó var heilt yfir mun sterkara liðið og var sigurinn verðskuldaður. Þegar flautað var til leiksloka var Ísland aðeins búið að eiga eitt skráð skot á markið gegn tíu hjá Mexíkó. Þá var Mexíkó 65 prósent með bolt- ann fyrir framan 40.000 manns á mögnuðum heimavelli Dallas Cowboys í NFL-deildinni. Besti kafli Íslands kom snemma í fyrri hálfleik og skoraði Birkir Már Sævarsson sitt fjórða landsliðsmark á 14. mínútu og fyrsta mark Íslands gegn Mexíkó í fimmta leiknum. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiks en Mexíkóar voru illviðráðanlegir í seinni hálfleiknum. Varamaðurinn Hirving Lozano skoraði tvö mörk á 73. og 78. mínútu eftir þunga pressu allan hálfleikinn og tryggði Mexíkó verðskuldaðan sigur. Sex leikmenn léku sinn fyrsta landsleik í Texas og komust þeir misvel frá sínu. Brynjar Ingi Bjarnason lék gífurlega vel, allt þar til hann gerði sig sekan um mistök sem orsökuðu jöfnunarmark Mexí- kóa. Hörður Ingi Gunnarsson var hinsvegar óöruggur í vinstri bak- varðarstöðunni á meðan Þórir Jó- hann Helgason var duglegur á vinstri kantinum en fékk úr litlu að moða. Þeir Gísli Eyjólfsson, Ísak Óli Ólafsson og Rúnar Þór Sigur- geirsson komu svo inn á í seinni hálfleik, en gátu lítið gert gegn sterku mexíkósku liði. Þá fengu ungir og efnilegir leik- menn tækifærið. Ísak Bergmann Jóhannesson leit ágætlega út í sín- um fyrsta byrjunarliðsleik og þá kom Andri Fannar Baldursson sterkur inn af bekknum í staðinn fyrir Aron Einar Gunnarsson sem var að glíma við meiðsli sem vonandi eru ekki alvarleg. Rúnar Alex Rúnarsson hefur átt erfitt uppdráttar hjá landsliðinu og Arsenal en hann átti einn sinn besta landsleik. Hann varði nokkrum sinnum virkilega vel, greip vel inn í og var mjög öruggur í sínum að- gerðum. Þrátt fyrir tap var nokkuð um jákvæða punkta hjá íslenska lið- inu. Næst á dagskrá er annar vináttu- leikur við Færeyjar á föstudag. Jákvæðir punktar þrátt fyrir tap - Ísland tapaði fyrir Mexíkó í Texas AFP Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson í baráttunni gegn Mexíkó í Texas. AT&T-völlurinn í Arlington Texas, vin- áttulandsleikur, sunnudag 30. maí 2021. 0:1 Birkir Már Sævarsson 14. 1:1 Hirving Lozano 73. 1:2 Hirving Lozano 78. Skilyrði: Léttskýjað og um 28 gráðu hiti. Völlurinn magnaður. Skot: Mexíkó 15 (10) - Ísland 2 (2). Horn: Mexíkó 8 - Ísland 2. Lið Íslands: (4-5-1) Mark: Rúnar Alex Rúnarsson. Vörn: Birkir Már Sævarsson (Rúnar Þór Sigur- geirsson 74), Hjörtur Hermannsson, Mexíkó 2:1 Ísland Brynjar Ingi Bjarnason (Ísak Óli Ólafsson 80), Hörður Ingi Gunn- arsson. Miðja: Jón Daði Böðvarsson (Sveinn Aron Guðjohnsen 74), Ísak Bergmann Jóhannesson, Aron Einar Gunnarsson (Andri Fannar Bald- ursson 60), Birkir Bjarnason (Aron Elís Þrándarson 80), Þórir Jóhann Helgason. Sókn: Kolbeinn Sigþórs- son (Gísli Eyjólfsson 74). Áhorfendur: 40.000. Dómari: Ted Unkel. Aðstoðardómarar: Corey Rockwell og Nick Urang. Chelsea sigraði í Meistaradeild Evrópu karla í knattspyrnu eftir 1:0 sigur gegn Manchester City á laugardagskvöldið. Er þetta í ann- að sinn sem Chelsea sigrar í Meist- aradeild Evrópu en alls hefur liðið staðið sex sinnum uppi sem sigur- vegari í Evrópukeppnum félagsliða í sögu félagsins. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik kom sigurmarkið þegar Kai Havertz slapp inn fyrir vörn City eftir sendingu frá Mason Mo- unt, lék á Ederson í marki City og skoraði í autt markið. Niðurstaðan er mikill sigur fyrir þýska knattspyrnustjórann Thomas Tuchel sem tók við stjórn liðsins í janúar eftir að Frank Lampard lét af störfum. Tuchel var þátttakandi í úrslitaleiknum annað árið í röð því hann stýrði París St. Germain á síð- asta tímabili en tapaði þá fyrir Bay- ern München. Chelsea lék einnig til úrslita í ensku bikarkeppninni en tapaði þar fyrir Leicester City. AFP Kátur Thomas Tuchel smellir kossi á bikarinn fræga á laugardag. Chelsea sigraði í Meistaradeildinni Valur er einum sigri frá Íslands- meistaratitlinum eftir að liðið vann 71:65-sigur á Haukum á Ás- völlum í öðrum leik liðanna í úr- slitaeinvígi Íslandsmóts kvenna í körfuknattleik á Ásvöllum í gær. Liðin mætast í þriðja sinn á Hlíð- arenda á miðvikudagskvöldið og Valskonur fá þar tækifæri til að tryggja sér titilinn á heimavelli. Valur vann öruggan sigur í fyrsta leik liðanna. Meira jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en á Hlíðarenda í fyrstu viður- eigninni. Þar voru Valsarar komn- ir í 18:2-forystu strax eftir fyrsta leikhluta en heimakonur á Ásvöll- um seldu sig dýrt í gær. Að þessu sinni var Valur með þriggja stiga forskot eftir fyrsta leikhluta og liðin voru jöfn þegar þau fóru inn í búningsklefa að loknum fyrri hálfleik. Þá var staðan 34:34 en Haukar komust yfir í þriðja leikhluta. „Það var svo háspenna í fjórða og síðasta leikhlutanum og lítið skor- að er bæði lið lögðu allt í sölurnar til að kreista fram sigur,“ skrifaði Kristófer Kristjánsson meðal ann- ars í umfjöllun um leikinn á mbl.is. Helena Sverrisdóttir og Hallveig Jónsdóttir skoruðu mikilvægar þriggja stiga körfur fyrir Val á síðustu mínútunum. Helena skor- aði 21 stig, tók 15 fráköst og gaf 9 stoðsendingar gegn uppeldisfélag- inu. Var því aðeins einni stoðsend- ingu frá þrefaldri tvennu. Þóra Kristín Jónsdóttir var stigahæst hjá Haukum með 16 stig. Valskonur einum sigri frá titlinum Frákast Johnson og Elísabeth Ýr berjast um boltann í gær. _ Kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason er á þröskuldi þess að vinna sér inn keppnisrétt á Ólympíu- leikunum í Tókýó í sumar. Guðni keppti á móti í Vaxjö í Svíþjóð um helgina og kastaði kringlunni 65,39 metra. Mjög gott kast hjá Guðna en 61 cm frá lágmarkinu fyrir Ólympíu- leikana í Tókýó. Simon Petterson kastaði 69,48 metra á mótinu og heimsmeistarinn Daniel Ståhl kastaði 69,11 metra en Vésteinn Haf- steinsson þjálfar þá báða. Guðni held- ur áfram að reyna við lágmarkið og keppir næst í Gautaborg. _ Frjálsíþrótta- sambandið greindi frá því að Mímir Sigurðsson úr FH hefði bætt sig gríðarlega í kringlukasti á kastmóti hjá ÍR. Náði Mímir að rjúfa 60 metra múrinn og kastaði 60,32 metra. Mímir bætti sig um heila fimm metra en hans besti árangur var fram að þessu 55,54 metrar. _ Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR lék vel á Irish Challenge-mótinu í Dublin sem lauk í gær en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu í golfi. Guðmundur lauk keppni á þrem- ur höggum undir pari samtals en hann lék hringina fjóra á 69, 71, 73 og 68 höggum. Guðmundur hafnaði í 12.- 17. sæti í mótinu. Hollendingurinn Da- an Huizing sigraði eftir að hafa leikið á níu undir pari samtals. _ Daníel Jóhannesson og Júlíana Karítas Jóhannsdóttir úr TBR eru ís- landsmeistarar karla og kvenna í ein- liðaleik í badminton en Íslandsmótið fór fram um helgina. Kári Gunn- arsson hefur staðið uppi sem Íslands- meistari karla síðustu níu skipti en tók ekki þátt í ár. Daníel mætti Ró- berti Inga Huldarssyni úr BH í úrslita- leiknum og vann í tveimur settum, 21:12 og 21:16. Síðustu fimm ár hefur Margrét Jó- hannsdóttir orðið Íslandsmeistari kvenna en hún er hætt keppni. Júl- íana Karítas mætti Sigríði Árnadótt- ur, einnig úr TBR, í úrslitum og hafði Júlíana betur eftir tvö jöfn sett, 21:19 og 21:19. Daníel og Júlíana urðu bæði Íslandsmeistarar í fyrsta sinn. _ Íslandsmeistarar Breiðabliks í knattspyrnu hafa styrkt sig fyrir seinni hluta sumarsins því félagið hef- ur gengið frá samningi við belgísku landsliðskonuna Chloé Vande Velde. Kemur hún til Breiðabliks frá Gent í Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.