Morgunblaðið - 31.05.2021, Side 27
Belgíu á lánssamningi. Hún verður
lögleg með Blikum í byrjun júlí.
_ Þórður Jökull Henrýsson úr Aftur-
eldingu og Freyja Stígsdóttir úr Þórs-
hamri vörðu Íslandsmeistaratitla sína
í einstaklingskeppni í kata en Íslands-
mótið fór fram í íþróttahúsi Mennta-
vísindasviðs HÍ. Átján keppendur frá
sjö félögum tóku þátt, auk fimm liða.
Breiðablik sigraði í liðakeppni karla og
Þórshamar vann í kvennaflokki. Ka-
ratefélag Reykjavíkur varð sigurvegari
í stigakeppni félagsliða.
_ Jón Guðni Fjóluson og félagar í
Hammarby eru sænskir bikarmeist-
arar í knattspyrnu eftir sigur í víta-
keppni gegn Häcken í úrslitaleiknum.
Jón Guðni var í byrjunarliðinu og spil-
aði allar 120 mín-
útur leiksins og
mætti löndum sín-
um. Oskar Tor
Sverrisson var í
byrjunarliði Häc-
ken en tekinn af
velli á 96. mínútu,
inn á fyrir hann
kom Valgeir Lund-
dal Friðriksson.
_ Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr
Keili komst ekki í gegnum niðurskurð
keppenda eftir 36 holur á Opna
ítalska mótinu í golfi um helgina.
Slæmur fyrsti hringur setti Guðrúnu í
erfiða stöðu en hún lék á 79 og 72
höggum og var þremur höggum frá
því að komast áfram. Mótið er hluti af
Evrópumótaröðinni og er það fyrsta
sem Guðrún tekur þátt í á mótaröð-
inni í ár.
_ Brentford mun leika í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu á næstu leiktíð
eftir 2:0-sigur á Swansea í úrslitaleik
umspilsins í B-deildinni á Wembley.
Brentford mun leika í efstu deild í
fyrsta sinn í 74 ár en auk þess var
þetta fyrsti sigur félagsins í einhvers
konar úrslitaleik.
_ Landsliðsþjálfari kvenna í körfu-
knattleik, Benedikt Guðmundsson,
var í gær ráðinn þjálfari karlaliðs
Njarðvíkur. Benedikt gerir þriggja ára
samning við UMFN og mun einnig
koma að yngri flokka þjálfun. Bene-
dikt tekur við af Einari Árna Jóhanns-
syni sem á dög-
unum réð sig til
Hattar. Benedikt
hefur áður þjálfað
karlalið KR,
Grindavíkur, Fjöln-
is, Þórs Þorláks-
höfn og Þórs á Ak-
ureyri. Einnig
kvennalið KR og
Þórs á Akureyri.
_ Kielce tryggði sér í gær pólska bik-
armeistaratitilinn í handknattleik með
42:20-sigri á Tarnów í úrslitaleik. Sig-
valdi Björn Guðjónsson skoraði eitt
mark fyrir Kielce en Haukur Þrast-
arson er frá vegna meiðsla. Kielce
hefur tryggt sér sigur í pólsku úrvals-
deildinni og er því tvöfaldur meistari.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Skoraði Jón Arnar með boltann og Máni Austmann Hilmarsson til varnar.
FÓTBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
HK vann sinn fyrsta leik í Pepsi-
Max-deild karla í knattspyrnu í
sumar þegar 7. umferð deildarinnar
hófst í gærkvöldi með þremur leikj-
um. HK vann Leikni úr Breiðholti
2:1 í Kórnum í Kópavogi en liðið
hafði fram að þessu gert þrjú jafn-
tefli en tapað þremur leikjum.
HK er því með sex stig og er
þremur stigum fyrir ofan neðstu lið-
in Keflavík og Stjörnuna í 9. sæti.
Leikurinn var sögulegur fyrir þær
sakir að aldrei fyrr höfðu liðin mæst
í efstu deild karla. Leiknir er með 8
stig eftir fína byrjun í mótinu og er
með 50% árangur.
„Óhætt er að segja að sigurinn
hafi verið HK-ingum lífsnauðsyn-
legur fyrir framhaldið í deildinni.
Staða liðsins hefði ekki verið burðug
ef það hefði farið án sigurs í gegn-
um þessa sjö leikja hrinu í maí-
mánuði. Það sást á leikmönnum liðs-
ins þegar leið á leikinn, taugarnar
voru þandar til hins ýtrasta, en sú
reynsla sem þeir hafa áunnið sér í
þessari deild á undanförnum tveim-
ur árum var þeim dýrmæt á loka-
kaflanum,“ skrifaði Víðir Sigurðs-
son m.a. í umfjöllun um leikinn á
mbl.is.
- Stefan Ljubicic brenndi af víta-
spyrnu fyrir HK á 41. mínútu og
átti þá möguleika á að koma HK 3:0
yfir í leiknum. Guy Smit markvörð-
ur Leiknis varði frá honum. Er
þetta í annað sinn í upphafi Íslands-
mótsins sem Stefani bregst boga-
listin á vítapunktinum.
Stjarnan enn án sigurs
Garðbæingar bíða enn eftir sínum
fyrsta sigri en Fylkir og Stjarnan
gerðu 1:1 jafntefli í Árbænum.
Stjarnan komst yfir í leiknum á 24.
Ljósmynd/Kristinn Steinn
Sáttur Kjartan Henry fagnar marki sínu gegn ÍA í gær.
mínútu en staða þeirra versnaði
mjög þegar Emil Atlason fékk
rauða spjaldið á 36. mínútu.
Á lokakaflanum áttu Árbæingar
meiri orku og voru aðgangsharðir
en tókst ekki að kreista fram sigur.
Fylkir er með sjö stig og hefur gert
fjögur jafntefli nú þegar. Stjarnan
er með þrjú stig eins og fyrr segir.
Ef mið er tekið af fyrsta þriðjungi
mótsins er ekki útlit fyrir annað en
að Stjarnan þurfi að berjast fyrir
sæti sínu í deildinni þegar líður á
sumarið. En þeir geta reyndar litið
á það sem jákvætt atriði að hafa
fengið stig á útivelli verandi einum
færri í klukkutíma.
- Helgi Valur Daníelsson, elsti
leikmaðurinn í úrvalsdeildinni á
yfirstandandi keppnistímabili, náði í
stórum áfanga og lék sinn 400.
deildaleik á ferlinum. Er hann 29.
Íslendingurinn frá upphafi sem nær
þeim leikjafjölda í deildakeppni
meistaraflokks.
Kjartan kominn á blað
KR er með 11 stig en gengi liðs-
ins hefur verið sveiflukennt í upp-
hafi tímabilsins. KR vann ÍA 3:1 í
Vesturbænum og KR-ingar geta
fagnað langþráðum sigri á heima-
velli. Hvort sem um er að ræða
knattspyrnulið karla eða körfu-
knattleikslið karla þá virðist KR-
ingum ganga mun betur á útivelli en
heimavelli um þessar mundir.
Nú kann það ef til vill að breytast
en KR komst snemma í 2:0 í gær og
vann sannfærandi sigur. KR-ingar
gleðjast eflaust einnig yfir því að
Kjartan Henry Finnbogason skor-
aði sitt fyrsta mark eftir að hann
sneri heim á dögunum.
- Leikjahæsti leikmaður í efstu
deild karla frá upphafi, Óskar Örn
Hauksson, skoraði tvívegis í gær og
hefur þá skorað þrjú mörk í upphafi
Íslandsmótsins. Mörkin eru þá orð-
in 83 hjá honum í efstu deild.
Fyrsti sigurinn hjá HK
- KR vann langþráðan sigur á heimavelli - Emil fékk rautt í fyrri hálfleik
KR – ÍA 3:1
1:0 Óskar Örn Hauksson 7.
2:0 Kjartan Henry Finnbogason 13.
2:1 Ísak Snær Þorvaldsson 46.
3:1 Óskar Örn Hauksson 76.
MM
Óskar Örn Hauksson (KR)
M
Kennie Chopart (KR)
Ægir Jarl Jónasson (KR)
Kjartan Henry Finnbogason (KR)
Kristinn Jónsson (KR)
Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA)
Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Viktor Jónsson (ÍA)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7.
Áhorfendur: 448.
HK – LEIKNIR R. 2:1
1:0 Jón Arnar Barðdal 32.
2:0 Birnir Snær Ingason 38.
2:1 Sævar Atli Magnússon 69.
M
Arnar Freyr Ólafsson (HK)
Martin Rauschenberg (HK)
Guðmundur Þór Júlíusson (HK)
Arnþór Ari Atlason (HK)
Jón Arnar Barðdal (HK)
Birnir Snær Ingason (HK)
Bjarki Aðalsteinsson (Leikni)
Máni Austmann (Leikni)
Emil Berger (Leikni)
Daníel Finns Matthíasson (Leikni)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 6.
Áhorfendur: Um 600.
FYLKIR – STJARNAN 1:1
0:1 Magnus Anbo 24.
M
Orri Sveinn Stefánsson (Fylki)
Arnór Gauti Jónsson (Fylki)
Orri Hrafn Kjartansson (Fylki)
Djair Parfitt-Williams (Fylki)
Björn Berg Bryde (Stjörnunni)
Brynjar Gauti Guðjónsson (Stjörnunni)
Heiðar Ægisson (Stjörnunni)
Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni)
Rautt spjald: Emil Atlason 36. (Stjörn-
unni).
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
– 7.
Áhorfendur: 637.
HANDKNATTLEIKUR
Átta liða úrslit karla, fyrri leikir:
Vestmannaeyjar: ÍBV – FH..................... 18
Varmá: Afturelding – Haukar............. 19.40
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar kvenna, 16-liða úrslit:
Samsung-völlur: Stjarnan – ÍBV ............. 18
Würth-völlur: Fylkir – Keflavík.......... 19.15
Kópavogsv.: Breiðablik – Tindastóll... 19.15
KÖRFUKNATTLEIKUR
Undanúrslit karla, fyrsti leikur:
IG-höllin: Þór Þ. – Stjarnan................. 19.15
Umspil kvenna, fyrsti úrslitaleikur:
Njarðtaksgr.: Njarðvík – Grindavík... 19.15
Í KVÖLD!
Úrslitakeppni NBA
1. umferð:
Boston – Brooklyn ................... 125:119 (1:2)
Dallas – LA Clippers ............... 118:108 (2:1)
Miami – Milwaukee.................. 103:120 (0:4)
Portland – Denver ..................... 115:95 (2:2)
Washington – Philadelphia ..... 103:132 (0:3)
Memphis – Utah....................... 111:121 (1:2)
Atlanta – New York................... 113:96 (3:1)
LA Lakers – Phoenix ................ 92:100 (2:2)
>73G,&:=/D
að spila vel og skoraði hún fjögur
mörk í hálfleiknum og stal tveimur
boltum. Heimakonur sóttu mikið út
í hornin þar sem þeirra konur voru
oft með gott pláss,“ skrifaði Einar
Sigtryggsson meðal annars í um-
fjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
Úrslitarimma KA/Þórs og Vals
hefst á miðvikudaginn og verður
fyrsti leikurinn á Akureyri.
KA/Þór mætir Val í úrslitum Ís-
landsmóts kvenna í handknattleik.
KA/Þór hafði betur gegn ÍBV í
undanúrslitum en liðin mættust í
oddaleik á laugardaginn, sem var
hádramatískur. KA/Þór hafði bet-
ur 28:27 en framlengja þurfti odda-
leikinn til að knýja fram úrslit.
Mikið gekk á undir lok venjulegs
leiktíma. Á lokamínútunni, í stöð-
unni 25:25, brenndi Ásdís Guð-
mundsdóttir af vítakasti fyrir KA/
Þór og ÍBV fékk fjörutíu sekúndur í
lokasóknina. Hún nýttist ekki en
ÍBV fékk aukakast þegar leiktím-
inn var liðinn. Ásta Björt Júlíus-
dóttir skaut frábæru skoti í slá og
niður úr aukastinu.
„Besti leikmaður úrslitaleikj-
anna, Rakel Sara Elvarsdóttir, var
Framlengja þurfti oddaleikinn
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Akureyri Sólveig Lára Kristjáns-
dóttir fagnar einu marka sinna.
2. deild karla
Leiknir F. – Reynir S............................... 4:2
KV – Fjarðabyggð.................................... 2:0
Þróttur V. – Haukar................................. 4:1
Magni – ÍR.................................................1:5
Staða efstu liða:
ÍR 4 3 0 1 10:7 9
KF 4 3 0 1 7:4 9
Þróttur V. 4 2 2 0 13:6 8
KV 4 2 2 0 10:7 8
Völsungur 4 2 1 1 9:6 7
Njarðvík 4 1 3 0 8:6 6
Reynir S. 4 2 0 2 6:7 6
3. deild karla
KFS – Höttur/Huginn ............................. 1:2
Sindri – Dalvík/Reynir............................. 2:1
Einherji – Elliði ........................................ 5:2
Tindastóll – Augnablik............................. 1:1
Staða efstu liða:
Höttur/Huginn 4 4 0 0 8:4 12
Augnablik 4 2 2 0 9:3 8
Ægir 4 2 2 0 5:3 8
Víðir 4 2 1 1 6:5 7
KNATTSPYRNA
Þýskaland
Minden – Magdeburg.......................... 25:35
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 9 mörk
fyrir Magdeburg.
Göppingen – Leipzig........................... 30:33
- Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki fyr-
ir Göppingen.
Lemgo – Flensburg ............................. 22:33
- Bjarki Már Elísson skoraði 5 mörk fyrir
Lemgo og Alexander Petersson skoraði
ekki fyrir Flensburg.
Coburg – Melsungen ........................... 25:30
- Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki fyr-
ir Melsungen. Guðmundur Þ. Guðmunds-
son er þjálfari liðsins.
Wetzlar – Bergischer.......................... 30:22
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði 6 mörk
fyrir Bergischer.
Ludwigshafen – Balingen .................. 27:22
- Oddur Gretarsson skoraði 4 mörk fyrir
Balingen.
Hannover-Burgdorf – Stuttgart ....... 23:23
- Viggó Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir
Stuttgart.
B-deild:
Bietigheim – Dessauer ....................... 30:26
- Aron Rafn Eðvarðsson varði 8 skot í
marki Bietigheim.
Aue – Emsdetten ................................. 31:30
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 6
mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði 7 skot í marki liðsins. Rúnar Sig-
tryggsson þjálfar Aue.
Frakkland
Montpellier – Aix................................. 28:27
- Kristján Örn Kristjánsson skoraði 1
mark fyrir Aix.
Spánn
Barcelona – Morrazo Cangas ............ 35:23
- Aron Pálmarsson lék ekki með Barce-
lona.
Pólland
Bikarúrslitaleikurinn:
Tarnów – Kielce .................................. 20:42
- Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 1
mark fyrir Kielce.
Sviss
Undanúrslit, annar leikur:
Kriens – Kadetten ............................... 22:29
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten
sem er 2:0 yfir.
Umspil karla
Fyrsti úrslitaleikur:
Víkingur – Kría..................................... 25:32
E(;R&:=/D