Morgunblaðið - 31.05.2021, Side 29

Morgunblaðið - 31.05.2021, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MAÍ 2021 Þ að er hreinasta ráðgáta að enski leikstjórinn Guy Ritchie eigi alltaf greiða leið að feitum sjóðum til að búa til kvikmyndir. Ritchie byrjaði vissulega vel með Lock, Stock and Two Smoking Barrells og Snatch, töffaralegum glæpamyndum með hnyttnum samtölum en eftir það hef- ur nánast hver einasta mynd verið í lélegri kantinum. Og nú bætist enn ein í safnið, gauramynd sem ber furðulega biblíulegan titil, Wrath of Man eða Heift mannsins. Mun hún vera endurgerð á franskri mynd sem er vonandi betri. Ritchie kom auga á Jason Statham þegar sá síðarnefndi var fyrirsæta í auglýsingaherferð fyrir French Con- nection-fatamerkið eða svo segir sag- an. Statham var sumsé módel en hafði áður gert það gott í dýfingum og var bæði fagurlega vaxinn og myndarlegur. Statham þreytti frum- raun sína í Lock, Stock … sem svip- brigðalaus harðhaus og hefur nær allar götur síðan verið svipbrigðalaus harðhaus. Gagnrýnandi hefur haft allnokkurt dálæti á Statham einmitt vegna þessa, hversu stórkostlega ein- hæfur leikari hann er og frábærlega lipur slagsmálamaður. Ekkert fær bitið á Statham og segir sagan að hann sé með klausu í samningum sín- um þess efnis að hann megi aldrei tapa í slagsmálum bíómynda. Sel það þó ekki dýrara en ég keypti. Strax í byrjun myndar er ljóst að hér er algjör karlamynd á ferð, gauramynd, og upphafið er hræðileg löggumyndaklisja. Statham leikur dularfullan náunga að nafni Hill, sem fær strax gælunafnið H. Hann er að hefja störf hjá öryggisfyrirtæki sem sér um að flytja verðmæti í brynvörð- um bílum og hefur nýverið orðið fyrir árás ræningja með þeim afleiðingum að nokkrir verðir féllu í valinn. H þreytir ýmis próf, m.a. þol- og skot- próf og rétt nær þeim. Þykir það grunsamlegt þar sem hann virðist vera í ofurmannlegu formi og geta drepið menn með augnaráðinu einu. H er tekinn undir væng náunga sem kallaður er Bullet eða Byssukúla (!) og eins og í lélegri löggumynd gera allir karlarnir á vinnustaðnum grín að honum f́rá fyrsta degi og reyna að gera lítið úr honum. „Hey, byssukúla, hver er nýja kærastan þín?“ og þar fram eftir götunum. Já, árið 2021 er enn verið að frumsýna kvikmyndir þar sem karlar telja það hámark allra svívirðinga að líkja öðrum körlum við konur, ótrúlegt en satt. Og þessi bjánalegu samtöl skrifar Ritchie í handritið sitt og þykir þau eflaust bráðfyndin. En alltént. Það líður varla heill vinnudagur áður en önnur árás er gerð á þá Bullet og H og kemur þá í ljós að H er líkari vélmenni en manni, skýtur alla ræningjana eins og að drekka vatn og minnir meira á Tor- tímandann hér um árið en mann af holdi og blóði. Þetta þykir starfs- mönnum fyrirtækisins grunsamlegt og átta þeir sig nú á því að H er ekki allur þar sem hann er séður. Kemur enda fljótlega í ljós að H á harma að hefna (en ekki hvað?) og hefur ráðið sig til fyrirtækisins í von um að kom- ast að því hver eða hverjir ollu hon- um þeim mikla harmi. Í löngum end- urlits- og útskýringarkafla verður þetta áhorfendum ljóst og er sá kafli alltof langur og ítarlegur. Undir lok myndar er maður, þrátt fyrir þessa langloku , engu nær um aðalpersón- una H, og hefur enga skýringu fengið á ofurmannlegum bardagahæfi- leikum hans eða forsögu. Ritchie virðist hafa tekið þá ákvörðun að búa til nær ómennska aðalpersónu í kvik- mynd sem á að snúast um harm þeirrar persónu og hefndarþorsta. Og fléttan er að sama skapi heldur klén, forsaga glæpagengisins sem H leitar að er býsna ótrúverðug og framsetningin öll tilfinningalaus og köld. Það sem bjargar myndinni frá því að sökkva á botninn eru vel tekin hasaratriði og flott útlit almennt, drungaleg lýsing og litir og á köflum taugatrekkjandi hljóðmynd og tón- list. Þegar upp er staðið reynist Heift mannsins algjörlega sálarlaus hasar- glæpamynd en tæknilega vel unnin og hægt að njóta hennar þegar lætin eru hvað mest. Stærsti glæpur leik- stjórans Ritchie, fyrir okkur aðdá- endur Stattarans, er að hann fær ekkert að sýna þá miklu fimi sem hann er frægur fyrir og lítið sem ekk- ert um andsvör í formi fimmaura- brandara. En þær örfáu hnyttnu setningar sem hann fær þó að segja reynast nokkrar sárabætur. Steinrunninn Stattari Hanaslagur Nokkrir öryggisverðir í Wrath of Man keppast við að lítillækka hver annan og þá sérstaklega H sem Jason Statham leikur. Smárabíó, Sambíóin Keflavík, Laugarásbíó, Borgarbíó og Háskólabíó Heift mannsins/Wrath of Man bbnnn Leikstjórn og handrit: Guy Ritchie. Að- alleikarar: Jason Statham, Holt McCall- any, Josh Hartnett, Scott Eastwood, Jeffrey Donovan, Austin Post og Niamh Algar. Bandaríkin og Bretland, 2021. 118 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR Alexander Dan Vilhjálmsson gaf sjálfur út sína fyrstu skáldsögu, Hrímland, þegar enginn annar vildi gera það. Hann sendi svo fyrstu kaflana úr bókinni til bresks stórfyr- irtækis sem tók henni opnum örm- um og gaf út á ensku fyrir tveimur árum. Alexander skrifar bækur sem kalla má furðusögur, enda gerast þær á Íslandi sem er frábrugðið því sem við þekkjum; dularfullt og ógn- vekjandi, uppfullt af galdri og furðu- legum og óttalegum verum. Skáld- saga hans, sem heitir Skammdegis- skuggar í íslenskri útgáfu, kom út á ensku hjá einu stærsta forlagi heims fyrir ári og hann vinnur nú að fram- haldi hennar. Skammdegisskuggar eiga rætur í Hrímlandi sem kom út fyrir nokkr- um árum, en þegar Alexander sendi það handrit til íslenskra útgefenda vildu þeir ekki gefa bókina út svo hann gerði það sjálfur, vildi finna bókinni farveg. Síðar þegar Alexander var í rit- listarnámi í Háskóla Íslands fór hann í skiptinám til London og tók þar ritlistaráfanga á ensku. „Þá prófaði ég að skrifa á ensku og sá að ég gat alveg skrifað skáldskap á ensku, hinir nemendurnir, sem voru enskumælandi, voru bara að gera öðruvísi mistök en ég.“ Í kjölfarið bar það við að eitt stærsta bókaforlag Bretlands, Goll- ancz, opnaði tímabundið fyrir inn- sendingu handrita. „Ég hugsaði: þetta er flott „deadline“ til þess að prófa að þýða bókina. Hún fór síðan í 2.000 handrita hrúgu og lá hjá Goll- ancz í eitt og hálft ár og ég gleymdi þessu bara, nú var ég bara búinn með þessa bók. Ég reyndi að finna henni einhvern farveg en ef þú heyr- ir ekki frá svona opinni innsendingu þá er bara verið að segja nei. En þetta var ekki þannig, þau voru bara að handskrifa neitunar- bréf til tvö þúsund höfunda í eitt og hálft ár. 2017 fékk ég svo ég tölvu- póst frá ritstjóra hjá Gollancz sem bað mig um restina af handritinu. Þegar ég sá hvað þetta var lokaði ég póstinum strax, fór svo fram og fékk kvíðakast af því að ég var ekki búinn að þýða restina.“ Hægt er að horfa á allt viðtalið við Alexander í þættinum Dagmálum sem aðgengilegur er áskrifendum Morgunblaðsins á mbl.is. Morgunblaðið/Hallur Kvíðakast Alexander Dan Vihjálmsson sendi handrit út í óvissuna. Íslensk furðusaga - Furðusögur Alexanders Dans Vilhjálmssonar koma út á ensku Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI WASHINGTON POST AUSTIN CHRONICLE THE WASHINGTON POST ROGEREBERT.COM TOTAL FILM USA TODAY THE SEATTLE TIMES THE GUARDIAN GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA ERLENDIR GAGNRÝNENDUR SEGJA: “EMMA STONE AND EMMA THOMPSON, THE TWO ARE A DELIGHT BOTH APART AND TOGETHER…” “THE BIGGEST SURPRISE OF 2021…” “IT JUST EXCEEDED ALL OF MY EXPECTATIONS…”

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.