Morgunblaðið - 31.05.2021, Síða 32
Firnindi er yfirskrift mál-
verkasýningar Brians Pilk-
ingtons sem opnuð var í
Listhúsi Ófeigs á Skóla-
vörðustíg 5 laugardaginn
29. maí og stendur til 23.
júní. Brian flutti til Íslands
1976 og er þekktastur fyrir
myndlýsingar á jólasvein-
um og tröllum í bókum sín-
um.
Á sýningunni Firnindi má
sjá 25 nýleg landslags-
málverk. „Ástríða hans fyrir landslagsmálverkinu var
endurvakin eftir yndislegt sumar í fyrra, þar sem hann
ferðaðist um óbyggðir Íslands,“ segir í tilkynningu. Um
verk sín segir Brian: „Það eru andlegir töfrar sem mað-
ur upplifir úti í íslenskum óbyggðum. Fegurð þeirra og
harka eru stundum yfirþyrmandi. Síbreytileg birtu- og
veðurskilyrði gera það að heillandi áskorun að fanga.“
Opið er í listhúsinu milli kl. 10 og 18 á virkum dögum og
milli kl. 11 og 16 á laugardögum.
Brian Pilkington í Listhúsi Ófeigs
MÁNUDAGUR 31. MAÍ 151. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
HK vann sinn fyrsta leik í Pepsi Max-deild karla í knatt-
spyrnu í sumar þegar 7. umferð deildarinnar hófst í
gærkvöldi með þremur leikjum. HK vann Leikni úr
Breiðholti 2:1 í Kórnum í Kópavogi. KR vann ÍA 3:1 í
Frostaskjóli en KR hafði þurft að bíða lengi eftir sigri á
heimavelli. Fylkir og Stjarnan gerðu 1:1 jafntefli í Ár-
bænum. Stjarnan er enn án sigurs og Fylkir hefur gert
fjögur jafntefli í fyrstu sjö leikjunum. Fylkismaðurinn
Helgi Valur Daníelsson náði þeim áfanga í gær að leika
sinn 400. deildarleik á ferlinum. »27
Fyrsti sigurinn hjá HK í gær og
KR vann loksins á heimavelli
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Verknám ætti enginn að vanmeta
og nú tel ég okkur bræðurna örugga
með atvinnu til framtíðar,“ segir
Guðfinnur Ragnar Jóhannsson í Bol-
ungarvík. Hann er einn þríbura sem
brautskráðust frá Tækniskólanum í
síðustu viku með D-stig vélstjórnar,
það er ótakmörkuð réttindi hvað afl-
stærð viðvíkur. Hinir bræðurnir eru
Þórir Örn og Gunnar Már. Þeir þrír
eru fæddir 31. maí 1998 og því 23 ára
í dag.
„Við erum af Ströndum en flutt-
umst með systkinum og foreldrum
okkar, þeim Jóhanni Áskeli Gunn-
arssyni og Guðrúnu Guðfinnsdóttur,
hingað til Bolungarvíkur árið 2013,“
segir Guðfinnur. „Höfum mótast af
umhverfi og samfélagi í sjávarþorp-
inu. Bræður mínir hafa verið á sjó á
ýmsum bátum svo sem Otri og Fríðu
Dagmar sem gerðir eru út héðan frá
Bolungarvík; Þórir er með bíladellu
og við Gunnar erum í björgunar-
sveitinni. Við höfum að einhverju
leyti farið ólíkar leiðir í lífinu en er-
um að flestu leyti þó nokkuð sam-
stiga.“
Endalaus stærðfræði
Bræðurnir þrír hófu nám við
Menntaskólann á Ísafirði haustið
2015. Voru þar og þá hver á sinni
línu og Guðfinnur lauk stúdentsprófi
vorið 2018. Þegar þar var komið
sögu voru Þórir Örn og Gunnar Már
til sjós auk þess að hafa verið í járn-
smíðanámi, en haustið 2019 héldu
bræðurnir þrír allir saman suður til
náms í vélstjórn við Tækniskólann.
Vélstjóranámið segir Guðfinnur
hafa verið skemmtilegt og krefjandi.
„Þegar í Tækniskólann kom vorum
við bræðurnir búnir með ýmis
grunnfög framhaldsskólanáms svo
við fórum strax í faggreinar eins og
vél- og rafmagnsfræði og kælitækni.
Nám er ekkert annað en vinna og
þessi fög sem ég nefni eru fyrst og
síðast endalaus stærðfræði með
jöfnuútreikningum. Nokkra áfanga
tókum við í fjarnámi við aðra skóla –
og þannig gekk kapallinn upp. Að fá
prófskírteini og geta sett upp húfuna
við athöfn í Hörpu var ljúft.“
Verða flestir vegir færir
Guðfinnur Ragnar starfar í sumar
í vélsmiðjunni Mjölni í Bolungarvík.
Þar er mikið umleikis þessa dagana
og þegar Morgunblaðið ræddi við
Guðfinn var hann með starfsfélögum
sínum að taka upp gíraverk í bát.
Gunnar Már og Þórir Örn starfa í
sumar hjá fyrirtækinu Rafverki í
Bolungarvík og eru þessa dagana að
setja upp línur og lýsingar í nýju
frystihúsi í bænum.
„Nokkrir félaga okkar fóru í bók-
nám og hafa jafnvel lokið stúdents-
prófi. Hafa síðan fært sig í verklegar
greinar; pípulagnir, múverk og slíkt.
Við bræðurnir höldum áfram á sömu
braut, ætlum í haust í rafiðnaðar-
nám við Tækniskólann. Með réttindi
rafvirkja og vélstjóra ættu okkur að
verða flestir vegir færir,“ segir Guð-
finnur að síðustu.
Ljósmynd/Aðsend
Bræður Frá vinstri talið: Gunnar Már, Guðfinnur Ragnar og Þórir Örn Jóhannssynir við brautskráningu í Hörpu.
Þríburarnir vélstjórar
- Bræður úr Bolungarvík - Verknám nýtist vel - Ótak-
mörkuð réttindi - Ætla næst í rafvirkjann - 23 ára í dag