Fréttablaðið - 22.10.2021, Page 1

Fréttablaðið - 22.10.2021, Page 1
2 0 8 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 2 2 . O K T Ó B E R 2 0 2 1 Bótakröfur í uppsiglingu Kafað ofan í lífshamingjuna Fréttir ➤ 6 Lífið ➤ 20 Hraðþjónusta HEKLU Er bíllinn klár fyrir veturinn? Renndu við eða bókaðu tíma! HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is Meirihluti bæjarráðs Kópa- vogs samþykkti í gær sam- komulag við Árkór vegna umdeildrar uppbyggingar á Fannborgarreit. Bæjarfulltrúi Samfylkingar segir misráðið að ekki hafi verið hlustað á fólkið á svæðinu. gar@frettabladid.is KÓPAVOGUR „Það er auðvitað óheppilegt að vera að skipuleggja miðbæ í beinni andstöðu við lang- flesta íbúa miðbæjarins,“ segir Pétur H. Sigurðsson, bæjarfulltrúi Sam- fylkingar í Kópavogi. Bæjarráðið samþykkti í gær sam- komulag sem felur í sér að félagið Árkór, sem keypti byggingar í eigu bæjarins á reitnum, geti byggt allt að 270 íbúðir auk atvinnuhúsnæðis. Það bætist við um 200 íbúðir og atvinnu- húsnæði á svæðinu. Byggingarnar mega vera á allt að tólf hæðum. Eigendur núverandi fasteigna hafa harðlega mótmælt áformunum af margvíslegum ástæðum. „Það sýnir að þetta er misráðið því íbúarnir eru afar óánægðir með þessa niðurstöðu,“ segir Pétur. Í samkomulaginu segir að fram- kvæmdirnar hefjist á síðari hluta næsta árs og að þeim verði lokið áður en 2025 er á enda. Um sé að ræða „gríðarlega umfangsmikið þétting- arverkefni“ og því verði tímaáætlanir að halda og samskiptin við þá sem fyrir eru að vera góð. Takmarka skuli ónæði og tilkynna um sprengingar og fleyganir með góðum fyrirvara. Kveðið er á um það að bærinn hafi kauprétt að allt 4,5 prósentum íbúð- anna og að minnst 15 til 20 prósent íbúðanna verði ætluð fyrir þá sem eru að kaupa fyrstu íbúð. „Er hér lögð áhersla á litlar og hagkvæmar íbúðir á viðráðanlegu verði sem fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á fasteigna- markaðnum hafi raunverulegan möguleika á að kaupa.“ Þá segir að minnst 5 prósent íbúða verði að uppfylla skilyrði hlutdeild- arlána. Gert er ráð fyrir bílastæðahúsi með gjaldskyldu. Útfærð verði sér- stök íbúakort fyrir bílastæðahúsið. Ákvæði er um að Árkór verði að tryggja aðgengi að svæðinu og kosta stýringu á framkvæmdatímanum. Pétur segir söluna til Árkórs hafa verið mistök. „Kópavogsbær hafði alla þræði í hendi sér til að skipu- leggja og byggja upp miðbæinn sjálf- ur,“ segir hann en kveðst ekki vita hvað meirihlutanum hafi gengið til. „Ætli það sé ekki ofurtrú Sjálfstæðis- flokksins á einkaframtakinu?“ n Framkvæmdir hefjast í Fannborg á næsta ári Kópavogsbær hafði alla þræði í hendi sér til að skipuleggja og byggja upp miðbæinn sjálfur. Pétur H. Sigurðsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar í Kópavogi Skyrland er ný sýning um skyr og matarmenningu Íslands í Mjólkurbúinu í miðbæ Selfoss. Á sýningunni reynir á öll skilningarvit gesta með frumlegri hönnun. Aðalhönnuður sýningarinnar er Snorri Freyr Hilmarsson. Hér að ofan má sjá Sigurjón Kjartansson, Elísabetu Ósk Guðlaugsdóttur, rekstrarstjóra Skyrlands, og Guðna Ágústsson við opnun sýningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.