Fréttablaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Myndlist er góð fjárfesting sem eykur virði sitt með árunum og auðgar andann,“ segir Ásgerður Júlíusdóttir, verkefnis- og kynn- ingarstjóri hjá Sambandi íslenskra myndlistarmanna (SÍM). Ásgerður, ásamt öðru starfsfólki SÍM, er stödd á gamla hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum, í startholunum til að opna Torg Listamessu Reykja- vík með pompi og prakt klukkan 18 í kvöld. Listamessan er stærsti sýningar- og söluvettvangur íslenskrar myndlistar til þessa, sannkallað ævintýra- og gósenland fyrir listamenn og listunnendur. „Listamessur sem þessar hafa lengi tíðkast um allan heim og löngu sannað gildi sitt. Við hjá SÍM fundum fyrir eftirspurn og þörf fyrir listamessu hér heima, en hún er einstætt framtak og sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi,“ upp- lýsir Ásgerður. Torg Listamessa, sem stofnuð var af Önnu Eyjólfsdóttur mynd- listarmanni og formanni SÍM, var fyrst haldin í tengslum við Mánuð myndlistar árið 2018 og fer nú fram í þriðja sinn. „Tilgangurinn með messunni er fjölþættur; að auka sýnileika myndlistar og gera fólki auðveld- ara fyrir að kynna sér samtímalist og eignast listaverk eftir íslenska eða erlenda listamenn sem starfa hér á landi. Ætlunin er að veita áhugafólki um myndlist tæki- færi til að fjárfesta milliliðalaust í myndlist og eiga um leið per- sónulegt samtal við listamennina sjálfa,“ greinir Ásgerður frá. Sýningarstjóri Torgs Listamessu er Annabelle von Girsewald. „Það er mikill fengur fyrir Torgið að fá Annabelle sem sýningar- stjóra því hún hefur unnið með íslenskum myndlistarmönnum síðan 2010 og hefur mikið innsæi inn í íslenskan myndlistarheim,“ segir Ásgerður. Heimili myndlistarinnar Yfir 70 myndlistarmenn taka þátt í listamessunni á Korpúlfsstöðum. „Það verður eflaust þrautin þyngri að gera upp á milli heillandi listaverka því það er vel skipað í hvert hólf með flottum lista- mönnum. Sýningarsalurinn er í skemmtilega hráu og sögulegu rými sem í dag er stærsti sýningar- salur landsins. Hlöðuloftið geymdi áður hey fyrir kýr í fjósi Korpúlfs- staða sem var stærsta býli lands- ins og byggt af mikilli hugsjón. Korpúlfsstaðir hafa verið heimili myndlistarinnar síðastliðin 50 ár og undanfarin 25 ár hefur SÍM rekið listamiðstöð í þessu glæsi- lega húsi. Á næstu misserum eru margar sýningar og viðburðir á döfinni á Hlöðuloftinu og er nánast fullbókað til ársins 2024, og komnar nokkrar bókanir árið 2025. Það eru eflaust margir sem hafa ekki komið hingað inn, svo ég hvet alla til að gera sér glaðan dag og koma á Korpúlfsstaði því það er kynngimagnaður staður þar sem hjarta myndlistarinnar slær,“ segir Ásgerður. Listaverk og listamenn eru í aðalhlutverki í messunni, en gestir og gangandi geta rætt við lista- mennina, fræðst um verk þeirra og störf og spjallað um sköpunar- kraftinn, lífið og listina. „Messan er fyrst og fremst hugsuð sem skemmtilegur við- burður sem allir geta sótt og vonandi koma sem flestir til að fá sér kaffi og með því og skoða fjölbreytt listaverk. Listamessan er ekki síður hátíð fyrir listamennina og þá sem gera sér ferð á Korpúlfs- staði því það gefur listafólkinu mikið að hitta listunnendur og aðra listamenn. Árið um kring starfar meirihluti myndlistar- manna einn á vinnustofum sínum Listakonan Izabella Katarzyna Hadrian sýnir verk sín. Jóna Bergdal er ein af fleiri en 70 listamönnum sem sýna verk sín á Torgi Lista- messu Reykja- vík. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Martynas Petreikis, verkefnastjóri SÍM Residency. Dagskrá Torgs Listamessu: 22. október – Opnun Torgs frá 18-20. Helgin 23.-24. október – Opið 12 til 18. 28. október – Langur fimmtudagur – Opið 18-22. 29. október – Opið 18-20. Helgin 30.-31. október – Opið 12-18. og því er kærkomið fyrir þá að hitta kollegana, kynnast nýju fólki og bera saman bækur.“ List gerir heimilið persónulegt Listamessan á Korpúlfsstöðum opnar nýja sýn á myndlist. Þar á almenningur stefnumót við lista- menn þjóðarinnar, getur átt beint samtal við þá og eignast einstök listaverk. „Í Covid-ástandinu leitaði fólk í meira mæli eftir því að gera heimili sín hlýlegri og ná fram sínum eigin sérstaka stíl. Það vakti okkur til vitundar um að hafa heimilin ekki bara svört og hvít heldur lífleg, þægileg og heimilisleg. Að eignast listaverk setur persónulegan svip á heimilið og kannski sérðu eitthvað á Hlöðuloftinu sem talar beint til þín og endurspeglar þinn stíl. Þá er ekki amalegt að hitta fyrir lista- manninn sem skapaði listaverkið og á jafnvel sitthvað sameiginlegt með þér, svo sem fagurt auga, stíl og fegurðarskyn,“ segir Ásgerður. Söluverð listaverka rennur að fullu til listafólksins því messan þiggur enga þóknun fyrir sína þjónustu og engir milliliðir taka umboðslaun. „Á Hlöðuloftinu verður hægt að gera góð kaup en listaverkin þurfa þó að vera áfram til sýnis á Korpúlfsstöðum á meðan á messunni stendur. Boðið er upp á raðgreiðslur og fleiri greiðslu- möguleika og því ættu allir að geta fengið eitthvað fallegt fyrir sinn snúð,“ greinir Ásgerður frá. Ísland á flesta listamenn í heimi Íslensk myndlist vekur athygli og aðdáun út fyrir landsteinana. „Dýnamíkin í myndlistinni hér á landi dregur útlendinga að. SÍM rekur vinnustofur, SÍM Residency, fyrir erlenda myndlistarmenn og við önnum ekki eftirspurn. Það sem af er þessu ári hafa 114 lista- menn að komið að utan í residensí- una eða vinnustofurnar hjá okkur, þrátt fyrir ýmsar takmarkanir. Þeir koma til að vinna að mynd- list sinni og verða undantekn- ingarlaust fyrir miklum áhrifum af íslenskri náttúru, sem og hand- bragði og efnistökum íslenskra myndlistarmanna, og það bregst ekki að íslenska náttúran skín í gegn í listaverkum þeirra,“ upplýsir Ásgerður. Hún segir smæð þjóðfélagsins einkenna íslenska myndlist. „Styrkur okkar felst einmitt í smæðinni og menningarleg sjálfsmynd þjóðarinnar liggur í listinni. Þrátt fyrir þessa smæð eiga Íslendingar flesta myndlistar- menn í heimi, miðað við höfða- tölu. Íslendingar eru einstaklega skapandi og listrænir, hvort sem það er í myndlist, tónlist, leik- list eða bókmenntum, og hér er ólgandi suðupottur þegar kemur að listsköpun. Helsta einkenni íslenskrar myndlistar er náttúran en það má segja að hún hafi verið rauður þráður í gegnum íslenska listasögu og sé enn afar fyrirferðar- mikil í myndlistinni í dag, og þó það séu alls ekki allir sem vinna beint með hana þá skín hún oft í gegn á ólíklegasta hátt.“ ■ Torg Listamessa Reykjavík verður haldin dagana 22. til 31. október á Hlöðuloftinu á Korpúlfsstöðum. Aðgangur er ókeypis og kaffi á staðnum. Hlynur Helgason sýnir stór og smá verk á listamessunni. Viktor Pétur Hannesson með stór verk sín í bakgrunni. Listakonan Bryndís Brynjarsdóttir hengir upp eitt verka sinna með sýningarstjóranum Önnubelle von Girsewald. 2 kynningarblað A L LT 22. október 2021 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.