Fréttablaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 20
Hjá Álfaborg má finna
gríðarlegt úrval af gólf-
efnum fyrir fyrirtæki og
heimili. Þar starfar fagfólk
með áratugalanga reynslu
og þekkingu á gólfefnum.
Starfsfólkið tekur vel á móti
viðskiptavinunum og veitir
faglega ráðgjöf.
Síðustu misseri hafa staðið yfir
miklar framkvæmdir í Álfaborg
en verið var að breyta versluninni
til að koma betur til móts við við
skiptavinina. Búið er að stækka
sýningarsalinn og búa til betri
aðstöðu til þess að veita persónu
legri þjónustu og verslunin er öll
orðin rúmbetri og aðgengilegri.
Álfaborg hefur starfað frá árinu
1986 og þar vinnur fólk sem hefur
í gegnum árin öðlast mikla þekk
ingu og reynslu af gólfefnum fyrir
allar aðstæður.
„Við leggjum mikla áherslu á að
viðskiptavinir okkar séu í góðum
höndum,“ segir Rúnar Höskulds
son framkvæmdastjóri Álfaborgar.
„Það er lykilatriði að vera með
starfsfólk sem tekur vel á móti við
skiptavinunum og getur leiðbeint
þeim við val á rétta gólfefninu. Ég
myndi segja að helsti kostur fyrir
tækisins sé starfsfólkið.“
Ný parketdeild
Nýlega var ný parketdeild opnuð
í Álfaborg fyrir vörur frá Berry
Alloc og Tarkett. Bæði harðparket,
viðarparket, dúka og vínylparket.
„Við erum með nýtt Ocean+
harðparket frá Berry Alloc, en það
eru tveggja metra löng borð og
extra breiðir plankar. Ocean+ er
fáanlegt í tíu náttúrulitum,“ segir
Rúnar.
„Parketið er vaxhúðað með
Hydro+ tækni sem kemur í veg
fyrir að raki komist inn í efnið. Það
hentar fyrir öll gólf og rými og er
einstaklega auðvelt að leggja með
endalæsingu. Þetta er parket fyrir
þá sem gera kröfur um fallegt útlit
og mikil gæði.“
Rúnar segir að vínylparket hafi
mikið verið að ryðja sér til rúms
síðustu misseri enda ótrúlega
sterkt og endingargott gólfefni sem
þolir nánast hvað sem er.
„Tarkett er fyrirtæki sem býður
upp á ótrúlega góðar lausnir og
liti þegar kemur að vínylparketi.
Viðarparket og harðparket er alltaf
vinsælt en vínylparket er flott við
bót í gólfefnaúrval okkar. Vínyl
parketið er bæði hægt að kaupa
með smellukerfi og svo niðurlímt.“
Flísar í miklu úrvali
Álfaborg hefur einnig verið að
taka inn nýjar vörulínur í f lísum.
Flísadeildin hefur tekið miklum
breytingum og þar er boðið upp á
mikið úrval flísa. Flísadeildin hjá
Álfaborg er þekkt fyrir hágæða
framleiðendur eins og Porcelanosa
Allt á gólfið á einum stað í endurbættri verslun
Rúnar Höskuldsson segir að helsti kostur fyrirtækisins sé starfsfólkið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Starfsfólk Álfa-
borgar tekur vel
á móti við-
skiptavinum og
veitir faglega
þjónustu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Útiflísar fyrir íslenskar aðstæður á hagstæðu verði.Útiflísar hafa verið mjög vinsælar hjá viðskiptavinum.
Það er lykilatriði
að vera með starfs-
fólk sem tekur vel á móti
viðskiptavinunum og
getur leiðbeint þeim við
val á rétta gólfefninu.
Rúnar Höskuldsson
6 kynningarblað 22. október 2021 FÖSTUDAGURFYRSTA HEIMILIÐ GÓLFEFNI