Fréttablaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 12
Ég held það sé hvergi hægt að finna sprengjugeymslur í miðri höfuðborg annars staðar í Evrópu. Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Þrúður S. Ingvarsdóttir lést á hjartadeild Landspítalans fimmtudaginn 14. október. Útför hennar fer fram í Hafnarfjarðar- kirkju mánudaginn 25. október kl. 13.00. Reynir S. Hreinsson Nína B. Bernhöft Salvarard. Gottskálk D. B. Reynisson Saga Sigríðardóttir Bjarni F. Bernhöft Reynisson Eva Rut Bernhöft Reynisdóttir Nýr sýningarsalur í gömlu kartöflugeymslunum verður vígður um helgina með list- sýningu Gallerísins. arnartomas@frettabladid.is „Það er nýmæli að gallerí séu með kynningar á verkum sinna mynd- listarmanna á öðrum stað en i galleríinu sjálfu,“ segir myndlistar- maðurinn Gunnella hjá Galleríinu Skólavörðustíg 20. Galleríið stendur fyrir myndlistarsýningu sem verður opnuð í gömlu kartöflugeymslun- um í Ártúnsbrekku næstkomandi laugardag 23. október klukkan 14.00. „Markmið Gallerísins með Sýningunni er að útvíkka sýnileik Gallerísins og gefa þeim mynd- listarmönnum sem eru í samstarfi við það eftirtektarvert tækifæri til aukinnar kynningar með ferskum stórviðburði í sögufrægu húsnæði.“ Sýningin ber einfaldlega heitið Sýningin, og samanstendur af verk- um frá tuttugu myndlistarmönnum Gallerísins. Þetta verður fyrsta myndlistarsýningin sem haldin er í nýjum sýningarsal gömlu kartöflu- geymslnanna. „Þetta er einstaklega áhugaverður sýningarsalur og það er frábært tækifæri að fá að vera fyrstu sýnendur í salnum,“ segir Gunnella. „Þessi bygging er auð- vitað sögufræg og á sér skemmti- lega sögu.“ Flest verk Sýningarinnar voru unnin sérstaklega í tilefni hennar og segir Gunnella að sum þeirra hafi beina skírskotun í sögu bygg- ingarinnar sem kartöflugeymslna. „Sýnd verða til dæmis olíumálverk, vatnslitaverk, hönnun, skúlptúrar og grafík,“ segir hún. „Það verður fjölbreytileiki sem einkennir sýn- inguna.“ Uppgerð sprengjugeymsla Byggingarnar sem f lestir þekkja sem gömlu kartöf lugeymslurnar voru upprunalega reistar í Hval- firði af bandarískum hermönnum og nýttar sem sprengjugeymslur fyrir herskip í seinni heimsstyrjöld- inni. Eftir stríðið voru byggingarnar f luttar í Ártúnsbrekkuna þar sem þær standa enn og voru lengi notað- ar til að geyma kartöflur. Á undan- förnum árum hefur svo verið unnið að því að umturna stríðsminjunum í hönnunar- og listamiðstöð. „Þetta eru rosalega merkilegar byggingar, ekki bara á íslenskan mælikvarða,“ segir Kristinn Brynj- ólfsson, hönnuður og maðurinn á bak við endurreisn kartöf lu- geymslnanna. „Ég held það sé hvergi hægt að finna sprengjugeymslur í miðri höfuðborg annars staðar í Evrópu.“ Sú hugsjón sem Kristinn hefur borið í brjósti fyrir svæðið kviknaði árið 1996 og við tók langt og strangt verk. „Það þurfti að endurbyggja þetta allt,“ segir hann. „Margir héldu að byggingarnar væru hrein- lega ónýtar þegar ég tók við þeim.“ Aðspurður hvenær megi vænta þess að miðstöðin verði opnuð segir Kristinn að þetta sé verk í vinnslu. „Byggingin þar sem Sýningin verður er í raun nýbygging sem var byggð aftan við geymslurnar,“ segir hann. „Húsnæðið er svo hugsað þannig að í öllum byggingum verði starfsemi sem tengist skapandi greinum, eins og deiliskipulag Reykjavíkurborgar fyrir lóðina gerir ráð fyrir, en hún er í jaðri útivistarsvæðis Elliðaár- dalsins.“n Endurreisnin í gömlu kartöflugeymslunum arnartomas@frettabladid.is Vorið 1253 fluttist Gissur Þorvalds- son, oft kallaður Gissur jarl, norður í Skagafjörð og settist að á Flugumýri við Blönduhlíð. Gissur var Hauk- dælingur, hafði lengi eldað grátt silfur við Sturlunga en hafði hug á að efna til sátta. Í þeirri viðleitni gifti hann son sinn Hall yngstu dóttur Sturlu Þórðar- sonar, Ingibjörgu. Brúðkaup þeirra var haldið sama haust. Friðurinn lagðist misvel í menn og meðal þeirra sem voru ósáttir var Eyjólfur Þorsteinsson sem safnaði liði vopnaðra manna og kom að Flugumýri 21. október. Liðsmenn Eyjólfs gerðu misheppnaðar tilraunir til að ráðast inn á bæinn en þegar þeim varð ekki ágengt var ákveðið að kveikja í húsun- um áður en liðsauki bærist Gissuri. 25 manns fórust í eldinum, þar á meðal kona Gissurs, Gróa Álfsdóttir, og synir þeirra þrír. Gissur sjálfur skreið ofan í sýruker í matarbúri bæjarins og komst þannig lifandi undan eldinum. n Þetta gerðist 22. október 1253 Sturlungar brenna Flugumýri Gunnella Ólafsdóttir og Laufey Jens- dóttir verða með verk á Sýningunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Kartöflugeymslurnar munu hýsa starfsemi sem byggir á skapandi greinum. 25 manns fórust í eld- inum, þar á meðal kona Gissurs, Gróa Álfsdóttir, og synir þeirra þrír. TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 22. október 2021 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.