Fréttablaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 24
Securitas hefur frá upphafi boðið heimilum landsins upp á Heimavörn. Þar getur heimilisfólk stjórnað ýmsum aðgerðum og fylgst með heimilinu frá einum stað, líka ef það er ekki heima. Heimavörn Securitas hefur verið hjartað í þjónustuframboði fyrir- tækisins frá stofnun þess. Reynsla viðskiptavina af Heimavörn er gríðarlega góð og hefur þjónustan komið í veg fyrir tjón og skemmdir á eignum ótal sinnum, að sögn Nínu Louise Auðardóttur, sér- fræðings í stafrænni þróun og markaðsmálum hjá Securitas. „Það eru svo mikil þægindi fólgin í því að geta stjórnað öllu á sama stað, hvar og hvenær sem er. Fólk getur verið rólegt fjarri heimilinu, vitandi það að við stöndum vörðinn allan sólarhringinn. Það sem gerir Heimavörnina líka þægilega er að fólk getur fylgst með heimilinu þegar það er ekki sjálft heima. Það á við ef til dæmis einhver hringir dyrabjöllunni, ef hundurinn er einn heima eða ef óvæntur umgangur er í kringum húsið. Það eykur þægindin til muna því þó ekki sé um raunverulegt innbrot að ræða finnst fólki gott að geta fylgst með og geta þá gert ráðstafanir sé það nauðsynlegt.“ Hentar öllum heimilum Ákveðinn grunnpakki er inni- falinn í Heimavörn að sögn Nínu. „Hann inniheldur búnað (7" snertiskjá og hurða- og glugga- skynjara eftir þörfum), tengingu við stjórnstöð Securitas allan sólarhringinn, sem og viðbragðs- þjónustu öryggisvarða allan sólarhringinn. Viðhald á búnaði er einnig í höndum Securitas.“ Heimavörn er ætluð fyrir allar stærðir af heimilum segir hún. „Með snjallvæðingu Heima- varnarinnar er hún svo miklu meira en bara öryggiskerfi. Það er hægt að stjórna lýsingu, raftækjum og læsingum með kerfinu. En einnig er mjög mikið öryggi fyrir öll heimili að hafa vatns- og reyk- skynjara tengda kerfinu.“ Í sífelldri þróun Nína segir Securitas vera með Heimavörn í sífelldri þróun í sam- starfi við Alarm.com, eitt stærsta öryggisfyrirtæki heims. „Sú þekk- ing og reynsla sem þar býr hefur hjálpað Securitas gríðarlega mikið síðustu árin og mun gera á kom- andi árum. Heimili með Heima- vörn eru betur varin fyrir tjónum og innbrotum með viðbragði allan sólarhringinn en önnur heimili og sýnir það sig daglega í okkar starfi hversu verðmæt okkar þjónusta er við heimili landsins.“ Sérhæfð þjónusta Öryggisráðgjafar Securitas aðstoða fólk við að finna hvað hentar hverju og einu heimili, segir Nína. „Það er margs konar öryggisbúnaður í boði sem tengist við Heimavörnina. Okkur finnst mjög mikilvægt að hver og einn viðskiptavinur fái sér- hæfða þjónustu því hvert heimili er ólíkt. Við uppsetningu Heima- varnar taka við tæknimenn sem koma og setja allt upp og kenna viðskiptavininum á búnað sem og kerfi þannig að þjónustan nýtist hverjum og einum sem best. Seinna meir er síðan einfalt að bæta við búnaði, svo sem myndavél, hreyfi- skynjara, dyrasíma, snjalllás, snjall- perum og snjalltengi. Að lokum má nefna að það er enginn binditími þegar gerður er samningur um Heimavörn.“ ■ Nánari upplýsingar á securitas.is/ heimavorn. Verðmæt þjónusta við heimili landsins „Það eru svo mikil þægindi fólgin í því að geta stjórnað öllu á sama stað, hvar og hvenær sem er,“ segir Nína Louise Auðar- dóttir, sérfræð- ingur í staf- rænni þróun og markaðsmálum hjá Securitas. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Það er óþarfi að standa við gluggann og fylgjast með þegar þú getur notað appið. Það er margs konar öryggisbúnaður í boði fyrir heimili landsins sem tengist við Heimavörnina. Heimavarnar-appið er einfalt og þægilegt í notkun. Heimavörn er ætluð fyrir allar stærðir af heimilum. Hægt er að tengja Heimavörnina við snjalllás og losna við lykla og áhyggjur af því að hafa gleymt að læsa. Stílhreinn 7" snertiskjár fylgir Heimavörninni en þar er hægt að stjórna öllum aðgerðum. 10 kynningarblað 22. október 2021 FÖSTUDAGURFYRSTA HEIMILIÐ HEIMAVÖRN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.