Fréttablaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 22.10.2021, Blaðsíða 21
Með nýrri tækni er mögulegt að fá aukinn fjölda af útfærslum svo sem flísar í marmaraútliti, steini, parketi, ýmsum litum og með fjölbreyttu yfir- borði. Rúnar Höskuldsson Miklar breyt- ingar hafa verið gerðar á verslunni. Hún er rúmgóð og þægileg og að- gengi er gott. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR IBLA er ný glæsi- leg lína sem er væntanleg til landsins. Nýtt harðparket frá Berry Alloc – Ocean+. MYNDIR/AÐSENDAR Pro matrix er ein vinsælasta flísin. Segno viðarparketið frá Tarkett er glæsilegt. Stórar ítalskar flísar frá Imola. Terazzo flísar njóta mikilla vinsælda um þessar mundir. frá Spáni. Álfaborg er einnig aðili að NAXB sem er innkaupasam- band 200 endursöluaðila á Norður- löndunum sem sér um að þróa og hanna flísar og tengdar vörur. „NAXB flísarnar eru hannaðar og þróaðar af ítölskum hönnuðum eftir forskrift sambandsaðila undir vörumerki Naxb – Pro System. Framleiðsla á þeim fer síðan fram víðs vegar um Evrópu, þar sem það er hagkvæmast hverju sinni. Þetta er hágæða vara á mjög sanngjörnu verði,“ útskýrir Rúnar. Álfaborg býður fjölda lausna frá viðkenndum ítölskum framleið- endum á stórum flísum en Rúnar segir að eftirspurn eftir slíkum flísum hafi aukist. „Það er orðið mögulegt að búa til f lísar í stærðum sem eru allt að 160x320 cm. Ávinningur af stórum flísa er útlitið. Fullkomið flatt yfir- borð og færri fúgur. Það er hægt er að nota flísarnar á gólf og veggi og þær eru einnig góð lausn í borð- plötur,“ segir hann. „Með nýrri tækni er mögulegt að fá aukinn fjölda af útfærslum svo sem flísar í marmaraútliti, steini, parketi, ýmsum litum og með fjöl- breyttu yfirborði. Það er eitthvað sem hönnuðir fagna mjög.“ Rúnar segir að ný glæsileg flísalína frá Piemme – IBLA sé væntanleg til landsins. Flísarnar eru í náttúrusteinsútliti en fyrir- myndin er fágætur marmari sem finnst einungis á Sikiley. Flísarnar eru fáanlegar í fjórum litbrigðum: Nera, Linfa, Colofonia og Resina í mörgum stærðum. „Þetta er ítölsk hönnun eins og hún gerist best!“ segir Rúnar. Útiflísar sem henta á Íslandi Hjá Álfaborg er einnig gott úrval útiflísa sem hafa fengið frábærar viðtökur hjá viðskiptavinum, að sögn Rúnars. Flísarnar eru við- haldsfríar svo ekki þarf að mála pallinn reglulega. „Við erum með útiflísar sem henta íslenskum aðstæðum. Þær eru með hálkuvörn og sameina kosti f lísa og garðhellna. Þær eru veðurþolnar, með lága vatns- drægni og upplitast ekki,“ upplýsir Rúnar. „Útiflísarnar henta vel á svalir, á pallinn, tröppur, göngustíga og fleira. Það er hægt að leggja þær sjálfberandi á stuðningskerfi, líma þær og leggja á þjappaða möl eða gras. Við eigum mikið úrval af þeim og það er auðvelt að leggja þær.“ Teppi og dúkar Í teppadeildinni hjá Álfaborg eru fjölmargir valkostir sem fyrirtæki hafa nýtt sér mikið. Til dæmis með því að blanda saman teppaflísum og vínylparketi á gönguleiðum. „Við höfum einnig mikið verið að selja stigahúsateppi fyrir hús- félög og eigum gott úrval af slíkum teppum,“ segir Rúnar. „Við aðstoðum húsfélög við val á stigahúsateppum. Við komum á staðinn með prufur og mælum upp stigahúsið. Í framhaldi af því gerum við tilboð í verkefnið að kostnaðarlausu.“ Hjá Álfaborg má einnig finna úrval gólfdúka auk fylgiefna og múrvöru. Það er í raun allt í boði fyrir gólfið á einum stað. n kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 22. október 2021 FYRSTA HEIMILIÐGÓLFEFNI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.