Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.10.2021, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 22.10.2021, Qupperneq 13
KYNN INGARBLAÐ ALLT FÖSTUDAGUR 22. október 2021 Jack og Ray mættu á leik LA Lakers á miðvikudagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY sandragudrun@frettabladid.is Stórleikarinn Jack Nicholson sást opinberlega í fyrsta sinn í næstum tvö ár á Lakers-leik á miðviku- dagskvöldið. Hann var á leiknum með syni sínum Ray sem einnig er leikari. Jack er orðinn 84 ára gamall og hefur lengi stutt Lakers og mætt á leiki hjá liðinu en hefur látið það vera eftir að heimsfar- aldurinn braust út. Jack hefur ekki sést á hvíta tjaldinu síðan hann lék í myndinni How Do You Know sem kom út árið 2010. Hann átti að leika aðal- hlutverkið í endurgerð á þýsku Óskarsverðlaunakvikmyndinni Toni Erdmann en dró sig út úr því árið 2018. Síðan þá hefur Jack Nicholson haldið sig að mestu frá sviðsljósinu. Hann segist ekki lengur finna hjá sér þörf til að vera fyrir allra augum. Börnin líka leikið Börn hans hafa sum fetað í fótspor hans og leikið í kvikmyndum. Ray sem mætti með föður sínum á Lakers-leikinni í vikunni lék til dæmis í myndinni Promising Young Woman, sem vann bæði BAFTA- og Óskarsverðlaun fyrir besta frumsamda handritið. Dóttir hans Lorraine hefur einni leikið í nokkrum kvikmyndum en hefur núna ákveðið að einbeita sér að leikstjórn frekar. Dóttursonur hans Duke lét einnig ljós sitt skína á hvíta tjaldinu í kvikmyndinni Us. ■ Mætti aftur á leik Aðstandendur Torgs Listamessu í Reykjavík við Hlöðuloftið á Korpúlfsstöðum, frá vinstri: Martynas Petreikis, Annabelle von Girsewald, Ásgerður Júlíusdótt- ir, Anna Eyjólfsdóttir, Guðrún Gerður Guðrúnardóttir (Gaga Design), Ingibjörg Gunnlaugsdóttir, Hlynur Helgason og Friðrik Weisshappel. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Myndlist auðgar andann og eykur virði sitt með árunum Gósenland mun opnast listunnendum á Korpúlfsstöðum í kvöld þegar SÍM opnar Torg Listamessu Reykjavík. Þar verður hægt að skoða og kaupa listaverk af fleiri en 70 myndlistarmönnum, eiga við þá samtal og fá sér molasopa og kruðerí í mögnuðu húsi. 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.