Morgunblaðið - 15.06.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.06.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þessar niðurstöður eru mjög upp- örvandi og við hjá Landsvirkjun höfum trú á þessu samstarfi við Rotterdamhöfn,“ segir Hörður Arn- arson, forstjóri Landsvirkjunar. Landsvirkjun og hafnaryfirvöld í Rotterdam hafa lokið við forskoð- un varðandi möguleika á að flytja grænt vetni frá Íslandi til Rotterdam. Samkvæmt upp- lýsingum frá Landsvirkjun sýna niðurstöðurnar að tæknin er fyrir hendi jafnframt því sem verkefnið er fjárhagslega ábatavænt. Eins telur Landsvirkj- um að verkefnið yrði mikilvægt framlag í baráttunni gegn loftslags- hlýnun, þegar hagkerfi heimsins skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir endurnýjanlega orku á komandi áratugum. Landsvirkjun og Rotterdamhöfn munu áfram vinna náið saman að rannsóknum og þróun á þessu verk- efni. Stefnt er að því að á seinni hluta næsta árs liggi fyrir útlistun á ætlunum fyrirtækjanna en þau telja raunhæft að grænt vetni verði sent héðan til Rotterdam fyrir 2030. „Við erum staðráðin í að vísa áfram leiðina á sviði endurnýjan- legra orkugjafa. Það er leiðin til betri framtíðar fyrir okkur öll. Við hlökkum til að finna bestu leiðina til þess að koma okkar hreinu orku á erlenda markaði,“ segir Hörður. Skrifað var undir viljayfirlýsingu um þessi áform í október síðast- liðnum. Þá kom fram í umfjöllun Morgunblaðsins að nú þegar heims- byggðin leitaði leiða til að minnka notkun jarðefnaeldsneytis væri vetni einn af orkumiðlum framtíð- arinnar. „Með því að nota vetni sem miðil getum við flutt endurnýjan- lega orku út til meginlands Evrópu og því aukið framlag okkar til þeirra hnattrænu orkuskipta sem eru óumflýjanleg,“ sagði Hörður þá. Síðustu mánuði hafa fyrirtækin unnið saman að því að tilgreina helstu þætti virðiskeðjunnar, frá framleiðslu á endurnýjanlegri orku og vetnisframleiðslu á Íslandi til flutninga til Rotterdamhafnar. Samanburður var gerður á mis- munandi tegundum flutningaskipa sem gætu mögulega flutt vetnið með tilliti til orkuþéttleika, kostn- aðar, eftirspurnar og annarra þátta. Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun sýnir forskoðunin að verkefnið getur hafist á síðari hluta þessa áratugar og yrði af stærðar- gráðunni 2 til 4 TWh (eða 200 til 500 MW). Telur fyrirtækið að þessi fyrstu skref geti dregið úr kolefnis- losun sem nemur einni milljón tonna á ári, en þegar til lengri tíma er litið sé möguleiki á að minnkunin geti hlaupið á milljónum tonna. Orkan sem notuð væri gæti verið blanda af endurnýjanlegri orku, þ.á m. vatnsorka, jarðhiti og vind- orka. Vitaskuld þykir aðgengi að fjölbreytilegum endurnýjanlegum orkulindum á Íslandi vera mikill kostur og veitir íslenska vetninu samkeppnisforskot í verði á evr- ópska vetnismarkaðinum að mati Landsvirkjunar. Vetnið yrði fram- leitt með rafgreiningu og síðan ann- aðhvort breytt í vökva eða annað form og sent með vöruflutninga- skipum til Rotterdam, þar sem því yrði umbreytt á ný og tekið til notkunar við höfnina eða sent á markaði á meginlandinu. Grænt ljós á útflutning á grænu vetni - Landsvirkjun og hafnaryfirvöld í Rotterdam staðfesta áform um að flytja grænt vetni frá Íslandi til Hollands - Verði hluti af hnattrænum orkuskiptum - Raunhæft að vetnið verði sent héðan fyrir 2030 Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ljósafossvirkjun Gæti orðið miðstöð fyrstu vetnisframleiðslu hér á landi. Hörður Arnarson Karlmaður um tvítugt sem var stunginn í Hafnarstræti í mið- borg Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags er enn í lífshættu. Grímur Grímsson, yfirlög- regluþjónn hjá miðlægri rann- sóknardeild, segir í samtali við Morgunblaðið að sér hafi borist til eyrna að maðurinn sé ekki í bráðri lífshættu lengur, en að hann sé ekki hólpinn enn. Hon- um er nú haldið sofandi á gjör- gæslu. Rannsókn málsins segir Grím- ur að sé enn á ákveðnu byrj- unarstigi enda stutt síðan atvikið átti sér stað. Karlmaður á þrí- tugsaldri hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn málsins og er hann nú í haldi lögreglu, grunaður um verknaðinn. Í fréttatilkynningu frá lög- reglu segir að rætt hafi verið við fjölda vitna auk þess sem verið sé að fara yfir upptökur úr ör- yggismyndavélum í kring. oddurth@mbl.is Maðurinn er enn í lífshættu Reykjavíkurmeistaramótið í hestaíþróttum hófst í gær með glæsilegum fjór- gangssýningum sem hófust samkvæmt dagskrá klukkan 12 og stóðu yfir fram eftir kvöldi. Deginum var svo slúttað með fyrri tveimur sprettunum í 150 og 250 metra skeiði. Mótið stendur yfir í sjö daga. Það er haldið á fé- lagssvæði hestamannafélagsins Fáks í Víðidal og stækkar ört frá ári til árs. Alls eru 888 pör skráð til leiks í ár, en skráningarnar hafa aldrei verið fleiri. Morgunblaðið/Unnur Karen Aldrei fleiri skráðir á mótið„Landið er farið að rísa,“ sagði Rún- ar Sigurpálsson, forstjóri PCC á Bakka við Húsavík, en stefnt er á gangsetningu síðari af tveimur ofn- um verksmiðjunnar í byrjun júlí. Heimsfaraldurinn hafði í för með sér röskun á heimsmarkaði með kís- ilmálm. Verð lækkaði og eftirspurn dróst saman. Í lok júní á síðasta ári stöðvaði kísilverksmiðjan PCC á Bakka starfsemi sína. Misstu þá tveir þriðju hlutar starfsfólks vinn- una. Í lok janúar á þessu ári tók fyrirtækið sig til og byrjaði að ráða til baka starfsfólk og undirbúa endurræsingu ofnanna. Í lok apríl ræsti fyrirtækið annan ofninn. Flutningaskipið Wilson North kom í höfn á Húsavík í gærmorgun, barmafullt af trjábolum fyrir kísil- verksmiðjuna. Nú er verið að und- irbúa ræsingu á seinni ofninum og stefnt er á gangsetningu í byrjun júlí að sögn Rúnars. thorab@mbl.is PCC á Bakka tekur við sér - Stefna á að gangsetja seinni ofninn í byrjun júlí Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar Trjábolir Flutningaskip kemur með trjáboli fyrir verksmiðju PCC á Húsavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.