Morgunblaðið - 15.06.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021
Pepsi Max-deild karla
Leiknir R. – KR........................................ 0:2
Staðan:
Víkingur R. 8 5 3 0 14:6 18
Valur 8 5 2 1 14:9 17
KR 8 4 2 2 14:9 14
KA 6 4 1 1 11:3 13
Breiðablik 7 4 1 2 16:10 13
FH 7 3 1 3 12:9 10
Leiknir R. 8 2 2 4 9:12 8
Fylkir 8 1 4 3 10:15 7
HK 7 1 3 3 9:13 6
Stjarnan 8 1 3 4 5:12 6
ÍA 7 1 2 4 8:15 5
Keflavík 6 1 0 5 6:15 3
Lengjudeild karla
ÍBV – Þór .................................................. 2:1
Staðan:
Fram 6 6 0 0 19:3 18
Fjölnir 6 4 1 1 10:5 13
Grindavík 6 4 0 2 11:11 12
Kórdrengir 6 3 2 1 11:9 11
ÍBV 6 3 1 2 12:8 10
Vestri 6 3 0 3 10:14 9
Grótta 6 2 2 2 15:11 8
Þór 6 2 1 3 13:14 7
Afturelding 6 1 2 3 10:13 5
Þróttur R. 6 1 1 4 10:14 4
Selfoss 6 1 1 4 7:15 4
Víkingur Ó. 6 0 1 5 7:18 1
EM karla 2021
D-RIÐILL:
Skotland – Tékkland ................................ 0:2
Staðan:
Tékkland 1 1 0 0 2:0 3
England 1 1 0 0 1:0 3
Króatía 1 0 0 1 0:1 0
Skotland 1 0 0 1 0:2 0
E-RIÐILL:
Pólland – Slóvakía .................................... 1:2
Spánn – Svíþjóð ........................................ 0:0
Staðan:
Slóvakía 1 1 0 0 2:1 3
Spánn 1 0 1 0 0:0 1
Svíþjóð 1 0 1 0 0:0 1
Pólland 1 0 0 1 1:2 0
Leikir í dag:
F: Ungverjaland – Portúgal ..................... 16
F: Frakkland – Þýskaland........................ 19
Ameríkubikarinn
Brasilía – Venesúela................................. 3:0
Kólumbía – Ekvador ................................ 1:0
Vináttulandsleikir kvenna
Bandaríkin – Jamaíka.............................. 4:0
Portúgal – Nígería ................................... 3:3
Tékkland – Pólland .................................. 0:5
Austurríki – Ítalía .................................... 2:3
Finnland – Rússland ................................ 0:1
Ungverjaland – Serbía............................. 2:3
Slóvakía – Rúmenía.................................. 3:1
Brasilía – Kanada ..................................... 0:0
Noregur
Stabæk – Tromsö..................................... 0:3
- Adam Örn Arnarson kom inn á sem
varamaður á 43. mínútu hjá Tromsö.
Staða efstu liða:
Bodø/Glimt 7 5 1 1 13:4 16
Kristiansund 7 5 0 2 7:5 15
Molde 7 4 2 1 17:9 14
Rosenborg 8 4 2 2 20:13 14
Viking 7 4 0 3 14:14 12
Vålerenga 7 3 2 2 13:11 11
Tromsø 7 2 2 3 9:12 8
Strømsgodset 5 2 1 2 6:7 7
Sarpsborg 5 1 3 1 3:2 6
>;(//24)3;(
Sviss
Annar úrslitaleikur:
Kadetten – Pfadi Winterthur............. 28:33
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
_ Staðan er 2:0 fyrir Pfadi Winterthur.
E(;R&:=/D
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, undanúrslit:
Denver – Phoenix ............................. 118:125
_ Phoenix sigraði 4:0 og mætir Utah Jazz
eða LA Clippers í úrslitum Vesturdeildar.
>73G,&:=/D
HANDKNATTLEIKUR
Fyrri úrslitaleikur karla:
Origo-höllin: Valur – Haukar .............. 19.30
KNATTSPYRNA
Vináttulandsleikur kvenna:
Laugardalsvöllur: Ísland – Írland ........... 17
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Ásvellir: Haukar – Grótta.................... 19.15
Grindavíkurv.: Grindavík – ÍA ............ 19.15
Kórinn: HK – FH ................................. 19.15
Varmá: Afturelding – Augnablik ........ 19.15
2. deild karla:
Akraneshöll: Kári – ÍR ............................. 20
3. deild karla:
Skessan: ÍH – Einherji ............................. 20
Í KVÖLD!
EM 2021
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Þrátt fyrir mikla yfirburði tókst
Spánverjum ekki að skora sig-
urmark gegn þrjóskum Svíum er lið-
in mættust í E-riðli Evrópumóts
karla í fótbolta í Sevilla í Andalúsíu í
gærkvöldi. Lokatölur urðu 0:0 og er
ljóst að Svíar eru mun ánægðari með
úrslitin.
Spánverjar fengu fjölmörg færi til
að skora en Robin Olsen í sænska
markinu varði nokkrum sinnum
stórglæsilega og var maður leiksins.
Þá var spænska liðið með boltann
85% af leiknum, átti sautján skot
gegn fjórum og 917 sendingar gegn
161 hjá sænska liðinu.
Jan Andersson, þjálfari Svía, lagði
augljóslega upp með að halda
hreinu, pirra Spánverja og ná góðu
stigi. Það gekk fullkomlega upp.
Undirbúningur spænska liðsins
fyrir mótið var langt frá því að vera
ákjósanlegur þar sem fyrirliði liðs-
ins, Sergio Busquets, fékk kórónu-
veiruna rétt fyrir mót og spænska
liðið æfði lítið sem ekki neitt saman
vegna þessa.
Fyrsta sjálfsmark markvarðar
Í hinum leik E-riðilsins hafði Sló-
vakía nokkuð óvænt betur gegn Pól-
landi, 2:1, í Sankti Pétursborg í
Rússlandi.
Því miður fyrir pólska markvörð-
inn Wojciech Szczesny komst hann í
sögubækurnar er Slóvakía komst yf-
ir í fyrri hálfleik. Szczesny skoraði
þá fyrsta sjálfsmark markvarðar í
sögu Evrópumótsins. Robert Mak á
heiðurinn af markinu því hann fór
illa með tvo pólska varnarmenn á
kantinum, keyrði að marki og skaut í
stöngina hvaðan boltinn fór í bakið á
Szczesny og í markið.
Karol Linetty jafnaði fyrir Pól-
verja í upphafi seinni hálfleiks en
Grzegorz Krychowiak fékk sitt ann-
að gula spjald og þar með rautt í
pólska liðinu á 62. mínútu. Slóvakar
voru snöggir að nýta sér það og mið-
vörðurinn Milan Skriniar skoraði
fallegt sigurmark á 62. mínútu. Ro-
bert Lewandowski, skærasta stjarna
Pólverja og einn besti framherji
heims, komst lítið í takt við leikinn.
Slóvakía er ein á toppi riðilsins
með þrjú stig eftir fyrstu umferðina,
Spánn og Svíþjóð koma þar á eftir
með eitt og Pólland rekur lestina án
stiga.
Eitt af mörkum keppninnar
Patrik Schick stal senunni er
Tékkar unnu sterkan 2:0-sigur á
Skotum á Hampden Park í Glasgow.
Schick skoraði bæði mörk Tékka og
var annað markið sérstaklega glæsi-
legt; skot frá miðju eftir snögga
sókn. David Marshall í marki Skota
stóð framarlega og það nýtti Schick
sér til að skora stórkostlegt mark á
meðan Marshall gat lítið gert annað
en að hoppa inn í markið á eftir bolt-
anum.
Tékkar og Englendingar eru með
þrjú stig í D-riðlinum en Skotar og
Króatar eru án stiga.
Sænskur múr
í Andalúsíu
- Tékkland og Slóvakía fögnuðu
AFP
Veggur Robin Olsen í marki Svía átti magnaðan leik gegn Spánverjum.
ÍBV vann ótrúlegan 2:1-sigur á Þór
er liðin mættust í Lengjudeild karla
í fótbolta á Hásteinsvelli í Vest-
mannaeyjum í gærkvöldi. Stefán
Ingi Sigurðarson kom ÍBV yfir á
11. mínútu en Jóhann Helgi Hann-
esson jafnaði fyrir Þór á 29. mín-
útu. Eyjamaðurinn Nökkvi Már
Nökkvason fékk sitt annað gula
spjald og þar með rautt á 65. mín-
útu en þrátt fyrir það tókst Guðjóni
Pétri Lýðssyni að brenna af víta-
spyrnu fyrir ÍBV áður en Guðjón
Ernir Hrafnkelsson skoraði sig-
urmarkið í uppbótartíma.
Dramatískur sig-
ur Eyjamanna
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Mark Markaskorarinn Stefán Ernir
Sigurðsson í leiknum í gær.
Knattspyrnuþjálfarinn Jóhannes
Harðarson hefur verið rekinn frá
norska félaginu Start. Jóhannes
fékk reisupassann eftir aðeins
fimm umferðir af tímabilinu. Jó-
hannes stýrði Start upp í efstu deild
Noregs árið 2019 en féll á sínu
fyrsta tímabili í deild þeirra bestu.
Start er nú sex stigum frá toppsæti
B-deildarinnar. Jóhannes var að-
stoðarþjálfari Start frá 2017 til
2019 og aðalþjálfari frá júlí 2019.
Þá lék hann með liðinu frá 2004 til
2008. Jóhannes skilur við Start í
sjöunda sæti B-deildarinnar.
Jóhannes látinn
taka pokann sinn
Ljósmynd/Ole Endre Kallhovd/Ik
Rekinn Jóhannes Harðarson var
rekinn frá Start í Noregi.
LEIKNIR R. – KR 0:2
0:1 Pálmi Rafn Pálmason 5.
0:2 Kjartan Henry Finnbogason 50.
MM
Kennie Chopart (KR)
Kristján Flóki Finnbogason (KR)
M
Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
Ægir Jarl Jónasson (KR)
Atli Sigurjónsson (KR)
Pálmi Rafn Pálmason (KR)
Ósvald Jarl Traustason (Leikni)
Emil Berger (Leikni)
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
– 7.
Áhorfendur: 298.
FÓTBOLTINN
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
KR vann verðskuldaðan 2:0-útisigur
á Leikni úr Reykjavík í Pepsi Max-
deild karla í fótbolta í gærkvöldi. KR
var mun sterkara liðið allan leikinn
og hefðu mörkin getað orðið fleiri.
KR-ingar sitja nú í þriðja sæti deild-
arinnar með 13 stig. Leiknismenn
eru áfram í því sjöunda með sjö stig.
Eftir frekar hæga byrjun á
mótinu eru KR-ingar komnir í gang
og var sigurinn sá þriðji í síðustu
fjórum leikjum. Vesturbæingar eru
sterkari eftir að Kjartan Henry
Finnbogason kom inn í liðið og hann
skoraði einmitt annað markið á 50.
mínútu. Kjartan stal þá marki af
Kristjáni Flóka Finnbogasyni sem
lyfti boltanum yfir Guy Smit í marki
Leiknis. Boltinn var á leiðinni í
markið en markaskorarinn Kjartan
stóðst ekki freistinguna og kom bolt-
anum yfir línuna.
Mark Kjartans gulltryggði örugg-
an sigur en Pálmi Rafn Pálmason
kom KR yfir strax á fimmtu mínútu.
Leiknismenn eru byrjaðir að
hiksta eftir fína byrjun. Tapið var
það þriðja í síðustu fjórum leikjum
og það fyrsta á heimavelli í sumar.
Leiknismenn verða að vera sterkir á
heimavelli, ætli þeir sér að halda sér
í efstu deild.
„Heilt yfir var frammistaða KR í
kvöld ansi sannfærandi. Liðið var
skipulagt og varnarlínan góð. Ægir
Jarl var frábær á miðjunni og Krist-
ján Flóki sömuleiðis. Leiknismenn
verða að teljast heppnir að KR hafi
ekki skorað nema tvö mörk, en svo
gott sem allan leikinn var KR lík-
legra til þess að bæta við en Leiknir
að minnka muninn,“ skrifaði Lilja
Hrund Ava Lúðvíksdóttir m.a. um
leikinn á mbl.is.
_ Kjartan Henry Finnbogason
skoraði sitt 40. mark í efstu deild og í
öðrum leiknum í röð.
_ Pálmi Rafn Pálmason er kom-
inn með þrjú mörk í sumar. Hann
skoraði aðeins eitt allt síðasta sum-
ar.
_ KR hefur nú unnið fjóra leiki í
deildinni í sumar. Þeir hafa allir unn-
ist með tveggja marka mun og þrír
þeirra 2:0.
KR-ingar að
komast á flug
Morgunblaðið/Unnur Karen
Breiðholt Kennie Chopart og Brynjar Hlöðversson bítast um boltann í gær.
- Öruggur sigur á Leiknismönnum