Morgunblaðið - 15.06.2021, Síða 6
Ljósmynd/Snorri Kristjánsson
Stafn Verulega gránaði í rót á efsta bæ í Reykjadal. Myndin var tekin á bæj-
arhlaðinu um hádegisbil á sunnudag en þá gekk hvað mest á.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það var apríllegt í nótt en við höfum
séð það svartara,“ segir Sigvaldi H.
Ragnarsson, bóndi á Hákonarstöðum
á Jökuldal. Snjóað hefur í fjöll á
Norðuraustur- og Austurlandi og
sums staðar hefur gránað í rót í
byggð. Ekki virðist vorhretið hafa
teljandi áhrif á búskap en þar sem
kaldast er hægir á vexti gróðurs.
„Mér leið furðulega þegar ég fór út
í morgun og horfði á snjóinn í fjöll-
unum. Mér leið eins og það væri
kominn október og ekkert búið að
heyja. Það var slæm tilfinning,“ segir
Baldur Helgi Benjamínsson, bóndi á
Ytri-Tjörnum í Eyjafirði. Snjór var
lágt í fjöllum, misjafnlega mikill eftir
svæðum. Telur Baldur að út með firði
sé snjór nánast niður að sjó. Á bæj-
um sem standa hátt inni í Eyjafirði
var snjór á hlaði.
„Þetta hefur engin áhrif á mig sem
kúabónda. Svona bleytuhríð er hins
vegar slæm fyrir lambfé og nýköstuð
folöld. Kvígurnar mínar sem eru úti
komast í skjól og fá nóg að éta,“ segir
Baldur.
Hann segir að snjórinn geri gróðr-
inum ekki neitt en vissulega hægi á
sprettu í kuldanum. Í lagi sé með
kornakra á meðan ekki frýs. „Það er
síðan ótrúlegt hvað allt tekur við sér
þegar það kemur rekja,“ segir Bald-
ur.
Kuldalegt á fénu
„Ef það verður ekki annað en þetta
hefur það sáralítil áhrif á búskapinn,“
segir Snorri Kristjánsson, bóndi á
Stafni sem er efst í Reykjadal og
stendur bærinn í um 240 metra hæð
yfir sjávarmáli. Hann segir að féð sé
að mestu farið af túnunum og út í
heiðina. Telur hann að því sé ekki
hætt þótt gránað hafi í rót um hádeg-
isbil í fyrradag. „Manni finnst kulda-
legt á fénu á meðan á þessu stendur,“
segir Snorri og lætur þess getið að ef
áfram verði kalt sé ákveðin hætta á
að ærnar þorni upp og það komi þá
niður á vexti lambanna.
Snorri segir að gróður staðni í
svona kulda en hann falli ekki á með-
an ekki geri frost. Reyndar telur
hann líklegt að hitinn hafi farið að-
eins niður fyrir frostmark í fyrranótt
en ekki teljandi mikið.
„Við höfum oft séð það svartara á
þessum tíma. Áhlaup í júní eru ekki
óalgeng hér,“ segir Snorri.
Sölnar bara seinna í haust
Sigvaldi á Hákonarstöðum segir að
hretið hafi lítil áhrif á búskapinn.
„Féð er nánast allt ennþá á gjöf, þótt
það sé komið út í girðingar. Ekki er
farið að sleppa í úthaga vegna þess
hversu gróður hefur tekið seint við
sér. Það eru afleiðingar af köldum
maí. Það voru mjög kaldar nætur
eina viku í maí, þurrakuldi á auða
jörð. Við erum að gjalda fyrir það.
Gróðurinn er verulega seinni en
venjulega. Nú er sá tími kominn sem
fé hefur oft verið sett í úthaga. Það
verður kannski bið á því nú,“ segir
Sigvaldi.
Hann segir þó, til að finna til
björtu hliðina, að gróður sölni þá
bara seinna í haust.
Veðrið á Jökuldal var ágætt í gær.
Enn var grá jörð í efri hluta dalsins
en snjó að taka upp.
Höfum séð
það svartara
- Gránar í rót á Norðaustur- og Aust-
urlandi í vorhretinu - Hefur lítil áhrif
á búskap - Kuldinn hægir þó á sprettu
Ljósmynd/Sigvaldi H. Ragnarsson
Hákonarstaðir Ær með lömb á beit í flekkóttu heimatúni. Snjó var farið að taka upp fyrir hádegi í gær.
Ljósmynd/Sigvaldi H. Ragnarsson
Í garðinum Töluvert snjóaði á Jökuldal í fyrradag. Þannig var garðurinn á
Hákonarstöðum á að líta þá um kvöldið. Snjóþykktin liggur þó ekki fyrir.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma
Sigvaldi H. Ragnarsson á Há-
konarstöðum segir að það
hafi töluverð áhrif á gróð-
urinn á köldum vorum hversu
margar gæsir séu á beit. „Það
eru óhemju margar gæsir sem
liggja hér túnum í þessum
köldu vorum því þær fara
minna til heiða. Þær eru í
samkeppni við féð okkar. Þar
sem ásóknin er hvað hörðust
eru túnin eins og sviðin jörð.
Ég var að bera á tún í gær þar
sem engin kind hefur komið,
bara gæs, og það grænkar
ekki,“ segir Sigvaldi.
Gæs fjölgar stöðugt á þess-
um slóðum, á Jökuldals- og
Fljótsdalsheiðum. Spurður
hvað sé til ráða segist Sig-
valdi ekki hafa lausn á því.
Ekki þýði að skjóta. Mikil
gæsaveiði sé á heiðunum á
haustin og á Jökuldal sé tínt
töluvert af gæsaeggjum. Það
hafi lítil áhrif. Telur Sigvaldi
að aukin náttúruleg afföll
þurfi að verða til að gæs
fækki aftur en tekur fram að
gæsirnar séu vel á sig komnar
þegar þær koma af vetr-
arstöðvunum.
Sviðin jörð
eftir gæsina
JÖKULDALUR