Morgunblaðið - 15.06.2021, Side 19

Morgunblaðið - 15.06.2021, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 2021 ✝ Regína Hanna Gísladóttir fæddist í Reykjavík 17. nóvember 1932. Hún lést 6. júní 2021. Foreldrar henn- ar voru Gísli Sigurðsson rakara- meistari, f. 25. des- ember 1896, d. 6. júní 1970, og Unn- ur Aðalheiður Baldvinsdóttir, húsmóðir í Reykjavík, f. 5. desember 1912, d. 1. júlí 1977. Bræður hennar voru Björgvin, f. 1930, d. 1935, og Björgvin Óskar, f. 1936, d. 1936. Systkini hennar samfeðra eru Reynir, f. 1922, d. 1923, Ámundi, f. 1924, d. 2008, Ingi- gerður, f. 1928, Hulda, f. 1928, d. 1974, Björn Ingi, f. 1946, og Gylfi Þór, f. 1949. Eiginmaður hennar er Þórð- ur Haukur Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá VÍS, f. 23. júní 1930. Þau giftust á 25 3) Unnur Thordardottir Sö- reide, f. 16. ágúst 1960. Eig- inmaður hennar er Torleif Sö- reide, f. 12. maí 1957. Börn þeirra eru Kari, Kristin og Ja- cob. Barnabörn þeirra eru Daría, Stella og William. 4) Marta, f. 17. júlí 1967. Eigin- maður hennar er Egill Þor- steins, f. 15. júlí 1963. Synir þeirra eru Úlfur Þór og Unnar Elí. Fyrir átti Egill dótturina Uglu. Fjölskyldan bjó lengst af á Markarflöt 9 í Garðabæ. Regína og Þórður fluttu síðar í Lækja- smára 8 í Kópavogi. Síðasta ár- ið dvaldi Regína á hjúkr- unarheimili Hrafnistu á Sléttuvegi. Regína starfaði á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins þar til þau Þórður giftust. Lengst af var hún húsmóðir en þegar börnin voru orðin stálpuð hóf hún störf sem deildarritari á Barnaspítala Hringsins. Hún tók virkan þátt í félagsmálum og var félagi í Kvenfélagi Garðabæjar og Lionsklúbbnum Eik. Hún var mikil hannyrðakona og lista- kokkur. Jarðsett verður frá Fossvogs- kirkju í dag, 15. júní 2021, klukkan 13. ára afmælisdegi hans árið 1955. Foreldrar hans voru Jón Berg- steinsson, f. 30. júní 1903, d. 9. desem- ber 1991, og Marta Guðnadóttir, f. 1. mars 1899, d. 5. júní 1947. Börn Regínu og Þórðar eru: 1) Jón Rafnar, f. 13. júlí 1956. Eiginkona hans er Valgerður Ásgeirsdóttir, f. 4. apríl 1958. Börn þeirra eru: Regína Björk, Ásgeir Þór og Helga Rún. Barnabörn þeirra eru: Ísar Logi, Hekla Björk, Óliver, Apr- íl, Axel og Emelía Rós. 2) Björg- vin, f. 14. janúar 1959. Eigin- kona hans er Þórhildur Garðarsdóttir, f. 15. júlí 1965. Sonur þeirra er Garðar. Fyrir átti Björgvin Hildi og Hauk. Móðir þeirra er Anna Margrét Guðjónsdóttir. Barnabörnin eru Þórður Bjarki og Rögnvaldur. Í dag kveðjum við elskulega móður okkar með söknuði. Hún var einstaklega hlý móðir og fyrirmyndarhúsmóðir. Á laugar- dögum var það bökunarilmur sem vakti okkur, á sunnudögum lyktin af helgarsteikinni. Allt var straujað; viskastykki, vasaklútar og sængurföt (bendlarnir líka), flísafúgur voru burstaðar, bækur viðraðar og það var ekki sama hvernig þvotturinn var hengdur upp. Allt flokkað eftir tegundum og hengt upp samkvæmt ákveðnu litakerfi, skipti þá engu hvort þvotturinn var hengdur upp úti eða inni þar sem enginn sá. Hún var listakokkur og dug- leg að prófa nýjungar. Ein sú fyrsta sem bauð upp á pizzu, taco og graflax og hún bjó til bestu perutertuna, rækjusalatið og fiskibollurnar. Áður en við vorum vakin til að fara í skólann hafði hún velgt sokkabuxurnar á ofn- inum og heitt kakó beið á eldhús- borðinu. Mikil natni var lögð í nestið og fengum við oft tilboð um að býtta og fá sjoppusam- loku, sem þá var fágætur lúxus, í skiptum fyrir nesti mömmu. Einnig var vinsælt að koma með okkur heim úr skólanum því á eldhúsborðinu beið girnilegur „drekkutími“. Markarflötin var miðstöð fjöl- skyldunnar. Þar var tekið vel á móti okkur og yndislegt að spjalla yfir kaffibolla í eldhúsinu eða steik í borðstofunni. Barna- börnin minnast ömmu Gínu með hlýhug. Hún hafði bæði hlýjan faðm og stórt hjarta og passaði vel upp á ungana sína. Þegar Unnur kom með sín börn í heim- sókn frá Noregi var fjör. Þá var hóað í hin barnabörnin svo allir gætu skemmt sér saman og spil- að rommí við ömmu en þá var mikið hlegið. Mamma var mikil hannyrða- kona og lætur eftir sig mörg listaverk. Þegar barnabörnin fæddust færði hún þeim öllum heklað teppi og prjónaða sokka svo þeim yrði ekki kalt og hún átti alltaf birgðir af ungbarna- sokkum til að færa þeim sem hún vildi gleðja. Hún var mikil félagsvera og átti stóran vinkvennahóp. Það voru ófáar ferðirnar sem við fór- um með mömmu til Siggu Ólafs heitinnar en þær áttu einstaka vináttu. „Prinsessurnar“, hópur vinkvenna úr Garðabæ, var einn- ig mjög mikilvægur og dýrmæt- ur hluti af tilveru mömmu. Þær hafa haft þann góða sið að fara mánaðarlega á veitingahús á milli þess sem þær þiggja kaffi hjá hver annarri. Foreldrar okkar giftust á 25 ára afmælisdegi pabba. Á 90 ára afmæli hans, fyrir um ári, var því haldið upp á 65 ára brúðkaups- afmæli þeirra. Ömmubörnin tala um hvað amma og afi séu sæt saman en þau hafa leiðst hönd í hönd í gegnum lífið, alltaf verið samrýnd og áttu farsælt og elskulegt hjónaband. Missir pabba er því mikill, við munum halda vel utan um hann og styrkja hann í sorginni. Síðustu ár voru erfið fyrir mömmu og fjölskylduna, en hún fékk því miður sjúkdóm sem rænir fólk minninu sínu og per- sónuleika. Við minnumst hennar eins og hún var, hlýjunnar, húm- orsins og skemmtilegu tilsvaranna. Undir það síðasta sátum við gjarnan hjá henni og spiluðum lög með Ellý Vilhjálms. Í dag spilum við Ellý fyrir hana í síð- asta sinn. Takk fyrir allt elsku mamma, Jón Rafnar, Björgvin, Unnur og Marta. Í dag kveðjum við Regínu Hönnu Gísladóttur, tengdamóð- ur mína. Hún skilur eftir sig góð- ar minningar hjá okkur sam- ferðafólkinu sem áttum því láni að fagna að ganga með henni æviveginn um stund. Regína var mikil húsmóðir og hélt fjölskyldu sinni fallegt og hlýlegt heimili. Eiginmaður hennar til 66 ára var Þórður Haukur Jónsson og lifir hann konu sína. Þau hjónin hafa alla tíð notið þess að verja tíma með fólkinu sínu og eigum við margar góðar minningar um fjöl- skylduboðin hjá þeim þar sem Regína sá til þess að allir væru vel nærðir. Hún var listakokkur og átti alltaf eitthvað nýbakað með kaffinu þegar gesti bar að garði. Regína var dugleg við hannyrðir á árum áður og fengu nýfæddir fjölskyldumeðlimir yf- irleitt heklað teppi og prjónaða sokka að gjöf. Flestir afkomend- ur hennar eiga líka listilega út- saumaðan púða eða veggmynd sem prýða heimili þeirra. Barna- börnin eiga góðar minningar um kærleiksríka ömmu, sem ávalt sýndi þeim einlægan áhuga í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Hafa þau hjónin sótt ófáa tón- leika og aðra viðburði hjá þeim í áranna rás. Eldri barnabörnin eiga sérlega góðar minningar frá árunum á Markarflötinni. Þar var alltaf gott að gista, fá köku- bita og mjólkurglas, spila rommí við ömmu og fara í boltaleik við afa. Það var stutt í dillandi hlát- urinn hjá Regínu enda bæði glað- lynd og skemmtileg kona sem gaman var að umgangast. Hún hlustaði gjarnan á Elly Vilhjálms og Ragga Bjarna og söng gjarn- an með þeirra þekktu dægurs- mellum. Síðustu árin hrakaði heilsu Regínu hægt og bítandi og var þá aðdáunarvert að fylgjast með hve vel Þórður studdi konu sína. Smám saman tók hann að sér matseld, bakstur og annað heim- ilishald og helgaði henni allan sinn tíma. Sagði hana eiga þetta margfalt inni hjá sér, hún sá um þessa hluti og meira til öll árin sem hann var upptekinn við langa vinnudaga. Þeirra sam- band var einstaklega fallegt og til fyrirmyndar öðrum hjónum. Missir Þórðar er mikill og votta ég honum og afkomendum þeirra einlæga samúð. Regínu þakka ég fyrir alla góðvild og kærleika sem hún hefur sýnt mér og mínum. Þórhildur Garðarsdóttir. Hvíldu í friði, elsku besta amma mín. Takk fyrir öll árin sem við fengum saman, þau gáfu mér fallegar minningar sem ein- kennast af fallega brosinu þínu. Ég talaði alltaf um ykkur sem „ömmu og afa í draumahúsinu“. En það var ekki bara Markaflöt- in sem var draumahúsið heldur fylgdi gleðin, ástin og værðin með ykkur í Lækjasmárann sem varð annar draumastaður. Mér þótti mjög gaman að skoða fal- legu munina ykkar og handa- vinnuna eftir þig. Alltaf þegar ég kom með Apríl, stelpuna mína, á helgarmorgnum í heimsókn ljómuðuð þið að sjá hvor aðra og þú söngst fyrir hana: Ein sit ég og sauma inní litlu húsi. Enginn kemur að sjá mig nema litla músin. Hoppaðu upp og lokaðu augunum. Bentu í austur, bentu í vestur. Bentu á þann sem að þér þykir bestur. (Höfundur ókunnur) Þú snertir hjörtu margra og við erum heppnar að hafa þig að ömmu/langömmu. Helga Rún og Apríl. Elsku amma mín, nafna mín og drottningin mín. Æskuminningarnar hrannast upp þessa dagana þegar maður rifjar upp og yljar sér við skemmtilegar stundir á Markar- flötinni hjá ömmu og afa í Garða- bæ. Hrökkbrauð með marmelaði, krakkahornið, naglalakk í ís- skápnum, rækjukokteill, hárlakk og snyrtidót, eltingaleikur, hár- greiðsluleikur, tína ber úti í hrauni, fara með ömmu í lagn- ingu, fallegar styttur, veislur og matarboð. Já, elsku amma mín, þú varst alltaf mikill fagurkeri og gast töfrað fram matarboð og veislur með vinstri svo ekki sé talað um hannyrðirnar en þar varst þú á heimsmælikvarða, já ég tek svo stórt til orða. Síðustu árin tók afi svo við kökukeflinu og hefur staðið sig vel í eldhúsinu og hugsað svo fal- lega og vel um ykkur. Við lofum að hugsa vel um hann afa núna, amma mín, en söknuður hans verður mikill enda eruð þið búin að leiðast hönd í hönd og gift í 66 ár og þú alltaf jafn skotin í hon- um. Mér er minnisstætt hvað þið afi voruð alltaf dugleg að gera eitthvað með okkur barnabörn- unum þegar við vorum yngri, fengum að gista, fara á KFC, leikhús og fleira, væntumþykjan leyndi sér ekki. Eins hafið þið verið barnabarnabörnum ykkar svo hlý og góð og hafið sýnt ein- lægan áhuga á því sem er að ger- ast í þeirra lífi og mætt á fót- boltaleiki, dans- og leiksýningar. Þið afi voruð dugleg að ferðast um allan heim með Lions og þú komst alltaf heim með styttur, dúkkur í þjóðbúningum og oft eldspýtustokka frá hverju hóteli. Skemmtileg hefð sem okkur fannst alltaf gaman að fá að skoða hjá þér ásamt myndum frá ferðalögunum. Þú varst vinur vina þinna og er saumaklúbburinn Prins- essurnar fallegt dæmi um trausta og góða vináttu en þið hittust mánaðarlega í mörg ár og alltaf á mismunandi veitingastöð- um, mikil fyrirmynd sem ég vona að ég fái að upplifa með mínum vinkonum. Í vetur heimsótti ég þig dag- lega á tímabili á Sléttuveginn og við hlustuðum á Elly, Ragga Bjarna og Villa Vill, fengum okk- ur súkkulaði og mér þykir svo vænt um að hafa fengið þann tíma með þér. Elsku amma mín, ég sakna þín en er jafnframt þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þig í mínu lífi öll þessi ár og er svo stolt að fá að bera nafnið þitt. Einn daginn tek ég svo vonandi við nafnbótinni þinni Amma í Garðabæ. Regína Björk Jónsdóttir. Þegar maður stendur nú sjálf- ur á tímamótum þess að stofna sína eigin fjölskyldu hugsar mað- ur oft til afa Tóta og ömmu Gínu og hvernig þeim tókst að halda í ástina og væntumþykjuna öll þessi ár sem hefur svo smitast yfir í stórfjölskylduna. Þrátt fyr- ir að vera ólík að mörgu leyti dáðust þau að hvort öðru, til dæmis eldaði amma heima alla daga þar til á seinni árum og þá tók afi sig til og skráði sig á öll námskeið sem völ var á og var farinn að bjóða í þriggja rétta matarboð áður en maður vissi af. En það sem stendur upp úr hjá okkur bræðrum með ömmu hefur hins vegar alltaf verið hversu ofboðslega hlý og fyndin hún var. Það var alltaf stutt í grínið hjá henni og maður gat hlegið með henni við hvaða tilefni sem er. Það er okkur minnis- stætt í brúðkaupinu hjá mömmu og pabba þegar gestirnir voru að kveðja og segja hversu skemmti- legt og fjörugt brúðkaupið hefði verið. Þá segir amma „púff, aðal- fjörið byrjar ekki fyrr en í brúð- kaupsferðinni“ og blikkar svo til okkar bræðra. Lýsir þessi stund léttleikanum í ömmu ágætlega. Það var alltaf einstakt við hana ömmu hversu mikinn áhuga hún sýndi okkur barnabörnunum og því sem við vorum að snúast í. Skipti þar ekki máli hvort það væri golfdellan sem afi hafði kveikt eða allar hinar boltaíþrótt- irnar. Hún gat setið með okkur bræðrum yfir ótal íþróttaleikjum og var farin að þekkja nöfnin á öllu handboltalandsliðinu og ekki langt frá því að lesa í öll kerfin sem landsliðið bauð upp á. Þrátt fyrir að seinustu ár hafi verið ömmu erfið mun ekkert sitja eftir nema bros á vör og hlýja í hjarta þegar maður hugs- ar til hennar ömmu. Takk fyrir að standa með okkur öllum stundum, takk fyrir hláturinn, takk fyrir samverustundirnar og takk fyrir allt, elsku amma Gína. Úlfur Þór Egilsson og Unnar Elí Egilsson. Drottningin er fallin frá. Árið 1989 stofnuðum við nokkrar konur í Garðabæ mat- arklúbb. Eftir að fast form komst á hann, snæddum við hádegis- verð saman mánaðarlega, helst alltaf á nýjum stað. Tuttugu ár- um síðar höfðum við líklega aldr- ei verið á sama matsölustað. Þeg- ar aldurinn færðist yfir, þáðum við kaffi á eftir til skiptis heima hjá hver annarri. Hún var elst okkar og þar sem Regína þýðir drottning, urðum við hinar sjálf- krafa prinsessur. Þannig fékk klúbburinn nafn. Á árinu 1997 fórum við saman til Barcelona í heila viku og var sú ferð hin ánægjulegasta og eft- ir þá ferð var farið í helgarferðir innanlands og var þá mökum boðið með. Einnig var skipulögð utanlandsferð með mökum til Ja- maica. Með hverju ári treystust vinabönd alls þessa hóps og urðu enn nánari. Regína var hrókur alls fagn- aðar í góðra vina hópi. Við nutum þess að hittast og eiga góða stund saman. Við höfum þegar kvatt Sigrúnu Jensdóttur og er mikil eftirsjá að þessum tveimur góðu félögum okkar. Fyrir utan Prinsessuklúbbinn voru margar með henni á öðrum vígstöðvum, í Kvenfélagi Garða- bæjar, Lionsklúbbnum Eik og ein okkar hafði unnið með henni í áraraðir. Allar erum við sammála um, að hún var góður, traustur og trúr félagi, skemmtileg og alltaf í góðu skapi. Hennar er sárt saknað. Við vottum Þórði Hauki, eig- inmanni hennar, okkar dýpstu samúð, svo og börnum þeirra og öðrum ættingjum. Arna, Dóra, Hrafnhildur, Kristíana, Lóa, Ólöf, Sigurveig og Þórunn. Látinn er félagi okkar í Lionsklúbbnum Eik, Regína H. Gísladóttir. Regína gekk til liðs við Lionsklúbbinn Eik (áður Lionessuklúbbinn Eik) þegar klúbburinn var stofnaður í apríl 1985 og hefur því verið félagi í klúbbnum í rúm 35 ár. Regína tók alltaf virkan þátt í starfi klúbbsins og var í fyrstu laganefnd klúbbsins í upphafi. Hún starfaði í ýmsum nefndum og ráðum á vegum klúbbsins. Í samskipta- og fjölmiðlanefnd, ferða- og útivistarnefnd, veit- inganefnd, verkefnanefnd, skemmtinefnd, fræðslu- og dag- skrárnefnd svo fátt eitt sé nefnt. Regína var útnefnd Melvin Jones-félagi af klúbbfélögunum og var hún vel að þeirri æðstu viðurkenningu Lionshreyfing- arinnar komin og var hún afar stolt af þeirri viðurkenningu. Við áttum saman yndislegar samverustundir í leik og starfi Lions hérlendis og erlendis. Það var alltaf líf og fjör í kring um Regínu og stutt í glettni og húmor. Regína var mjög oft fengin til þess að fara með gam- anmál og átti margar góðar sög- ur í safni sínu. Við fórum meðal annars í skemmtilega afmælisferð um Vesturland og Snæfellsnes á 30 ára afmæli klúbbsins og nutum við samverunnar en þá voru veikindi farin að setja mark á líf hennar. Að leiðarlokum kveðjum við félagar í Lionsklúbbnum Eik góðan félaga með söknuði um leið og við þökkum fyrir allar samverustundirnar, þökkum öll störf Regínu í þágu Lions- klúbbsins Eikar og Lionshreyf- ingarinnar á Íslandi. Sendi Þórði Jónssyni eigin- manni hennar og fjölskyldunni allri dýpstu samúðarkveðjur á kveðjustund. Laufey Jóhannsdóttir, félagi í Lionsklúbbnum Eik í Garðabæ. Regína Hanna Gísladóttir Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. " 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2 þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber (1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5 ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Elskuleg móðir okkar, amma, tengdamóðir, systir og mágkona, GYÐA BJARNADÓTTIR augnlæknir, lést fimmtudaginn 3. júní í Gautaborg, Svíþjóð. Útför verður auglýst síðar. Ingi Bjarni Skúlason Davíð Þór Skúlason Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir Jóhanna Elísa Skúladóttir Davíð Þór Viðarsson Guðmundur Þ. Bjarnason María Clara Alfreðsdóttir Embla Hjördís Davíðsdóttir Víkingur Brynjar Davíðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.