Morgunblaðið - 23.06.2021, Side 2

Morgunblaðið - 23.06.2021, Side 2
Arndís Soffía Sigurðardóttir, sýslumaður í Vest- mannaeyjum, tók á móti Katrínu Jakobsdóttur for- sætisráðherra fyrir utan húsið Landlyst í Heimaey í gær. Þar skrifuðu þær undir samstarfssamning forsæt- isráðuneytisins og sýslumannsins, sem lýtur að kynjaðri tölfræði úr gagnagrunnum sýslumanna. Með honum á að verða hægt að greina hvort kynjahalli sé til staðar í málum sem rekin eru innan stjórnsýslunnar. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Skrifuðu undir samstarfssamning 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2021 Globales Los Paros Park 4* Benalmadena COSTA DEL SOL 06. - 16. júlí Fjölskyldu hótel með morgunverði, vatnagarði og rennibrautum verð frá 129.900kr. á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn www.sumarferdir.is | info@sumarferdir.is | 514 1400 Innifalið: Flug, gisting, morgunverður innritaður farangur og handfarangur Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samkeppniseftirlitið hefur ekki lagt mat á lögmæti þeirrar ákvörðunar Orku náttúrunnar (ON) að bjóða gjaldfrjálsan aðgang að rafhleðslu- stöðvum fyrir bíla í borginni. ON tók þá ákvörðun eftir að kæru- nefnd útboðsmála úrskurðaði að gjaldtakan væri óheimil. Jafnframt felldi nefndin úr gildi samning borg- arinnar við ON um stöðvarnar. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir mál ON ekki hafa komið til skoðunar, enda nýtilkomið. „Við getum því ekki fullyrt um lög- mæti verðlagn- ingar af þessu tagi. En af hálfu Orku náttúrunn- ar þarf félagið að taka afstöðu til þess hvort það sé markaðsráðandi á viðkomandi markaði og hvaða skorður það setur verðlagningu þess,“ segir Páll Gunnar. Hann segir aðspurður að út frá samkeppnisrétti sé ekki síður ákvarðandi hvort fyrirtækið sé markaðsráðandi, fremur en hvort um opinbert fyrirtæki sé að ræða. Mál ON ekki verið tekið til skoðunar - SKE vísar til samkeppnisréttarins Páll Gunnar Pálsson Baldur Arnarson baldura@mbl.is Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra segir óvissu um framlag Reykjavíkur- borgar til upp- byggingar nýs þjóðarleikvangs í knattspyrnu. Rætt hefur verið um að slíkur leikvangur í Laugardal gæti kostað um 15 milljarða. Félagið Þjóðarleikvangur ehf. var stofnað utan um undirbúninginn en borgin á 50% hlut í félaginu, ríkið 42,5% hlut og KSÍ 7,5% hlut. „Það sem er kannski að koma í ljós er að Reykjavíkurborg virðist ekki tilbúin að taka á sig þann stofnkostn- að sem leiðir af hlutdeild hennar í fé- laginu, þótt hún hafi lagt mikið kapp á það í upphafi að hafa meirihluta. Það er mikilvægt að það liggi fyrir að hvaða marki Reykjavíkurborg sér ávinning af því að hafa þjóðarleik- vang í Reykjavík. Það er ekki fyrir- fram gefin niðurstaða en við vildum leggja af stað með verkefnið í þeirri trú að Reykjavíkurborg legði upp úr því að mannvirkið risi í höfuðborg- inni og í Laugardalnum. En það hef- ur ekki fengist botn í það samtal. Ég hef lagt áherslu á að í millitíðinni séum við að nýta tímann til að greina þá valkosti sem við stöndum frammi fyrir,“ segir Bjarni. Kominn tími á ákvörðun Rætt var við Guðna Bergsson, for- mann Knattspyrnusambands Ís- lands, KSÍ, í Morgunblaðinu í gær, sem sagði komið að því að taka ákvörðun um nýjan þjóðarleikvang. Boltinn sé hjá borginni varðandi framhaldið hjá Þjóðarleikvangi ehf. Borgin ekki tilbúin að borga - Fjármálaráðherra segir borgina ekki fylgja eftir loforðum um þjóðarleikvang - Borgin hafi þó lagt ríka áherslu á að hafa meirihluta í Þjóðarleikvangi ehf. Teikning/Zaha Hadid arkitektar Drög Hugmynd að nýjum, yfirbyggðum þjóðarleikvangi í Laugardal. Bjarni Benediktsson Alls hafa 358.839 skammtar af bólu- efni við Covid-19 verið gefnir hér á landi. Á bak við þessa skammta eru alls 240.273 einstaklingar, 155.323 fullbólusettir og 84.950 sem bíða annars skammts. Þetta samsvarar 81,4% allra Íslendinga 16 ára og eldri. Auk þess hafa 2,2% þess hóps fengið Covid-19. Þannig er hlutfall þeirra sem teljast hafa vörn gegn Covid-19 nú orðið 83,6%. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir sagði í samtali við mbl.is í gær að kórónuveirufaraldurinn væri ekki búinn þó svo hverfandi líkur væru á nýrri bylgju smita. Ekkert Covid-19-smit hefur greinst innan- lands utan sóttkvíar síðan 15. júní. „Við getum áfram fengið veikindi, en við erum ekki í þeirri stöðu held ég að geta búist við einhverri stórri bylgju eins og staðan er núna. Ég vil benda á það að líklega verður búið að bjóða öllum fyrstu sprautu núna á næstunni, í byrjun júlí, en það tekur auðvitað smátíma að fá fulla vernd. Þannig að við erum ekki komin þangað, en við erum mjög vel á veg komin,“ sagði Þórólfur. Þá segir Þórólfur að ekki verði lýst formlega yfir sigri í baráttunni við faraldurinn þegar hann vinnst. Þó svo að á Íslandi gangi vel þá geis- ar enn skæður faraldur úti í heimi og aðeins sé „brot jarðarbúa“ bólusett. Dræm mæting í Janssen Í gær var bólusett með Janssen- bóluefninu í Reykjavík. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir sagði í samtali við mbl.is að ekki hefði gengið eins vel og búist var við. Ekki verður bólu- sett meira með Janssen í sumar en Ragnheiður sagði ástæðuna fyrir því einfalda: „Það verður einhver að koma, við erum með opið í fjóra tíma og enginn mætir.“ Í dag verður bólu- sett með bóluefni Pfizer og sagði Ragnheiður að það yrði áhugavert að sjá hvort fleiri mæti óboðaðir í Pfizer en mættu í Janssen. 81,4% Íslendinga eldri en 16 bólusett gegn veirunni - Gefnir hafa verið 358.839 skammtar af bóluefni hér á landi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bólusetning 240.273 einstaklingar hafa verið bólusettir gegn veirunni. Kvörtunum einstaklinga og aðstand- enda til Landlæknis vegna heil- brigðisþjónustu hefur fjölgað um 75% á fimm ára tímabili. Þetta kem- ur fram í nýbirtri ársskýrslu emb- ættisins. Skráðum alvarlegum óvæntum atvikum sem hafa eða hefðu getað valdið sjúklingi alvar- legu tjóni, s.s. dauða eða varanlegum örkumlum, hefur fjölgað síðastliðin ár og voru 60 í fyrra en 53 árið 2019. Þá komu fleiri eftirlitsmál í heil- brigðisþjónustunni til kasta embætt- isins í fyrra en á fyrri árum eða alls 51 mál en það eru mál sem stofnað er til á hendur heilbrigðisstarfs- manni þegar ástæða er talin til rann- sóknar og mögulegra viðurlaga. 14 málum lauk án viðurlaga, 3 með áminningu og 4 með sviptingu starfsleyfis. 75% fjölgun kvartana á fimm árum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.