Morgunblaðið - 23.06.2021, Side 8

Morgunblaðið - 23.06.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2021 augavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.isL Opið virk a dag a frá 9-18 lau f rá 1 0-16 Vefverslun brynja.is Yfir 20 gerðir til á lager Verð frá 9.750,- Vandaðir póstkassar frá Fyrrverandi frambjóðandi Við-reisnar til Alþingis, Ingólfur Hjörleifsson, hefur dregið sig út af lista flokksins vegna komandi kosn- inga. Ástæðan er klíkuskapur og klækjabrögð flokksforystunnar, segir hann. Og lýsingar hans á valinu á listann í Reykjavík eru ekki fagrar. Hann segist „mjög óánægður“ með hvernig uppstillingarnefndin var sett upp. „Hverjir voru í henni og hvernig var raðað í hana var mjög undarlegt,“ sagði hann í samtali við mbl.is í gær. - - - Atburðarásinni lýsti hann svona:„Við sem vorum í þessu Reykjavíkurráði, við fengum svona 15 sekúndna kynningu á því hverj- um yrði stillt upp í nefndina og svo var bara kosið með eða á móti á Zoom-fundi. Þetta var í raun eigin- lega engin kosning, það voru engir mótframbjóðendur, svo kemur í ljós seinna hverjir þetta voru. Við feng- um ekkert að vita strax hverjir þetta voru, hvar þetta fólk var stað- sett á landinu eða hver þeirra bak- grunnur var. Sumir í Reykjavíkur- ráðinu voru svo sjálfir í upp- stillingarnefnd og svo var eitthvað af því fólki í framboði líka, þannig að þetta var allt saman mjög undar- legt.“ - - - Svo greindi hann frá því að þessi15 sekúndna kynning hefði í of- análag verið óviðeigandi glans- mynd. - - - Loks bætti hann því við að fá-mennur hópur væri búinn að ræna flokknum og lýsti vinnu- brögðunum sem gamaldags klækja- stjórnmálum og klíkuskap. - - - Viðreisn leggur bersýnilega mik-ið á sig til að útiloka stofnanda flokksins. Klækjaklíka STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa fundið nýjan lífmarka fyrir slitgigt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þessi uppgötv- un getur hjálpað til við að bæði greina slitgigt og hversu alvarleg hún er en slitgigt hrjáir um 300 milljónir manna um allan heim. Lífmarkinn, sem nefnist CRTAC1, segir ekki aðeins til um hvort um sé að ræða slitgigt í hnjám, höndum og mjöðm- um, heldur segir einnig til um hvort þörf sé á lið- skiptaaðgerð. Þá er meira magn CRTAC1 í blóð- vökva tengt við meiri hættu á alvarlegum sjúkdómi. Í tilkynningu ÍE segir að CRTAC1 sé mun betri lífmarki en aðrir sem hafa þegar fundist er tengjast slitgigt. „Þetta eru mjög hvetjandi nið- urstöður og gætu verið fyrstu skrefin í átt að því að þróa klínísk próf fyrir slitgigt,“ er haft eftir Unni Styrkársdóttur, vísindamanni Íslenskrar erfðagreiningar og fyrsta höfundi rannsóknarinn- ar. Þá segir Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, að fundurinn geti aukið verulega möguleika á þróun á nýju lyfi við slitgigt. Grein Ís- lenskrar erfðagreiningar birtist í tímaritinu Arthritis & Rheumatology. ari@mbl.is Lífmarki hjálpar gegn slitgigt - Íslensk erfðagreining finnur lífmarkann CRTAC1 Íslensk erfðagreining/Jón Gústafsson Vísindamenn Kári Stefánsson með Unni Styrk- ársdóttur, fyrsta höfundi rannsóknarinnar. Rúmlega 47 þúsund manns hafa sótt nýju ferðagjöfina á þeim þremur vikum sem liðnar eru síðan hún var gefin út. Þetta kemur fram á vefsíðu Mælaborðs ferðaþjónustunnar. Þá hafa 16 þúsund þegar notað ferða- gjöfina. Nýtist í bensín, skyndibita og flug að mestu Bensínstöðvar landsins eru meðal þeirra sem notið hafa góðs af hinni nýju ferðagjöf en af þeim 37 millj- ónum sem ferðagjöfin hefur verið nýtt í hafa N1 og Olís hlotið um 15 milljónir samtals, eða rétt rúmlega 40 prósent allra ferðagjafa. Þar á eftir með um 6 milljónir króna kem- ur Sky Lagoon, nýja lónið í Kársnesi sem notið hefur mikilla vinsælda síð- an það var opnað í vor. Þar á eftir koma skyndibitastaðir tveir, KFC með um 4 milljónir og Domino’s Pizza með um 3 milljónir. Þar næst er flugið, bæði í raunheimum og hermi, en um 3 milljónir hafa farið í Icelandair og aðrar 3 milljónir í flug- hermifélagið FlyOver Iceland. Loks hafa um 2 milljónir farið í Tix miða- sölu og hvor milljónin í Íslandshótel annars vegar og Icelandair Hotels hins vegar. ari@mbl.is 47 þúsund hafa sótt hina nýju ferðagjöf Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar Afþreying Margir hafa þegar notað ferðagjöfina sem gilt hefur frá 1. júní.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.