Morgunblaðið - 23.06.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 23.06.2021, Síða 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt „ÞVÍ MIÐUR. VIÐ SELJUM EINGÖNGU NOTAÐA HLUTI, EKKI HLUTI Í NOTKUN.“ „SÁSTU NOKKUÐ HVAÐA HÆNA?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera líka góður dansherra. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GRETTIR GETTU HVAÐ ÉG KEYPTI Í RISAVÖRUHÚSI RÖGNVALDS? TUNNU AF SOÐSÓSU! ÉG NÆ Í RÖR! Æ, NEI, GERÐU ÞAÐ … EKKI PLANKANN! ÞÚ ERT BÆÐI SÆTUR OG GÓÐUR LEIKARI! segir að þótt margt virðist vera slæmt í heiminum og ekki nógu mikið hafi breyst síðustu 40 árin, þá finni hann mjög sterkt í sam- skiptum við unga fólkið út um allan heim að það er mikil þörf á andsvari við doða nútímans og ungt fólk vill hafa tilgang og bæta mennskuna á jörðinni. Samtökin eru komin víða um heim, m.a. til Afríku, Kólumbíu, Mexíkó, Argentínu, Dóminíska lýð- veldisins, Indlands og Japans. Pétur slær ekki slöku við í sínu starfi og í gær fór hann til Mósam- bík til að vinna með Vinum lífsins og verður því á afmælisdaginn í Afríku að vinna. Fjölskylda Sambýliskona Péturs er Samira Muage Weng. Börn Péturs eru Þór- jón Pétur, f. 25.4. 1965, smiður í Garðinum; Jóhanna Dögg, f. 31.10. 1970, yfirflugfreyja hjá Icelandair; Pétur Jakob, f. 10.8. 1981, sölu- fulltrúi; Ragnar, f. 25.12. 1983, leik- ari í London, Gunnar, f. 28.4. 1985, bráðahjúkrunarfræðingur í Sydney í Ástralíu og Aríel, f. 22.11. 1987, varaformaður sjómannadagsráðs og yfirliðsforingi í danska sjóhernum, og Alejandro Pétur Weng, f. 28.4. 2016. Systkini Péturs eru Snævar, f. 15.8. 1949, húsamálari í Ósló; Árni Pétur Guðjónsson, f. 19.8. 1951, leik- ari og leiðsögumaður í Reykjavík, og Herdís Guðjónsdóttir, f. 28.4. 1957, matvælafræðingur í Reykja- vík, og Kjartan, f. 2.2. 1965, leikari í Reykjavík. Foreldrar Péturs eru hjónin Guð- jón Guðnason, f. 23.6. 1923, d. 31.1. 1998, yfirlæknir í Reykjavík, og Friðný G. Pétursdóttir, f. 4.1. 1922, d. 7.2. 2018, sagnfræðingur og ætt- fræðingur. Pétur Guðjónsson Hildur Jónsdóttir „fróða“ húsfreyja á Ásmundarstöðum Jón Árnason bóndi og smiður á Ásmundarstöðum á Sléttu Þorbjörg Jónsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum Pétur Siggeirsson bóndi á Oddsstöðum á Melrakkasléttu Friðný Guðrún Pétursdóttir sagnfræðingur og ættfræðingur í Reykjavík Borghildur Pálsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum Siggeir Pétursson bóndi á Oddsstöðum Jóreiður Ólafsdóttir vinnukona víða í Ölfusi Sigurður Sigurðsson „blindi“ vinnumaður á Hjalla í Ölfusi og víðar Sigrún Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík Guðni Eyjólfsson verkstjóri í Gasstöðinni í Reykjavík og vinsælt revíuskáld Guðríður Þórðardóttir vinnukona í Drangshlíð og á Mosfelli í Grímsnesi Eyjólfur Snorrason vinnumaður í Mýrdal og undir Eyjafjöllum Úr frændgarði Péturs Guðjónssonar Guðjón Guðnason yfirlæknir í Reykjavík Á sunnudaginn sendi IngólfurÓmar mér tölvupóst, sagði að sér hefði dottið í hug að gauka að mér vísum: „Þannig var að ég vakti síðastliðna nótt því veðrið var ein- staklega fallegt kyrrt og bjart.“ Faðminn býður friðsæl nótt foldu geislar hjúpa. Blærinn andar blítt og rótt blómin höfði drúpa. Geislum lýsir grund og hól glitra nýpur fjalla. Roða gulli sveipar sól sund og jökulskalla. Líður hljóð um lágan mó lindin silfurtæra. Yfir mjúkri mosató merlar döggin skæra. Sigrún Haraldsdóttir segir frá því á netinu, að hún hafi ort þessa vísu á sunnudag: „Hún er kannski ekki alveg sönn, andvarinn var satt að segja á fleygiferð. Hitt er sann- leikur“: Enn nú tendrast augnaglóð, andvarinn er blíður, Drottinn, nú er gatan góð og gangvari minn þíður. Björn Ingólfsson kvað á móti: Út að ríða ein hún fór, andvarinn var stríður, gatan eins og grýttur flór en gangvarinn var þýður. Sigrún svaraði: Eins ef grjótið illa lætur eða myndar götu stinna treysti ég á fima fætur færleiks innstu drauma minna. Guðmundur Sveinsson hélt áfram Til öræfanna haldið hef á hestakosti mínum. Létti lausan tauminn gef líkt og í draumum þínum. Guðmundur Arnfinnsson yrkir á Boðnarmiði og kallar „Viðvörun“: „Hún Grímhildur mín er grálynd, geðstirð úr hófi og þrálynd“, segir hann Björn bóndi á Tjörn, „og nú eru veður öll válynd“. Jóhann S. Hannesson yrkir í „Hlymrek á sextugu“: Sértu fríður er gróflega gaman að gera sig ljótan í framan með fettum og brettum og glennum og grettum Ég geri það tímunum saman. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Björt nótt og gangvarinn þíður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.