Morgunblaðið - 23.06.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.06.2021, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2021 Mjólkurbikar karla 32-liða úrslit: KF – Haukar............................................. 1:2 Þór – Grindavík ........................................ 2:1 Völsungur – Leiknir F. ................... (frl.) 2:1 Lengjudeild kvenna Augnablik – Haukar................................. 1:3 Grótta – HK .............................................. 1:2 FH – Grindavík......................................... 1:0 ÍA – Víkingur R. ....................................... 1:5 KR – Afturelding...................................... 1:1 Staðan: KR 7 5 1 1 19:8 16 Afturelding 7 4 3 0 19:9 15 FH 7 5 0 2 14:7 15 Víkingur R. 7 3 2 2 15:11 11 Haukar 7 3 1 3 10:10 10 ÍA 7 3 0 4 9:17 9 Grótta 7 2 1 4 10:14 7 HK 7 2 1 4 10:17 7 Augnablik 7 1 2 4 8:14 5 Grindavík 7 0 3 4 9:16 3 EM karla 2021 D-RIÐILL: Króatía – Skotland ................................... 3:1 Tékkland – England................................. 0:1 Lokastaðan: England 3 2 1 0 2:0 7 Króatía 3 1 1 1 4:3 4 Tékkland 3 1 1 1 3:2 4 Skotland 3 0 1 2 1:5 1 Leikir í dag: E: Slóvakía – Spánn .................................. 16 E: Svíþjóð – Pólland .................................. 16 F: Portúgal – Frakkland........................... 19 F: Þýskaland – Ungverjaland .................. 19 Ameríkubikar karla Úrúgvæ – Síle ........................................... 1:1 Argentína – Paragvæ............................... 1:0 Hvíta-Rússland Bikarkeppnin, 32-liða úrslit: Baranovici – BATE Borisov................... 1:6 - Willum Þór Willumsson var ekki í leik- mannahóp BATE Borisov. Noregur Vålerenga – Arna-Björnar..................... 2:0 - Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik- inn með Vålerenga og skoraði. Amanda Andradóttir kom inn á sem varamaður á 60. mínútu og skoraði. - Guðbjörg Gunnarsdóttir var ónotaður varamaður hjá Arna-Björnar. Aalesund – Stjördals Blink..................... 5:1 - Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn með Aalesund. >;(//24)3;( Úrslitakeppni karla Þriðji úrslitaleikur: Keflavík – Þór Þ. ...................................97:83 _ Staðan er 2:1 fyrir Þór frá Þorlákshöfn. >73G,&:=/D Völsungur og Þór frá Akureyri tryggðu sér sæti í sextán liða úrslit- um bikarkeppni karla í knatt- spyrnu, Mjólkurbikarsins, í gær ásamt Haukum. Jakob Snær Árnason og Álvaro Montejo skoruðu mörk Þórsara í 2:1-sigri gegn Grindavík á SaltPay- vellinum á Akureyri. Þá skaut Jakob Héðinn Róberts- son Völsungi áfram í sextán liða úr- slitn með sigurmarki í framleng- ingu gegn Leikni frá Fáskrúðsfirði á Vodafone-vellinum á Húsavík en staðan eftir venjulegan leiktíma var 1:1. Tómas Leó Ásgeirsson reyndist svo hetja Hauka þegar liðið vann 2:1-sigur gegn KF á Ólafsfjarðar- velli en hann skoraði sigurmark leiksins á 68. mínútu. Haukar, Völsungur og Þór verða því öll í pottinum þegar dregið verður í sextán liða úrslitin sem fara fram dagana 11. og 12. ágúst. Norðanliðin í 16-liða úrslit KNATTSPYRNA Mjólkurbikar karla, 32-liða úrslit: Hertz-völlur: ÍR – ÍBV ............................. 18 Varmá: Afturelding – Vestri .................... 18 Samsung-völlur: Stjarnan – KA............... 18 Hásteinsvöllur: KFS – Víkingur Ó. ......... 18 Norðurálsvöllur: ÍA – Fram................ 19.15 Fífan: Augnablik – Fjölnir................... 19.15 Kaplakrikavöllur: FH – Njarðvík ....... 19.15 Kórinn: HK – Grótta ............................ 19.15 HS Orkuvöllur: Keflavík – Breiðablik..... 20 Í KVÖLD! Afturelding hefur fengið hand- knattleiksmarkvörðinn unga og efnilega Andra Sigmarsson Schev- ing að láni frá Haukum og mun hann leika með liðinu á næsta tíma- bili. Andri, sem er 21 árs, hefur ver- ið annar markvarða Hauka undan- farin ár og deildi því hlutverki með Björgvini Páli Gústavssyni á nýaf- stöðnu tímabili. „Andri sem hefur leikið fyrir öll yngri landslið Ís- lands mun fá dýrmæta reynslu hjá Aftureldingu þar sem honum er ætlað stórt hlutverk,“ segir meðal annars í tilkynningu Hauka. Úr Hafnarfirði í Mosfellsbæ Morgunblaðið/Eggert Lán Andri mun leika með Aftureld- ingu á komandi keppnistímabili. Hjörtur Hermannsson, landsliðs- maður Íslands í knattspyrnu, er að ganga til liðs við þýska B-deildar- félagið Hamburger samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Hjörtur, sem er 26 ára gamall, hefur leikið með danska úrvals- deildarfélaginu Bröndby frá árinu 2016 og varð hann danskur meist- ari með liðinu á nýliðnu tímabili. Hamburger, sem er eitt af stærstu knattspyrnufélögum Þýskalands, hafnaði í 4. sæti þýsku B-deildarinnar á síðustu leiktíð en liðið féll úr efstu deild vorið 2018. Landsliðsmaður til Þýskalands Morgunblaðið/Eggert Þýskaland Hjörtur Hermannsson er að ganga til liðs við Hamburger. Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir, átján ára framherji í liði Stjörnunnar, var besti leikmaður sjöundu umferðar Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Hildigunnur skoraði tvö mörk í 3:0-sigri Stjörnunnar á ÍBV og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína. Hún hefur nú skorað fimm af níu mörkum Garðabæjarliðsins í ár og er komin með ellefu mörk í fyrstu 29 leikjum sínum í efstu deild. Agla María Albertsdóttir var enn og aftur í lykilhlutverki hjá Breiðabliki og er í liði umferðarinnar í fimmta skipti á tímabilinu. Breiðablik vann Sel- foss 4:0 í toppslag deildarinnar og á þrjá leikmenn í liðinu eins og sjá má hér fyrir ofan. vs@mbl.is 7. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2021 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 24-3-3 Amber Michel Tindastóll Mist Edvardsdóttir Valur Arna Sif Ásgrímsdóttir Þór/KA Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir Fylkir Kristín Dís Árnadóttir Breiðablik Karitas Tómasdóttir Breiðablik Anita Lind Daníelsdóttir Keflavík Katrín Ásbjörnsdóttir Stjarnan Þórdís Elva Ágústsdóttir Fylkir Hildigunnur Ýr Benediktsdóttir Stjarnan Agla María Albertsdóttir Breiðablik 5 2 2 2 2 Hildigunnur best í 7. umferð EM 2021 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Raheem Sterling reyndist hetja Englands þegar liðið vann 1:0-sigur gegn Tékklandi í lokaumferð D- riðils Evrópumóts karla í knatt- spyrnu á Wembley í London í gær. Gareth Southgate, þjálfari enska liðsins, gerði fjórar breytingar á byrjunarliði sínu og setti Jack Grealish meðal annars í liðið, ásamt þeim Bukayo Saka, Harry Maguire og Kyle Walker. Grealish var ekki lengi að þakka þjálfaranum traustið því hann lagði upp sigurmark leiksins strax á 12. mínútu með frábærri fyrirgjöf sem Sterling skallaði í netið af stuttu færi úr teignum. Bæði lið fengu tækifæri til þess að bæta við mörkum en inn vildi boltinn ekki og Englendingar fögnuðu sigri og sigri í D-riðli með 7 stig en Tékk- ar enduðu í þriðja sæti riðilsins með 4 stig. _ Markaskorarinn Raheem Sterl- ing hefur skorað bæði mörk enska liðsins á EM til þessa en aðeins hann og Alan Shearer hafa afrekað það að skora fyrstu tvö mörk enska liðsins í lokakeppni EM. Króatar hirtu annað sætið Þá tryggðu Króatar sér annað sæti riðilsins með 3:1-sigri gegn Skotum á Hampden Park í Glasgow þar sem Nikola Vlasic kom Króöt- um yfir á 17. mínútu. Callum McGregor jafnaði metin fyrir Skota á 42. mínútu og staðan því 1:1 í hálfleik. Luka Modric og Ivan Perisic bættu hvor sínu markinu við fyrir Króatíu í síðari hálfleik og Króatar ljúka því riðlakeppninni með 4 stig í öðru sæti riðilsins en Skotar eru úr leik. _ Luka Modric er bæði yngsti leikmaður í sögu króatíska landsliðs- ins til þess að skora í lokakeppni EM og sá elsti. Hann var 22 ára og 273 daga gamall þegar hann skoraði gegn Austurríki á EM 2008 í Aust- urríki og Sviss og 35 ára og 286 daga gamall þegar hann skoraði í gær. Mótherjarnir skýrast í kvöld England mætir liðinu sem endar í öðru sæti F-riðils á Wembley í sex- tán liða úrslitum 29. júní en þar verður mótherjinn annaðhvort Frakkland, Þýskaland, Portúgal eða Ungverjaland. Öll liðin í riðlinum geta endað í öðru sæti en Frakkar eru með 4 stig fyrir lokaumferðina, Þjóðverjar með 3 stig, Portúgal með 3 stig og Ungverjar með 1 stig. Í lokaumferðinni í kvöldmætast Þýskaland og Ungverjaland í Münc- hen og Portúgal og Frakkland í Búddapest. Þá mæta Króatar liðinu sem hafn- ar í öðru sæti E-riðils á Parken í Kaupmannahöfn 28. júní í útsláttar- keppninni. Svíar eru efstir í E-riðli með 4 stig, Slóvakar eru með 3 stig, Spánverjar með 2 stig og Pólland með 1 stig. Öll liðin í riðlinum geta því endað í öðru sæti en Slóvakía og Spánn mætast í lokaumferðinni í dag í Sevilla og Svíþjóð og Pólland mætast í Pétursborg . Það kemur svo í ljós að riðla- keppninni lokinni hverjir mótherjar Tékka verða í sextán liða úrslitum. Erfiðir mót- herjar bíða Englands - Króatía hirti annað sæti D-riðils - Tékkland áfram þrátt fyrir tap AFP 2 Raheem Sterling hefur skorað bæði mörk Englands á EM til þessa. Ásgeir Sigurgeirsson skotíþrótta- maður verður á meðal keppenda á Ólympíuleikunum í Tókýó sem hefj- ast í Japan 23. júlí. Keppir Ásgeir þá að óbreyttu á Ólympíuleikum í ann- að sinn á ferlinum. Ísland fær kvótapláss í keppni með loftskammbyssu frá Alþjóða- skotíþróttasambandinu en staða Ás- geirs á heimslista hefur oft verið nokkuð góð á síðustu árum. Fram að þessu var sundmaðurinn Anton Sveinn McKee eini íslenski íþróttamaðurinn með kepnisrétt á leikunum í Tókýó. Ekki hefur verið heiglum hent fyrir íþróttafólk að komast í alþjóðlega keppni og vinna sig inn á leikana vegna heimsfarald- ursins. Ásgeir náði mjög góðum árangri á Ólympíuleikunum í London árið 2012 þegar hann hafnaði í 14. sæti í keppni með loftskammbyssu af 10 metra færi og var ekki langt frá því að komast í úrslit í greininni. Þá var Ásgeir ekki ýkja reyndur keppnismaður en hefur síðan þá keppt á mörgum stórmótum auk þess að keppa í mörg ár í efstu deild í Þýskalandi. Í tilkynningu frá Íþrótta-og ól- ympíusambandinu kemur fram að Ásgeir muni keppa strax á fyrsta keppnisdegi leikanna hinn 24. júlí. Úrslitin í greininni eru á dagskrá samdægurs. Enn sem komið er hefur íslensku íþróttafólki ekki tekist að ná lág- mörkum fyrir keppni í frjálsum íþróttum á leikunum í Tókýó. Takist það ekki mun Ísland fá eitt sæti út- hlutað í frjálsíþróttakeppninni. Ís- lendingar munu því alla vega eiga þrjá keppendur á Ólympíuleikunum í Tókýó eftir tíðindi dagsins. Takist Íslendingi að ná lágmarki í frjálsum, Guðni Valur Guðnason er til að mynda mjög nærri því í kringlukasti, þá myndi viðkomandi ná öðrum Íslendingi inn í frjáls- íþróttakeppni leikanna. Ef við gef- um okkur að Guðni nái lágmarki þá myndi íslensk frjálsíþróttakona einnig komast á leikana. Morgunblaðið/Eggert Tókýó Ásgeir Sigurgeirsson er á leið á sína aðra Ólympíuleika. Tveir Íslendingar með keppn- isrétt á Ólympíuleikunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.