Morgunblaðið - 23.06.2021, Side 24
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Sautján heimildarmyndir í fullri
lengd og sex stuttar heimildarmyndir
verða á dagskrá hátíðarinnar Ice-
Docs sem hefst í kvöld á Akranesi
með sýningu á Crock of Gold – A Few
Rounds with Shane MacGowan,
heimildarmynd um tónlistarmanninn
sem gerði garðinn
frægan upphaf-
lega með írsku
hljómsveitinni
The Pogues. Há-
tíðin stendur yfir
til og með 27. júní
og er aðgangur
ókeypis á allar
sýningar.
Ingibjörg Hall-
dórsdóttir, stjórn-
andi hátíðarinnar,
segir hátíðina svipaða og í fyrra hvað
varðar fjölda mynda og að með
styrkjum og frjálsum framlögum sé
hægt að bjóða upp á fríar sýningar.
Sálarsumarið 1969
Ingibjörg er spurð að því hverjar
séu aðalmyndir hátíðarinnar og nefn-
ir hún fyrst eina sem bætt var við á
síðustu stundu og náði því ekki inn í
bækling hátíðarinnar. Nefnist sú
Summer of Soul (or, When the Revo-
lution Could Not Be Televised) sem
hlaut bæði aðalverðlaun og áhorf-
endaverðlaun í flokki bandarískra
heimildarmynda á Sundance-kvik-
myndahátíðinni í ár. Höfundur mynd-
arinnar er bandaríski tónlistarmað-
urinn Questlove úr hljómsveitinni
The Roots og segir í myndinni af
menningarhátíð sem haldin var í
Harlem í New York sama sumar og
Woodstock-hátíðin fór fram, árið
1969. Sóttu yfir 300.000 manns hátíð-
ina í Harlem þar sem menning og
tónlist Bandaríkjamanna af afrískum
uppruna var í öndvegi. Myndefni frá
hátíðinni var í geymslu í yfir hálfa öld
og er nú loksins orðið aðgengilegt í
heimildarmyndinni sem sýnd verður
á sunnudag.
„Svo er það Mole Agent frá Síle
sem tilnefnd var til Óskarsverðlaun-
anna og Gunda sem fjallar um svínið
Gunda og er eftir Viktor Kossakov-
skíj, þetta eru stóru myndirnar,“ seg-
ir Ingibjörg en segist þó alltaf mjög
hrifin af minni myndunum. „Við erum
líka með Lost Boys sem er svakaleg
frásögn af finnskum strákum sem eru
í neyslu, fara til Kambódíu og lenda í
frekar slæmum hlutum þar,“ segir
Ingibjörg og eru viðkvæmir varaðir
við myndinni. Sadri Cetinkaya og
Joonas Neuvonen eru höfundar
myndarinnar sem er ein tekjuhæsta
heimildarmynd allra tíma í Finnlandi
og hefur hlotið mikla athygli og umtal
víða.
Falleg mynd um gyltu og grísi
Gunda fyrrnefnd segir af sam-
nefndri gyltu og grísum hennar og er
framleidd af bandaríska verðlauna-
leikaranum Joaquin Phoenix. Myndin
er sýnd á IceDocs í samstarfi við
Samtök grænkera á Íslandi og matur
verður í boði fyrir sýningu. Munu um-
ræður svo fara fram að henni lokinni.
Ingibjörg er spurð að því hvort
myndin sé til þess gerð að fá fólk til
að hætta að borða kjöt og segir hún
að það sé ekki beinlínis svo. „Það er
verið að fylgjast með þessari gyltu
sem er úti í móa með gríslingana sína.
Myndin er ofboðslega fallega tekin,
öll svarthvít og maður er í rauninni
bara að fylgjast með dýrunum í sveit-
inni. Það hefur óhjákvæmilega þau
áhrif að fólk sem hefur kannski ekki
velt svona málum fyrir sér finnur til
samkenndar með dýrunum og þess
vegna hefur hún kannski verið tengd
við þessar hreyfingar,“ segir Ingi-
björg um tenginguna við grænkera.
Myndin er án tals og hefur líka hlotið
athygli fyrir aðkomu Phoenix sem
talað hefur gegn kjötáti.
Myndir hátíðarinnar fjalla um allt
milli himins og jarðar og segir Ingi-
björg að reynt sé að sýna alls konar
sögur og flakka eins mikið um heim-
inn og mögulegt er. Mikil vinna hlýt-
ur að liggja að baki skipulagningu
svona hátíðar og segir Ingibjörg að
hún og aðrir skipuleggjendur hafi
horft á yfir þúsund myndir. „Stund-
um erum við með myndir sem okkur
langar mikið að sýna en kannski tvær
eða þrjár um svipað viðfangsefni og
þá þarf að velja á milli þeirra,“ segir
hún.
Boðið verður upp á ýmsa viðburði
aðra en kvikmyndasýningar og má af
þeim nefna tónleika, barsvar með
Nielsi Thibaud Girerd og uppistand
með Nick Jameson. Síðast en ekki
síst ber að nefna að flestar myndanna
verða aðgengilegar á vef hátíðarinn-
ar, icedocs.is, um klukkustund eftir
að sýningar hefjast í bíóhúsi Akra-
ness, hinni fallegu Bíóhöll.
Heimshornaflakk á Skaganum
- Heimildarmyndahátíðin IceDocs hefst í dag á Akranesi og er nú haldin í þriðja sinn - 23 alþjóð-
legar heimildarmyndir, langar og stuttar, eru á dagskrá auk fjölbreyttra viðburða - Líka á netinu
Falleg Gyltan Gunda með einum grísa sinna. Í heimildarmyndinni Gundu er
fylgst með dýrunum í svarthvítu og er myndin alveg án tals.
Varúð Lost Boys þykir allsvakaleg.
Hér er veggspjald hennar.
Ingibjörg
Halldórsdóttir
Heimsfrumsýning Á laugardagskvöld verður Queendom heimsfrumsýnd en í þeirri áhugaverðu heimildarmynd
segir af Le Filip, Shigo LaDurée og Cookie Kunty, þremur þekktum dragdrottningum í París árið 2020.
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 2021
Myndlistarsýning Margrétar Jóns-
dóttur, Handanheima, verður opnuð í
Borgarbókasafninu í Spönginni í dag
kl. 17 og er hún sumarsýning safns-
ins. Sýningin er „vörðuð í innsetningu
sem inniheldur persónulega muni
Margrétar og hluta af heimili hennar,
sem hún flytur inn í sýningarrýmið,“
eins og segir í tilkynningu og vinnur
Margrét með upplifanir, umhverfi,
tilfinningar og reynslu sem umbreyt-
ast í myndmál. „Það getur haft marg-
víslegar skírskotanir, bæði augljósar
og faldar, sem síðan þróast út í eitt-
hvað allt annað en stóð til í upphafi.
Allt fléttast einhvern veginn saman,
lag ofan á lag sem mynda munstur og
úr skítnum framkallast fegurðin,“
segir jafnframt í tilkynningunni.
Margrét hefur starfað við myndlist
í rúm 50 ár með listkennslu í 28 ár við
ýmsa skóla og m.a. á vatnslitanám-
skeiðum í Frakklandi. Hún hefur
einnig unnið við grafíska hönnun og
rekið auglýsingastofu. Hún hefur
haldið á fimmta tug einkasýninga og
tekið þátt í fjölda samsýninga hér á
landi og erlendis. Hún var einn af
stofnendum Gallery Suðurgötu 7 og
Hagsmunafélags myndlistarmanna
sem var undanfari Sambands ís-
lenskra myndlistarmanna, ásamt því
að hafa komið að stofnun SÍM. Verk
eftir Margréti eru í eigu helstu lista-
safna landsins og hefur hún hlotið
ferðastyrki og starfslaun listamanna.
Persónuleg Innsetning Margrétar inniheldur persónulega muni hennar.
Hluti af heimilinu í inn-
setningu Margrétar