Morgunblaðið - 23.06.2021, Qupperneq 28
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Seyðfirðingurinn Óttarr Magni Jó-
hannsson hefur alltaf haldið tryggð
við æskustöðvarnar þótt hann hafi
búið og starfað í Reykjavík undan-
farna áratugi. Hann var kokkur á ís-
fisktogaranum Gullveri NS 12, sem
Síldarvinnslan gerir út frá Seyðis-
firði, í um sjö ár á níunda áratugnum
og fram á þann tíunda og fyrir
skömmu, um 30 árum síðar, tók hann
við gamla starfinu á ný.
Félagarnir Óttarr Magni og Sig-
urjón Hafsteinsson voru saman á
Gullverinu fyrir ríflega 30 árum og sá
fyrrnefndi segir að þeir hafi oft rætt
um að gaman væri að endurtaka leik-
inn, þó ekki væri nema til að sjá hvort
þeir stæðu í fæturna. „Svo gerist það
í byrjun apríl að Þórhallur Jónsson,
annar skipstjóri Gullversins, sem var
líka með mér á árum áður, hringir í
mig, segist vanta kokk og spyr hvort
ég sé ekki til í að koma austur og
hlaupa í skarðið,“ segir Óttarr Magni
um nýjasta starfið, sem hann þekkir
þó svo vel. „Svo vel hittist á að ég var
á milli starfa, þurfti ekki að hugsa
mig um tvisvar og spurði hvenær ég
ætti að mæta. Síðan er ég búinn að
fara nokkra túra og Sigurjón var með
okkur á dekki í öðrum túrnum en bíð-
ur á kantinum eftir næsta kalli.“
Óttaðist sjóveiki
Stökkið um borð var ekki eins og
Óttarr Magni hefði aldrei gert annað
en hann segist hafa verið farinn að
stíga ölduna eftir fyrsta sólarhring-
inn. „Ég var með hnút í maganum og
óttaðist sjóveiki, var slappur fyrstu
12 tímana, gat þó gefið mann-
skapnum kvöldmat án vandamála og
eftir hafragraut og lýsi fyrsta morg-
uninn var þetta ekkert mál.“
Í áhöfninni eru nokkrir fyrrver-
andi vinnufélagar Óttars Magna og
þar er góður maður í hverju rúmi.
„Þetta er skemmtileg áhöfn, góð
blanda af eldri og yngri mönnum,“
segir ríflega miðaldra maðurinn, sem
var unglingur, þegar hann fór fyrst á
sjóinn að sumri til. Sumarið 1984
vantaði kokk í afleysingu á Gullverið
og hann sló til, fór í tvo siglingatúra
til Grimsby. Um veturinn kom sama
staða upp og aftur lét hann slag
standa. „Ég bjóst við að vera í nokkra
mánuði en þeir urðu að um sjö árum.“
Óttarr Magni hefur lengst af
unnið við sölu- og markaðsmál, er
skráður kúlupennasali í símaskránni,
en telur sig nú vera á réttri grein.
„Við höfum lent í skítabrælum í
nokkrum túrum en ég hef staðið þær
af mér, kann eitthvað að elda og þetta
hefur verið mjög gaman. „Sjómanns-
líf, sjómannslíf/ástir og ævintýr“ söng
Raggi Bjarna svo eftirminnilega og
það er það sem þetta er með góðri
veiði. Ég er mjög ánægður í kokka-
buxunum og með svuntuna hérna um
borð og er á meðan er.“
Veiði, ástir og ævintýr
- Óttarr Magni tók við gamla starfinu eftir 30 ára fjarveru
Í landi Óttarr Magni Jóhannsson eftir nýjasta túrinn.Fyrir 35 árum Óttarr Magni í Gullverinu 1986.
ÍSLAN
D
VAKNA
R
Jón ax
el - kr
istín s
if - ás
geir p
áll
alla v
irkna
morg
na fr
á 06-1
0
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚNÍ 174. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Keflvíkingar létu ekki
senda sig í sumarfrí
frá körfuknattleiknum
án þess að vinna leik í
úrslitarimmunni um
Íslandsmeistaratit-
ilinn gegn Þór frá Þor-
lákshöfn. Keflavík
sigraði 97:83 þegar
liðin mættust í þriðja
sinn í gær í Blue-
höllinni en leikið var í
Keflavík. Þór er þá yfir
2:1 en vinna þarf þrjá
leiki til að verða meist-
ari. Þórsarar fá á
föstudagskvöldið
tækifæri til að verða
Íslandsmeistarar í fyrsta skipti í sögu félagsins á eigin
heimavelli í Þorlákshöfn en Þórsarar höfðu haft mikla
yfirburði í einvíginu fram að leik gærdagsins. »23
Keflavík minnkaði muninn í úrslita-
einvíginu gegn Þór frá Þorlákshöfn
ÍÞRÓTTIR MENNING
Jazzklúbburinn Múlinn
heldur áfram göngu
sinni í kvöld kl. 20 í
Flóa í Hörpu. Þá kemur
fram kvintett saxófón-
leikarans Phils Doyle
og flytur frumsamið
efni í bland við síðari
tíma djassstandarda í
eigin útsetningum þar
sem ævintýralegur
spuni verður í hávegum
hafður. Með Doyle
koma fram trompet-
leikarinn Snorri Sigurð-
arson, Eyþór Gunn-
arsson sem leikur á
píanó, Valdimar Kol-
beinn Sigurjónsson á
kontrabassa og Einar
sem leikur á trommur.
Kvintett Phils Doyle leikur frum-
samið efni og standarda í Múlanum