Morgunblaðið - 29.06.2021, Side 2

Morgunblaðið - 29.06.2021, Side 2
Ferðaþjónustan virðist vera að koma sterk til baka ef marka má bókunarstöðu hvalaskoð- unarfyrirtækisins Norðursiglingar. Stefán Jón Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Norðursiglinga, segir að bókanir hafa farið ört vaxandi frá því í mars og tekið kipp í maí þegar slakað var á samkomutakmörkunum innan- lands. „Bókanir hafa verið mjög fínar og farið vax- andi frá því við byrjuðum 1. mars. Það hefur verið aukning núna í júní og við búumst við aukningu í júlí,“ segir Stefán. Hann segir fyrirtækið nú vera með þrjár ferðir á dag en eftir 1. júlí verða þær fimm á dag til þess að mæta eftirspurn. Hann bætir við að flestir farþeganna séu erlendir ferðamenn. „Bókanir sem við fáum langt fram í tíma eru nær eingöngu erlendir ferðamenn og Íslend- ingar koma yfirleitt með styttri fyrirvara. Ég myndi segja núna séu um 85-90% farþega okk- ar erlendir ferðamenn en þetta er auðvitað mjög misjafnt,“ segir Stefán. Stefán segir ferðamennina alveg himinlifandi með siglinguna og mikið hafi verið um hval undanfarnar vikur. „Við getum aldrei lofað því að við sjáum hval en undanfarnar vikur höfum við séð hval í öll- um ferðum. Ef við sjáum ekki hval í ferð fær fólk aftur frítt í hvalaskoðun þangað til það sér hval,“ segir Stefán. logis@mbl.is Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Húsavíkurhöfn Bókanir í hvalaskoðunarferðir á Húsavík hafa tekið kipp og hvalir hafa sést í öllum ferðum Norðursiglingar að undanförnu. Himinlifandi í hvalaskoðun - Mestmegnis erlendir ferðamenn - Mikil fjölgun eftir slakanir á takmörk- unum - Hafa séð hval í hverri einustu ferð síðustu vikur - Fjölga ferðum í júlí 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Eldsneytisverð hefur hækkað nokk- uð undanfarna viku eða um 3-8 krón- ur lítrinn og er listaverð á bensíni á hefðbundnum bensínstöðvum Olís og N1 nú komið í 254,9 krónur. Listaverð á dísilolíu er komið í 236,30 krónur. Costco býður lægsta verðið á bæði dísilolíu og bensíni en bensínlítrinn kostar þar 208,9 krónur og dísillítr- inn 199,9 krónur. Lægsta verð á völdum stöðvum Orkunnar, Dæl- unnar, Atlantsolíu ÓB og N1 er frá 211,3-213,9 krónum á bensínlítra og 204,7 til 206,7 krónur á dísillítra. Skýrist af heimsmarkaðinum „Meginskýringin er að heims- markaðurinn er allur á uppleið í augnablikinu,“ segir Runólfur Ólafs- son, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda. „Að ein- hverju leyti má örugglega tengja það því að sumarleyfistíminn er fram undan og það er aukin bjart- sýni af því að það eru víða að opnast gáttir eftir „Covid-ævintýrið“, þó ekki jafn mikið og hér, en engu að síður aukin ferðalög á einkabílum,“ segir hann. „Verðið var eiginlega búið að vera óbreytt lengi þar til um miðjan júní, þá byrjaði það að stíga upp,“ segir Runólfur. „Á sama tíma hefur heimsmarkaðsverðið stigið í kring- um fimm krónur og við það bætist virðisaukaskattur, bensíngjöld og olíugjöld. Þannig að þetta er ekki álagningarhækkun, heldur má fyrst og fremst rekja þetta til heimsmark- aðsverðs.“ Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís, tekur í sama streng og segir hækkunina stafa af tvennu. Annars vegar eftirspurn á heimsmarkaði eftir Covid og hins vegar hækki verðið alla jafna á sumrin þegar Bandaríkjamenn fara í sumarfrí. Eldsneyt- isverð hækkar - Hækkun á heimsvísu keyrir upp verðið hér Guðni Einarsson gudni@mbl.is Flest hjól sem er stolið eru ólæst eða þeim læst með ódýrum víralásum, að sögn Bjartmars Leóssonar. Hann hefur fengið viðurnefnið „hjólahvísl- arinn“ vegna þess hve duglegur hann er að finna stolin reiðhjól. „Það er hægt að klippa á ódýra víralása með klippum sem komast fyrir í rassvasa,“ sagði Bjartmar. „Sterkur hjólalás, U-lás, „tommu- stokkslás“ eða sterkur keðjulás er málið. Gæðin fylgja oft verðinu. Þótt fólki finnist það stinga svolítið að kaupa dýran lás þá stingur það ekki eins mikið og að tapa dýru hjóli. Það er líka mik- ilvægt að læsa hjólinu við eitthvað fast. Maður má aldrei vera kærulaus og hugsa að það sé í lagi að skjótast aðeins frá hjólinu án þess að læsa því. Svo er líka hægt að kaupa GPS- sendi og setja á dýrt hjól til að sjá alltaf hvar það er statt.“ Félagi Bjartmars stofnaði Face- book-síðuna Hjóladót Tapað, fundið eða stolið árið 2015. Þar er lýst eftir stolnum reiðhjólum og hlaupahjólum og sagt frá hjólum sem hafa fundist. Nú eru um 8.400 manns á síðunni. „Ég kom að þessu árið 2018. Það byrjaði þannig að ég sá haug af hjól- um fyrir utan þar sem heimilislausir og bláfátækir gistu. Þegar ég fór að skipta mér af þessu hættu þeir að setja hjólin beint fyrir utan og reyndu heldur að fela þau. Þetta hef- ur haft þau áhrif að ég veit um tvo „dílera“ sem eru hættir að taka við hjólum sem greiðslu því nú er komið kastljós á þau,“ sagði Bjartmar. „Langflest hjól sem ég hef endur- heimt hafa komið frá veikasta fólk- inu sem er heimilislaust og búið með framfærsluna fyrstu daga mánaðar- ins. Svo þarf það einhvern veginn að bjarga sér það sem eftir er. Þetta er ekki vont fólk heldur veikt fólk, eins og kunningi minn sagði svo rétti- lega.“ Bjartmar sagðist eiga mest við þá sem taka hjólin. Þar fyrir ofan eru þeir sem taka við hjólum og koma þeim í verð. Hann heyrði fyrir nokkrum árum af gámi sem var á leið úr landi. Í honum voru 160 hjól. Um daginn hafði meintur hjóla- þjófur í hótunum við Bjartmar. „Við mættum 18 manns fyrir utan hjá honum til að sýna honum að ég stend ekki einn í þessu,“ sagði Bjartmar. Það bar árangur. Fyrir tilstilli síð- unnar eru komin augu út um allan bæ og erfiðara að vera hjólaþjófur. Hjólum er ekkert síður stolið í út- hverfunum en miðbænum. Nýlega auglýsti maður eftir 530 þúsund króna rafhjóli sem hann var nýbúinn að kaupa. Hann hafði ekki átt það í sólarhring þegar hjólinu var stolið. Eina helgina fann Bjartmar tvö 500 þúsund króna reiðhjól hjá einum fíkniefnasala og endurheimti. Bjartmar sagði að reiðhjól væru orðin samgöngutæki margra. Reykjavíkurborg hvetji til þess að fólk hjóli og á sama tíma hverfi hjól- in. Pawel Bartoszek borgarfulltrúi setti nýlega færslu í hópinn um að takast eigi á við þennan vanda í nýrri hjólreiðastefnu. Kanna á leiðir til að draga úr þjófnaði á hjólum í sam- vinnu við lögreglu, tryggingafélög og grasrótarsamtök hjólreiðafólks. Alvöru hjólalás er málið Ljósmynd/Facebook Rafhjól Nýlega var brotist inn í læsta geymslu og þessu læsta hjóli stolið. Bjartmar Leósson - Endurheimtir stolin reiðhjól - Mikilvægt að kaupa sterka hjólalása og festa hjólin við eitthvað - Um 8.400 manns á Facebook-síðu um týnd og stolin hjól Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæð- inu barst útkall rétt fyrir hádegi í gær vegna vatnsleka í Háteigs- kirkju. Stanslaust streymi vatns hafði flætt inn í kjallarann en þegar slökkviliðið kom á vettvang náði vatnshæðin þar allt að 40 cm. Upptök lekans eru óljós en lík- legt þykir að hitablásari hafi gefið sig með tilheyrandi afleiðingum. Skemmdir hafa orðið á nótum, textablöðum og öðrum hlutum sem voru til geymslu í kjallaranum en óljóst er hvort raki af völdum lek- ans hafi valdið miklu tjóni í kirkj- unni sjálfri. Er þar meðal annars að finna verðmæt hljóðfæri eins og flygil og orgel, sem ekki eru gerð fyrir raka. Mun umfang skemmda koma betur í ljós á næstu dögum. hmr@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Háteigskirkja Skemmdir af völdum raka munu koma í ljós á næstu dögum. Leki í Háteigskirkju olli nokkru tjóni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.