Morgunblaðið - 29.06.2021, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Þór Þorlákshöfn tryggði sér Íslands-
meistaratitilinn í meistaraflokki karla
í körfubolta í fyrsta sinn í sögu deild-
arinnar síðastliðinn föstudag þegar
liðið vann Keflavík í fjórða leik lið-
anna í einvíginu um titilinn.
Ragnar Matthías Sigurðsson,
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og einn
frumkvöðla körfuboltans í Þorláks-
höfn, segir erfitt að lýsa tilfinningunni
sem fylgdi því að sjá heimaliðið sigra.
„Maður hefur leyft sér það öðru
hverju að dreyma um að þessi dagur
rynni upp. Ég vildi ekki trúa því að
þetta gæti gerst og nú trúir maður því
varla að þetta hafi gerst,“ segir Ragn-
ar.
Hann segir sigurinn hafa mikla
þýðingu fyrir félagið sjálft og sveitar-
félagið í heild sinni. „Ég efast um að
það sé betri auglýsingu að fá fyrir bæ-
inn heldur en góða frammistöðu í
íþróttum. Þetta gerist ekkert oft og
því vekur það svo mikla eftirtekt þeg-
ar það gerist. Öðru hverju gerast
svona öskubuskuævintýri og þau eru
svo falleg.“
Eitthvað sérstakt lá í loftinu
Inntur eftir mögulegri útskýringu
á velgengni liðsins segir Ragnar að
margir samverkandi þættir hafi legið
þar að baki. Eitthvað sérstakt hafi þó
legið í loftinu þennan dag. „Það var
ekki hægt að stoppa strákana. Þeir
bara trúðu því að þeir gætu unnið
þetta. Það var enginn efi,“ segir hann.
„Það hefur verið svolítið aðalsmerki
þeirra í vetur. Þeir halda bara áfram
áfram þótt það gangi illa og gefast
aldrei upp,“ segir Ragnar um leik-
menn Þórs.
Þeir hafi einnig haldið dampi í
gegnum kórónuveirufaraldurinn sem
setti sitt mark á íþróttastarf á Íslandi
síðastliðið ár. „Þegar fyrsta stoppið
kom þá vorum við ekkert að eiga við
liðið. Á meðan önnur lið sendu er-
lendu leikmennina sína heim, eða
hvort þeir hafi valið að fara heim eða
þeim skipt út, þá héldum við öllum
okkar mönnum. Það var bara haldið
áfram. Engu breytt. Við vorum bara
með sama mannskapinn allan tímann
en fórum eftir öllum sóttvarn-
arreglum og samkomutakmörk-
unum.“
Sama dag og Þór tryggði sér Ís-
landsmeistaratitilinn var öllum tak-
mörkunum vegna Covid-19-
faraldursins aflétt hér á landi. Ragnar
segir mikinn fögnuð hafa brotist út
meðal fólks þegar sigur liðsins var í
höfn. Þá hafi áhorfendum úr stúku
verið hleypt inn á völlinn þar sem allir
sem vildu fengu að halda á bikarnum.
„Einn íþróttafréttamaðurinn sem var
hérna á leiknum sagðist ekki muna
eftir að hafa upplifað svona innileg
fagnaðarlæti,“ segir Ragnar glaður í
bragði.
Segir lið þurfa að hafa hjarta
Körfuboltaáhugi íbúa í Þorlákshöfn
hefur farið vaxandi síðustu ár að sögn
Ragnars. Grunnurinn að velgengni í
deildinni liggi svo í þessum áhuga og
góða utanumhaldi. „Það er mikill
áhugi fyrir þessu og það er kannski
grunnurinn að þessu öllu saman. Okk-
ur hefur tekist að halda utan um þetta
og búa til stráka hérna heima sem eru
hæfir í úrvalsdeildina,“ segir Ragnar.
„Það er sjaldnast sýnist mér að það
sé hægt að fara bara og sækja menn
hingað og þangað og borga hinum og
þessum til að búa til lið sem vinnur.
Það þarf að vera þetta hjarta. Það er
það sem við höfum haft. Við erum allt-
af að búa til leikmenn. Við eigum góða
framtíðarleikmenn sem eru niðri á
gólfi að æfa hjá okkur núna. Það er
mjög vandað hvernig er staðið að
þessu og hugsað um þetta. Við eigum
eftir að skila af okkur fleiri svona leik-
mönnum. Við vissum alveg að það
kæmi að þessu einn daginn því við
höfum unnið að þessu og búið þessa
leikmenn til. Grunnurinn verður alltaf
að vera heimamenn, til þess að þetta
virki.“
Íbúar Þorlákshafnar enn í sigurvímu
Mikil gleði ríkir í Þorlákshöfn eftir að karlalið Þórs tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í fyrsta sinn á föstudaginn,
en þeir báru þar sigurorð af Keflvíkingum, sem lengi hafa verið stórveldi í körfunni. Morgunblaðið fór til Þorlákshafnar og
ræddi þar við leikmenn, aðstandendur og áhangendur Þórs um sigurinn og hvaða þýðingu hann hefur fyrir bæjarfélagið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fölskvalaus sigurgleði Leikmenn og stuðningsmenn Þórs í Þorlákshöfn fögnuðu vel og innilega með stuðnings-
mönnum sínum þegar Íslandsmeistaratitillinn var í höfn. Voru fagnaðarlætin innileg, enda fyrsti titill liðsins.
Oskar Rybinski, íbúi í Þorlákshöfn, segir að hann sé ekki
mikill körfuboltaáhugamaður en hann mætir þó stundum
á leiki til að styðja heimamennina í Þór. Hann sagðist
hafa valið fullkominn tíma til að mæta á leik þegar hann
sá Þór sigra Keflavík í síðasta leik úrslitakeppninnar á
föstudaginn.
„Þetta var bara tryllt. Stúkan hristist,“ segir Oskar.
Hann segir Þór hafa átt sigurinn fyllilega skilið enda hafi
liðið unnið að þessu í langan tíma. Þá segir hann það hafa
verið sérstaklega gleðilegt að sjá Þór sigra enda þekki
hann til flestra leikmanna liðsins. „Þetta eru félagar og
vinir manns, sem gerir þetta bara enn þá skemmtilegra,“
segir Oskar.
Spurður hvort hann hafi orðið var við mikil fagnaðar-
læti í bænum eftir leikinn svarar Oskar játandi. „Bærinn
svaf ekki þessa helgi. Langt því frá. Bærinn var vakandi
alla helgina að fagna.“
Morgunblaðið/Unnur Karen
„Bærinn svaf
ekki þessa helgi“
Oskar Rybinski
Jóhanna M. Hjartardóttir, formaður körfuknattleiksdeildar
Þórs Þorlákshöfn, er ánægð með sigurinn og tekur undir með
eiginmanni sínum, Ragnari Matthíasi, þegar hann segir upp-
lifunina ævintýri líkast.
„Þetta var bara æðislegt. Það var svo mikil stemming í hús-
inu og í seinni hálfleik small þetta einhvern veginn allt saman.
Vörnin var frábær. Þetta var bara ólýsanleg gleði,“ segir Jó-
hanna. Þá segir hún sterka liðsheld ríkja meðal leikmanna og
að það hafi verið þeim í hag. „Ég held að þessi liðsheild, hjart-
að og stemmingin hafi skapað þennan sterka sigur.“ Sigurinn
hafi verið tímabær enda hafi mikil vinna verið lögð í upp-
byggingu á liðinu að sögn Jóhönnu. „Við tókum þá ákvörðun
að ráða inn sterka þjálfara og byggja liðið upp þannig að við
gætum tryggt það að við yrðum stöðugt í efstu deild. Þetta er
bara uppskera mikillar vinnu og samheldni,“ segir hún. Hún
segist stolt af sigrinum, liðinu og öllum klúbbnum. „Það eru
virkilega margir sem eru að uppskera mikla vinnu og margir
bak við tjöldin, sem eru ekki endilega í framlínunni, sem eiga
bara ofboðslega mikinn þátt í velgengni liðsins.“
Ljósmynd/Þór Þorlákshöfn
„Vörnin var frábær“
Jóhanna M. Hjartardóttir
Heimir Heimisson er einn forsprakka Græna drekans, stuðn-
ingsliðs Þórs. Hann hefur að eigin sögn aldrei upplifað aðra
eins stemmingu og myndaðist á leik Þórs við Keflavík.
„Það var fólk þarna, sem hefur örugglega aldrei stigið inn í
íþróttahús, sem hafði svo gaman af þessu og þetta var bara
geðveikt. Fólk verður lengi að ná sér eftir þetta,“ segir Heim-
ir.
Sjálfur segist hann nánast hafa tapað sér í gleðinni þegar
hann sá í hvað stefndi. „Ég bara missti mig þegar það var sirka
mínúta eftir af leiknum. Ég hágrét bara. Ég hef aldrei upplifað
svona áður. Þetta var svo fjarlægt. Hvað þá núna, því Keflavík
var alveg sterkasta lið sem hafði sést hérna í langan tíma. Það
átti enginn að eiga „breik“ í þá og svo komum við, litla liðið úr
Þórlákshöfn, og tókum þetta bara. Alveg galið,“ segir hann.
„Líka að þetta lendi á þessum degi þegar Covid er að klárast,
að þá verðum við Íslandsmeistarar í körfubolta. Maður man
ekki endilega hverjir urðu Íslandsmeistarar fyrir fimmtán ár-
um en eftir fimmtán ár mun fólk muna þetta.“ Að sögn Heimis
fögnuðu leik- og stuðningsmenn liðsins sigrinum vel og lengi.
Ljósmynd/Aðsend
„Ég bara missti mig“
Heimir Heimisson
„Þetta var eiginlega bara ólýsanlegt. Alger alsæla. Stór-
fenglegt,“ segir Halldór Garðar Hermansson, leikmaður Þórs,
um sigur liðsins á föstudag.
Inntur eftir því hvort það hafi hjálpað liðinu að leikurinn hafi
farið fram á heimavelli svarar hann játandi.
„Það munar svo mikið um stuðninginn. Ég hef aldrei heyrt
annan eins hávaða eins og þarna inni.“ Að sögn Halldórs átti nýr
þjálfari, nýjar áherslur og reynsla stóran þátt í því að Þór sigr-
aði að þessu sinni. „Reynsla skiptir miklu máli í þessu og kjarn-
inn okkar er allur frá 24 til 30 ára. Þótt við höfum ekki unnið
neitt áður þá höfum við verið lengi í deildinni og það small ein-
hvern veginn allt á réttum tíma núna,“ segir hann. Að sögn Hall-
dórs hefur liðið fengið mikið lof frá heimamönnum eftir sig-
urinn. „Maður fer í búðina og það er alltaf verið að tala við mann
sem er bara ógeðslega skemmtilegt. Þetta er búið að vera einn
stór fögnuður síðan.“ Spurður hvað tæki svo við segist Halldór
ekki vera viss. „Það er góð spurning. Ætli það sé ekki undirbún-
ingstímabil bara og reyna að fara svo og vinna þetta aftur. Það
þýðir ekkert að láta staðar numið hér. Það er bara áfram gakk.“
„Alger alsæla“
Morgunblaðið/Unnur Karen
Halldór Garðar Hermannsson
Fyrsti Íslandsmeistaratitill Þórs í Þorlákshöfn