Morgunblaðið - 29.06.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
Oft er bent á ýmislegt að-finnsluvert í heilbrigðiskerf-
inu hér á landi og iðulega á sú
gagnrýni rétt á sér. Margt mætti
betur fara, stundum þarf aukið
fjármagn en stund-
um þarf einungis að
nýta fjármagnið
betur og hafa vilja
til að laga vinnu-
brögð og verklag.
Gagnrýnin á það
sem betur má fara
er gagnleg en ekki
má gleyma hinu
sem er til fyrirmyndar.
- - -
Á dögunum voru birtar tölur umungbarnadauða hér á landi og
erlendis og vakti athygli að ung-
barnadauði hér á landi var lægstur
(fyrir utan Liechtenstein þar sem
ungbarnadauði var af einhverjum
ástæðum 0). Á Íslandi var talan 1,1
af 1.000 lifandi fæddum en 3,4 að
meðaltali í ESB og tvöfalt til þrefalt
hærri á hinum Norðurlöndunum en
hér.
- - -
Þeir sem hafa þurft að nýta sérvökudeild Barnaspítala
Hringsins undrast svo sem ekki
góðan árangur hér á landi, því að
þar er allt til mikillar fyrirmyndar.
- - -
Morgunblaðið ræddi þennan ár-angur við Þórð Þórkelsson,
yfirlækni nýburalækninga og vöku-
deildar, og hann lagði áherslu á að
„hér á landi er mjög gott mæðraeft-
irlit, fæðingarhjálp og ungbarna-
vernd, auk þess sem þjónusta við
nýfædd börn er mjög góð.“
- - -
Þórður sagði að þá þjónustu semhér væri að finna við nýfædd
börn væri ekki í boði alls staðar og
að hún væri betri en í flestum öðr-
um löndum hins vestræna heims.
Það er í senn mikið ánægjuefni og
þakkarvert að við skulum taka svo
vel á móti nýjum landsmönnum.
Þórður
Þórkelsson
Þakkarverð þjón-
usta við nýbura
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Sigríður Jóhanns-
dóttir, fyrrverandi
skólastjóri Hjúkr-
unarskóla Íslands,
lést 23. júní sl. á
Landspítala í Foss-
vogi eftir stutt veik-
indi, 91 árs að aldri.
Sirgíður fæddist á
Akureyri 11. nóv-
ember 1929. Hún var
dóttir hjónanna Jó-
hanns Friðgeirs
Steinssonar trésmiðs
og Sigríðar Guð-
bjargar Jóhanns-
dóttur, húsmóður og
klæðskera.
Sigríður lauk prófi frá Gagnfæða-
skóla Akureyrar árið 1946. Eftir
störf á skrifstofu KEA innritaðist
hún í Hjúkrunarskóla Íslands árið
1951 og lauk þaðan prófi í mars
1954. Hún starfaði við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri til ársloka
1954 en hélt þá til Bandaríkjanna og
lauk námi í gjörgæsluhjúkrun á
Presbyterian Hospital í Chicago ár-
ið 1956. Sigríður starfaði á North-
western Hospital í Minneapolis
þangað til hún flutti aftur heim til
Íslands. Eftir heimkomuna var Sig-
ríður heimavinnandi á meðan börn-
in voru ung en vann aukavaktir á
Landakoti og Borgarspítalanum
eftir ástæðum. Árið 1973 fór hún í
fulla vinnu utan heimilis.
Sigríður lauk námi
í uppeldis- og
kennslufræðum við
Kennaraháskóla Ís-
lands árið 1976 og
var við nám í Nord-
iska Hälsovårdshög-
skolan í sjúkra-
hússtjórnun og
umhverfisvernd á ár-
unum 1979-81.
Sigríður var kenn-
ari við Nýja hjúkr-
unarskólann 1975-
77, hjúkrunarfor-
stjóri St.
Jósefsspítalans í
Hafnarfirði 1977-79. Árið 1979 réðst
hún sem kennari við Hjúkr-
unarskóla Íslands, varð yfirkennari
1982 og skólastjóri 1983-1987. Þá
var skólinn lagður niður og allt
hjúkrunarnám flutt á háskólastig.
Sigríður var í broddi fylkingar um
að sameina allt hjúkrunarnám á Ís-
landi á háskólastigi. Á árunum 1988
til 1993 var hún hjúkrunarforstjóri
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í
Keflavík og að því loknu fór hún á
eftirlaun.
Eiginmaður Sigríðar var Valtýr
Bjarnason, yfirlæknir svæfinga-
deildar Landspítalans, hann lést
1983. Börn þeirra eru: Bjarni, Jó-
hann, Valtýr og Sigríður Þórdís.
Sigríður átti 13 barnabörn og 10
barnabarnabörn.
Andlát
Sigríður Jóhannsdóttir
Banaslys, sem varð í ágúst á síðasta
ári við Stigá í Öræfum, þegar öku-
maður bifhjóls missti stjórn á hjól-
inu, er meðal annars rakið til þess að
hjólinu var ekið of hratt og einnig
var öryggisbúnaður ökumannsins
ófullnægjandi.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa
birti skýrslu um slysið í gær. Þar
kemur fram, að skömmu áður en
ökumaður á bifhjóli kom að brúnni
yfir Stigá byrjaði hjólið að skjálfa
með þeim afleiðingum að ökumaður-
inn missti stjórn á því, féll og rann
eftir veginum. Hann rakst utan í bif-
reið sem kom úr gagnstæðri átt og
kastaðist út fyrir veg. Ökumaðurinn
lést af völdum áverka sem hann
hlaut í slysinu.
Stuttu fyrir slysið hafði ökumaður
á vesturleið mætt bifhjólinu vestan
við brúna yfir Stigá. Vitnið sá að
hjólið tók að rása, fyrst framhjólið og
stýrið, þar til allt hjólið fór að sveifl-
ast til. Hjólið stefndi þá yfir á rangan
vegarhelming og þurfti vitnið að aka
eins og hægt var út í vegkant til að
koma í veg fyrir að hjólið lenti á bif-
reiðinni. Í skýrslunni kemur fram út-
reikningar sérfræðings bendi til
þess að bifhjólið hafið verið á 122
km/klst. hraða fyrir slysið en leyfður
hámarkshraði er 90 km/klst.
Þá segir að erfitt sé að segja til um
hvers vegna hjólið fór að skjálfa eða
skakast til. Þekkt sé að bifhjól geti
verið viðkvæm fyrir sveiflum, t.d. ef
slit er komið í legur eða fóðringar.
Titringur geti einnig orsakast af við-
brögðum ökumannsins eða af utan-
aðkomandi orsökum.
Þá segir í skýrslunni, að hjálmur
ökumanns bifhjólsins hafi ekki verið
ætlaður til notkunar á bifhjólum.
Banaslys rakið til hraðaksturs
- Öryggisbúnaður ökumanns bifhjóls var einnig talinn hafa verið ófullnægjandi