Morgunblaðið - 29.06.2021, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021
HJÁLMAR
Í MIKLU ÚRVALI
Skoðaðu úrvalið á orninn.is
ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA
SolsticeMIPS
TyroYouth (50-55 cm) Little DipperMIPS (46-50 cm)
8.990 kr.
11.990 kr.
8.990 kr.
Sveitabúðinni Sóley, sem Sóley
Andrésdóttir opnaði árið 2004 í
Tungum í Flóahreppi, hefur nú verið
lokað
„Það er voða skrýtið að vera að
loka eftir allan þennan tíma, en nú er
ég frjáls og get farið hvert sem ég
vil, hvenær sem er,“ sagði Sóley við
Morgunblaðið.
Hún var áður einnig með búskap í
Tungum en hætti honum fyrir
nokkru síðan.
„Búðin og búskapurinn tengdust
rosalega mikið. Þá kom fólk í búðina
með börnin sín og fór síðan í fjár-
húsin að kíkja á kálfana, kindurnar,
lömbin og hænurnar. Það er vegna
þessa sem verslunin hét Sveitabúð-
in.“
Saknar viðskiptavinanna
Þá segir Sóley að viðskiptavinir
hennar hafi komið alls staðar af á
landinu og segir marga hafa gert sér
sérstaka ferð á Suðurlandið til þess
að líta við. Hún segir samskipti við
viðskiptavini það sem hún muni
sakna mest við reksturinn. Það hafi
verið gaman að fá að fylgja þeim í
gegnum öll þessi ár.
„Svona er lífið, maður getur ekki
alltaf verið að gera það sama, það er
gaman að takast á við nýjar áskor-
anir.“
Sveitabúðin
Sóley hætt-
ir rekstri
- Mun sakna
viðskiptavinanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spennt Sóley segir það spennandi
að takast á við nýjar áskoranir.
Sauðamjólkurísinn, sem Ann-Marie
Schlutz býður upp á í nýopnuðum
matarvagni við Hengifoss í Fljóts-
dal, reyndist svo vinsæll að hún
þurfti fljótlega að loka vagninum
til að framleiða meira.
Ann-Marie, sem er þýsk að upp-
runa en hefur búið á Íslandi í
fimm ár, opnaði matarvagninn
Hengifoss Food Truck á fimmtu-
daginn. Þar selur hún matvörur
sem hún framleiðir sjálf.
Ásamt sauðamjólkurís býður
hún upp á sorbet-ís og hefðbund-
inn kúamjólkurís. Sauðamjólkurís-
inn seldist upp strax um helgina
og lítið var eftir af kúamjólkur- og
sorbet-ísnum. Neyddist Ann-Marie
því til að loka vagninum í gær til
þess að framleiða meira.
Krökkum líkaði ísinn
„Mér fannst mjög gaman að sjá
að krakkar voru líka mjög til í að
smakka sauðamjólkurís og fannst
hann mjög góður. Þau eru bestu
dómararnir,“ segir Ann-Marie.
Hún segist lengi hafa haft áhuga
á að nýta sauðamjólkina. Hún
leggur áherslu á ferskt staðbundið
hráefni. Hægt er að fá bláber og
rabarbara með ísnum beint úr
garðinum.
Í matarvagninum er einnig hægt
að fá vöfflur eftir uppskrift ömmu
Ann-Marie, kjötsúpu, grænmetis-
súpu og drykki. Ann-Marie segir
að hún sé rétt að byrja í matseld-
inni og hafi ýmsar hugmyndir um
vöruþróun. Til dæmis sé hún að
gera tilraunir með gæsaegg.
esther@mbl.is
Sauðamjólkurísinn vinsæll
Morgunblaðið/Eggert
Sauðaís Ann-Marie Schlutz í nýja matarvagninum við Hengifoss í Fljótsdal.
- Þurfti að loka matarvagninum til að framleiða meira
Eitt kórónuveirusmit greindist á
föstudaginn og fjögur á laugardag
samkvæmt upplýsingum á vef Al-
mannavarna, covid.is, sem birtist í
gær. Voru öll smitin hjá ferða-
mönnum utan sóttkvíar, sem fram-
vísuðu vottorði um bólusetningu
gegn Covid-19 eða fyrri sýkingu,
við komuna til landsins. Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir sagði í
samtali við mbl.is í gær að sumir
ferðamannanna hefðu farið nokkuð
víða um land, og þyrfti því einhver
fjöldi að fara í sóttkví vegna smit-
anna.
Smitrakningu lauk í gær og sagði
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi Almannavarna, í gær-
kvöldi að rúmlega 20 manns hefðu
þurft að fara í sóttkví vegna þessa.
Fimm smit greind-
ust um helgina