Morgunblaðið - 29.06.2021, Page 10

Morgunblaðið - 29.06.2021, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021 LKINUGEFÐU DAGAMUN Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Stór þriggja brauta flugvöllur, fjöldi kafbátaleitarflugvéla, 1.500 manna herlið, 500 braggar, stórt sjúkrahús og ótalmargt fleira. Sá var veruleikinn fyrir um 80 árum í Kaldaðarnesi í Flóa, skammt frá Selfossi, þar sem Bretar útbjuggu víghreiður í síðari heimsstyrjöld. Herstöðvar þess- arar naut aðeins við í örfá ár og flest sem minnir á stríðsrekstur á þessum slóðum hefur verið fjarlægt. En sagan lifir á þessum slóðum sem félagar í Churchill- klúbbnum heimsóttu sl. laugardag. Kaldaðarnes er týndur kafli Fyrirlestrar og fræðsluferðir hafa verið á dagskrá Churchill-klúbbsins mörg undanfarin ár. Meðal annars hefur verið farið til Bretlands og heim- sótti staðir sem tengjast Winston Churchill (1874-1965) sem var for- sætisráðherra Breta og forystumaður á stríðsárunum. Af nægu er að taka, því Churchill er stór í sögunni. Sitthvað var svo að sjá í Kaldaðar- nesi en einnig í flug- og stríðsminja- safni á Selfossflugvelli, sem Einar Elí- asson hefur komið þar upp. „Kaldaðarnes er um margt týndur kafli í sögu síðari heimsstyrjald- arinnar á Íslandi,“ segir Bergsteinn Einarsson, framkvæmdastjóri Sets hf. á Selfossi. Bergsteinn er sonur áður- nefnds Einars Elíassonar, og tók hann á móti Churchill-félögum í safni föður síns. Bretar gripu í tómt „Ég hef grúskað mikið í sögu stríðs- áranna á Suðurlandi; svæði þar sem gerðist sitthvað er hafði afgerandi áhrif á framvindu atburða þegar heim- urinn fór í stríð. Hingað í safnið hafa síðan borist ýmsir merkir munir sem þessu tengjast, einnig myndir og ann- ar fróðleikur. Þessu er gaman að segja frá, ekki síst fólki sem hefur sett sig inn í þessa sögu,“ segir Bergsteinn. Bretar hernámu Ísland þann 10. maí 1940 og var þar 800 manna flokk- ur úr Konunglega breska landgöngu- liðinu, 2nd Royal Marine Battalion. Hermennirnir náðu þá strax yfirráð- um í Reykjavík og mikilvægum stofn- unum þar. Strax á fyrsta degi hélt svo 40 manna deild austur fyrir fjall, að Selfossi og áfram að Kaldaðarnesi til að ná flugvellinum þar. Þar gripu Bretar hins vegar í tómt, flugvélar höfðu vissulega lent nokkrum sinnum þarna á sléttum bökkum Ölfusár, en tæpast var hægt að nota orðið flug- völlur um þá aðstöðu. Bretarnir létu þetta þó ekki slá sig út af laginu, heldur unnu áfram eftir áætlunum sem gerðar höfðu verið. Þegar leið á sumarið og haustið 1940 var fjöldi Íslendinga kominn í vinnu við byggingu flugvallarins og í nóv- ember voru 300 verkamenn og vöru- bílstjórar komnir í vinnu. Reistar voru byggingar og brautir steyptar og vor- ið 1941 komu fyrstu flugvélarnar á staðinn. Virkisborgin yfirgefin Í Kaldaðarnesi voru vélar af gerð- unum Ferry Battle og Hudson sem notaðar voru til eftirlits með suður- ströndinni og við kafbátaleit úti á Atl- antshafi. Þessu sinntu Bretar, en síðla árs 1941 komu fyrstu bandarísku her- mennirnir í Kaldaðarnes, Kaldy eins og dátarnir kölluðu staðinn gjarnan. Þar voru veruleg umsvif á vegum hersins fram í marsmánuð 1943, þegar gerði flóð í Ölfusá svo flæddi yfir her- stöðvarsvæðið sem þá var yfirgefið í skyndingu. Á annað þúsund hermenn voru þá á svæðinu – þangað sem ekki var snúið aftur. Virkisborgin stóð auð. Eftir þetta var kraftur settur í gerð flugvalla í Reykjavík og á Miðnesheiði, sem enn standa. Eigi að síður hefur jafnan verið litið svo á að Kaldaðar- nesflugvöllur hafi verið afar þýðingar- mikill; svo góður var árangurinn af víðtæku kafbátaleitar- og eftirlitsflugi þaðan. Heimsóttu herstöðina - Churchill-fólk á Suðurlandi - Fróð- leg ferð - Komu við í Kaldaðarnesi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kaldaðarnes Í gamla kirkjugarðinum en þar og víðar á staðnum er margvíslegar sögur og minjar að finna. Kaldaðarnes Selfoss Ölfusá Ingólfsfjall F L Ó I Churchill á Suðurlandi Stóra-Sandvík Ö L F U S 1 1 Bergsteinn Einarsson Flugsýn Úr lofti sjást brautir Kaldaðarnesflugvallar enn, en allar byggingar og mannvirki sem tengjast veru stríðsins þar hafa verið fjarlægð. Heimsókn Fólk í Curchill-ferðinni, hér í flug- og stríðsminjasafni sem Einar Elíasson athafnamaður hefur komið upp í gömlu skýli á Selfossflugvelli. „Ferðin austur fyrir fjall var fróðleg og fjölsótt,“ segir Árni Sigurðsson, formaður Churchill-klúbbsins. „Ég hafði aðeins heyrt óljóst um Kald- aðarnesflugvöll og aldrei komið í stríðssafnið á Selfossflugvelli. Þetta var eins og að ganga inn í liðinn tíma. Fólk var afar ánægt með daginn.“ Hugmyndin að heimsókn Churchill-klúbbsins á Selfoss kom frá Berg- steini Einarssyni í Seti, sem í húsakynnum fyrirtækis síns hélt fyrirlestur um starfsemina í Kaldaðarnesi. Góður rómur var gerður að erindi hans og einnig fannst fólki gaman að koma á staðinn þar sem herstöðin var forð- um, þótt ummerkin séu orðin fá. „Áhugi á Winston Churchill er alltaf að aukast. Þar kemur til að á síð- ustu árum hafa verið sýndir í sjónvarpi ýmsir þættir og kvikmyndir um ævi Churchills og gildi hans sem voru hugrekki, staðfesta, stórlyndi, vel- vilji og virðing fyrir frelsi einstaklingsins,“ segir Árni Sigurðsson. Næst á dagskrá í starfi klúbbsins er samkoma sem fyrirhuguð er í Reykjavík í ágúst nk. þegar 80 ár verða liðin frá komu forsætisráð- herrans breska til Íslands. Það var í kjölfar fundar Churchills með Roose- velt Bandaríkjaforseta á herskipum úti á Atlantshafi. Afrakstur þess fundar var Atlantshafssáttmálinn og að Bandaríkjamenn tækju við vörn- um Íslands af Bretum, eins og gekk eftir fáum mánuðum síðar. Gengið var inn í liðinn tíma ÁHUGI Á WINSTON CHURCHILL FER VAXANDI Morgunblaðið/Sigurður Bogi Stríðssagan Fólk var afar ánægt með daginn, segir Árni um kynnisförina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.