Morgunblaðið - 29.06.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 29.06.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021 Hægri og vinstri flokkar héldu meira og minna héruðum sínum og sýslum í kosningum í Frakklandi á sunnudag. Slógu gömlu flokkarnir á allar vonir Þjóðfylkingar Marine Le Pen og flokks Emmanuels Macrons forseta um stöku sigur. Þeirra verður getið í sögunni fyrst og fremst fyrir metþátttökuleysi en kjörsókn var innan við 35% sem er met í frönskum kosningum. Forseta- kosningar fara fram í Frakklandi í apríl á næsta ári, 2022. Aðeins um 10% kjósenda 24 ára og yngri mættu á kjörstað. „Það er einn sigurvegari, þátt- tökuleysið. Tveir taparar, stjórn- armeirihluti forsetans (LREM) og Þjóðfylkingin (RN), tveir sýndu and- spyrnu, Lýðveldisflokkurinn og sósíalistar, og einn sem ekki var hægt að sneiða hjá, umhverfis- sinnar,“ sagði AFP-fréttastofan. Þetta voru fyrstu kosningar sem flokkur Macrons teflir fram í en hann var ekki til þegar síðast var kosið til héraðsstjórna, árið 2014. Bauð hann fram í þeim eingöngu nú, ekki í sýslustjórnarkosningunum. Flokkur Marine Le Pen hafði von- ast eftir sigri í héraðinu Provence- Alpes-Côte d’Azur í suðurhluta landsins eins og kannanir bentu til. Bætti flokkurinn hvorki við sig hér- aði né sýslu í kosningunum og þykir útkoma hans slök. Hið sama var að segja um árangur flokks Macrons sem galt víða afhroð og komst ekki til valda í neinu héraði. Le Pen gerði sér einnig vonir um strandhögg norður í Hauts-de- France-héraðinu við Calais og ná- grenni. Sigurvegari varð náinn sam- verkamaður Niocolas Sarkozys, Xavier Bertrand. „Hægri öfgamenn hafa verið stöðvaðir og við ýttum þeim harka- lega til baka,“ sagði Bertrand sem boðað hefur framboð í forsetakosn- ingunum í apríl nk. Hann þykir hafa styrkt stöðu sína í þeim efnum, en hann hlaut betri útkomu en nokkur annar héraðsstjóri, vann með 52,9% atkvæða. agas@mbl.is Gömlu flokkarnir héldu velli - Bertrand styrkti stöðu sína sem forsetaefni AFP Hittust Leiðir Emmanuels Macrons forseta og Xaviers Bertrands héraðs- stjóra lágu saman í gær er forsetinn heimsótti héraðið Hauts-de-France. Þrúgandi og hættulegur sumarhiti geisar nú í strandhéruðum Norð- vestur-Bandaríkjanna og Kanada af völdum kyrrstæðrar hitabungu. Mældist hiti hærri en nokkru sinni fyrr í Lytton í Bresku- Kólumbíu í Kanada, eða 46,6°C. Féll þar með 84 ára gamalt hitamet. Yfirvöld hvöttu fólk til að halda sig innandyra vegna hitans. Margir sóttu í ár og vötn til að kæla sig og létu klettadýfingamenn í Clackamas-ánni í High Rocks Park í Oregonríki sér vel líka svo sem sjá má af myndinni. NORÐUR-AMERÍKA Þrúgandi hitabunga AFP Margir sóttu í ár og vötn til að kæla sig. Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Stefan Löfven sagði af sér sem for- sætisráðherra Svíþjóðar á blaða- mannafundi í Stokkhólmi í gær- morgun. Þingið hafði lýst vantrausti á hann viku fyrr og rann frestur Löf- vens til þess að ákveða hvort hann boðaði til kosninga eða segði af sér út í gær. „Þetta er erfiðasta pólitíska ákvörðunin sem ég hef tekið,“ sagði Löfven á blaðamannafundinum. Löven er fyrsti sænski stjórnar- leiðtoginn sem samþykkt er van- traust á en áður höfðu verið gerðar til þess 11 árangurslausar tilraunir. Framhaldið er í höndum þingforset- ans, Andreas Norléns, að ræða við leiðtoga þingflokkanna um útnefn- ingu nýs forsætisráðherra. Það gæti orðið tímafrekt ferli þar sem Norlén þarf að ræða við formenn allra flokka á sænska þinginu áður en hann leggur til nýjan forsætisráð- herra. Þá tillögu þurfa 175 þingmenn að styðja. Takist það ekki mun þurfa að boða til kosninga að nýju. Ulf Kristersson, leiðtogi miðju- flokksins Moderata samlingspartiet, hefur verið nefndur sem líklegasti arftaki Löfvens. Löfven hefur staðið af sér hnignun jafnaðarstefnunnar í Evrópu, upp- gang hægri öfgamanna og heimsfar- aldurinn áður en hann neyddist til að segja af sér. Kubbslegi málmsuðu- meistarinn með boxaranefið stýrði sænsku vinstriflokkunum aftur að stjórnvelinum árið 2014. Fjórum ár- um seinna, 2018, hélt hann velli með því að færa sig upp að mið-hægri- flokkunum. AFP-fréttastofan segir að allt of snemmt geti verið að dæma Löfven úr leik; manninn sem kom út sem sigurvegari úr kosningunum 2018 sem taldar höfðu verið honum tap- aðar. Þar naut færni hans til að ná samstöðu um mál sín vel, því hann náði að mynda nýjan meirihluta. Löfven er fæddur í Stokkhólmi 1957 og neyddist bláfátæk móðir hans til að gefa hann, þá 10 mánaða, frá sér til fósturfjölskyldu í Sollefteå 500 km norður af Stokkhólmi þar sem fósturfaðir hans starfaði í verk- smiðju. Sleginn í gólfið en órotaður - Of snemmt að dæma Löfven úr leik á þessu stigi, að mati stjórnmálaskýrenda AFP Afsögn Stefan Löfven tilkynnir um afsögn sína í Stokkhólmi í gær. Gífurlegt bál varð í byggingu við Elephant og Castle-lestarstöðina í London í gær. Reykjar- mökkur steig til himins og sprengingar kváðu við. Kviknaði í nokkrum verslunum. Síðdegis sagði Sadiq Khan, borgarstjóri Lundúna, að slökkviliði hefði tekist að ná valdi á eldinum. Alls tóku 100 slökkviliðsmenn þátt í slökkvistarfinu. Eldsupptök voru ekki ljós en talið var að rekja mætti þau til bílavarahlutaverslunar. Gífurlegt bál í London AFP Singapúr er í hópi landa sem náð hafa hvað bestum árangri í barátt- unni við veirufaraldurinn og nú ætlar landið inn á nýjar og gjör- ólíkar brautir í þeim efnum. Kjarni nýju stefnunnar er að eng- ir verði settir í sóttkví, engir skim- aðir og engar daglegar upplýsingar um árangurinn. Yfirvöld segja að héðan í frá verði farið með kórónusmit eins og hverja aðra umgangspest, eins og flensu. Engin krafa um smitleysi verður sett og ferðamenn verða ekki lengur að sæta sóttkví. „Hið nýja „normal“ verður að lifa með covid,“ sögðu yfirvöld. SINGAPÚR Lifa með Covid-19 Norðurkóreska ríkissjónvarpið birti í gær mynd- skeið sem á sér ekki hliðstæðu þar sem óbreytt- ur borgari lýsir áhyggjum af- skyndilegu þyngdartapi leið- togans, Kims Jong-un. Bannhelgi hefur ríkt á umfjöllun um heilsufar norðurkóreskra leið- toga og vandlega passað upp á ímynd Kims. Helsta sjónvarpsstöð Norður- Kóreu hefur einnig sýnt myndskeið sem sýnir leiðtogann öllu grennri en undanfarin ár. NORÐUR-KÓREA Áhyggjur af þyngdartapi Kims Kim Jong-un

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.