Morgunblaðið - 29.06.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 29.06.2021, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021 ✝ Sigrún Al- bertsdóttir fæddist í Keflavík 27. ágúst 1943. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja þann 16. júní 2021. Hún var dóttir Alberts Bjarnasonar útgerðarmanns í Keflavík, f. 27.11. 1897, d. 20.7. 1967, og Lísbet Gestsdóttur hús- móður, f. 3.7. 1900, d. 12.2. 1994. Systkini hennar voru Bjarni Vilberg, f. 28.3. 1922, d. 21.12. 1981, Hin- rik, f. 2.7. 1925, d. 25.11. 2004, og Helga Erla, f. 19.4. 1934, d. 25.10. 2014. Þann 27.4. 1963 giftist hún eftirlif- andi eiginmanni sínum Eðvald Bóassyni, f. 27.7. 1943, og hófu þau búskap í Njarðvík. Börnin þeirra eru Margrét, f. 13.10. 1962, gift Ingólfi Ingi- bergssyni, börn Eðvald, Elín Guðrún og Bóas. Albert, f. 26.5. 1964, kvæntur Ingu Mar- gréti Teitsdóttur og börn þeirra Teitur Ólafur, Sigrún og Elsa. Sigrún lætur eftir sig fjögur ástkær langömmubörn. Sigrún ólst upp í vesturbæ Keflavíkur að Túngötu 21 og hún gekk í Barnaskóla Kefla- víkur og síðan í Gagnfræða- skólann. Á unglingsárum sínum fór hún ásamt nokkrum vin- konum til Danmerkur í hús- stjórnarskóla Restrup og nam þar eldamennsku, hannyrðir og fleira. Hún vann hin ýmsu störf á sinni ævi, svo sem fisk- vinnslu, afgreiðslustörf í versl- un og lauk sínum starfsferli í Njarðvíkurskóla. Hún tók þátt í starfi Systrafélags Njarðvík- urkirkju til margra ára. Útför Sigrúnar fer fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 29. júní 2021, kl. 13. Elsku yndislega, kærleiks- ríka mamma mín, það er komið að kveðjustund allt of snemma, ég var ekki alveg tilbúin fyrir þennan dag - að hún væri ekki lengur hér. Hún var ekki bara mamma mín hún var líka mín besta vinkona og ég á eftir að sakna hennar mjög því við vor- um einstaklega nánar og gott að eiga hana að. Ef eitthvað stóð til hjá okkur systkinum, ferming, afmæli eða bara hvað sem var, þá kom hún alltaf til aðstoðar og með stafla af góðgæti. Hún var alltaf svo kát og já- kvæð og dillandi hláturinn var mjög smitandi. Mamma átti marga góða vini og átti auðvelt með að umgangast fólk og sýndi öllum áhuga. Faðmlögin voru best frá henni og þar var maður umvafinn hlýju og öryggi. Ég er þakklát fyrir að hún var mamma mín og allt sem hún kenndi mér, þá sérstaklega að vera góð manneskja. Sumarbústaðurinn, sælureit- urinn Stuðlakot, var staður fjöl- skyldunnar og barnabörnin elskuðu að vera með ömmu og afa þar og í seinni tíð bættust langömmu- og langafabörnin við og nutu sín vel. Þar var allt- af gleði og fjör, henni fannst ekkert skemmtilegra en að fara í sund með alla og eftir það voru bakaðar pönnukökur eða hjóna- bandssæla að hætti mömmu og ekki má gleyma spila- stundunum. Við mæðgur áttum margar notalegar stundir þar á björtum sumardögum, að dunda við blóm og annan gróð- ur og ekkert betra en heima- ræktað grænmeti. Horfa á kvöldsólina á pallinum og eiga gott spjall. Hún elskaði að hafa fjölskyld- una í kringum sig og hafa gaman, jólaboðið á annan í jólum var hennar, þar naut hún sín best við að gefa fólkinu sínu góðan mat og eiga skemmtilega samveru. Mamma var afar stolt og hreykin af fólkinu sínu og var mikil amma með sitt stóra hjarta, enda sóttust barnabörnin og litlu lang- ömmukrílin í að vera hjá henni oft og mikið. Mamma var dugleg og ósér- hlífin vann hin ýmsu störf og ég man þegar hún vann í fiski við Bakkastíg í Njarðvík, þá skaust hún heim í hádegishléinu og hugsaði um okkur heima og dreif sig svo aftur í vinnuna. Hún vann líka við afgreiðslustörf í þónokkur ár, ég man sérstaklega eftir Fía- búð í Njarðvík og Skóbúðinni í Keflavík, og henni fannst alltaf gaman í vinnunni. Síðasti vinnu- staðurinn hennar var í Njarðvík- urskóla og þar naut hún sín best innan um börn og unglinga. Eftir að hún hætti að vinna þá voru gamlir nemendur duglegir að heilsa upp á hana og knúsa. Mamma og pabbi bjuggu alla tíð í Njarðvík og undu hag sínum vel. Hún lést þann 16. júní sl. á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í faðmi fjölskyldunnar, var búin að berjast við krabbamein síðan 2018, hún var alveg ótrúlega dug- leg og sterk allan tímann. Alltaf hafði hún brosið og húmorinn með í för. Það er komið stórt skarð í fjöl- skylduna sem verður erfitt að fylla og mun ég minnast þín, elsku mamma, og taka þig til fyr- irmyndar. Takk fyrir allt elsku mamma. Himneskt er að vera með vorið vistað í sálinni, sólina og eilíft sumar í hjarta. Því hamingjan felst í því að vera með himininn í hjartanu. Lifi lífið! (Sigurbjörn Þorkelsson) Margrét Eðvaldsdóttir. Elsku vinkona, ég sendi þér smá kveðju með í sumarlandið. Ég veit ekki hvort þú hefur huga þinn við það fest að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson) Þakka þér fyrir vináttuna, góðvildina, hlýjuna og lífsgleð- ina. Sigríður Karólína Ólafsdóttir (Sigga K). Sigrún Albertsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma. Orð fá ekki lýst hvað ég sakna þín mikið. Þú kenndir mér svo margt um ástina og lífið. Þú sýndir að með kærleika sigr- arðu heiminn, með brosi þínu og hlýju þú lýstir upp geiminn. Ég er svo þakklát fyrir fjölskyld- una sem þú gafst mér, þakklát fyrir mömmu, sem er svo ótrúlega lík þér. Afi þú ert hetja og styrkur þinn er hvatning, fólkið ykkar er með þér til að veita þér stuðning. Nú er komið að því að kveðja þig amma, hvíldu í friði, ég elska þig alltaf. Þín ömmustelpa, Elín Guðrún. ✝ Kristín Þór- jónsdóttir fæddist í Ólafsvík 17. júní 1930. Hún andaðist á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð 14. júní 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Lovísa Magnús- dóttir, f. 22.11. 1907, d. 30.9. 1988, og Þórjón Jónasson, f. 11.5. 1908, d. 17.4. 1979. Systkini hennar eru Ágústa, f. 20.2. 1932, Sigríð- ur, f. 2.11. 1933, d. 17.2. 1958, Bergþór, f. 24.12. 1934, d. 29.3. 1935, Anton Elvar, f. 29.6. 1937, Sævar, f. 27.4. 1940, Ingibjartur Guðjón, f. 5.6. 1942, Steinunn, f. 28.7 Irina Gousseva, f. 16.1. 1974, þeirra dætur eru a) Daría Lind Einarsdóttir b) Katrín Sól Einarsdóttir. 3. Guðni Ein- arsson, f. 28.3. 1968, ókvænt- ur og barnlaus. Kristín ólst upp í Ólafsvík til 14 ára aldurs, þaðan flutti hún til Reykjavíkur til Elínar föðursystur sinnar og hóf störf á saumastofu. Vann hún við saumaskap þar til hún eignaðist sitt fyrsta barn og við tóku þá húsmóðurstörfin ásamt öðrum aukastörfum sem hún sinnti með mynd- arbrag þar til börnin uxu úr grasi. Síðustu starfsárin sín vann hún á deild Landspít- alans í Hátúni 10. Meginpart hjúskaparára sinna bjuggu Kristín og Einar í Hátúni 45 í Reykjavík en þaðan fluttu þau í þjónustuíbúð á Brúnavegi 9 og síðan á hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju í dag, þriðju- daginn 29. júní 2021, klukkan 15. 1943, Þórjón, f. 5.12. 1944, d. 1.2. 1945, og Elín, f. 17.7. 1946. Hinn 25.4. 1957 giftist Kristín Einari H. Ein- arssyni, f. 22.4. 1928. Foreldrar hans voru hjónin Guðbjörg Ein- arsdóttir, f. 7.8. 1896, d. 24.2. 1980, og Einar Einarsson, f. 16.5. 1894, d. 4.7. 1980. Börn þeirra eru: 1. Sigríður Einarsdóttir, f. 9.11. 1958, maki Ólafur Ægisson, f. 22.12. 1950, þeirra dætur eru a) Íris Ósk Ólafsdóttir b) Kristín Erla Ólafsdóttir c) Birna Dís Ólafsdóttir. 2. Einar Þór Ein- arsson, f. 30.7. 1963, maki Elsku amma, orð geta ekki lýst því hversu sárt við söknum þín. Þú ert kannski ekki lengur okkur við hlið, en þú ert alltaf hér í hjarta okkar. Við ólumst upp við að hafa þig alltaf nálægt okkur. Þá var alltaf hægt að koma til þín eftir skóla og fá eitthvað gott í kroppinn og spila ólsen ólsen. Takk fyrir að gefa okkur endalaust af góðum minn- ingum og að passa upp á okkur. Takk fyrir alla samveruna, elsku amma. Hvíl í friði. Við höfði lútum í sorg og harmi og hrygg við strjúkum burt tárin af hvarmi. Nú stórt er skarð í líf okkar sorfið því fegursta blómið er frá okkur horfið. Með ástúð og kærleik þú allt að þér vafðir og ætíð tíma fyrir okkur þú hafðir þótt móðuna miklu þú farin sért yfir þá alltaf í huga okkar myndin þín lifir. Við kveðjum þig, amma, með söknuð í hjarta, en minning um faðmlag og brosið þitt bjarta. Allar liðnar stundir um þig okkur dreymi og algóður Guð á himnum þig geymi. (Sigfríður Sigurjónsdóttir) Daría Lind Einarsdóttir og Katrín Sól Einarsdóttir. Elsku amma okkar, mikið er erfitt að hugsa til þess að við fáum ekki að sjá þig aftur. Þú varst besta amma í heimi, svo hlý og góð og vildir allt fyrir okkur gera. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur og börnin okkar. Það var alltaf gaman að koma í heim- sókn til þín og afa í Hátúnið og eigum við góðar minningar það- an. Öll jólin sem haldin voru þar, ófáar stundir sem við spiluðum saman, svo fengum við svo oft að gista hjá ykkur og það sem þú gast stjanað við okkur. Alltaf vor- um við velkomnar á heimilið þitt og afa þar sem okkur leið alltaf svo vel. Þú passaðir alltaf að eiga eitthvað gott fyrir okkur að borða og gerðir besta grjóna- graut í heimi. Þegar við bjuggum í Hlíðarbyggð passaðir þú okkur oft og vorum við systur svo ánægðar með það, því þú hugs- aðir svo vel um okkur. Tókst á móti okkur eftir skóla, varst allt- af með heitan mat fyrir okkur og passaðir að heimilið væri alltaf hreint. Einnig eigum við góðar minningar frá Flórída, þar sem við vorum svo heppnar að þú og afi komuð með okkur í nokkur skipti þangað. Það sem við systur erum lán- samar að hafa átt þig sem ömmu, þú kenndir okkur svo mikið, varst alltaf svo stolt af okkur og stóðst alltaf með okkur, alveg sama hvað. Að lokum látum við fylgja bæn sem við fórum alltaf saman með fyrir svefninn: Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Hvíl í friði elsku amma, minn- ingin um þig mun lifa í hjörtum okkar. Við elskum þig og söknum þín mikið. Íris Ósk, Kristín Erla og Birna Dís. Elsku langamma, við munum sakna þín óendalega mikið. Við eigum mikið af skemmtilegum og góðum minningum eins og það að þú bauðst okkur alltaf kokteilá- vexti í dós og ís þegar við komum í heimsókn ásamt fleira góðgæti. Þú spilaðir líka alltaf við okkur og kenndir okkur ný spil sem þér þótti mjög gaman. Þú varst einn- ig svo góð að prjóna fyrir okkur ullarsokka sem komu sér mjög vel. Við hlökkuðum alltaf til að gista hjá þér og afa og skemmt- um við okkur alltaf þegar við vor- um hjá ykkur í dekri. Þú varst alltaf svo stolt af okkur og fylgd- ist svo vel með bæði hvernig okk- ur gekk í skólanum og einnig áhugamálum okkar. Þú varst alltaf svo fín og sæt og það var alltaf allt tandurhreint heima hjá þér og afa en leyfðir þú okkur samt alltaf að drasla út og það angraði þig ekkert. Við elskum þig svo mikið amma Stína og erum svo þakklát fyrir þig og allt sem þú hefur gert fyrir okkur. Sara Mist, Daníel Breki og Brynja Dís. Alltaf þegar komið var til Stínu systur tók hún brosandi á móti manni og hlýjan streymdi frá henni. Elskulega og yndislega systir mín Kristín Þórjónsdóttir hefur nú kvatt þennan heim. Æskuárin eru fegursti og eft- irminnilegasti tími mannsævinn- ar hjá þeim sem notið hafa þeirr- ar gæfu að alast upp við eðlilegar aðstæður og komist til manns án mikilla áfalla. Æska og ævi Stínu er efni í heila bók eins og hún komst að orði í eitt af mörgum skiptum er við rifjuðum upp gamla daga. Það voru bæði sárar og fagrar minn- ingar er þar var rætt um. Því á þeim árum var lífsbaráttan hörð og miskunnarlaus. Sjúkdómar og ýmis óáran hrjáði fólk og Stína fékk sinn skerf af því. Það hlýtur líka að hafa verið erfitt og reynt á að vera elst í stórum systkina- hópi og ekki síst er heilsuleysi sótti fjölskylduna heim. Já, lífs- baráttan var ólík á þessum árum miðað við það sem nú er, en Stína var stoð og stytta foreldra okkar þegar fjölskyldan fór sístækk- andi. Ég var það ungur er Stína fór að heiman mjög ung til að sjá sér farborða að ég man ekki eftir henni heima á Ennisbrautinni nema kannski í eitt eða tvö skipti um jólin. Stína bjó í Hátúni 45 og þar var athvarf okkar fjölskyldu er við þurftum að sækja höfuðborg- ina. Stína var á tímabili má segja eins og móðir mín, því allt það nám er ég þurfti að sækja til Reykjavíkur, þá dvaldi ég hjá Stínu systur og kann ég þeim Einari manni hennar miklar þakkir og það er þeim að þakka að ég er þó það sem ég er í dag. Ég verð þeim ævinlega þakklát- ur fyrir þá velvild og hlýju er þau sýndu mér er ég dvaldi hjá þeim. Ég á ekki nema góðar og ljúfar minningar úr Hátúninu og sakna þess tíma. Einar Hörður Einarsson lifir nú konu sína, er hugur minn hjá þeim mæta manni og bið guð að styrkja hann og styðja á þessum erfiða tíma. Allt á sér upphaf og allt á sér endi og sagt er að það fenni í sporin. Það mun aldrei snjóa það mikið að minningin um systur mína hverfi, því hennar ljúfa minning mun aldrei hverfa úr huga mér. Þannig er að sólin hnígur en rís svo upp að morgni dags og fyllir sálir sæluvímu en kveður svo að kveldi dags. Nú sefur sálin sæl og sólin okkur sýnir í faðmi guðs hún hvílir þar loga ljósin skær. Hvíl í friði elsku systir. Samúðarkveðja til fjölskyldu. Ingibjartur Guðjón Þórjónsson. Kristín Þórjónsdóttir ✝ Örn Friðriksson fæddist í Reykjavík 24. júlí 1938. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 21. júní 2021. Foreldrar hans voru Friðrik Guð- mundsson, f. 6.8. 1903, d. 1.10. 1993, og Elín Eggerts- dóttir, f. 3.10. 1905, d. 13.7. 1975. Systkini hans voru Guðmundur Viðar, f. 6.1. 1942, d. 18.6. 1959, og Svanhildur Björg, f. 30.1. 1946, d. 2.4. 1984. Örn kvænt- ist Unni M. Guðmundsdóttur, f. 26.12. 1932, þann 12.2. 1966. Börn Arnar og Unnar eru: 1) Þórunn, f. 11.8. 1966, maki hennar er Helgi Gíslason, þeirra börn eru Hugrún og Hrafnhildur. 2) Elín, f. 3.11. 1967, dóttir hennar er Unnur Hrefna. 3) Friðrik, f. 12.9. 1969, maki hans er Sólveig Lilja Sigurðardóttir, börn þeirra eru Þorsteinn Örn, Árni Stefán, Unnar Marinó og Stefanía Lilja. 4) Guðrún, f. 24.9. 1971, maki hennar er Jay Har- vard, börn þeirra eru Benjamín Þór og Magnús Elías. Örn ólst upp í Reykjavík. Hann stundaði gagnfræða- nám við Héraðs- skólann á Núpi og útskrifaðist frá Sam- vinnuskólanum á Bifröst 1960. Örn starfaði við innleiðingu og rekstur tölvukerfa hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga, Varn- arliðinu og ÍSAL, en þar starfaði hann lengst í tölvudeild. Örn var mikill áhugamaður um forritun og var sjálfmenntaður á því sviði, auk þess lá áhugi hans í ljósmyndun og steinasöfnun og tók hann þátt í ýmsu félagsstarfi því tengdu. Útför Arnar fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 29. júní 2021, klukkan 15. Það er með þakklæti í hjarta sem ég minnist tengdaföður míns, Arnar Friðrikssonar. Kynni okkar hófust fyrir tæplega 30 árum þegar ég kom í fyrsta skipti með Þórunni í heimsókn á Löngubrekku 19. Örn tók mér vel frá fyrstu stundu en það tók mig tíma að kynnast hon- um. Hann var ekki maður margra orða og ræddi ekki tilfinningar sín- ar. Elsku sína og vináttu sýndi hann hins vegar gjarnan með ör- læti og hjálpsemi. Hann var alltaf til staðar og bauð fram aðstoð sína. Ég minnist ekki að hann hafi neitað nokkurri bón af minni hálfu og hann vildi allt gera fyrir dætur mín- ar sem voru fyrstu barnabörnin hans. Lífsreynsla Arnar hefur áreiðanlega átt sinn þátt í hvernig hann mótaðist sem persóna. Bróðir hans lést í slysi fyrir tvítugt og systir hans veiktist ung og var rúm- liggjandi í áratugi. Um þennan harm ræddi hann aldrei svo ég vissi. Örn hélt hins vegar mikið upp á fjölskylduna, undirbjó góðar veislur þegar allir gátu hist og var duglegur að heimsækja börnin sín norður í land og vestur í Ameríku. Örn hafði fjölmörg áhugamál. Tölvur, steinasöfnun, brids, ljós- myndun og tónlist áttu hug hans. Við deildum áhuga á ferðum um landið og hann spurði mig ávallt um þau fjöll sem ég gekk á. Áhugi á knattspyrnu sameinaði okkur hvað mest og stundum gafst tími til að horfa saman á leik í sjónvarpinu. Þá gaukaði hann gjarnan að mér glasi af góðu wiskýi eða einhverju álíka. Örn hafði líka mjög gaman af því að stússa í eldhúsinu. Oft feng- um við Þórunn og dætur okkar að njóta þess þegar hann bar fram nýja rétti sem hann hafði varið deg- inum í að undirbúa. Ég kveð góðan mann með sökn- uði og þakklæti fyrir vináttu, hlýju, traust og örlæti. Guð blessi minn- ingu hans. Helgi Gíslason. Örn Friðriksson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.