Morgunblaðið - 29.06.2021, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 29.06.2021, Qupperneq 19
✝ Ólöf Gyða Sig- ríður Bjarna- dóttir, alltaf köll- uð Gyða, fæddist í Hafnarfirði þann 29. mars 1960. Hún lést á heimili sínu í Gautaborg í Svíþjóð þann 3. júní 2021. Foreldrar henn- ar voru Bjarni Guðmundur Guð- jónsson, f. 10.10. 1932, d. 13.8. 2014, og Ásthildur Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 1.3. 1934, d. 17.11. 2006. Bróðir Gyðu er 3. Jóhanna Elísa Skúladótt- ir, f. 5.5. 1995, maki hennar er Davíð Þór Viðarsson, f. 27.11. 1993. Gyða ólst upp í Reykjavík. Hún stundaði nám við Kvennaskólann og lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1980. Síðar lauk hún prófi í læknisfræði frá Háskóla Íslands. Þá lá leiðin til Svíþjóðar þar sem hún sér- hæfði sig í augnlækningum. Gyða og fjölskylda bjuggu í Svíþjóð 1989 - 1994 en flutt- ust svo til Íslands. Á Íslandi starfaði hún sem augnlæknir, lengst af á augnlæknastofunni í Mjódd. Síðustu árin vann hún sem augnlæknir í Sví- þjóð. Útför Gyðu fer fram í Ás- kirkju í dag, 29. júní 2021, og hefst athöfnin klukkan 15. Guðmundur Þor- kell Bjarnason, f. 11.4. 1953. Gyða giftist Skúla Þór Ingimundarsyni 16.7. 1988, þau skildu árið 2008. Börn þeirra eru: 1. Ingi Bjarni Skúlason, f. 9.9. 1987. 2. Davíð Þór Skúlason, f. 26.5. 1990, maki hans er Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir, f. 24.9. Börn þeirra eru Embla Hjör- dís og Víkingur Brynjar. Fráfall móður okkar var ótíma- bært og kom okkur systkinunum í opna skjöldu. Það er sárt að hafa ekki getað kvatt elsku mömmu okkar. En við vitum að hún verður alltaf með okkur. Mamma stóð með okkur í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Henni þótti mikilvægt að við stæð- um okkur vel í skóla. Hún sótti marga tónleika Inga Bjarna og Jó- hönnu Elísu og hvatti þau áfram í tónlistinni. Hún aðstoðaði Davíð við flugnámið og kynnti sér flug- heiminn að einhverju leyti. Hún skemmti sér konunglega þegar Davíð bauð henni í flugferð. Mamma var ljóðræn og orti mörg ljóð. Ljóð hennar bera vott um trú, kærleik og erfiðleika. Eitt ljóðanna orti hún til barnabarns- ins, Emblu Hjördísar: Elsku Embla ömmu dís Englablómið Hjördís Geisla af gleði augun blíð Af guði sköpuð yndisfríð. Hún hafði skemmtilegan og smitandi hlátur. Það var líka skemmtilegt að stríða henni. Stundum sögðum við eitthvað sem kom henni í opna skjöldu og þá gátu viðbrögð hennar oft verið skemmtileg. Svo var henni tjáð að um grín væri að ræða, þá hristi hún hausinn ákaft og fór í hlátur- kast. Ég man eftir því þegar mamma gaf mér (Jóhönnu Elísu) prjónaða peysu í jólagjöf árið 2019. Áður en ég opnaði pakkann sagði hún: „Þetta á nú eftir að koma þér á óvart, Jóhanna mín“, eins og ég hefði enga hugmynd um hvað væri í pakkanum. En mamma var svo fyndin með svona og var greinilega ekki búin að átta sig á því að ég vissi nákvæmlega að það var hand- prjónuð peysa í pakkanum. Mán- uðina á undan hafði mamma nefni- lega spurt mig alls konar spurninga sem gáfu til kynna að hún væri að prjóna peysu á mig, eins og t.d. hver málin mín voru. Barnabörnin skipuðu stóran sess í hjarta mömmu. Þegar henni var sagt að hún væri að verða amma þá brast hún í grát, það voru gleðitár. Hún hlúði mikið að tengdadóttur sinni, Jóhönnu Sig- ríði, meðan á meðgöngu Emblu og Víkings stóð. Hún spurði stöðugt um líðan hennar og bauð fram að- stoð sína. Hún var yfir sig spennt þegar þau komu í heiminn, prjón- aði á þau, gaf þeim gjafir og pass- aði þau. Það var henni erfitt að vera úti í Svíþjóð, sérstaklega á tímum veirunnar. Margar myndir voru sendar og raðaði hún mynd- um af þeim á vegginn í svefnher- berginu sínu þannig að myndirnar mynduðu kross. Símtölin voru mörg og töluðu hún og Embla oft saman. Víkingur litli var ekki alveg kominn upp á lag með þetta en hann hlustaði. Barnabörnunum þótti sérstaklega skemmtilegt að fá ömmu sína í heimsókn á Horna- fjörð sumarið 2020. Mamma var mikið fyrir engla. Hún átti alls konar englastyttur og myndir, og alltaf bættust fleiri englar í safnið. Mamma var svo einstaklega góðhjörtuð og kær- leiksrík að segja mætti að hún hafi verið hálfgerður engill hér á jörðu. Nú er elsku mamma orðin alvöru verndarengill Guðs og hún vakir yfir okkur börnunum og barna- börnunum. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring, sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Hvíl í friði, elsku, hjartans mamma okkar. Þú verður alltaf ljós í lífi okkar og við munum varð- veita minningu þína um ókomna tíð. Ingi Bjarni Skúlason, Davíð Þór Skúlason og Jóhanna Elísa Skúladóttir. Mig langar að minnast tengda- móður minnar, hennar Gyðu. Ég kynntist Gyðu þegar ég var 19 ára og nýbyrjuð með syni hennar, hon- um Davíð Þór. Gyða var einstak- lega kærleiksrík manneskja, var umhugað um náungann og hún mátti ekkert aumt sjá. Hún lifði fyrir börnin sín og barnabörn og var alltaf tilbúin að leggja fram hjálparhönd og spurði strax hvað hún gæti gert til þess að hjálpa. Hún gerði bestu kartöflugratín sem ég hafði nokkurn tímann smakkað og rauðkálið hennar var víst ómissandi á hátíðum. Ég gleymi seint þegar Davíð vildi endilega fá heimagert jólarauðkál jólin 2015. Ég hafði aldrei gert rauðkál áður og fékk hann því Gyðu til að koma og gera rauðkálið með mér. En þarna var ég nýorðin ólétt af Emblu Hjördísi og með mikla morgunógleði og lyktin af rauðkálinu fór alveg með mig. Lyktin var föst heima hjá okkur í marga mánuði og það mátti ekki opna krukku af rauðkáli í nokkur ár á eftir án þess að ógleðin bloss- aði með krafti upp. Ég mun aldrei gleyma því þegar við Davíð færðum Gyðu þær fréttir að hún væri að verða amma. Hún grét af gleði og sagði að allar henn- ar óskir væru að rætast. Hún var líka mikil amma og elskaði engan eins og ömmubörnin sín tvö. Samskipti okkar voru alltaf mjög góð en stundum komu tíma- bil þar sem samskiptin voru lítil vegna hennar sjúkdóms, en alltaf steig hún upp aftur og þá komu dásamlegir tímar og samtöl með Gyðu. Elsku Gyða, missir okkar er mikill, ég syrgi það að þú sért farin og syrgi þann tíma sem við hefðum átt saman en þú ætlaðir að koma að heimsækja okkur á Hornafjörð alveg eins og í fyrrasumar. Ég mun hlúa að Davíð okkar og segja Emblu Hjördísi og Víkingi Brynj- ari sögur af ömmu Gyðu sem vakir yfir þeim. Þín tengdadóttir, Jóhanna Sigríður. Við áttum ekki von á þeim frétt- um sem við fengum í símtali laug- ardaginn 5.júní að Gyða, okkar gamla vinkona, væri fallin frá. Við höfum fylgst að gegnum þykkt og þunnt frá menntaskólaárunum í MR, svo læknadeildinni, svo lífinu. Fæðing barna okkar, skírnir, brúðkaup, afmæli, bæði og stór lít- il. Ferðalög innan- og utanlands. Gegnum búsetu og nám í Svíþjóð. Gyða var samviskusamur og ein- stakur námsmaður. Hún var vinur vina sinna og við brölluðum ým- islegt á menntaskólaárunum. Hún var viðkvæm og ástrík. Það var alltaf stutt í dillandi hlátur og hún var óspör á að gefa af sér, hvort sem það var að hjálpa okkur í nám- inu, bjóða í stórar matarveislur eða hrósa því sem henni fannst vel gert. Börnum sínum þrem, Inga Bjarna, Davíð Þór og Jóhönnu El- ísu, var hún góð móðir og var hún einstaklega stolt af þeim. Ekki síð- ur af ömmugullunum, Emblu Hjördísi og Víkingi Brynjari. Þrátt fyrir að samband milli okkar hafi verið lítið síðustu árin þá fylgd- umst við með hvor annarri. Síðast í apríl sendi hún fallega kveðju og allt virtist ganga vel. Stórt skarð er nú höggvið í gamla vinahópinn. Samúðarkveðjur til ykkar Inga Bjarna, Davíð Þórs, Jóhönnu El- ísu, maka og barna. Hún mun vaka yfir velferð ykkar og velferð barna ykkar. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þínar vinkonur, Anna og Guðlaug. Elsku hjartans Gyða mín. Mín besta vinkona í lífinu. Nú ertu farin í sumarlandið. Ég mun alltaf sakna þinnar einlægu vináttu. Að geta heyrt röddina þína og fengið vin- aráð um lífið og tilveruna. Hláturs- kastanna okkar og alltaf kvödd- umst við lausnamiðaðar og fullar bjartsýni á framtíðina. Okkur varð tíðrætt um börnin okkar og barna- börn sem við erum svo þakklátar og stoltar yfir. Það er ekki auðvelt að búa í öðru landi, fjarri börnum, fjölskyldu og ástvinum. Við áttum okkar erfiðu stundir með söknuði fjölskyldna okkar. Kvöldið áður en þú kvaddir þennan heim áttum við langt og gott samtal. Þú varst full tilhlökkunar að fá yngri soninn og dóttur í heimsókn fljótlega. Hafðir úthugsað hvernig þið kæmuð ykk- ur fyrir í litlu íbúðinni þinni í Gautaborg. Okkur varð tíðrætt um vináttuna. Þá staðhæfingu að „svo- kallaðir æskuvinir“ væru þeir vinir sem maður trúði að geta reitt sig á í gleði og sorg og væru alltaf til staðar í lífinu. Það er bara ekki rétt. Við breytumst og þroskumst og leiðir skilur. Við eigum ekki samleið lengur. Þú gímdir við ill- vígan sjúkdóm. Það er sárt til þess að hugsa að þú mættir ekki skiln- ingi og stuðningi þegar þú þurftir mest á því að halda. Í þínu starfi sem augnlæknir lagðir þú alla þína alúð í starfið. Þú ert sú besta manneskja sem ég hef kynnst. Þú hefðir getað gefið hjartað úr þér, ef þú hefðir getað það, til þeirra sem þurftu. Í okkar síðasta samtali kvöldið áður en þú kvaddir þennan heim ræddum við um börnin okk- ar. Ég las upp úr Spámanninum eftir Kahlil Gibran um börnin, sem hljómar svona: „Börn ykkar eru ekki börn ykkar. Þau eru synir og dætur lífsins og eiga sér sínar eig- in langanir. Þið eruð farvegur þeirra, en þau koma ekki frá ykk- ur. Þið eruð boginn sem börnum ykkar er skotið af eins og lifandi örvum. En mark bogmannsins er á vegi eilífðarinnar og hann beygir ykkur með afli sínu svo örvar hans fljúgi hratt og langt. Látið sveigj- una í hendi bogmannsins vera hamingju ykkar, því að eins og hann elskar örina sem flýgur, eins elskar hann bogann í hendi sér.“ Okkur leið báðum betur eftir þessa lesningu þessa vísdóms. Við enduðum samtalið með því að ákveða að halda upp á 60 ára af- mæli okkar á næsta ári. Ferðinni var heitið helst til Hellas, „mamma mia“, grísku eyjunnar fögru. Elsku Gyða mín, við upplifum það í öðru lífi, þegar minn tími kemur. Þá munum við taka gott vin- kvennaspjall, sitja á gullinni sólar- strönd í gjallandi öldunið og sól. Ég heyri dillandi hláturinn í okkur vinkonunum! Fyrir tveimur árum sendir þú mér tvö falleg ljóð sem þú ortir til mín. Annað þeirra hljómar svona: „Umhyggjusöm ertu og vinagóð. Til þín ég sendi þennan óð. Þín gleði og hlátur alltaf mig gleður, að heyra í þér aldrei mig tefur. Elsku hjartans vinkona mín.“ Þessi ljóð styrkja mig í sorginni, kæra vinkona mín. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig að sem vinkonu, takk fyrir allt, elsku Gyða mín. Vertu sæl að sinni, þig signi ljósið bjarta. Hvíl í friði elskuleg. Þín vinkona, Vala Lárusdóttir. Elsku Gyða okkar er dáin og sorgin nístir okkur. Við höfum all- ar verið miklar vinkonur frá því að leiðir okkar lágu saman í 1.-Z bekk í Kvennaskólanum að loknum barnaskóla. Við komum hver úr sinni áttinni og urðum strax óað- skiljanlegar vinkonur, bæði í skól- anum og utan hans. Í þá daga var Kvennaskólinn eingöngu fyrir stúlkur á aldrinum 13-16 ára og þótti kröfuharður skóli. Mikil áhersla var lögð á prúðmennsku og ástundun bóklegs náms og einnig handavinnu. Við vorum saman allan liðlangan daginn og vorum trúnaðarvinkonur. Við hlökkuðum til lífsins, að eiga hver aðra út lífið. Við kynntumst vel og vináttan var bundin sterkum böndum og hefur varað öll þessi ár. Við eigum fjölmargar góðar minningar frá kvennaskólaárun- um. Leiðir okkar allra lágu í Menntaskólann í Reykjavík og þar kom enn betur í ljós hve mikill og góður námsmaður Gyða var þótt hún stærði sig hvorki af þeim hæfi- leikum né öðrum. Persónugerð hennar kom einnig betur í ljós. Hún var hæglát og hæversk, ein- staklega tillitssöm og alltaf reiðubúin að hjálpa öðrum. Okkur fannst öllum liggja beint við að Gyða færi í læknisfræði að loknu stúdentsprófi, með sínar góðu námsgáfur, nærgætni og mann- skilning. Framtíðin var okkur björt og vonarrík. Að loknu stúd- entsprófi fórum við hver sína leið og lífið tók við með þau verkefni sem biðu okkar; að ljúka háskóla- námi, stofna heimili og fjölskyldu, hefja starfsferil. Gyða og Skúli giftu sig og voru nokkur ár í Sví- þjóð þar sem Gyða stundaði fram- haldsnám í augnlækningum. Á þessum tíma höfðum við allar um nóg að hugsa og fundir okkar urðu stopulir um skeið. Að námi loknu tókum við aftur upp þráðinn, stað- ráðnar í að rækta þetta dýrmæta vináttusamband áfram. Við hitt- umst reglulega, fórum saman í helgarferðir í Birkiból, héldum matarboð með mökum, fórum í kvennaflokk í Vindáshlíð og gerð- um margt fleira saman. Við köll- uðum okkur saumasystur í gríni vegna þeirrar miklu áherslu sem Kvennaskólinn lagði á handavinn- unám en það var ekki öllum að skapi. Eins og systur höfum við sannarlega verið, bæði í blíðu og stríðu. Á fullorðinsárum varð lífið Gyðu þungbært á köflum. Mikið álag og ósérhlífni við læknisstörf fóru ekki vel saman við viðkvæmni hennar og heilsan leið fyrir það. Erfiðleik- ar steðjuðu að og það virtist sem einhver strengur innra með henni brysti. Síðustu misserin starfaði Gyða sem augnlæknir í Svíþjóð og við vissum að aðskilnaður við fjöl- skyldu og vini var henni erfiður og að hún saknaði barna sinna og barnabarna. Það voru góðar stundir þegar við náðum að hittast allar og við nutum þess að faðmast, spjalla og hlæja saman. Á þessari sorgarstundu minnumst við þess að ekkert myrkur er svo dimmt og enginn staður svo afskekktur að maðurinn sé þar alveg einn. Bæði í lífi og dauða erum við í hendi Guðs og ekkert getur gert okkur við- skila við kærleika hans. Við þökk- um vináttu og traust sem hélst allt til enda. Það er dýrmætt að eiga góðar minningar og þótt þær veki söknuð eru þær okkur líka hugg- un. Við biðjum Guð að styrkja börn Gyðu, bróður og aðra aðstandend- ur. Arnfríður Einarsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir, Katrín Kristín Ellertsdóttir, Svana Helen Björnsdóttir. Ólöf Gyða Sigríður Bjarnadóttir MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021 ✝ Guðmundur Örn Ingólfsson fæddist í Reykjavík 3. janúar 1948. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Seljahlíð í Reykja- vík 20. júní 2021. Foreldrar hans voru Ingólfur Pét- ursson, f. 6.8. 1924, d. 16.7. 2001, og Arnfríður Guð- mundsdóttir, f. 29.4. 1927, d. 31.5. 2018. Systur Guðmundar eru Sóley, f. 21.7. 1949, tvíbur- arnir Anna Auður og Auður Anna, f. 14.3. 1955. Hálfsystur Guðmundar eru; sammæðra Helga Arnfríður, f. 7.11. 1967, og samfeðra, Hrefna Berglind, f. 12.6. 1969. Guðmundur ólst upp í Borgarnesi til níu ára ald- urs þar sem faðir hans var hót- elstóri. Fjölskyldan flutti í Vest- urbæ Reykjavíkur og gekk hann í Melaskóla og Hagaskóla. Síðar lá leiðin í Vélstjóraskólann. Guðmundur kvæntist Auði Ólafsdóttur, f. 12.5. 1945. Þau skildu. Guðmundur kvæntist Arnfríði Jóns- dóttur, f. 6.8. 1960. Sonur þeirra er Ingólfur Arnar, f. 15.2, 1977. Þau skildu. Sambýlis- kona Guðmundar síðustu 30 árin var Hulda Jófríður Óskarsdóttir, f. 7.2. 1931, d. 6.4. 2019. Guðmundur var náttúrubarn og dýravinur en jafnframt mikill veiðimaður. Hann gegndi ýms- um störfum um ævina, m.a. sem vélstjóri, stýrimaður, vélvirki, járniðnaðarmaður og kokkur svo eitthvað sé nefnt. Hann starfaði fyrir SÁÁ á árunum 1978-1992, þar af var hann í landsbyggðarþjónustunni frá 1989 til 1992. Hjá Ellingsen starfaði Guðmundur sem sölu- maður veiðarfæra á árunum 1992-1999 og fór hann jafnframt í söluferðir út á land en einnig á sölusýningar erlendis. Útförin fer fram frá Guðríð- arkirkju í dag, 29. júní 2021, klukkan 13. Mig langar hér að minnast Guð- mundar Arnar, sem ég kynntist fyrir margt löngu, í fáeinum orðum. Guðmundur hafði fyrr á árum verið hálfgerður atvinnumaður í veiðum á gæsum, rjúpum og önd- um, auk þess var hann afkastamik- ill í lax- og silungsveiði. Ein laxá var honum hjartfólgin, Víkurá á Ströndum. Faðir hans hafði komið bændunum í sveitinni til aðstoðar, en þeir létu sprengja og gera ána laxgenga. Guðmundur hafði aðstoðað bændurna við að leigja út til veiða. Reist hafði verið ágætt veiðihús. Þarna veiddi Guðmundur oft, og fórum við Ágúst Guðmundsson, sem er nýlátinn, með honum til gæsa- og laxveiða. Í Víkurá komst ég að því að Guðmundur var veiði- maður nr. 1. Við fórum á nokkra veiðistaði, sem hann sagði okkur hvar hann myndi renna og fengum laxa eins og hann hafði sagt til um. Fyrr á árum hafði Guðmundur verið ráðgjafi hjá SÁÁ, og starfaði við það í ellefu ár, en hann hafði sjálfur áður notið þeirra ráðgjafar. Um árið 2000 fór ég í söluferð austur á land. Guðmundur slóst í för með mér, sagðist þekkja marga fyrir austan. Þegar við komum á Djúpavog var okkur boðið á hótel þar sem gamall vinur Guðmundar var hótelstjóri. Þeir voru ánægðir með sína stöðu og rifjuðu upp skondin atvik frá fyrri tímum, og var mikið hlegið og vakað langt fram eftir nóttu með blávatn í glös- um. Guðmundur hringdi í apótekar- ann á Norðfirði, sem þá var. Við fórum og hittum hann og voru miklir fagnaðarfundir og heyrði ég á tali apótekarans hvað hann var ánægður með stöðu sína þá, sem hann þakkaði Guðmundi. Guðmundur var lengi sölustjóri með veiðivörur hjá Ellingssen, þar var hann á heimavelli með alla sína reynslu á veiðum. Ekki er langt síðan Guðmundur missti konu sína, Huldu. Fyrir stuttu heimsótti ég Guð- mund og var þá séð í hvað stefndi. Far þú í friði vinur, Sigurður Ingi Ingólfsson. Frétt af andláti gamals og góðs vinar fylgir bylgja minninga og hugleiðinga. Við Guðmundur Örn kynntumst um tvítugsaldur þegar hvorugur hafði tekið ákveðna stefnu í lífinu en sölumennska var skemmtileg leið til að framfleyta sér og njóta lífsins. Við náðum fljótt vel saman og ferðuðumst víða um land og náðum á skömmum tíma að upplifa margt og fara víða. Allt frá því að selja áskriftir, alfræðibækur, innrammaðar myndir og jafnvel kleinuhringi. Hver sem uppskeran var, og hún var misjöfn, áttum við alltaf góðar stundir. Og ef lítið var að gera mátti alltaf sitja fram á nótt og spila Hornafjarðarmanna. Að því kom svo að við fundum okkar fjöl; hann hóf nám í vélvirkj- un en ég fór í blaðamennsku. Sam- fundir urðu þá strjálli en samveru- stundir áfram gefandi og ánægjulegar. Guðmundur hafði þann mikla kost að hafa róandi áhrif á allt sitt umhverfi og fá fólk til að sjá við- fangsefni sín af yfirvegun og leita úrræða en gefast ekki upp. Þessi eiginleiki kom sér vel þegar hann síðar starfaði við að aðstoða fólk við að koma sér út úr áfengisvanda. Skopskyn hans hjálpaði líka. Veiðimennska, einkum stang- veiði, var honum ekki aðeins ástríða, heldur einnig list og þekk- ing hans á því sviði kom sér einkar vel þegar hann starfaði við sölu veiðibúnaðar. Mörg sumur kom ég þá við hjá honum í Ellingsen að kaupa réttu græjurnar áður en haldið var norður í Vatnsdal. Þær búðarferðir urðu manni líka kennslustund hverju sinni. Við leiðarlok þakka ég góðum vini samverustundir og góðar minningar. Bjarni Sigtryggsson. Guðmundur Örn Ingólfsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.