Morgunblaðið - 29.06.2021, Side 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Laugarmýri 2, Svfél. Skagafjörður, fnr. 236-7681 , þingl. eig. þb.
Samrækt Laugarmýri ehf., gerðarbeiðendur Arion banki hf. og
Byggðastofnun, mánudaginn 5. júlí nk. kl. 10:00.
Syðsta-Grund land I, Akrahreppur, fnr. 214-2043 , þingl. eig. Hinrik
Már Jónsson og Þorbjörg Gísladóttir og Kolbrún María
Sæmundsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., mánudaginn 5. júlí
nk. kl. 13:30.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
28 júní 2021
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Smíðastofa með leiðb. kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12.
Handavinna kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Fiðlutónleikar kl.
13. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Sími:
411-2600.
Boðaþing Systurnar Ingibjörg og Herdís Linnet munu flytja íslensk
þjóðlög og dægurlög í Boðanum miðvikudaginn 30. júní kl 13.30.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11.
Prjónað til góðs kl. 8:30-12:00. Útifjör 9:30-10:20. Hádegismatur kl.
11.30-12.30. Opin Listasmiðja kl. 13-15.30. Bónusrútan kl. 13.10.
Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Bókabíllinn kl. 14.45.
Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti
með síðdegiskaffinu er selt frá 13.45 -15:15. Poolhópur í Jónshúsi kl.
9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11. í Jónshúsi.
Smiðjan Kirkjuhvol opin kl. 13– 16.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á
könnunni. Gönguhópur (leikfimi og ganga) frá kl. 10. Núvitund komin
í sumarfrí til 6. júlí. Myndlist/listaspírur frá kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8.30-10.30.
Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Byrjendanámskeið á spjaldtölvur og síma, kl.
9-12 Android, kl. 13-16 Apple. Bingó kl. 13.15.
Korpúlfar Boccia verður kl. 10. alla þriðjudaga í allt sumar. Svo er
helgistund í Borgum kl. 10.30 alla þriðjudaga í allt sumar. Spjallhópur
í Borgum alla þriðjudaga kl. 13. í listasmiðju. Sundleikfimi verða í
Grafarvogssundlaug kl. 14. á þriðjudögum. Minnt er á ferðinni til Kal-
dadal á morgun, 30 Juní. Lagt verður af stað frá Borgum kl. 9.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, trésmiðja 9-12,Trésmiðja kl.9-16,
opin listasmiðja kl. 9-16, Dansleikfimi kl.10.30, Fréttatími og spjall
kl.12, Samverustund með djákna kl.13, bónusbíllinn kl.15, Hugleiðslan
kl.15.30. Uppl í s 4112760
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi sundlaug Seltj. kl. 7.15 og 18.30, Kaffisp-
jall í króknum frá kl. 9, Pútt á flötinni við Skólabraut kl. 10.30.
Dagskráin er í dreifingu og ætti að vera komin í öll hús á miðvikudag.
Minnum á Sumargleðina sem verður kl. 15. á fimmtudaginn. Grill,
söngur og gleði.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílar
Chrysler Pacifica Limited Hy-
brid. 5/2017 ekinn aðeins 62 þ.
Km.7 manna. Uppgefin drægni 53
km. á rafmagni. Leðursæti. Raf-
drifnar hurðir og skott lok. Ofl.
Ofl. Verð: 6.490.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
með
morgun-
"&$#!%
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
✝
Sveinbjörg
Rósalind Ólafs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 14. apríl
1971. Hún lést í
faðmi fjölskyldu
sinnar á Landspít-
alanum 18. júní
2021. Foreldrar
Sveinbjargar eru
Jóna Margrét
Ragna Jóhanns-
dóttir, f. 18.2.
1942, og faðir Ólafur Haralds-
1980, d. 6.12. 1980. Börn Svein-
bjargar eru 1) Jóhann Ólafur
Sveinbjargarson, f. 9.7. 1990. 2)
Lovísa Margrét Kristjánsdóttir,
f. 12.10. 1993, unnusta Íris
Bjarnadóttir, f. 13.6. 1994. 3)
Viktor Freyr Arnarson, f. 14.2.
2005. Sveinbjörg bjó meiri
hluta af æskuárum sínum á
Seljalandsvegi á Ísafirði þar
sem hún lauk skólagöngu sinni.
Hún flutti norður á Hauganes
með foreldrum sínum þar sem
hún eignaðist Jóhann Ólaf og
Lovísu Margréti. Fjölskyldan
flutti á Brattholtið í Hafnar-
firði þar sem þau bjuggu þegar
Viktor Freyr fæddist.
Útför hennar fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 29.
júní 2021, klukkan 13.
son, f. 20.6. 1947.
Systkini Svein-
bjargar eru Árni
Brynjar Ólafsson,
f. 12.9. 1964,
kvæntur Gunnþór-
unni Söru Brynj-
arsdóttur, f. 10.10.
1965, Haraldur Óli
Ólafsson, f. 6.2.
1969, kærasta Sig-
rún Sigurhjartar-
dóttir, f. 28.12.
1969, Jóhann Ólafsson, f. 13.4.
Elsku Sveinbjörg, ég sakna
þess að fá símtal frá þér eins og
þú varst vön að hringja í mig á
hverjum morgni. Ef þú varst
ekki búin að hringja kl. 11 þá fór
ég að undrast um þig. Ég tók þá
upp símtólið og hringdi gjarnan
til þín.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Prestshólum)
Elsku Sveinbjörg mín, hafðu
bestu þakkir fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir mig. Guð geymi
þig.
Þín mamma,
Jóna Margrét Ragna
Jóhannsdóttir.
Elsku frænka, ég reyni að
segja mér að þú sért farin en ég
get ekki sætt mig við það. Það er
sagt að maður eigi ekki að vera
sjálfselskur og leyfa þeim sem
maður elskar að fara þegar
þeirra tími er kominn, ég er þá
bara of sjálfselsk til að geta gert
það. Þú hefur alltaf verið partur
af mínu lífi og við alltaf verið
nánar.
Það voru yndislegir tímar
þegar ég kom og var hjá ykkur á
Ísafirði. Við vorum báðar að
passa þegar við vorum litlar og á
unglingsárunum unnum við sam-
an í fiski. Þess á milli vorum við
duglegar að finna okkur eitthvað
misgáfulegt að gera. Þegar við
vorum litlar þá voru það sak-
lausir leikir, rölt um Ísafjörðinn
og spjall. Þegar við urðum eldri
þá er hægt að segja að við höf-
um orðið „partners in crime“
þótt það hafi aldrei verið alvar-
legt, bara unglingsstelpur að
kíkja á bæjarlífið á kvöldin og
spjalla.
Þegar þú komst til Reykjavík-
ur mátti enginn vera með, Svein-
björg frænka var að koma í bæ-
inn. Málið var að við vildum vera
tvær saman þegar við höfðum
tækifæri til og sérstaklega þegar
við hittumst í stuttan tíma í
senn. Það var alltaf eins og þú
værir að koma til útlanda þegar
þú komst til Reykjavíkur og við
röltum endalaust í búðir á
Laugaveginum og eins og alltaf
var mikið hlegið og spjallað.
Þegar við urðum fullorðnar
hélst vinskapur okkar og trún-
aður. Það leið stundum tími á
milli samtala en alltaf þegar við
heyrðumst þá var eins og við
hefðum hist í gær. Það þurfti
engar afsakanir eða útskýringar
á sambandsleysinu. Við vissum
alltaf að við áttum hvor aðra að
og gátum stólað á hvor aðra. Við
hlógum saman, grétum saman
og spjölluðum um allt og ekkert,
sama hversu langt leið á milli
samtala.
Það sem við gátum spjallað
elsku Sveinbjörg, hlegið og fífl-
ast eða grátið og peppað hvor
aðra upp ef svo bar undir. Elsku
Sveinbjörg mín ég hef sagt
krökkunum mínum að ef þau
vilji komast að mínum dýpstu
leyndarmálum þá væri best að
tala við þig þótt ég vissi alltaf að
öll mín leyndamál væru vel
geymd hjá þér. Við gátum alltaf
treyst hvor annarri fyrir öllu.
Brandararnir þínir, fíflaskap-
urinn og hláturinn. Allt þetta er
bara þitt það getur enginn leikið
þetta eftir. Það má líka nefna
brussuganginn í þér elsku snill-
ingurinn minn. Þú brussaðist oft
áfram en varst samt óaðfinnan-
leg í útliti og heimilið þitt var
alltaf glæsilegt. Það var ekkert
sem stoppaði þig, þú gerðir það
sem þú ætlaðir þér að gera og
helst þurfti það að gerast í gær.
Hvort sem það var að breyta
hlutum, mála, tengja rafmagn
eða annað, það gerðir þú. Þú
varst og ert alltaf í mínum huga
nagli, húmoristi og vinkona.
Meira að segja í gegnum öll þín
veikindi.
Elsku frænka, það koma
margar yndislegar minningar
upp í hugann á mér. Ég þarf
með tímanum að sætta mig við
það að þær eru það eina sem ég
hef en það er gott að rifja þær
upp. Ég sakna þín svo mikið.
Ég veit að æðri máttur mun
fylgjast með flottu krökkunum
þínum og hjálpa þeim í gegnum
þennan erfiða tíma.
Elsku Jóhann, Lovísa, Viktor
og fjölskylda, innilegar samúðar-
kveðjur til ykkar allra. Missir
ykkar og okkar allra er mikill.
Guðrún J.m. Þórisdóttir
(Gunný).
Mig langar að minnast í
nokkrum orðum elsku frænku
minnar. Sveinbjörg var ekki
bara frænka mín, hún var líka
mín besta vinkona. Við áttum
margar góðar stundir við spjall í
síma eða heimsóknir, þá var
skipst á fréttum af börnum okk-
ar og ættingjum, einnig var mik-
ið spjallað um hitt kynið, lífið og
tilveruna. Hún var alltaf svo
hress og kát og ekki að ástæðu-
lausu að hún var oft kölluð
skellibjalla innan ákveðins hóps.
Hlátur hennar, brosið og fallegu
augun gleymast aldrei. Það er
ekki sjálfgefið að eiga svona
góða vinkonu. Sveinbjörg tamdi
sér bjartsýni og jákvæðni í líf-
inu. Hún hafði það að leiðarljósi
alla tíð. Ef eitthvað bjátaði á
hafði hún þann eiginleika að
gera gott úr hlutunum. Hún var
stolt af sínum börnum og voru
þau henni allt. Það var gott og
innilegt samtal okkar á milli í
heimsókn til hennar tveimur
dögum fyrir andlát hennar. Þá
spjölluðum við um margt, og þar
á meðal velti hún því fyrir sér
hvort ættingjar og vinir sem
farnir eru myndu taka á móti
henni þegar að því kæmi. Við
vorum sammála um að vel yrði
tekið á móti henni í Sumarland-
inu og svo var mikið hlegið.
Þannig var hún fram á síðustu
stundu. Ég er svo innilega þakk-
lát fyrir hennar vináttu og allar
okkar góðu stundir. Ég sendi
börnum hennar, foreldrum, vin-
um og öðrum ættingjum mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Hvíl í friði elsku frænka.
Þín
Jóna frænka.
Elsku Sveinbjörg, mikið of-
boðslega er erfitt að setjast nið-
ur og skrifa þessi orð. Þú varst
ofurkona og tókst á við lífið á
þinn einstaka hátt. Með húm-
orinn að vopni, alltaf hlæjandi,
sást þú spaugilegu hliðarnar þó
svo lífið væri ekki alltaf dans á
rósum. Það er skrítið að heyra
ekki hlátrasköllin í þér sem
fylgdu stríðnisgírnum eða fífla-
ganginum sem aldrei var langt
undan. Eins og þegar þú lést
kjúklinga dansa og glottið sem
birtist þegar ekkert var eftir á
kökudiskinum nema svampbotn-
inn af Dísunni hennar ömmu.
Sama hvað, dag eða nótt, allt-
af varstu til staðar fyrir okkur
eins og stóra systir enda varstu
ekki nema 10 ára þegar fyrsti
grísinn mætti á svæðið og tók
kannski full mikla athygli. Þú
umvafðir okkur væntumþykju
og passaðir alltaf upp á að okkur
liði vel. Alltaf gátum við talað
saman um hvað sem var, þú viss-
ir alltaf réttu orðin til að hug-
hreysta okkur og koma okkur til
að hlæja. Við systkinin erum svo
óendanlega þakklát fyrir stuðn-
inginn þinn, væntumþykjuna
þína, gleðina og hláturinn þinn.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Góða ferð í sólarlandið elsku
Sveinbjörg okkar. Við geymum
þig í hjörtum okkar alla tíð.
Jóna Guðbjörg, Hálfdán
og Ólöf Sara.
Gulur, rauður, grænn og blár
eru grunnlitir regnbogans. Sum-
ir hafa fleiri liti en þessa grunn-
liti og það á klárlega við hana
Sveinbjörgu. Hún var fallegur
regnbogi og skapaði alla heims-
ins liti og litaði lífið og heiminn
með þeim.
Í dag kveð ég eina af mínum
bestu vinkonum í hinsta sinn.
Skrítið hvað hver dagur er upp-
lifun á tómleika því ég horfi allt-
af á símann og bíð eftir að þú
hringir í mig og við að hefja okk-
ar daglega samtal um lífið og til-
veruna, nútíð og fortíð, drauma
og þrá. Já, það er tómlegt án
þín, mín kæra, og sorgin er stór,
elsku dásemdin mín. Þú gafst líf-
inu aðra merkingu með fallega
brosinu þínu, jákvæðni og húm-
ornum. Við gátum hlegið að öllu
og grátið yfir öllu saman en við
gátum einnig fengið lánað vit og
visku hvor annarrar þegar við
höfðum þörf fyrir það. Þegar líf-
ið var stundum grátt og myrkrið
stundum alls ráðandi, þá gastu
alltaf tendrað ljósið innra með
mér og eftir gott og langt
þriggja klúta spjall, þá var já-
kvæðnin og sólin komin aftur.
Við þessa erfiðu baráttu við
krabbameinið, voru markmiðin
þín ljós og ýmis jákvæð og falleg
skref sem voru tekin í framhaldi
af því. Grundvallarmarkmiðið
var að sigrast á veikindunum og
í framhaldi af því að upplifa síð-
ustu jól í gleði, upplifa stóraf-
mælið þitt og síðast en ekki síst
útskrift Viktors úr gaggó ný-
lega. Öll markmiðin náðust, fyrir
utan það eina, sem var mikil-
vægast … lífið sjálft.
Þú varst ljós í lifanda lífi.
Núna horfi ég til himins og spyr
ýmissa spurninga s.s. af hverju,
af hverju hún, af hverju núna og
hver var tilgangurinn? Á sama
tíma sé ég að ný stjarna hefur
bæst á himininn. Þar ert þú og
þú munt skína þar svo skært og
tignarlega að eilífu.
Lífið verður aldrei eins án þín
og ég sakna þín svo mikið, fal-
lega, dásamlega ljós. Við munum
rokka feitt saman síðar mín
kæra.
10.000 tár búa til haf, en á
móti kemur haf minninga, hlát-
urs og að kveðja er alltaf erfitt
og þegar maður hefur gengið
lífsins veg með fallegum engli,
þá verður söknuðurinn alltaf
meiri
Ég votta Jóhanni, Lovísu,
Viktori og mökum þeirra ásamt
systkinum Sveinbjargar og ynd-
islegu foreldrum hennar, mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Þín vinkona að eilífu,
Jóhanna S. B. Ólafs-
dóttir og fjölskylda.
Þeir segja mig látna, ég lifi samt
Og í ljósinu fæ ég að dafna.
Því ljósið var úthlutað öllum jafnt
Og engum bar þar að hafna.
Frá litlu hjarta berst lítil rós,
því lífið ég þurfti að kveðja,
Í sorg og í gleði ég senda mun ljós,
sem að ykkur mun gleðja.
(G. Ingi)
Elsku Sveinbjörg, fyrir einu
og hálfu ári síðan lágu leiðir okk-
ar saman á ný. Við kynntumst
nokkrum árum fyrr en þarna
small eitthvað.
Síðan þá höfum við verið í
nær daglegum samskiptum og
það verður tómlegt að halda
áfram án þín. Ég sakna þín vin-
kona, takk fyrir að hafa komið
inn í líf mitt, þú breyttir því svo
sannarlega.
Heimilið þitt var ávallt svo
fallegt og ætla ég að taka þig til
fyrirmyndar þegar ég flyt í nýju
íbúðina mína en við vorum búnar
að ákveða að þú hjálpaðir til með
stílinn þar.
Ég er svo þakklát fyrir vin-
áttu okkar og að geta verið hjá
þér þessa síðustu daga.
Takk fyrir stuðninginn, hvatn-
inguna, Elsu og ekki síst fyrir að
kynna mig fyrir George Jensen.
Elsku Lovísa, Jóhann, Viktor,
fjölskylda og vinir,
Guð styrki ykkur á þessum
erfiðu tímum.
Pálína vinkona.
Sveinbjörg Rósa-
lind Ólafsdóttir
- Fleiri minningargreinar
um Sveinbjörgu Rósalind
Ólafsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GÍSLI SUMARLIÐASON
frá Borgarnesi,
lést mánudaginn 21. júní á Sjúkrahúsi
Akraness. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Elsa Fríða Arnbergsdóttir
Garðar Þór Gíslason Theódóra Gunnarsdóttir
Arnar Már Gíslason Sigurbjörg Sigmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn