Morgunblaðið - 29.06.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 29.06.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021 Það geta allir fundið eitthvað girnilegt við sitt hæfi Freistaðu bragðlaukanna ... stærsti uppskriftarvefur landsins! 40 ÁRA Hjörleifur fæddist í Keflavík, þar sem hann ólst upp og býr enn. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjöl- brautaskóla Suðurnesja 2001 og fór í ensku í HÍ. Hann starfaði sem grunnskóla- kennari meira og minna frá 2003 til ’14, en hefur unnið í bland við smíðar og hellu- lagnir og sem sýningarstjóri í Sambíóunum. Auk þess hef- ur hann m.a. unnið við far- þegaþjónustu á Keflavík- urflugvelli, verið flugþjónn hjá Wow Air og verið þjón- ustustjóri fyrir Delta- flugfélagið. Í dag er Hjörleif- ur stöðvarstjóri hjá Bílaleigu Akureyrar á Keflavík- urflugvelli og rekur sitt eigið garðyrkju- og hellulagnafyr- irtæki, Gula herinn. Þegar vinnunni sleppir er Hjörleifur að byggja upp sumarhús fyrir fjöl- skylduna í Áshildarmýri í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Síðan er það tónlist- in. „Ég tók þátt í fyrstu seríu af The Voice á Íslandi og líka í Ljósanætur- verkefninu „Með blik í auga“ árið 2013. Svo er ég trúbador og líka í hljóm- sveitinni Heiður með bróður mínum Eiði Erni Eyjólfssyni, sem hefur starfað frá 2007 og við skemmtum víða. Afi minn, Hjörleifur Már Erlendsson frá Vestmannaeyjum, var stór og mikill harmonikkuspilari, listamaður og mikill gleðigjafi. Ég held ég hafi tónlistina frá honum.“ FJÖLSKYLDA Eiginkona Hjörleifs er Linda Pálmadóttir, sérfræðingur á velferðarsviði Reykjanesbæjar, f. 1984. „Ég er einstaklega stoltur af eig- inkonunni, en hún var að útskrifast úr félagsráðgjöf með fyrstu einkunn frá Háskóla Íslands.“ Þau eiga börnin Ingibjörgu Söru, f. 2005; Ómar Þór, f. 2009, d. 2009; Karítas, f. 2010, og Hafþór Jóa, f. 2015. Hjörleifur Már Jóhannsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Snúðu við blaðinu áður en þú eyðileggur líf þitt með neikvæðninni. Taktu þá ákvörðun að lifa lífinu til fulls. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú ert með óþarflega miklar áhyggjur af fjárhagnum en hann er ekki eins slæmur og þú heldur. Gefðu þér tíma til að hvíla þig. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Grasið er ekkert grænna hinum megin. Byrjaðu strax á því að ræða mál- in við þá, sem geta liðsinnt þér. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Röddin sem dæmir þig hið innra, kemur í veg fyrir að óskirnar rætist. Vin- ir þínir koma þér á óvart á afmælisdag- inn. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú ert upp á þitt besta og hefur já- kvæð áhrif á umhverfi þitt. Skelltu þér í sveitina ef þú getur. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þótt hlutirnir gangi ekki eins hratt fyrir sig og þú helst vildir er engin ástæða til að örvænta. Leggðu þig fram um að ná stjórn á hlutunum. 23. sept. - 22. okt. k Vog Peningamálin líta vel út og fé- lagslífið er í blóma. Þú þarft ekki að kvarta undan athyglinni sem þú færð. Þér finnst lífið gott. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Ekki reyna að þröngva skoðunum þínum upp á aðra. Nú er kominn tími til þess að hrista af sér ótt- ann með því að takast á við hann. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Talaðu við einhvern í dag sem getur hjálpað þér við að ná betri samningum. Ekki fara í fýlu þótt allt gangi ekki upp á þeim hraða sem þú vilt. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Sýndu þínum nánustu hversu vænt þér þykir um þá því í raun og veru eru þau sannindi aldrei of oft kveðin. Leyfðu barninu sem býr innra með þér að koma fram. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Heimili manns er þar sem maður er hverju sinni. Allt er í himnalagi og því ættir þú að geta slakað á og notið þess að vera í fríi. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú hefur lítinn áhuga á að flækja þig í einhver tilfinningamál einmitt núna. Þér býðst að fara í langt ferðalag í haust og ættir að stökkva á það. þau Ásgeir dótturina Lindu og síðan dreng. „Ég vildi ekki vera með eitt barn aftur og svo eign- uðumst við aftur dreng.“ Þrjú börn fæðast á rétt rúmum fjórum árum og þau voru fimm manna fjölskylda þegar þau fluttu til Hríseyjar. „Ásgeir var búinn að vinna mik- ið, en hætti til sjós um áramótin eftir að Halldór okkar deyr og fer haustið. „Þetta var fyrsta heimilið sem ég gat sagt að væri mitt.“ Árið 1965 var sorgarár í lífi Rósu. „Við missum drenginn okk- ar 1965 og pabbi liggur þá líka fyrir dauðanum. Ásgeir var til sjós og ég var ein, þannig að þetta var ekki auðvelt. En ég stóð þetta af mér eins og annað. Ég hef alveg óbilandi kjark og andlegt þrek.“ Rúmu ári eftir sonarmissinn áttu R ósamunda Kristín Káradóttir, sem alltaf er kölluð Rósa, fædd- ist 29. júní 1941 á Klúkum í Eyjafirði, sem þá tilheyrði gamla Hrafna- gilshreppnum. „Þar ólst ég upp til 8 ára aldurs en þá skildu foreldrar mínir og pabbi og ég fluttum fram í Hlíðarhaga og bjó ég þar til 18 ára aldurs. Það var mjög gott að vera á bænum og ég fann aldrei fyrir því að ég væri neitt að- skotadýr.“ Þegar Rósa var 15 ára fór hún í vist sem hjálparkokkur og barnapía á Akureyri en svo fór hún að vinna í heimavist mennta- skólans. Á sumrin sá hún mest um heimilið á bænum, eldaði og þvoði mjólkurílátin og gekk í öll heim- ilisverk. Þegar hún var 18 ára fór hún í Húsmæðraskólann á Laugalandi í Eyjafirði. „Það var dásamlegur tími. Ég man að við áttum að taka slátur og ég kunni allt til slátur- verka, bæði að verka vambir og reka ristla. Þegar skólastjórinn sá til mín sagði hún: Heyrðu Rósa, ég held ég verði bara að biðja þig um að segja þeim til. Ég sé að ég þarf ekki að kenna þér mikið!“ Sumarið á eftir var síðasta sumar Rósu í Hlíðarhaga því nú var hún trúlofuð kona. „Ég kynntist Ásgeiri á Réttar- balli í samkomuhúsinu Kuðungi þar sem núna er Hlíðarbær. Þetta var haustið 1956 og ég var15 ára. Svo hittumst við ekkert fyrr en ári seinna og þá tökum við upp þráðinn. Þá er ég komin til Akur- eyrar og er að vinna. Við fórum á böll á Freyvangi sem var innar í Firðinum og svo byrjuðum við saman og trúlofuðum okkur þegar ég var í Húsmæðraskólanum.“ Rósa var á Akureyri um vet- urinn og fram að áramótum. Hún var ófrísk og mikið lasin á með- göngunni og það varð úr að hún fór til foreldra Ásgeirs seinni hluta vetrar, en Ásgeir var á sjó. Rósa eignaðist dreng í júlí 1960, en Ásgeir var á síld um sumarið. Þau keyptu íbúð á Akureyri um í málaranám og var mikið að vinna hér í Hrísey og ég alltaf ein með krakkana.“ Þau ákváðu að byggja sér hús í Hrísey. Á þessum tíma hafði ekki verið byggt hús í Hrís- ey í rúmlega tíu ár. „Við vorum talin brjáluð að fara að byggja, en við vorum varla byrjuð þegar fjór- ir ungir menn fóru að byggja hérna líka og það var búin til ný gata. Upp úr þessu var mikill upp- gangur í Hrísey og rífandi at- vinna. Núna er ég ein eftir af þessum fjórum fjölskyldum úr götunni.“ Ári eftir að Rósa og Ásgeir fluttu var henni boðið á fund hjá Kvenfélagi Hríseyjar. „Það var mikið af góðgerðarmálum og öfl- ugt félag. Kvenfélagið var með erfidrykkjur og sá um heilmikið áður en það komu veitingahús hérna. Ég er enn þá í félaginu en kannski ekki eins virk og ég var, því ég var formaður þar í 14 ár. Ef ég fer í eitthvað þá er ég alltaf komin á oddinn. Ég hef örygglega verið forysturolla uppi á Hóls- völlum í fyrra lífi,“ segir Rósa og hlær. Rósa var einnig mikið í leik- félaginu og í Lionsklúbbnum og síðan hefur hún verið í sókn- arnefndinni í 21 ár og lengst af ritari, og formaður félags aldr- aðra. „Ég var svolítið að skemmta á þorrablótum í gamla daga og get sett saman vísu. Það var alltaf í kringum mig kátína og gleði enda er ég lífsglöð og kát kerling. Hér er ein: Ellin með mig illa fer, allur þrotinn kraftur. Lítið eftir af mér er annað en stólpakjaftur. Rósa segist ekki vön að halda upp á afmælin sín, frekar haldi hún upp á afmæli annarra. Hvað sem verður er víst að gleðin mun alltaf ríkja í kringum Rósu. Fjölskylda Eiginmaður Rósu er Ásgeir Halldórsson málarameistari, f. 10.7. 1934, d. 16.9. 2016. Þau bjuggu saman í Hrísey yfir hálfa öld. Foreldrar Ásgeirs eru hjónin Rósamunda Kristín Káradóttir húsfreyja í Hrísey – 80 ára Hjónin Ásgeir og Rósa bjuggu í Hrísey yfir hálfa öld og Rósa býr þar enn. „Ég er lífsglöð og kát kerling“ Langömmubarnið Hér er Rósa með eina langömmubarnið sitt, Maríönu Sólrós Ásgeirsdóttur í fanginu. Barnamyndin Strax glittir í kímn- ina og þrautseigjuna í andliti Rósu á þessari skemmtilegu mynd úr æsku. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.