Morgunblaðið - 29.06.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 29.06.2021, Blaðsíða 26
fyrsta liðið til þess að leggja Víking úr Reykjavík að velli í deildinni í sumar á Domusnova-vellinum í Breiðholti. Sævar Atli kom Leiknismönnum yfir á 34. mínútu og tvöfaldaði for- ystu Leiknis með öðru marki sínu á 62. mínútu þegar hann skoraði örugglega úr vítaspyrnu. Nikolaj Hansen klóraði í bakk- ann fyrir Víkinga á 78. mínútu en lengra komust þeir ekki. Leiknismenn eru með 11 stig í níunda sætinu en Víkingur er í þriðja sætinu með 19 stig. _ Leiknismaðurinn Sævar Atli Magnússon skoraði sitt sjöunda og áttunda mark í deildinni í sumar á meðan Víkingurinn Nikolaj Hansen skoraði sitt níunda deildarmark en þeir eru markahæstu leikmenn deildarinnar. Patrick Pedersen, Thomas Mikkelsen, Árni Vil- hjálmsson, Joey Gibbs, Djair Par- fitt-Williams og Hallgrímur Mar Steingrímsson koma þar á eftir með fimm mörk hver. Botnliðið í basli Skagamenn misstu niður 2:0- forystu þegar þeir tóku á móti Keflavík á Norðurálsvellinum á Akranesi. Gísli Laxdal Unnarsson og Ísak Snær Þorvaldsson skoruðu mörk Skagamanna í fyrri hálfleik en Christian Volesky minnkaði mun- inn fyrir Keflavík á 34. mínútu áður en Magnús Þór Magnússon jafnaði metin fyrir Keflvíkinga í upphafi síðari hálfleiks. ÍA er áfram á botninum með 6 stig, líkt og HK, en Keflavík er í tí- unda sætinu með 10 stig, fjórum stigum frá fallsæti. _ Þetta var fyrsta jafntefli Kefl- víkinga í deildinni í sumar og jafn- framt þeirra fyrsta stig á útivelli en liðið hafði tapað öllum fimm úti- leikjum sínum á tímabilinu fyrir leik gærdagsins. Stjörnusigur í Vesturbæ Morgunblaðið/Eggert Átök KR-ingurinn Kjartan Henry Finnbogason reynir að halda aftur af besta manni vallarins, Garðbæingnum Eyjólfi Héðinsyni, á Meistaravöllum. - Nýliðar Leiknis úr Reykjavík fyrstir til að leggja Reykjavíkurvíkinga að velli - Keflavík náði í sitt fyrsta stig á útivelli þegar liðið heimsótti Skagamenn 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021 Feykir.is greindi frá því í gær að landsliðsmaðurinn Sigtryggur Arn- ar Björnsson muni leika með Tinda- stóli á ný á næsta kepnistímabili á Íslandsmótinu í körfuknattleik. Sigtryggur Arnar ætti að styrkja liðið verulega en hann var í stóru hlutverki þegar Tindastóll varð bikarmeistari árið 2018. Hann lék síðasta vetur í spænsku b-deildinni með Coruna en mun að óbreyttu snúa heim. Fram kemur að bakvörðurinn geri eins árs samning við Tindastól í þetta skiptið. kris@mbl.is Skagfirðingar fá Sigtrygg Arnar Morgunblaðið/Árni Sæberg Tindastóll Sigtryggur Arnar Björnsson í búningi Stólanna. Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Steinn Hafsteinsson er að ganga til liðs við úrvalsdeildarlið Fylkis, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Guðmundur, sem er 32 ára gamall framherji, lék síðast með Abtswind í þýsku E-deildinni en þar áður lék hann með KA á Akureyri þar sem hann skoraði 6 mörk í sautján leikjum í efstu deild, sum- arið 2020. Alls á hann að baki 145 leiki í efstu deild og hefur skorað 37 mörk. Guðmundur hefur einnig leikið með Val, HK, Víkingi Ólafs- vík, Fram, ÍBV og Stjörnunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fylkir Framherjinn Guðmundur Steinn virðist vera á leið í Árbæinn. Fylkir styrkir framlínuna ÍA – KEFLAVÍK 2:2 1:0 Gísli Laxdal Unnarsson 12. 2:0 Ísak Snær Þorvaldsson 29. 2:1 Christian Volesky 34. 2:2 Magnús Þór Magnússon 51. M Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA) Ísak Snær Þorvaldsson (ÍA) Morten Beck Guldsmed (ÍA) AlexaNder Davey (ÍA) Magnús Þór Magnússon (Keflavík) Davíð Snær Jóhannsson (Keflavík) Christian Volesky (Keflavík) Ingimundur Aron Guðnason (Keflavík) Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 8. Áhorfendur: Um 400. LEIKNIR R. – VÍKINGUR R. 2:1 1:0 Sævar Atli Magnússon 34. 2:0 Sævar Atli Magnússon (víti) 62. 2:1 Nikolaj Hansen (víti) 78. MM Sævar Atli Magnússon (Leikni) M Bjarki Aðalsteinsson (Leikni) Brynjar Hlöðversson (Leikni) Daði Bærings Halldórsson (Leikni) Guy Smit (Leikni) Erlingur Agnarsson (Víkingi) Nikolaj Hansen (Víkingi) Pablo Punyed (Víkingi) Dómari: Erlendur Eiríksson – 8. Áhorfendur: 246. KR – STJARNAN 1:2 1:0 Sjálfsmark 4. 1:1 Þorsteinn Már Ragnarsson 48. 1:2 Eggert Aron Guðmundsson 58. MM Eyjólfur Héðinsson (Stjörnunni) M Beitir Ólafsson (KR) Kennie Chopart (KR) Eggert Aron Guðmundsson (Stjörnunni) Elís Rafn Björnsson (Stjörnunni) Magnus Anbo (Stjörnunni) Þorsteinn Már Ragnarsson (Stjörnunni) Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson – 8. Áhorfendur: 712. Pepsi Max-deild karla ÍA – Keflavík............................................. 2:2 KR – Stjarnan........................................... 1:2 Leiknir R. – Víkingur R........................... 2:1 Staðan: Valur 11 7 3 1 19:11 24 Breiðablik 10 6 1 3 24:15 19 Víkingur R. 10 5 4 1 16:9 19 KA 9 5 2 2 14:5 17 KR 10 4 3 3 16:12 15 Stjarnan 11 3 4 4 10:15 13 FH 10 3 3 4 14:15 12 Fylkir 10 2 5 3 14:17 11 Leiknir R. 10 3 2 5 11:14 11 Keflavík 9 3 1 5 11:17 10 HK 10 1 3 6 12:20 6 ÍA 10 1 3 6 11:22 6 3. deild karla Tindastóll – Víðir ...................................... 2:2 Staðan: Höttur/Huginn 9 7 1 1 15:10 22 Augnablik 9 5 3 1 23:10 18 Ægir 9 4 4 1 13:8 16 Elliði 9 5 0 4 22:12 15 KFG 8 4 3 1 12:7 15 Sindri 9 3 3 3 15:15 12 Dalvík/Reynir 9 3 2 4 14:12 11 Víðir 9 2 4 3 11:16 10 Einherji 9 2 1 6 11:21 7 KFS 9 2 1 6 9:21 7 Tindastóll 8 1 3 4 13:16 6 ÍH 9 0 5 4 11:21 5 EM karla 2021 16-liða úrslit: Króatía – Spánn ............................... (frl.) 3:5 Frakkland – Sviss..................................... 3:3 - Sviss áfram eftir vítakeppni, 5:4. _ Sviss mætir Spáni í 8-liða úrslitum í Pétursborg 2. júlí. Bandaríkin Dallas – New England Revolution ........ 2:1 - Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 60 mínúturnar með New England. New York City – DC United................... 2:1 - Guðmundur Þórarinsson lék allan leik- inn með New York City. Svíþjóð Vittsjö – Djurgården............................... 0:1 - Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Djurgården. Linköping – Örebro................................. 4:1 - Berglind Rós Ágústsdóttir lék allan leik- inn með Örebro. Cecilía Rán Rúnarsdóttir var ónotaður varamarkmaður. Staðan: Rosengård 10 9 1 0 23:2 28 Häcken 10 6 2 2 24:5 20 Kristianstad 10 5 4 1 16:8 19 Hammarby 10 5 3 2 23:14 18 Linköping 10 4 4 2 15:11 16 Eskilstuna 10 3 4 3 9:10 13 Vittsjö 10 3 3 4 10:9 12 Djurgården 10 3 1 6 8:15 10 Örebro 10 3 1 6 9:19 10 AIK 10 2 3 5 9:30 9 Piteå 10 2 1 7 7:20 7 Växjö 10 0 3 7 3:13 3 >;(//24)3;( Úrslitakeppni NBA Úrslit Austurdeildar: Atlanta – Milwaukee ........................ 102:113 _ Staðan er 2:1 fyrir Milwaukee. >73G,&:=/D Goði Ingvar Sveinsson hefur gert tveggja ára samning við upp- eldisfélag sitt Fjölni eftir dvöl hjá Stjörnunni. Goði fór í Garða- bæinn sumarið 2020 eftir að Fjölnir féll úr efstu deild. Í vet- ur kom hann aftur til Fjölnis á láns- samningi en hefur nú haft fé- lagaskipti aftur yfir í Fjölni og leikur með liðinu í næstefstu deild á næsta tímabili samkvæmt tilkynn- ingu frá félaginu. Goði verður 21 árs í sumar en hann lék með U19 ára landsliðinu sem hafnaði í 2. sæti á EM 2018. Goði samdi við Fjölni Goði Ingvar Sveinsson KNATTSPYRNA Pepsi Max-deild kvenna: SaltPay-völlurinn: Þór/KA – Fylkir .........18 Hásteinsvöllur: ÍBV – Þróttur R. .............18 Origo-völlurinn: Valur – Keflavík .............20 Í KVÖLD! FÓTBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Hinn 17 ára gamli Eggert Aron Guðmundsson reyndist hetja Stjörnunnar þegar liðið heimsótti KR í úrvalsdeild karla í knatt- spyrnu, Pepsi Max-deildinni, í 10. umferð deildarinnar á Meistaravelli í Vesturbæ í gær. Leiknum lauk með 2:1-sigri Garðbæinga en Eggert Aron skor- aði sigurmark leiksins á 58. mínútu með frábæru hægrifótar skoti við vítateigslínuna sem söng í bláhorn- inu. KR-ingar komust yfir strax á upphafs mínútunum með sjálfs- marki en Þorsteinn Már Ragnars- son jafnaði metin fyrir Stjörnuna gegn sínum gömlu liðsfélögum í upphafi síðari hálfleiks. Stjarnan, sem byrjaði tímabilið skelfilega, fer með sigrinum upp í sjötta sæti deildarinnar í 13 stig en KR er í fimmta sætinu með 15 stig. _ Garðbæingurinn Eggert Aron skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild en hann hefur komið við sögu í sex leikjum með Stjörnunni í úr- valsdeildinni í sumar. Erfiðir heim að sækja Sævar Atli Magnússon var allt í öllu þegar Leiknir í Reykjavík varð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.