Morgunblaðið - 29.06.2021, Page 27

Morgunblaðið - 29.06.2021, Page 27
fæ að skora mörg mörk og taka mikinn þátt í leiknum. Þetta er svo- lítið niðurstaðan af því,“ sagði hann. Hefði viljað alvöru titilbaráttu Ómar Ingi kvaðst nokkuð sáttur við nýafstaðið tímabil hjá Magde- burg en hefði þó viljað sjá liðið keppa um þýska meistaratitilinn, en þrátt fyrir að lenda í þriðja sæti var Magdeburg 15 stigum frá meisturum Kiel og Flensburg í öðru sætinu. „Tímabilið er búið að vera fínt. Ég hefði viljað að við stæðum betur í Flensburg og Kiel og reyndum að berjast betur um þennan titil en við vorum eiginlega aldrei í neinni al- vöru baráttu um það. Við byrjuðum svolítið illa og töpuðum fjórum af fyrstu átta leikjunum í deildinni. Það er bara of mikið. Tveir til þrír tapleikir eru nóg til þess að valda því að þú verðir ekki meistari. Ég hefði viljað að það hefði verið gert betur og að við hefðum sýnt meiri stöðugleika. Við töpuðum mörgum leikjum á móti liðum sem við eigum á eðlilegum degi að vinna þegar við spilum almennilega, þó svo að í rauninni geti allir unnið alla í þessari deild ef lið hitta á góð- an dag. Gæðin eru það mikil í deild- inni að maður þarf að vera klár í alla leiki,“ sagði hann. Markmiðið hjá Magdeburg fyrir næsta tímabil er því morgunljóst, að berjast um meistaratitilinn. „Við skákuðum aldrei efstu tveimur lið- unum. En já algjörlega, það er bara markmið klúbbsins og liðsins að verða meistarar. Við áttum eiginlega ekki mögu- leika þetta árið en spiluðum ágæt- lega á móti þeim. Við töpuðum að vísu báðum leikjunum á móti Flensburg en tókum þrjú stig á móti Kiel. Okkar getustig er alveg svipað en það er þessi stöðugleiki í þrjátíu og eitthvað leiki sem við þurfum að halda betur,“ sagði Óm- ar Ingi. Eiga titil að verja Á tímabilinu lék hann einnig frá- bærlega í Evrópudeildinni og var næstmarkahæstur með 94 mörk í 15 leikjum, tæplega 6,3 mörk í leik að meðaltali, þegar Magdeburg hrósaði sigri í keppninni. Með því að enda í þriðja sæti í þýsku deild- inni tryggði liðið sér þátttökurétt í henni að nýju á næsta tímabili. „Við unnum náttúrlega Evrópu- deildina á tímabilinu og erum aftur í henni á næsta ári og það eru bara sömu markmið í henni á næsta tímabili. Við erum með sigur- stranglegt lið þar eins og við vorum með í vetur og viljum vinna hana aftur,“ sagði Ómar Ingi ákveðinn. Spurður um persónuleg markmið sín í framhaldinu sagði Selfyssing- urinn öflugi þau fara saman við markmið Magdeburg; að vinna fleiri titla. „Í raun vil ég bara að við vinnum og ég þarf að eiga minn þátt í því og hann er að spila vel, hvernig sem það er. Að skora mörk, gefa sendingar eða spila vörn eða hvað sem það er, þá er það að vinna það sem kveikir í mér og heldur mér gangandi. Ef það er ekki eitthvað undir þá finnst mér eitthvað vanta,“ sagði hann að lokum í sam- tali við Morgunblaðið. Ekkert sem ég planaði - Ómar markakóngur í Þýskalandi - Vill verða meistari með Magdeburg Ljósmynd/Instagram síða Magdeburg Markakóngur Ómar Ingi með verðlaunagripinn sem hann hlaut. HANDBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Landsliðsmaðurinn Ómar Ingi Magnússon, örvhenta skyttan í liði Magdeburg í þýsku 1. deildinni í handknattleik, stóð uppi sem markakóngur deildarinnar á sínu fyrsta tímabili. Ómar Ingi skoraði 274 mörk í 38 leikjum, sem gera 7,2 mörk í leik að meðaltali. Magdeburg endaði í þriðja sæti þýsku deildarinnar, sem er önnur af tveimur sterkustu deildum heims ásamt þeirri frönsku. Því er ljóst að um mikið afrek er að ræða hjá Óm- ari Inga, sem er annar Íslending- urinn í röð sem stendur uppi sem markakóngur þýsku deildarinnar eftir að Bjarki Már Elísson náði því á síðasta tímabili með Lemgo. En hvernig er tilfinningin að vera markakóngur einnar sterk- ustu deildar heims á sínu fyrsta tímabili? „Það er bara skemmtilegt. Þetta var ekkert sem ég planaði en úr því sem komið er þá er þetta gaman,“ sagði Ómar Ingi hógvær í samtali við Morgunblaðið. Hann var á meðal markahæstu leikmanna deildarinnar stóran hluta tímabilsins en fór að sjá raun- hæfan möguleika á að verða markakóngur á síðari hluta þess. Þar atti hann öðrum fremur kappi við Þjóðverjann Marcel Schiller, rétthentan hornamann hjá Göpp- ingen, sem endaði með 270 mörk. Gaf kapp við Schiller Ómari Inga byr undir báða vængi í baráttunni? „Já kannski. Þegar við vorum búnir að tryggja okkur þriðja sætið þegar tveir leikir voru eftir þá gaf það manni kannski eitthvað aðeins aukalega. En annars er ég bara að reyna að vinna leiki. Ef mörkin koma þá koma þau. Ég er líka bú- inn að vera í þannig hlutverki að ég ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 2021 Á dögunum kom upp athyglis- vert mál í tennisheiminum þegar Naomi Osaka dró sig úr keppni á Opna franska meistaramótinu í tennis. Málið var rakið í fréttum í snemma í mánuðinum. Osaka er ein bjartasta vonin í íþróttinni og rúmlega það. Hún hefur þegar unnið fjórum sinnum á risamót- unum (Grand Slam-mótunum) og fékk Laureus-verðlaunin sem íþróttakona ársins í heiminum fyrir árið 2020. Hún greindi frá glímu sinni við þunglyndi og fé- lagskvíða þegar hún útskýrði í til- kynningu hvers vegna ekkert varð úr þátttöku hennar á mótinu. Fyr- ir hana hefur verið íþyngjandi að vera í sviðsljósi fjölmiðla. Hafði hún tekið þá ákvörðun að mæta ekki á blaðamannafundi eftir leiki sína í mótinu og var sektuð í framhaldinu. Mótshald- arar voru mjög gagnrýndir fyrir hvernig þeir héldu á málum og ef til vill mun fólk í íþróttahreyfing- unni draga lærdóm af máli Osaka. Í SunnudagsMogganum var fróð- legt viðtal við ólympíufarann Laurence Halstad um eitt og ann- að sem tengist líðan afreks- íþróttafólks. Um þessa uppá- komu sagði Halstad: „Það sýnir skortinn á mennsku innan íþrótta að sjá ekki einlægnina á bak við gjörðir hennar og vilja ekki styðja hana. Þetta var frábært tækifæri fyrir tennis til að sýna íþrótta- mönnum sem glíma við andleg vandamál stuðning.“ Hægt er að taka undir þetta hjá Bretanum. Við erum jafn misjöfn og við erum mörg. Margt íþrótta- fólk í heimsklassa á erfitt með að gefa af sér í viðtölum. Þegar heilsa fólks er undir þá skiptir auðvitað engu máli þótt íþrótta- fólk veiti fjölmiðlum ekki viðtöl. Það hljóta allir að sjá sem hafa burði til að greina aðalatriði frá aukaatriðum. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is EM 2021 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Heimsmeistarar Frakklands eru úr leik á Evrópu- móti karla í knattspyrnu eftir tap gegn Sviss í víta- spyrnukeppni ótrúlegum leik í Búkarest í Rúmeníu í gær. Haris Seferovic kom Sviss yfir strax á 15. mínútu og Sviss fékk tækifæri til að tvöfalda forskot sitt þegar liðið fékk vítaspyrnu, en Hugo Lloris varði frá Ricardo Rodríguez. Þetta kveikti í Frökkum og Karim Benzema skoraði tvívegis með þriggja mínútna millibili áður en Paul Pogba kom Frökkum í 3:1 með frábæru marki á 75. mínútu. Sviss neitaði að gefast upp og Haris Seferovic minnkaði muninn á 81. mínútu áður en Mario Gavr- anovic jafnaði metin í uppbótartíma og því var grip- ið til framlengingar. Hvorugu liðinu tókst að skora í framlengingu og þá var gripið til vítaspyrnukeppni þar sem Yann Sommer í marki Sviss varði lokaspyrnu Frakka frá Kylian Mbappé. _ Þetta er í fyrsta sinn í 67 ár sem Sviss kemst í átta liða úrslit á stórmóti í knattspyrnu en það gerð- ist síðast á HM 1954 í Sviss. _ Frökkum hefur gengið illa í framlengingu á undanförnum stórmótum en þetta er þriðji leikurinn í röð þar sem þeir falla úr leik eftir framlengdan leik. Ótrúleg endurkoma dugði ekki Þá þurfti einnig að framlengja leik Króatíu og Spánar þegar liðin mættust á Parken í Kaupmanna- höfn. Leiknum lauk með 5:3-sigri Spánverja en staðan að loknum venjulegum leiktíma var 3:3. Króatar komust yfir með afar skrautlegu sjálfs- marki á 20. mínútu en Pablo Sarabia jafnaði metin fyrir Spánverja undir lok fyrri hálfleiks áður en César Azpilicueta og Ferran Torres skoruðu sitt markið hvor fyrir Spánverja í síðari hálfleik. Mislav Orsic minnkaði muninn fyrir Króatíu á 85. mínútu áður en Mario Pasalic jafnaði metin fyr- ir Króata í uppbótartíma og því var gripið til fram- lengingar. Þar reyndust Spánverjar sterkari þar sem þeir Álvaro Morata og Mikele Oyarzabal skoruðu mörk spænska liðsins í fyrri hálfleik framlengingarinnar. _ Spánverjar eru fyrsta liðið í sögu Evrópu- mótsins sem skorar fimm mörk í tveimur leikjum í röð. _ Spánverjinn César Azpilicueta, sem skoraði sitt fyrsta landsliðsmark gegn Króatíu, er elsti markaskorari í sögu spænska liðsins í lokakeppni EM en hann er 31 árs og 305 daga gamall. Það verða því Sviss og Spánn sem mætast í átta liða úrslitum í Pétursborg 2. júlí en Frakkland og Króatía eru úr leik. AFP Vonbrigði Svisslendingar eftir að Kylian Mbappé brenndi af lokaspyrnu franska liðsins í Búkarest. Dramatíkin allsráðandi á EM - Heimsmeistarar Frakklands úr leik eftir ótrúlega endurkomu Sviss í Búkarest - Hetjuleg endurkoma Króata dugði ekki gegn Spánverjum í Kaupmannahöfn Breiðablik mætir Val í risaslag í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu en dregið var í höfuðstöðvum KSÍ í gær. Í hinni viðureigninni í undan- úrslitum mætast Þróttur R. og FH en leikirnir fara fram hinn 16. júlí næstkomandi. FH leikur í næstefstu deild en hin þrjú í efstu deild Íslandsmótsins. Einnig var dregið hjá körl- unum. Bikarmeistarar Víkings Reykjavík fá KR í heimsókn í 16- liða úrslitum keppninnar í karla- flokki. Í þremur tilfellum drógust úrvalsdeildarlið saman að þessu sinni. Þar er áðurnefndur leikur Víkings og KR, en einnig við- ureignir ÍA og FH og Keflavíkur og KA. Ljóst er að lið úr næstefstu deild mun komast áfram í 8-liða úrslit því Vestri og Þór frá Akur- eyri drógust saman og mætast í Skutulsfirði. Fjölnir sem leikur í næstefstu deild fékk auk þess heimaleik gegn ÍR sem leikur í þriðju efstu deild. HK mætir KFS og myndu lík- lega einhverjir segja að HK hafi haft heppnina með sér því KFS leikur í fjórðu efstu deild. Fylkir fær Hauka sem leika í þriðjuefstu deild í heimsókn í Árbæinn. gunnaregill@mbl.is Risaslagur Blika og Vals í bikarnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.