Morgunblaðið - 29.06.2021, Qupperneq 32
RVK Fringe hefst
á laugardag og
stendur yfir til 11.
júlí. 70 atriði
verða sýnd yfir
150 sinnum á átta
dögum og 15
stöðum víða um
Reykjavík. Á laug-
ardag kl. 17 verð-
ur flutt opnunar-
sýningin Sauðatónar í Árbæjarsafni og vöngum velt yfir
því hvers konar tónlist sauðfé vilji hlusta á. Tónskáldið
og rafgítarleikarinn Hafdís Bjarnadóttir og Passe-
partout Duo munu leita svara við þeirri spurningu en
Hafdís hefur heimsótt sveitabæi, hljóðritað fjár-
húshljóð og spilað á gítar fyrir kindur til að vinna tón-
list út frá þessum heimsóknum. Hugmyndina að því að
semja tónverk fyrir kindur fengu slagverksleikarinn
Christopher Salvito og píanóleikarinn Nicoletta Favari
ásamt Hafdísi þegar þríeykið var á tónleikaferðalagi í
Færeyjum. Dagskrána má kynna sér á rvkfringe.is.
70 atriði á 15 stöðum á átta dögum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Heyrnin er ekki sem best og hreyfi-
færnin langt frá því sú sama og áð-
ur var en sjónin er góð og húm-
orinn er á sínum stað hjá Sigríði
Rósu Mörtu Oddsdóttur, sem er
100 ára í dag. „Hún er mjög
skemmtileg, en elliglöpin flækja
málin,“ segir Ingibjörg, dóttir henn-
ar.
Undanfarin fimm ár hefur Rósa,
eins og hún er alltaf nefnd, búið í
góðu atlæti á Grund hjúkrunar-
heimili í Reykjavík. „Allt starfs-
fólkið er svo gott við hana og sér-
staklega Alexandrea Rán
Guðnýjardóttir,“ heldur Ingibjörg
áfram. „Hún sér meðal annars um
að klippa hár hennar og fara með
hana í fót- og handsnyrtingu. Unga
fólkið er svo hugulsamt, hefur tekið
ástfóstri við mömmu og gerir allt
fyrir hana.“
Fjórðu elstu systkinin
Foreldrar Rósu voru Oddur
Bergsveinn Jensson og Valfríður
Ólafsdóttir, bændur í Dalasýslu.
Hún var næstelst sex alsystkina og
tvö samfeðra hálfsystkini voru eldri.
Hallgrímur Pétur, bróðir hennar,
býr líka á Grund og að sögn Jón-
asar Ragnarssonar, sem heldur úti
fésbókarsíðunni Langlífi, eru þau
fjórðu elstu núlifandi íslensku
systkinin. Ólafur Valdimar, bróðir
þeirra, er 85 ára, en önnur eru fall-
in frá.
Eiginmaður Rósu var Gunn-
laugur Marinó Möller Pétursson,
bifreiðastjóri og flokkstjóri hjá
Reykjavíkurborg, en hann lést 62
ára 1982. Þau eiga fjögur börn og
segja dæturnar tvær, Ingibjörg og
Valdís, að hún hafi alla tíð verið
mjög iðin, en krafturinn hafi eðli-
lega minnkað undanfarin ár. „Hún
er mikið rúmliggjandi, en hress
þess á milli,“ segir Valdís. „Þegar
lægð er yfir landinu liggur hún í
rúminu, sefur lengst af en þegar
hún vakir er viðkvæði hennar
gjarnan „andskotans veður er
þetta“,“ útskýrir Ingibjörg. Hún
njóti þess samt að vera úti og vísar
meðal annars til þess að Alexandrea
hafi klætt hana upp og stelpurnar
hafi farið með hana í hjólastól í bæ-
inn. Það hafi gert mikla lukku.
Mikill gestagangur var á heimili
hjónanna í Skerjafirði og þegar fólk
bar að garði sá Rósa um að elda og
baka fyrir mannskapinn. „Það var
alltaf til heimabakað með kaffinu og
ég fékk aldrei neitt úr bakaríi,
hvorki kökur né brauð,“ rifjar Ingi-
björg upp. „Hún var mjög dugleg
og saumaði til dæmis mjög mikið.
Ég gekk til dæmis alltaf í heima-
saumuðum fötum.“
Fjölskyldan bjó lengst af í
Skerjafirðinum og þegar börnin
voru komin á legg fór Rósa út á
vinnumarkaðinn. Fyrst skúraði hún
hjá Kron í Skerjafirði, vann síðan
um árabil í eldhúsinu á Grund og
lauk starfsferlinum við sláturgerð
hjá Sláturfélagi Suðurlands á
Skúlagötu, þar sem hún vann þar til
hún var 67 ára. „Hún var ótrúlega
orkumikil, hafi gaman af því að
spila, naut þess að ganga úti, prjón-
aði sokka, peysur og vettlinga en
eftir að pabbi dó var mesta yndi
hennar að fara í sveitina til systur-
sonar síns vestur í Dölum,“segir
Valdís.
Sefur af sér lægðirnar
- Húmorinn í góðu lagi hjá Rósu Oddsdóttur 100 ára
Gaman Rósa Oddsdóttir hlustar á Bubba Morthens og syngur með.
Á Grund Rósa og Hallgrímur Pétur eru fjórðu elstu systkini landsins.
ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ 180. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Hinn 17 ára gamli Eggert Aron Guðmundsson réð úrslit-
um þegar Stjarnan heimsótti KR í Frostaskjólið í 10.
umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi Max-
deildinni í gær. Leiknum lauk með 2:1-sigri Stjörnunnar
og skoraði Aron sigurmarkið á 58. mínútu.
Úrslitin eru ekki alltaf fyrirsjáanleg í deildinni en í
gær töpuðu Víkingar fyrsta leiknum í deildinni í sumar.
Nýliðarnir í Leikni urðu fyrstir til að leggja Víking að
velli og gerðu það í Breiðholtinu. Leiknir hefur á
skömmum tíma unnið bæði FH og Víking. »26
17 ára gamall markaskorari
hjá Stjörnunni á KR-vellinum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Stærð: 400l.Opnanlegt hólf beggja vegna.
Farangursbox
Verð frá:49.000kr.
VefverslunBL
Frábært úrval af aukahlutum, ferðabúnaði,
gjafavörum og rafhjólum í nýrri vefverslun okkar.
Kíktu á úrvalið áwww.bl.is/vefverslun
Fyrir alla BLbíla
Þverbogar
Verð frá:35.000kr.
Euroride, fyrir 2 hjól. Fellanleg grind til að komast í skottið.
Hjólafesting á krók
Verð frá:59.000kr.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
0
6
5
3
4