Morgunblaðið - 02.06.2021, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. JÚNÍ 2021FRÉTTIR
Einhvern veginn virðist það hafa
farið alveg framhjá íslenskum fjöl-
miðlum að bandaríski frum-
kvöðullinn Whitney Wolfe Herd
vann meiriháttar afrek í febrúar
síðastliðnum þegar hún skráði á
markað fyrirtækið Bumble sem rek-
ur samnefnt stefnumótaforrit.
Með skráningunni varð hún
nefnilega yngsta kona sögunnar til
að skrá félag á hlutabréfamarkað – í
það minnsta í Bandaríkjunum – og
einnig yngsta konan til að komast á
milljarðamæringalista Bloomberg á
eigin spýtur.
Whitney er hrífandi, bráðsnjöll og
með bein í nefinu – og löngu tíma-
bært að íslenskir lesendur fræðist
um sögu hennar.
Áreitnin kveikti á peru
Leiðin á toppinn var alls ekki
áfallalaus. Whitney, sem verður 32
ára í júlí, ólst upp í Salt Lake City
og stundaði háskólanám við South
Methodist University. Þar fór við-
skiptavitið að láta á sér kræla því í
náminu tók Whitney til við að selja
handtöskur úr bambusvið til stuðn-
ings fólki sem orðið hafði fyrir tjóni
vegna olíulekans mikla sem varð í
Mexíkóflóa árið 2010. Verkefnið
vatt upp á sig og varð að góðgerðar-
samtökum og síðan að fatamerki
sem Whitney setti á laggirnar til að
vekja fólk til vitundar um mansal og
sanngjarna viðskiptahætti.
Þegar hún var 22 ára gömul gekk
Whitney til liðs við teymi fólks sem
vann að smíði stefnumótaforritsins
vinsæla Tinder. Sagan segir að
Whitney hafi átt hugmyndina að
nafni forritsins en hún fékk titil að-
stoðar-markaðsstjóra og átti m.a.
stóran þátt í miklum vinsældum
Tinder á meðal fólks á háskólaaldri.
Árið 2014, aðeins tveimur árum
eftir að Tinder fór í loftið, kvaddi
Whitney fyrirtækið og síðar sama
ár höfðaði hún mál gegn fyrir-
tækinu vegna meintrar áreitni sem
hún þurfti að þola af hálfu yf-
irmanns síns í kjölfar þess að slitn-
aði upp úr ástarsambandi þeirra. Að
sögn Forbes og Business Insider
komust Tinder og Whitney að sátt
um að leysa málið með því að greiða
henni rösklega eina milljón dala í
bætur og gefa henni að auki eign-
arhlut í stefnumótaforritinu.
Til viðbótar við það álag og óvissu
sem fylgdi málarekstrinum þurfti
Whitney að sitja undri skítkasti í
netheimum. Frekar en að láta bug-
ast sótti Whitney innblástur í þessa
reynslu og fór að leggja drög að
nýjum samfélgasmiðli þar sem kon-
ur væru í bílstjórasætinu. Hún fékk
til liðs við sig Andrey Andreev,
stofnanda stefnumótavefsins Badoo,
og eftir þreifingar og þróunarvinnu
varð Bumble til í árslok 2014. Ári
síðar voru notendur Bumble orðnir
15 milljónir talsins og hefur not-
endahópurinn vaxið með ógnar-
hraða síðan þá.
Hellisbúunum haldið í skefjum
Sérstaða Bumble er að þar ráða
konur ferðinni. Forritið er notað
bæði af gagnkynhneigðum og sam-
kynhneigðum, en ef karl og kona
tengjast þá er það á valdi konunnar
að senda fyrsta skeytið. Karlinn
verður að bíða rólegur þangað til
konan tekur frumkvæðið.
Þær konur sem notað hafa
stefnumótaforrit vita að það getur
verið allt annað en ánægjulegt ef
skilaboðin hrúgast inn frá alls konar
körlum. Blanda af skorti á tilfinn-
ingagreind og blindandi greddu
virðist gera suma karla að óalandi
skítseiðum sem nota stefnumóta-
forritin til að atast í konum og
áreita þær, en með því að gefa kon-
um valdið tókst Whitney að leysa
þennan vanda og skapa þægilegt
umhverfi fyrir konur í leit að
stefnumóti.
Með þessum leikreglum vildi
Whitney líka frelsa kvenþjóðina frá
hefðbundnum kynjahlutverkum þar
sem körlum er innrætt að þeir þurfi
að stíga fyrsta skrefið á meðan kon-
um er kennt að þær verði að bíða
með hendur í vösum þar til karlinn
lætur til skarar skríða. „Þessar
óskrifuðu reglur setja konuna skör
lægra en karlinn,“ sagði Whitney í
viðtali við Vanity Fair. „Ef við los-
um karlinn við þennan þrýsting og
færum konunni meira vald þá erum
við að taka skref í rétta átt, sér-
staklega frá femínísku sjónarhorni.“
Til að gera gott forrit enn betra
var þeim eiginleika bætt við Bumble
að geta gert þar vinaleit, þ.e.a.s. að
finna fólk á svipaðri bylgjulengd til
þess að stækka vinahópinn. Þá er
líka hægt að nota Bumble til að
styrkja faglega tengslanetið og
kynnast fólki með starfs- og við-
skiptamöguleika að leiðarljósi.
Þegar útboðsgögn Bumble voru
birt í janúar notuðu um 42 milljónir
manna forritið í mánuði hverjum og
Bumble var orðið næstvinsælasta
stefnumótaforrit Bandaríkjanna á
eftir Tinder.
Á fyrsta degi viðskipta með hluta-
bréf Bumble, skömmu fyrir Valent-
ínusardaginn, hækkaði markaðs-
virði félagsins um 64% en hefur
fikrast hægt niður á við síðan þá.
Er heildarvirði hlutabréfa Bumble
rösklega 9,1 milljarður dala þegar
þetta er skrifað og samkvæmt út-
reikningum Forbes eru auðæfi
Whitney metin á 1,2 milljarða dala.
Konur undir smásjá
Skemmtilegast af öllu er að það
fer ekki á milli mála að Whitney er
bara rétt að byrja. Hún er komin á
góðan stað í lífinu og ætlar að nota
áhrif sín til að ryðja brautina fyrir
kynsystur sínar. Þannig notaði hún
tækifærið á viðburði sem Wall
Street Journal efndi til í maí síðast-
liðnum til að benda á að frammi-
staða kvenna í stjórnendastöðum í
bandarísku atvinnulífi virðist ekki
vera metin með sömu mælistiku og
frammistaða karlanna:
„Ég er orðin dauðþreytt á því
hvernig margar konur hafa verið
látnar hverfa úr fyrirtækjunum sem
þær komu á laggirnar,“ sagði hún
og nefnir WSJ þessu til stuðnings
ófarir kvenstjórnendanna Steph Ko-
rey, fyrrverandi stjórnanda ferða-
töskubúðarinnar Away, og Audrey
Gelman, stofnanda kvennaklúbba-
keðjunnar Wing, en báðar þurftu að
taka pokann sinn eftir að sætt
gagnrýni vegna stjórnunarhátta
sinna. „Ekki henda konum út á
gaddinn bara vegna þess að ein-
hverjum er gramt í geði vegna
hegðunar sem karlmenn myndu
aldrei vera skammaðir fyrir,“ sagði
Whitney og minntist þess hversu
þröngt einstigi hún þurfti að feta
sem kona í forstjórastólnum: „Störf
mín vor undir smásjá og rýnt í allt
sem hugsast gat. Öllum stundum
var einhver að snuðra. Það er til-
finningalega lamandi og fullkomlega
ósanngjarnt.“
Ekkert fær stöðvað Whitney
Ásgeir Ingvarsson
skrifar frá Mexíkóborg
ai@mbl.is
Stofnandi stefnmótavefs-
ins Bumble varð millj-
arðamæringur fyrr á þessu
ári og er mjög í mun að
rétta hlut kvenna í stjórn-
endastétt.
Joe Scarnici / GETTY IMAGES / AF
Það gustar af Whitney Wolfe Herd og verður gaman að fylgjast með
framlagi hennar á komandi árum. Fleiri mættu vera eins og hún.
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
vinnuföt fást einnig í
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000
Sterkari
saman
í sátt við
umhverfið
Atvinna