Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
555 6677 | umb.is | Korngörðum 5, Reykjavík
TRAUST
ÞJÓNUSTA
VIÐ ÍSLENSKAN SJÁVARÚTVEG Í ÁRATUGI
Til hamingju
með daginn
sjómenn!
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
M
erking og innihald sjó-
mannadagsins hefur
kannski breyst í ár-
anna rás, frá því hon-
um var komið á lagg-
irnar. Það hefur gerst samhliða
þeim breytingum sem hafa orðið í
greininni og ekki síður í þjóðfélag-
inu. Í mínum huga, og eflaust
flestra sem rekja uppruna sinn til
sjávarplássa og eru í mínum aldurs-
hópi, þá er þetta dagur sem hefur
yfir sér mikinn hátíðarblæ. Dagur
sem er gríðarlega mikilvægur.
Hann er ekki bara til heiðurs sjó-
mönnunum sjálfum heldur einnig
fjölskyldum þeirra sem saman lögðu
grunninn undir það þjóðfélag sem
Íslendingar nútímans búa við,“ seg-
ir Kristján.
Hann telur daginn gott tilefni til
að líta um öxl og minnast þess hve
mikið starf stéttarinnar hefur
breyst. Öryggismálum er betur
sinnt, allur aðbúnaður betri og fjar-
skipti orðin langtum betri en tíðk-
aðist fyrir fáum árum. „Það er því
margt sem hefur batnað til muna en
það er þó eitt sem breytist aldrei og
það er fjarvera frá nánasta fólki og
aðgengi að samfélagslegri þjónustu
er allt annað en aðrir búa við.“
Kristján talar af persónulegri
reynslu en hann var við sjómennsku
um árabil og segir það hafa verið
náttúrulegan farveg fyrir ungan
einstakling í sjávarþorpinu þar sem
hann ólst upp, Dalvík í Eyjafirði.
„Dalvík city eins og við köllum það.
Þetta er miðpunktur alheimsins
eins og allir vita. Þar ólst maður
upp við það að allt sem átti sér stað
í bæjarfélaginu tengdist sjónum
með einum eða öðrum hætti. Fjöl-
skylda mín, bæði í föður- og móð-
urætt, hafði rík tengsl við sjóinn og
þá dregst maður bara ósjálfrátt með
inn í þetta,“ segir hann og fer að
rifja upp æskuminningar.
Mýkri en þeir vilja vera láta
„Ég fékk að fljóta með á árabát á
grásleppu með Kidda gamla á Mið-
koti þegar maður var bara pjakkur.
Trilluni Bjarma úr Efstakoti sömu-
leiðis. Maður var mikið hjá pabba
og körlunum á netaverkstæðinu.
Svo fer maður á sjó sjálfur, í fyrsta
sinn á togara á sextánda aldursári
og var þar svo öll sumur í gegnum
alla skóla.
En sjómennskan er þannig að
þegar maður fer ungur inn í þetta
ríður á svo miklu hvernig áhöfnin
tekur við svona einstaklingi sem
kemur óharðnaður um borð, eins og
ég var. Þar voru mér eldri menn,
allnokkrum árum og líka töluvert
eldri. Maður fann það bara hvernig
manni var tekið af þessum körlum,
þeir kenndu manni og fóstruðu
mann á meðan maður kunni nánast
ekkert í þessum fyrstu túrum. Þess-
ir jaxlar taka utan um mann og
koma þér til manns og eru miklu
mýkri menn en þeir vilja vera láta.“
Kristján lauk skipstjórnarprófi
frá Stýrimannaskólanum í Reykja-
vík 1978 og starfaði sem stýrimaður
og skipstjóri, vann sem kennari við
Stýrimannaskólann á Dalvík auk
þess sem hann lauk námi í íslensku
og almennum bókmenntum auk
kennsluréttinda. „Ég var búinn að
ráða mig sem skipstjóra á togbát
1986 þegar ég sótti um starf bæj-
arstjóra heima á Dalvík og fékk það.
Frá þeim tíma er ég búinn að vera í
þessu pólitíska þjarki.“
Saknarðu sjómennskunnar?
„Oft er það já. Það er margt í
starfi sjómannsins sem maður sakn-
ar. Veiðin, samfélagið um borð og
nábýlið við náttúruna sem er ríkur
þáttur í starfi sjómannsins og mað-
ur lærir fljótt að bera virðingu fyrir
henni.“ Þá segir Kristján einnig að
um borð í fiskiskipi sé að finna
mikla samheldni og liðsheild. „Það
sem er sérstakt við sjómennsku er
að það er einhver vitund um það í
hverju skipi að áhöfnin verður að
vinna saman til þess að árangurinn
af starfinu verði sem mestur.“
Fátt betra en sumarnótt á trillu
Eins og flestum er orðið kunnugt
mun Kristján láta af störfum í
haust, en hann tilkynnti í mars að
hann myndi ekki sækjast eftir end-
urkjöri í komandi alþingiskosn-
ingum. Víða er fólk að spá hvað
kunni að taka við er Kristján hverf-
ur af þingi, sjálfur kveðst hann ekki
hafa gert upp hug sinn og er því
blaðamaður knúinn til að nota úti-
lokunaraðferðina og spyrja hvort
komi til greina að snúa aftur á sjó.
„Það getur vel verið. Ég er ekki
með nein plön um það. Það eina sem
ég er búinn að ákveða með sjálfum
mér er að ráða dagskrá morg-
undagsins sem ég hef ekki gert í
langan tíma. Ég er ekki búinn að
ákveða neitt en ég mun aldrei úti-
loka það að fara eitthvað til sjós, en
ég myndi ekki gera það af sama
krafti og í fyrri tíð.“
En heilla kannski strandveiðar?
„Strandveiðar eru hörkuvinna.
Þetta er ekki alltaf sól og sléttur
sjór. Strandveiðar eru puð ef menn
ætla að hafa af þeim almennilega af-
komu. En á trillu í fallegri sum-
arnótt; það er fátt fallegra og
betra.“
Ekki tekist að gera hreint
fyrir sínum dyrum
Í þjóðfélagsumræðunni um sjávar-
útveg hefur undanfarin tæp tvö ár
verið efst á baugi, mál Samherja;
framganga fyrirtækisins í Namibíu
sem og hér á landi. Kristján hefur
ekki einungis verið ráðherra sjáv-
arútvegsmála á þessum tíma heldur
hefur sjálfur setið undir ásökunum
og gagnrýni.
Spurður hvernig staða mála og
umræðan blasi við sér svarar Krist-
ján: „Það er ákaflega dapurt, svo
ekki sé sterkara að orði kveðið, að
horfa upp á þessa stöðu sem hefur
byggst upp í kringum þetta ágæta
fyrirtæki. Ég sagði það strax þegar
þetta mál hófst að forsvarsmenn
þess yrðu að ganga fram fyrir
skjöldu og greina þessa stöðu og
gera hreint fyrir sínum dyrum. Ég
held að flestir sem fylgjast með
þessari umræðu geti verið sammála
um að það hafi fyrirtækinu ekki tek-
ist enn þann dag í dag.
Ég hef í þessari umræðu verið
samsamaður viðbrögðum fyrir-
tækisins við þessu máli. Í pólitík er
ekkert spurt um hvort það sé sann-
gjarnt eða ekki, en ég hef frá fyrsta
degi lagt mig fram um að svara
þeim spurningum sem að mér hefur
verið beint. Þau svör hafa meira
snert fyrri aðkomu mína að fyrir-
tækinu, þá helst þá staðreynd að ég
sat þarna í stjórn fyrir rúmlega
tveimur áratugum, en ekki þær
ásakanir sem hafa komið fram á
hendur fyrirtækinu enda þekki ég
þau mál ekki neitt.“
Ráðherrann segir sér þykja vont
hvernig umræðan um Samherja
smitar út frá sér og hefur áhrif á
heila atvinnugrein. „Eins frábærum
árangri og íslenskur sjávarútvegur
hefur náð á undanförnum árum og
áratugum, þá felur þessi staða í sér
að hún veikir tiltrú fólks til sjáv-
arútvegsins sem er mjög slæmt.“
Markmiðið að bæta
íslenskt samfélag
Eins og fyrr segir hóf Kristján
stjórnmálaferilinn 1986 og hefur
gegnt opinberum embættum í 35 ár.
Má í því samhengi nefna starf bæj-
arstjóra á Dalvík, Ísafirði og Ak-
ureyri auk þess sem hann hefur ver-
ið ráðherra menntamála,
heilbrigðismála og sjávarútvegs- og
landbúnaðarmála.
„Það sem mér finnst standa upp
úr er að hafa fengið tækifæri til að
vinna með mörgu góðu fólki og
kynnast enn fleira fólki, viðhorfum
þess og að vinna fyrir það. Það er
alltaf erfitt að leggja dóm á eigin
verk og betra að annað fólk leggi
mat á það. Það eru orðin, eðli máls-
ins samkvæmt, mörg verkefni sem
ég hef komið að þar sem ég hef unn-
ið með það sem meginmarkmið að
bæta íslenskt þjóðfélag, bæta lífs-
gæði Íslendinga, hvort sem það er í
sveitarfélögum eða á landsvísu.
Þannig að ég mun ganga þakklátur
og stoltur af mínum verkum frá
borði þegar að því kemur,“ segir
Kristján að lokum.
Saknar margs úr starfi sjómannsins
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mun láta af embætti í haust enda sækist hann
ekki eftir endurkjöri. Hann segist ganga þakklátur og stoltur frá borði og kveðst ekki vita hvað taki nú við.
Kristján saknar oft sjómennskunnar og kveðst ekki útiloka að hann snúi aftur til sjós.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Það er einhver vitund um það í
hverju skipi að áhöfnin verður að
vinna saman til þess að árangurinn
af starfinu verði sem mestur.“
Kristján um borð í togaranum Blika EA í byrjun 9. áratugarins.