Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is K eilir er 496 brúttótonn, 46 metra langur og tæplega 10 metrar á breidd. Skip- ið siglir til Ólafsvíkur, Grundarfjarðar, Patreks- fjarðar, Ísafjarðar, Vopnafjarðar, Þórshafnar, Hafnar í Hornafirði og Vestmannaeyja, að viðbættum fleiri höfnum þegar aðstæður kalla eftir því. Jafnframt afgreiðir Keilir elds- neyti til skemmtiferðaskipa, fiski- skipa og flutningaskipa. Áhafnarlisti Keilis: Ómar Norðdal skipstjóri, Einar Ó. Magnússon (skipstjóri á móti Ómari), Hlynur Örn Sigurðsson, Birgir Axelsson, Þorsteinn Baldvinsson og Ríkharður Bjart- ur Freysteinsson auk afleysinga- manna á sumrin. Keilir er með átta aðskilda geyma og sér- dælukerfi og hitunarbúnað fyrir hvern geymi. „Þetta eykur allt öryggi með meðhöndlun eldsneytis og gefur möguleika á að flytja mis- munandi tegundir samtímis án þess að skapa hættu á blöndun. Keilir getur einnig flutt og afgreitt bensín sem er sérkrafa frá okkur en ekki algilt að jafn lítil skip séu þannig útbúin,“ segir Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Olíudreifingar, eiganda skipsins. Meginstarfsemi Olíudreifingar er dreifing og birgðahald á fljótandi eldsneyti fyrir eigendur sína N1 hf. og Olíuverslun Íslands hf., og eru aðalstöðvar þess við Hólmaslóð í Ör- firisey í Reykjavík. Þar eru birgða- tankar félagsins og olíuskipin eru afgreidd við Eyjagarð. Það var hinn 12. febrúar 2019 að hið nýja skip Olíudreifingar kom til hafnar í Reykjavík eftir 4.200 sjó- mílna siglingu heim frá Adana í Tyrklandi, þar sem skipið var smíð- að í Akdeniz-skipamsíðastöðinni. Skipinu var gefið nafnið Keilir, sem er nafn í eigu Olíudreifingar og skip félagsins, sem smíðað var í Kína 2002, bar. Keilir leysti af hólmi mt. Laugarnes sem verið hafði í eigu Ol- íudreifingar frá 1998. Fjórða tankskipið Samningur um smíði nýs skips var undirritaður í Reykjavík 16. janúar 2018 og er skipið smíðað samkvæmt hönnun skipasmíðastöðvarinnar en Keilir er fimmta skipið sem smíðað er samkvæmt þessari sömu teikn- ingu. Keilir er jafnframt fjórða tankskipið sem smíðað er fyrir ís- lenska útgerð. Áður höfðu Stapafell I og Stapafell ll verið smíðuð fyrir Olíufélagið og Skipadeild Sam- bandsins á árunum 1962 og 1979 og siðan fyrri Keilir fyrir Olíudreifingu í Shanghai árið 2002. Samtals hafa ellefu olíuflutningaskip verið í eigu Íslendinga og eru þá undanskildir bátar. Það hafði legið fyrir í nokkur ár að endurnýja þyrfti Laugarnesið, segir Hörður. Laugarnesið, sem er smíðað 1978, var komið á mikið við- haldsstig auk þess að vera í raun vanbúið í það mikilvæga verkefni sem eldsneytisflutningar með ströndum landsins krefjast. Því var ákveðið að leita að skipa- smíðastöð sem gæti smíðað nýtt skip frá grunni þar sem tekið væri tillit til sérþarfa fyrir íslenskar að- stæður. „Skipamsíðastöðin Akdeniz í Ad- ana í Tyrklandi var strax ofarlega á blaði, ekki síst vegna þess að við höfðum skoðað skip Malik Supply í Danmörku sem smíðað var hjá þeim sem og að við höfum fylgst með smíði sams konar skips og Keilir hjá Akdeniz fyrir norska fyrirtækið Bunker Oil. Eftir að fyrir lágu til- boð frá öðrum stöðvum var ljóst að þetta væri besti kosturinn í stöð- unni. Við leituðum því tilboða hjá Akdeniz í smíði nýs skips þar sem tekið var tillit til allra sérþarfa okk- ar, s.s. að geta flutt allar tegundir skipaeldsneytis sem hér eru á markaði að viðbættu bensíni og JET A1,“ segir Hörður. Hann tekur fram að samskiptin við Akdeniz-skipasmíðastöðina hafi allan tímann verið mjög góð. Tíma- áætlanir stóðust með ágætum og ekki leið nema um ár frá því að skrifað var undir samninginn og þar til skipið var afhent til heimferðar Keilir er smíðaður samkvæmt hönnun skipasmíðastöðvarinnar með smávægilegum breytingum og viðbótum af hálfu Olíudreifingar. Hannað fyrir aðstæður hér „Keilir er vel búið skip, hannað fyrir íslenskar og norðlægar aðstæður þar sem tekið er fullt tillit til þarfa okkar. Við hönnun Keilis er litið til framfara í öryggismálum sem felast í því að í skipinu eru tvær aðalvélar með tveimur stýrum og tveimur skrúfum auk þess sem botn og byrðingur eru tvöfaldir. Allt eru þetta atriði sem eru mikil framfara- skref frá fyrra skipi svo ekki sé minnst á stóraukna afkastagetu sem sjá má í stórauknum ganghraða ásamt auknum dæluafköstum og burðargetu,“ segir Hörður að lok- um. Til að auka sjóhæfnina enn frekar er áformað að setja velti- tanka í skipið við næstu slipptöku. Sem fyrr segir tók Keilir við hlut- verki Laugarnessins sem olíuskip Olíudreifingar, en Laugarnesið er enn í íslenska flotanum. Sjótækni ehf. á Tálknafirði keypti skipið og fékk það nafnið Assa BA. Það er notað sem alhliða vinnuskip, svo sem við lagningu sæstrengja, dýpk- unarframkvæmdir og önnur verk- efni sem til falla. Assa er 315 brúttó- lesta stálskip, smíðað í Danmörku 1978. Skipið var lengt 1998. Morgunblaðið/sisi Keilir kom nýr til landsins árið 2019 og er eina olíuskipið í íslenska flotanum. Það flytur að jafnaði olíu og bensín til átta byggðakjarna vítt og breitt um landið og sparar þannig gífurlegt slit á vegunum. Sparar slit á þjóðvegum landsins Morgunblaðið/Eggert Ómar Norðdal skipstjóri og Birgir Axelsson vélstjóri um borð í Keili. Skipið liggur hér við Eyjagarð í Örfirisey. Í íslenska flotanum er aðeins eitt olíuskip, Keilir. Skipið kom til landsins í febrúar 2019 og hefur síðan siglt á hafnir landsins með olíu og bensín. Keilir tekur 750 þúsund lítra í hverri ferð og því er óhætt að segja að hann hafi sparað mikið slit á þjóðvegum landsins á þeim tíma sem hann hefur þjónað Íslendingum. Ef Keilis nyti ekki við hefði þurft að flytja alla olíu með olíubílum. Hörður Gunnarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.