Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 35 Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is S taðsetning Íslands í Atlantshafinu veldur því að landið er við straumamót heitra og kaldra haf- strauma. Fram kemur í nýútkominni og ítarlegri skýrslu Hafrannsóknastofnunar að megineinkenni íslenska hafsvæðisins sé sá breytileiki sem hér ríkir vegna áhrifa úr bæði suðri og norðri. Guðmundur J. Óskarsson var ritstjóri skýrslunnar og sá um að kynna niðurstöður hennar en alls voru 33 höfundar að skýrsl- unni. Þar segir einnig að umhverfisbreytingar síðustu tvo áratugi megi að mestu leyti rekja til breytinga á hafstraumum sem hafa borið upp að landinu heitari og saltari Atl- antssjó í meiri mæli en áður. Breytingarnar hafa skilað sér norður fyr- ir land með streymi hlýsjós þangað. Þessar breytingar eru einkum raktar til nátt- úrulegra sveiflna en ekki breytinga á lofts- lagi af mannavöldum. Niðurstöður skýrsluhöfunda eru að svip- aðra sveiflna megi vænta í framtíðinni en til lengdar munu áhrif loftslagsbreytinga hafa meira að segja. Leiddar eru líkur að því að við séum stödd í hlýindaskeiði sem muni halda áfram næstu tuttugu árin. „Svo er líka ein sviðsmynd sem gerir ráð fyrir að það geti orðið veruleg kólnun líkt og gerðist á hafísárunum,“ sagði Guð- mundur í kynningu sinni. Hafísárin stóðu um það bil frá 1965 til 1970. „Það hefur orðið mikil uppsöfnun á fersk- vatni í Beufort-hvirflinum í Norður-Íshafinu sem eru svipaðar aðstæður og voru fyrir þessi köldu ár. Ef hæðin yfir Norður- Íshafinu gefur eitthvað eftir gæti þessi kaldi sjór streymt út og komið inn á Ís- landsmið. Það er ein sviðsmyndin,“ sagði Guðmundur. Súrnun sjávar veruleg ógn Niðurstöður skýrslunnar leiða í ljós að vegna lágs hitastigs, lítillar kalkmettunar og hraðra breytinga felst veruleg ógn í súrnun sjávar fyrir lífríki og vistkerfi í haf- inu við Ísland. Möguleg áhrif eru að vaxtarskilyrðum kalkmyndandi þörunga yrði ógnað sem og að tegundasamsetning svifþörunga gæti breyst. Þá er súrnun sjávar ógn við kalk- myndandi lindýr og skrápdýr eins og ígul- ker. Almennt er gert ráð fyrir að með lækk- andi sýrustigi lækki kalkmettunarstig. Óvarið kalk gæti því leyst upp. Umhverfisbreytingar í hafinu má einkum rekja til hafstrauma Ítarleg skýrsla Hafrannsóknastofnunar um stöðu umhverfis og vist- kerfa í hafinu við Ísland og horfur næstur áratuga var kynnt í vikunni. Tildrög hennar er ákvörðun sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að veita fé í gerð skýrslu um stöðu vistkerfa Íslandsmiða. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ljósmynd/Björn Jónasson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.