Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
K
eilir er 496 brúttótonn, 46
metra langur og tæplega
10 metrar á breidd. Skip-
ið siglir til Ólafsvíkur,
Grundarfjarðar, Patreks-
fjarðar, Ísafjarðar, Vopnafjarðar,
Þórshafnar, Hafnar í Hornafirði og
Vestmannaeyja, að viðbættum fleiri
höfnum þegar aðstæður kalla eftir
því. Jafnframt afgreiðir Keilir elds-
neyti til skemmtiferðaskipa, fiski-
skipa og flutningaskipa.
Áhafnarlisti Keilis: Ómar Norðdal
skipstjóri, Einar Ó. Magnússon
(skipstjóri á móti
Ómari), Hlynur
Örn Sigurðsson,
Birgir Axelsson,
Þorsteinn
Baldvinsson og
Ríkharður Bjart-
ur Freysteinsson
auk afleysinga-
manna á sumrin.
Keilir er með
átta aðskilda
geyma og sér-
dælukerfi og hitunarbúnað fyrir
hvern geymi. „Þetta eykur allt
öryggi með meðhöndlun eldsneytis
og gefur möguleika á að flytja mis-
munandi tegundir samtímis án þess
að skapa hættu á blöndun. Keilir
getur einnig flutt og afgreitt bensín
sem er sérkrafa frá okkur en ekki
algilt að jafn lítil skip séu þannig
útbúin,“ segir Hörður Gunnarsson,
framkvæmdastjóri Olíudreifingar,
eiganda skipsins.
Meginstarfsemi Olíudreifingar er
dreifing og birgðahald á fljótandi
eldsneyti fyrir eigendur sína N1 hf.
og Olíuverslun Íslands hf., og eru
aðalstöðvar þess við Hólmaslóð í Ör-
firisey í Reykjavík. Þar eru birgða-
tankar félagsins og olíuskipin eru
afgreidd við Eyjagarð.
Það var hinn 12. febrúar 2019 að
hið nýja skip Olíudreifingar kom til
hafnar í Reykjavík eftir 4.200 sjó-
mílna siglingu heim frá Adana í
Tyrklandi, þar sem skipið var smíð-
að í Akdeniz-skipamsíðastöðinni.
Skipinu var gefið nafnið Keilir, sem
er nafn í eigu Olíudreifingar og skip
félagsins, sem smíðað var í Kína
2002, bar. Keilir leysti af hólmi mt.
Laugarnes sem verið hafði í eigu Ol-
íudreifingar frá 1998.
Fjórða tankskipið
Samningur um smíði nýs skips var
undirritaður í Reykjavík 16. janúar
2018 og er skipið smíðað samkvæmt
hönnun skipasmíðastöðvarinnar en
Keilir er fimmta skipið sem smíðað
er samkvæmt þessari sömu teikn-
ingu. Keilir er jafnframt fjórða
tankskipið sem smíðað er fyrir ís-
lenska útgerð. Áður höfðu Stapafell
I og Stapafell ll verið smíðuð fyrir
Olíufélagið og Skipadeild Sam-
bandsins á árunum 1962 og 1979 og
siðan fyrri Keilir fyrir Olíudreifingu
í Shanghai árið 2002. Samtals hafa
ellefu olíuflutningaskip verið í eigu
Íslendinga og eru þá undanskildir
bátar.
Það hafði legið fyrir í nokkur ár
að endurnýja þyrfti Laugarnesið,
segir Hörður. Laugarnesið, sem er
smíðað 1978, var komið á mikið við-
haldsstig auk þess að vera í raun
vanbúið í það mikilvæga verkefni
sem eldsneytisflutningar með
ströndum landsins krefjast.
Því var ákveðið að leita að skipa-
smíðastöð sem gæti smíðað nýtt
skip frá grunni þar sem tekið væri
tillit til sérþarfa fyrir íslenskar að-
stæður.
„Skipamsíðastöðin Akdeniz í Ad-
ana í Tyrklandi var strax ofarlega á
blaði, ekki síst vegna þess að við
höfðum skoðað skip Malik Supply í
Danmörku sem smíðað var hjá þeim
sem og að við höfum fylgst með
smíði sams konar skips og Keilir hjá
Akdeniz fyrir norska fyrirtækið
Bunker Oil. Eftir að fyrir lágu til-
boð frá öðrum stöðvum var ljóst að
þetta væri besti kosturinn í stöð-
unni. Við leituðum því tilboða hjá
Akdeniz í smíði nýs skips þar sem
tekið var tillit til allra sérþarfa okk-
ar, s.s. að geta flutt allar tegundir
skipaeldsneytis sem hér eru á
markaði að viðbættu bensíni og
JET A1,“ segir Hörður.
Hann tekur fram að samskiptin
við Akdeniz-skipasmíðastöðina hafi
allan tímann verið mjög góð. Tíma-
áætlanir stóðust með ágætum og
ekki leið nema um ár frá því að
skrifað var undir samninginn og þar
til skipið var afhent til heimferðar
Keilir er smíðaður samkvæmt
hönnun skipasmíðastöðvarinnar
með smávægilegum breytingum og
viðbótum af hálfu Olíudreifingar.
Hannað fyrir aðstæður hér
„Keilir er vel búið skip, hannað fyrir
íslenskar og norðlægar aðstæður
þar sem tekið er fullt tillit til þarfa
okkar. Við hönnun Keilis er litið til
framfara í öryggismálum sem felast
í því að í skipinu eru tvær aðalvélar
með tveimur stýrum og tveimur
skrúfum auk þess sem botn og
byrðingur eru tvöfaldir. Allt eru
þetta atriði sem eru mikil framfara-
skref frá fyrra skipi svo ekki sé
minnst á stóraukna afkastagetu sem
sjá má í stórauknum ganghraða
ásamt auknum dæluafköstum og
burðargetu,“ segir Hörður að lok-
um. Til að auka sjóhæfnina enn
frekar er áformað að setja velti-
tanka í skipið við næstu slipptöku.
Sem fyrr segir tók Keilir við hlut-
verki Laugarnessins sem olíuskip
Olíudreifingar, en Laugarnesið er
enn í íslenska flotanum. Sjótækni
ehf. á Tálknafirði keypti skipið og
fékk það nafnið Assa BA. Það er
notað sem alhliða vinnuskip, svo
sem við lagningu sæstrengja, dýpk-
unarframkvæmdir og önnur verk-
efni sem til falla. Assa er 315 brúttó-
lesta stálskip, smíðað í Danmörku
1978. Skipið var lengt 1998.
Morgunblaðið/sisi
Keilir kom nýr til landsins árið 2019 og er eina olíuskipið í íslenska flotanum. Það flytur að jafnaði olíu og bensín til átta byggðakjarna vítt og breitt um landið og sparar þannig gífurlegt slit á vegunum.
Sparar slit á þjóðvegum landsins
Morgunblaðið/Eggert
Ómar Norðdal skipstjóri og Birgir Axelsson vélstjóri um borð í Keili. Skipið liggur hér við Eyjagarð í Örfirisey.
Í íslenska flotanum er aðeins eitt olíuskip, Keilir. Skipið kom til landsins í febrúar 2019 og hefur síðan siglt á hafnir landsins með
olíu og bensín. Keilir tekur 750 þúsund lítra í hverri ferð og því er óhætt að segja að hann hafi sparað mikið slit á þjóðvegum
landsins á þeim tíma sem hann hefur þjónað Íslendingum. Ef Keilis nyti ekki við hefði þurft að flytja alla olíu með olíubílum.
Hörður
Gunnarsson