Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is V ið erum í upphafinu á tæknibyltingu og menn eru að átta sig á því, með það í huga að við erum á þröskuldi fjórðu iðnbyltingarinnar og sjálf- virknivæðingarinnar, að við þurfum að endurhugsa bolfiskvinnlu og svona fjárfest- ingar eru til þess fallnar að hefja þá vegferð,“ segir Guðmundur H. Gunn- arsson, nýsköpunarstjóri hjá Skinney-Þinganesi. Hann segir að með fjár- festingum í nýjum vinnslu- búnaði í samstarfi við Marel undanfarin ár sé verið að sækjast eftir því að auka af- köst. „Þannig að hægt sé að vinna meira magn á hag- kvæmari hátt og hin breyt- an í þessu er að það er verið að auka sérhæfni, að það sé hægt að vinna á skilvirkan hátt fjölbreyttari vörur. Hugmyndafræðin er ekki einungis að auka magn heldur einnig að auka verðmætin á hvert kíló, því eins og við vitum er auðlindin takmörkuð.“ Umfangsmikil fjárfesting Fjárfesting í hátæknibúnaði skiptir hundr- uðum milljóna króna og segir Guðmundur um að ræða langtímafjárfestingar sem ná í gegn um alla virðiskeðjuna. „Það má í raun og veru segja að fyrsta skrefið okkar hafi verið endur- skipulagning og síðan aukin sjálfvirknivæðing um borð í veiðiskipunum okkar. Til að fara í svona stefnumótandi breytingu eins og þessa, að fara að vinna bolfisk í betri afurðir, þarf að byrja fremst í keðjunni. Þessi tækni kom fyrst í landi og opnaði ein- hvern glugga, en vegna þess að við vorum ekki alveg fyrstir þar gafst okkur tækifæri til að líta heildstætt á virðiskeðjuna. Fyrsta fjárfestingin okkar var breyting og stækkun togskipanna okkar og þar hefjum við vinnsluna. Þar er myndgreiningarbúnaður og sjálfvirk flokkun á fiski þannig að vinnslutækin í landi geta gert sem mest úr hráefninu. Við erum að tala um stórar fjarfestingar í gegnum alla virðiskeðj- una.“ Hann segir að í bolfiskvinnslu sé Skinney- Þinganes að stíga inn í aðra öld. „Það má segja að hugsunin sé að snúa frá því að vera frum- framleiðandi á hráefni sem dreift er um heim- inn yfir í að verða framleiðandi á vörum sem eru tilbúnar fyrir neytendamarkaðinn.“ Opnar á ný sóknarfæri Það er hins vegar ekki lítið mál að hefja þann feril að breyta allri aðferðafræðinni, að sögn Guðmundar sem segir hafa verið mikilvægt að geta átt gott samstarf við Marel um verkefnin og áframhaldandi þróun á búnaði. „Að hefja þessa vegferð hefur í raun opnað á endalaust ný sóknarfæri og til að þetta takist er lykilatriði að notendur þessa búnaðar frá Marel séu í þéttu samstarfi við Marel um þróunina og hvernig megi gera enn betur.“ Spurður hvort það sé áskorun fyrir starfs- fólk fyrirtækisins að mæta tæknivæddara vinnuumhverfi svarar Guðmundur: „Áherslur breytast og störfin, sem er jákvætt. Fólk í sjáv- arútvegi er mjög tilbúið að mennta sig og afla sér þekkingar. Störfum fækkar ekki endilega í sjávarútvegi en þau verða sérhæfðari.“ Þá fylgi breytingum á vinnslulínum töluverðar umbæt- ur í vinnuumhverfinu, að sögn Guðmundar. „Það er markvisst hugað að betri lýsingu, betri hljóðvist og betri vinnuaðstæðum. Það styttist í að hægt verði að hengja upp málverk í vinnslu- salnum og labba inn á inniskónum.“ Á undanförnum árum hefur Skinney-Þinganes, í samstarfi við Marel, fjárfest töluvert í tæknivæð- ingu fiskvinnslu fyrirtækisins á Krossey í Hornafirði og er um að ræða bæði tæki og hugbúnað. Nú síðast í apríl á þessu ári var gengið frá samningum við Marel um kaup á róbótum sem sjá um pökkun, samval og kassafrátöku og beinaleitunarvél. Uppsetning tækjanna mun fara fram í haust. Ljósmynd/Skinney-Þinganes Fiskvinnsla Skinneyjar-Þinganess í Hornafirði hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og stendur til að setja upp enn fleiri nýjungar. Búnaður í vinnslu Skinneyjar-Þinganess 5 Í júlí 2018 voru fest kaup á Flexicut- kerfi: Flexitim-snyrtilínu, Flexicut- vatnsskurðarvél og Flexisort-flokkara. 5 Annað Flexicut-kerfi keypt í janúar 2020. 5 Í apríl 2021 fóru fram kaup á róbóta- pökkunarlausn: SensorX-beinaleit, þriggja hausa samvalsróbót með sjálfvirkri kassafrátöku. Uppsetning fer fram í september. 5 Hafa innleitt Innova-hugbúnað sem tengir öll kerfi miðlægt og veitir stjórnendum heildaryfirsýn yfir og stjórn á vinnslunni. Vinnslulína í fremstu röð Guðmundur H. Gunnarsson „Sjálfvirkar róbótalausnir eru tiltölulega ný- komnar á markað og rosalega flott að sjá loks- ins róbótalausnirnar í hvítfisknum. Þetta breyt- ir tegund starfa við fiskvinnslu, sparar töluvert af vinnutíma og skilar svo mikilli nákvæmni,“ segir Guðbjörg Heiða Guð- mundsdóttir, fram- kvæmdastjóri fiskiðnaðar hjá Marel. Hún bendir sér- staklega á mikilvægi öflugs samvalskerfis, en það eru róbótar sem velja hvaða bitar af unnum fiski á færi- bandinu fara í hvaða kassa eftir vigt, stærð og ummáli. Þannig sé hægt að stýra bæði hver þyngdin er í hverjum kassa og hvaða tegundir og stærðir af bitum eru valdir saman. „Þannig er maður með færri frávik og aukna möguleika til að framleiða fjölbreyttar vörur sem öllum er pakkað á sama tíma og staðlaðan máta í gegnum róbótana,“ útskýrir Guðbjörg Heiða. Hún segir samstarfið við Skinney-Þinganes hafa gengið mjög vel. „Það er náttúrlega engin endastöð þegar maður er í nýsköpun. Við hverja lausn sem búin er til opnast alltaf nýjar dyr í leiðinni og þetta samstarf mun halda áfram. Ég tel að þegar Skinney-Þinganes er komið inn með róbótakerfið og beinaleitunarvélar auk vatnsskurðvélanna [sem eru þegar komnar upp] sé þetta orðið verksmiðja í fremstu röð þótt víða væri leitað. […] Þetta er svakalega flott vinnsla sem þeir hafa byggt upp á und- anförnum árum.“ Heimamarkaðurinn enn mikilvægur Spurð hvert næsta skref kunni að vera í sam- starfinu svarar Guðbjörg Heiða: „Þá er spurning hvernig við vinnum saman áfram og ég sé fyrir mér að það yrði gaman að ræða frekar þætti sem varða vinnslustýringuna og stafræna þró- un þar. Það er rosalega mikil þróun hjá Marel í stafrænum lausnum og lausnum sem svara sí- aukinni kröfu um sjálfbærni við matvæla- vinnslu. Svo eru alls konar tæki á vöruþróun- arleiðarvísinum okkar. Miðað við hvernig samstarfið hefur verið hingað til sé ég fyrir mér að það haldi áfram að vera sterkt, því báðir að- ilar eru með sterka framtíðarsýn og þora að hugsa út fyrir rammann.“ Marel er orðið stórt fyrirtæki í matvælaiðnaði alþjóðlega, en Guðbjörg Heiða segir það ekki draga úr mikilvægi markaðarins á Íslandi. „Þetta er okkar heimamarkaður. Ég lít svo á að ef þú ert ekki í góðu sambandi við heimamark- aðinn, hvernig ætlarðu þá að spila góðan leik út á við? Íslensku sjávarútvegsfyrirtækin eru gríð- arlega mikilvæg og þau eru framsækin. Þau vilja fjárfesta, þau vilja bjóða yfirburðagæði á erlendum vettvangi enda að selja mest úr landi.“ Þá sé sérstaklega mikilvægt fyrir Marel að eiga viðskiptavini innan fiskiðnaðar sem eru hér á landi þar sem það skapi góðan grundvöll fyrir sameiginlegt vöruþróunarsamstarf sem er báð- um aðilum í hag. Guðbjörg Heiða segir íslensku fyrirtækin móttækileg fyrir vöruþróunarsamstarfi og mjög opin fyrir nýjungum. „Það er mín tilfinning. Eins og í hvítfisknum eru þau mjög opin. Þau vilja auka vöruframboð sitt, vilja bjóða upp á vörur í réttum gæðum og vera leiðandi í sjálfbærni.“ Hugsa út fyrir rammann Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.