Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
B
aldur var smíðaður úr áli af
Vélsmiðju Seyðisfjarðar
sem eftirlits- og sjómæl-
ingabátur fyrir Landhelgis-
gæsluna og var hann sjósettur hinn
14. apríl 1991. Baldur kom svo til
heimahafnar í Reykjavík hinn 12.
maí 1991.
Baldur er tæplega 73 brúttótonn.
Hann er búinn tveimur aðalvélum
og skrúfum og er því mjög lipur í
stjórntökum sem gerir bátinn sér-
lega hentugan í hin ýmsu verkefni,
segir í samantekt á heimasíðu Land-
helgisgæslunnar. Baldur er sérstak-
lega útbúinn til sjómælinga fyrir
sjókortagerð og um borð er m.a.
fjölgeislamælir og fullkominn stað-
setningabúnaður til að uppfylla al-
þjóðlegar kröfur um sjókortagerð.
Um borð í Baldri er einnig léttbátur
búinn dýptarmæli til mælinga á
grynningum og allra næst strönd-
inni. Að öllu jöfnu er fjögurra
manna áhöfn á Baldri en vistarverur
eru fyrir átta manns.
Baldur markaði tímamót
Ásgrímur L. Ásgrímsson, fram-
kvæmdastjóri aðgerðasviðs Land-
helgisgæslunnar og fyrrverandi
skipstjóri á Baldri, segir á heima-
síðu stofnunarinnar að smíði Bald-
urs fyrir þrjátíu árum hafi markað
tímamót fyrir Landhelgisgæsluna.
„Tilkoma Baldurs og þess bún-
aðar sem hann var upphaflega bú-
inn með til sjómælinga og sjókorta-
gerðar gjörbylti þessum vettvangi
fyrir 30 árum. Við það tækifæri
reyndist unnt að hefja kerf-
isbundnar tölvuvæddar mælingar
umhverfis landið og afköst urðu
miklu meiri en áður þekktist. Þar til
að þessum tímamótum kom hafði
þessi vinna farið að mestu eða að
miklu leyti fram handvirkt en með
sjálfvirkninni sem komið var á opn-
aðist fyrir nýja möguleika og vídd-
ir.“ Segir Ásgrímur og bendir á að á
þessum tíma hafi tölvutæknin verið
frumstæð og til að mynda hafi stað-
setningarkerfi með gervitunglum
ekki verið nýtanleg til nákvæmra
staðsetninga.
„Það varð því að koma upp stað-
bundnum staðsetningarkerfum á
þekktum mælistöðvum í landi og því
óhægt um vik að færa verkefnið á
milli svæða. Breyttist mikið eftir því
sem gervihnattakerfin þróuðust og
urðu nákvæmari og tölvurnar hrað-
virkari og afkastameiri.“
Önnur stór breyting varð þegar
fjölgeislamæli var komið fyrir um
borð í Baldri fyrir tæpum 20 árum.
Breytingin umbylti hvernig staðið
var og er að mælingum og uppsetn-
ingu þeirra. „Í sumum tilvikum
tímasparnaður en í öðrum tilvikum
getur nánast fullkomin þekjumæl-
ing hafsbotnsins orðið til þess að
sum margbrotin botnsvæði tekur
lengri tíma að fullmæla m.t.t. al-
þjóðlegra staðla sem lögbundið er
að vinna eftir. Upplýsingarnar eru
hins vegar margfalt umfangsmeiri,
betri og öruggari, þ.e.a.s. ef rétt er
staðið að öllum verkferlum, og því
nauðsynlegt að vanda vel til verka.“
Baldur hélt af stað í árlegt sjó-
mælingaúthald mánudaginn 10. maí
síðastliðinn. Þó svo að meginverk-
efni Baldurs séu dýptarmælingar
fyrir sjókortagerð sinnir hann einn-
ig öðrum verkefnum Landhelg-
isgæslunnar, þar með talið eftirliti,
löggæslu, leit og björgun og aðstoð
ýmiskonar. Má þar nefna að á leið
sinni frá Reykjavík vestur á firði
var Baldur kallaður til aðstoðar
vélarvana smábáti í Faxaflóa og var
sá dreginn til hafnar á Akranesi, að
því er fram kom í frétt á heimasíðu
Gæslunnar.
Í sumar verður áfram haldið með
mælingar við norðanverða Vestfirði,
en skipulegar dýptarmælingar með
fjölgeislamæli í Ísafjarðardjúpi,
Jökulfjörðum og við Hornstrandir
hófust í fyrra.
Fyrstu daga yfirstandandi túrs
var Baldur við mælingar í Hlöðuvík
á Hornströndum en færði sig svo
inn í Ísafjarðardjúp til mælinga í
Ísafirði, innst í Djúpinu, en fjörð-
urinn hefur ekki verið mældur áður.
Fiskibátar í Djúpinu hafa stundað
veiðar í firðinum en sennilega hefur
ekkert skip Landhelgisgæslunnar
áður farið alveg inn í fjarðarbotn.
Ljósmynd/Guðmundur St. Valdimarsson
Sérstakar aðstæður urðu þess valdandi að skip Landhelgisgæslunnar, sjómælingabáturinn Baldur og varðskipin Týr og Þór, mættust í síðasta mánuði í Ísafjarðardjúpi. Þau sigldu hlið við hlið í fallegu veðri.
Við sjómælingar í þrjá áratugi
Ljósmynd/Gæslan
Hjörtur F. Jónsson stýrim., Tryggvi Ólafsson vélstj., Þórður Gíslason kortagerð, Guðm. Birkir Agnarsson skipstjóri, Marteinn
E. Þórdísarson bátsm., Andri Leifsson stýrim., Níels B. Finsen verkefnastjóri og Árni Þ. Vésteinsson deildarstjóri í áhöfn.
Þess var minnst á dögunum að 30 ár voru liðin síðan sjómælingabátnum Baldri var hleypt af stokkunum á Seyðisfirði,
þar sem hann var smíðaður. Báturinn hefur reynst Landhelgisgæslunni afar vel á þeim þrjátíu árum sem hann hefur
verið nýttur til sjómælinga, eftirlits, löggæslu, æfinga og margvíslegra annarra verkefna við strendur landsins.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum