Morgunblaðið - 05.06.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 05.06.2021, Qupperneq 18
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is M atís hefur fjárfest í búnaði til að framkvæma til- raunir, sem mun verða nýttur í rannsóknaaðstöðu sem komið verður upp í fiskimjöls- verksmiðjunni. Stefnt er að því að framkvæma rannsóknir á sviði fiski- mjölsiðnaðar og skoða leiðir til að vinna aðrar og verðmætari afurðir úr því sem nú fer í fiskimjöl og lýsi. Um er að ræða lið í eflingu starf- semi Matís á landsbyggðinni í takti við þjónustusamning þess efnis sem undirritaður var af Krist- jáni Þór Júlíussyni, sjávar- útvegs- og landbún- aðarráðherra, í nóvember 2020. Samningurinn felur í sér fjárveitingu upp á 80 millj- ónir króna á tveggja ára tímabili til að styrkja starfsemi sína og auka samvinnu við atvinnugreinar í þróun- ar- og rannsóknarstarfi. Þá var mark- mið samningsins sagt meðal annars vera „að færa starfsemi Matís nær viðskiptavinum og bæta verðmæta- sköpun til framtíðar með aukinni ný- sköpun, rannsóknar- og þróun- arvinnu“. Fram kemur í færslu á vef Síld- arvinnslunnar að þegar hafi verið gerðar tilraunir af ýmsum toga í fiski- mjölsverksmiðjunni í Neskaupstað, en það hefur verið gert að hluta til í lítilli verksmiðju í eigu Vélsmiðjunnar Héðins. Búnaðurinn sem Matís fjár- festir nú í er viðbót og er talinn auð- velda rannsóknir á umræddu sviði. „Með tilkomu nýja búnaðarins er verið að leggja áherslu á uppbygg- ingu svokallaðs lífmassavers eða upp- sjávarsmiðju í samstarfi við uppsjáv- ariðnaðinn hér eystra. Með tilkomu uppsjávarsmiðjunnar verður unnt að þróa nýja vinnsluferla og nýjar afurð- ir úr hliðarstraumum sem myndast við vinnslu á uppsjávarfiski til mann- eldis,“ er haft eftir dr. Stefáni Þór Eysteinssyni í færslunni, en hann hefur haft umsjón með þessum upp- sjávarverkefnum á vegum Matís. Í fjölmörg verkefni Tækin sem hafa verið keypt fyrir uppsjávarsmiðjuna eru úðaþurrkari sem á að geta framleitt próteinríkt duft og tilraunaskilvinda sem hægt er nota til að aðskilja fitu úr efni sem á að nýta í framleiðslu próteindufts. Einnig hefur verið keypt himnusíun- artæki sem tryggir að hægt verður að skima með meiri nákvæmni fyrir öðr- um lífvirkum efnum. „Þessi tæki munu mynda kjarna uppsjávarvers- ins en fleiri tæki munu einnig verða til staðar og þarna verða því gríð- arlega miklir möguleikar til rann- sókna fyrir hendi,“ segir Stefán Þór. „Tækjabúnaðurinn mun verða not- aður í fjölmörg verkefni. Má þar til dæmis nefna verkefnið „Prótein úr hliðarstraumum makríls“ sem er samvinnuverkefni Síldarvinnslunnar, Matís og Fóðurverksmiðjunnar Lax- ár. Þar munum við nýta uppsjáv- arsmiðjuna til framleiðslu á prótein- ríku dufti sem nýta má í fiskeldi eða, ef vel gengur, til manneldis. Í tilraun- unum í tengslum við fiskimjölsiðn- aðinn hefur verið leitast við að fram- leiða hágæðapróteinduft sem nýta mætti til manneldis og einnig hefur verið lögð áhersla á framleiðslu á lýsi með meiri gæðum en það lýsi sem nú er framleitt. Við hjá Matís bindum miklar vonir við uppsjávarsmiðjuna og sjáum hana fyrir okkur sem þró- unarsetur sem muni styðja við mat- vælaframleiðslu á landsbyggðinni. Þá eru bundnar vonir við að rannsókn- irnar sem fram munu fara í smiðjunni muni stuðla að aukinni verðmæta- sköpun,“ segir hann. Uppsjávarsmiðja skili auknum verðmætum Úðaþurrkari og himnusíun- artæki verða í uppsjávarsmiðj- unni. Slík tæki hafa ekki áður verið notuð við framleiðslu á mjöli og lýsi úr uppsjávarfiski. Er hægt að vinna verð- mætari afurðir úr hráefni sem nú er notað við framleiðslu á fiskimjöli og lýsi? Rannsóknum í nýrri uppsjávarsmiðju í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Nes- kaupstað er ætlað að svara þessari spurningu. Ljósmynd/Hákon Ernuson Fjöldi rannsókna mun nú fara fram í verksmiðjunni í Neskaupstað í samstarfi við Síldarvinnsluna. 18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Í fyrstu veiðiferð Vilhelms Þor-steinssonar náðust 3.100 tonn afkolmunna og 3.050 tonn í öðrum túr. Landað var í báðum tilfellum í Skagen í Danmörku og var ástæð- an að upp hafa komið „vandkvæði í löndunarbún- aðinum, sem hef- ur þurft að leysa úr í samstarfi við skipasmíðastöð- ina í Skagen,“ að því er fram kem- ur í færslu á vef Samherja. Þar segir að gera hafi þurft minni háttar lagfær- ingar á bún- aðinum en sökum kórónuveiru- faraldursins var ekki annarra kosta völ en að landa í Danmörku. Í þriðja túr var landað í Fær- eyjum en þá náði áhöfnin 2.000 tonnum af kolmunna og 2.200 tonnum í fjórða túr. Stefnt er að því að nýsmíði Samherja taki full- an þátt í makrílveiðunum undan Íslandi. „Það hefur allt gengið sam- kvæmt óskum hjá okkur. Við erum enn að læra á skipið en það hefur svo sannarlega staðið undir öllum þeim væntingum sem við gerum til þess,“ segir Guðmundur í færsl- unni. „Það að geta notað aðeins aðra aðalvélina við ýmsar aðstæður sparar gríðarlega mikið eldsneyti og því er kolefnissporið við veið- arnar mun minna en ella. Skipið fer létt með 12 mílur á klukku- stund á annarri vélinni, sem er býsna vel gert. Tækjabúnaðurinn er fram- úrskarandi og allur aðbúnaður um borð eins góður og hugsast getur. Þetta skip fer mjög vel með mann- skapinn, ef svo má segja, og ekki síður með aflann því kæligetan í tönkunum er mikil og lestarrýmin stór. Vilhelm EA er svo sannarlega eitt helsta flaggskip flotans og ber íslensku hugviti og útsjónarsemi fagurt vitni,“ segir skipstjórinn. Ljósmynd/Þórhallur Jónsson Óhætt er að segja að Vilhelm Þorsteinsson EA-11 sé glæsilegt uppsjávarskip. Enn að læra á skipið Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri telur Vilhelm Þorsteinsson EA-11 vera besta skip sem hann hafi stjórnað á ferli sínum. Guðmundur Þ. Jónsson Óskum sjómönnum til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.